Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020 Pepsi Max-deild karla Breiðablik – Fjölnir.................................. 3:1 Fylkir – Grótta ......................................... 2:0 Víkingur R. – FH...................................... 4:1 Staðan: Breiðablik 3 3 0 0 7:1 9 Valur 3 2 0 1 7:1 6 Stjarnan 2 2 0 0 6:2 6 FH 3 2 0 1 6:7 6 KR 3 2 0 1 3:4 6 Víkingur R. 3 1 2 0 5:2 5 ÍA 3 1 0 2 5:5 3 Fylkir 3 1 0 2 3:3 3 HK 3 1 0 2 5:7 3 KA 2 0 1 1 1:3 1 Fjölnir 3 0 1 2 3:8 1 Grótta 3 0 0 3 0:8 0 3. deild karla KFG – Ægir .............................................. 3:4 Staðan: Ægir 2 2 0 0 6:3 6 Reynir S. 2 2 0 0 5:3 6 Elliði 2 1 1 0 6:1 4 Tindastóll 2 1 1 0 4:3 4 KFG 2 1 0 1 7:5 3 KV 2 1 0 1 4:4 3 Álftanes 2 0 2 0 1:1 2 Augnablik 2 0 1 1 2:3 1 Höttur/Huginn 2 0 1 1 2:3 1 Sindri 2 0 1 1 2:5 1 Einherji 2 0 1 1 3:8 1 Vængir Júpiters 2 0 0 2 1:4 0 England Crystal Palace – Burnley........................ 0:1  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Staðan: Liverpool 31 28 2 1 70:21 86 Manch.City 31 20 3 8 77:33 63 Leicester 31 16 7 8 59:29 55 Chelsea 31 16 6 9 55:41 54 Wolves 32 13 13 6 45:34 52 Manch.Utd 31 13 10 8 48:31 49 Tottenham 31 12 9 10 50:41 45 Burnley 32 13 6 13 36:45 45 Sheffield Utd 31 11 11 9 30:31 44 Arsenal 31 10 13 8 43:41 43 Crystal Palace 32 11 9 12 28:37 42 Everton 31 11 8 12 38:46 41 Southampton 32 12 4 16 41:55 40 Newcastle 31 10 9 12 29:42 39 Brighton 31 7 12 12 34:41 33 Watford 32 6 10 16 29:49 28 West Ham 31 7 6 18 35:54 27 Bournemouth 31 7 6 18 29:50 27 Aston Villa 32 7 6 19 36:60 27 Norwich 31 5 6 20 25:56 21 Ítalía B-deild: Spezia – Pisa ............................................ 1:2  Sveinn Aron Guðjohnsen var varamaður hjá Spezia og kom ekki við sögu. Danmörk Fallkeppnin, riðill 1: OB – Lyngby............................................. 3:1  Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB vegna meiðsla.  Frederik Schram var varamarkvörður Lyngby og kom ekki við sögu.  Staðan: OB 42, SönderjyskE 36, Lyngby 33, Silkeborg 20. Tvær umferðir eru eftir, Silkeborg er þegar fallið. Grikkland Atromitos – Larissa................................. 3:0  Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Larissa og kom ekki við sögu.  Larissa er í þriðja sæti af átta liðum í fall- keppni deildarinnar en er 11 stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Svíþjóð Häcken – Helsingborg ............................ 1:0  Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik- mannahópi Häcken. Staðan: Norrköping 4 4 0 0 13:4 12 Varberg 4 2 1 1 9:5 7 AIK 4 2 1 1 7:6 7 Djurgården 4 2 0 2 8:5 6 Malmö 4 1 3 0 7:5 6 Häcken 4 1 3 0 5:4 6 Elfsborg 4 1 3 0 4:3 6 Kalmar 4 2 0 2 7:7 6 Gautaborg 4 1 2 1 6:6 5 Sirius 4 1 2 1 6:6 5 Örebro 4 1 2 1 3:4 5 Hammarby 4 1 1 2 5:6 4 Mjällby 4 1 1 2 4:6 4 Falkenberg 4 1 1 2 3:6 4 Östersund 4 0 1 3 2:8 1 Helsingborg 4 0 1 3 0:8 1 Spánn Getafe – Real Sociedad ............................ 2:1 Staða efstu liða: Real Madrid 32 21 8 3 60:21 71 Barcelona 32 21 6 5 72:33 69 Atlético Madrid 32 15 13 4 41:23 58 Sevilla 32 14 12 6 45:33 54 Getafe 32 14 10 8 42:30 52 Villarreal 32 15 6 11 51:40 51  KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Valur..................... 18 Í KVÖLD! SLEGGJUKAST Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Vigdís Jónsdóttir úr FH og ÍR- ingurinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir eru tveir bestu sleggjukastarar Ís- lands frá upphafi. Vigdís bætti Ís- landsmetið á Origo-móti FH í Kapla- krika á laugardag er hún kastaði 62,58 metra og bætti eigið met um 20 sentímetra. Elísabet var aðeins 16 ára gömul þegar hún bætti þágild- andi Íslandsmet Vigdísar á kastmóti UMSB í Borgarnesi í maí á síðasta ári, en hún kastaði þá 62,16 metra. Kepptu þær báðar á Innanfélags- móti ÍR í Laugardalnum í síðustu viku og þá hafði Elísabet betur, en hún kastaði 61,58 metra og Vigdís 61,49 metra. Morgunblaðið ræddi við Vigdísi og Elísabetu og viðurkenndu þær báðar að ákveðinn rígur hefði myndast á milli þeirra undanfarið og er baráttan um Íslandsmetið hörð. Guð minn góður, já „Það er rígur þarna á milli og við reynum að hrista upp í þessu hjá hvor annarri. Það er ekkert illt á bak við það, en auðvitað kemur pirringur ef maður missir met. Það er holl samkeppni og svo þegar upp er stað- ið er þetta bara leikur,“ sagði Vigdís, en hún viðurkennir að það hafi verið áfall að missa metið í fyrra. „Guð minn góður, já. Ég var á leiðinni á æfingu og ég sá þetta fyrir tilviljun á Instagram og ég trúði þessu ekki. Þetta var svakalegt spark í rassinn,“ sagði Vigdís. Hefur hún alls ellefu sinnum sett Íslandsmet í fullorð- insflokki en hún viðurkennir að það sé sætara að slá metið þegar sam- keppnin er meiri. „Áður en Elísabet tók metið af mér gerði ég ekki mikið mál úr þessu, en núna er þetta orðið sætara þar sem það er alvöru- samkeppni. Það er öðruvísi að ná metinu af annarri manneskju en að bæta eigið met. Staðreyndin er sú að það er kalt á toppnum og það er ekki gaman að gera þetta einn með sjálf- um sér.“ Staðráðin í að ná metinu aftur Skiljanlega var Elísabet aðeins kátari með að slá Íslandsmetið en Vigdís að missa það á síðasta ári. „Það var ótrúlega gaman að ná met- inu af henni í fyrra. Ég vissi alveg að ég ætti þetta inni en ég bjóst ekki endilega við því að kasta svona langt á þessu móti. Þetta var rosalega skemmtilegt. Það var svo spark í rassinn að missa metið og núna ætla ég mér að ná því aftur. Ég vissi að Vigdís ætti það alveg inni að ná met- inu aftur, en maður er aldrei búinn undir það að missa svona met. Ég var staðráðin í að ná því aftur um leið og ég missti það og það er engin spurning um að ég mun ná því. Ég hef nægan tíma, þar sem ég er enn bara 17 ára og verð 18 á þessu ári. Ég er rétt að byrja í þessu,“ sagði Elísabet. Þekkjast ekki vel Vigdís er fædd árið 1996, sex árum á undan Elísabetu. Hún viðurkennir að þær séu ekki nánar og aldurs- munurinn sé ein ástæða þess. Hefur Elísabet því ekki leitað ráða hjá reynslumeiri Vigdísi. „Ég get ekki sagt að við þekkjumst vel. Ég hef ekki verið í sambandi við hana eins og aðra kastara. Hún er sex árum yngri en ég og það spilar inn í þetta. Hún var að keppa í unglingaflokki lengur en ég og því var ekki sam- keppni á milli okkar fyrr en nýlega,“ sagði Vigdís. Meistaramót Íslands fer fram á Kópavogsvelli helgina 25.-26. júlí og búast þær báðar við spennandi keppni í sleggjukastinu. „Það er mjög spennandi að sjá hvernig þetta fer. Við getum báðar unnið þetta og við erum jafnar. Ég vann síðast með níu sentímetrum og þetta getur fallið hvoru megin sem er. Dagsformið skiptir öllu máli í svona keppni,“ sagði Elísabet. Vigdís spáir sögulegu meistaramóti, þar sem þær eru báð- ar í afar góðu formi og köstuðu báðar yfir 60 metra í Laugardalnum í síð- ustu viku. „Þetta var sögulegt í síð- ustu viku þegar við köstuðum báðar yfir 60 metra, það hefur aldrei gerst áður á Íslandi. Þetta verður svaka- legt á Meistaramótinu í júlí og von- andi söguleg keppni,“ bætti Vigdís við. Hafa þær báðar lent í áföllum síð- ustu mánuði. Vigdís nemur við Uni- versity of Memphis í Tennessee í Bandaríkjunum þar sem hún keppir sömuleiðis fyrir hönd skólans. Óvissa er með framhaldið vegna kórónu- veirunnar, sem hefur verið skæð í Bandaríkjunum. „Staðan er mjög óljós og hún verður bara óljósari. Nú er allt lokað og læst og það var meira að segja skipt um lás á æfingasvæð- inu úti svo enginn kæmist inn. Ég er skráð í áfanga á næsta ári og ég er búin að fá stundatöfluna mína og pósta um að skólinn byrji í ágúst aft- ur. Ástandið úti fer hins vegar versn- andi og það er allt í óvissu. Ég skráði mig í HÍ til öryggis og ég komst þangað inn, en núna er spurning hvað gerist næst,“ sagði FH- ingurinn. Æfði í stofunni heima Hún viðurkennir að góður árangur í byrjun sumars hafi komið sér á óvart, miðað við ástandið síðustu mánuði. „Þetta er betra en við mátti búast fyrir tímabilið. Miðað við ástandið átti ég ekki von á að þetta yrði gott tímabil. Ástandið hefur haft mikil áhrif á mig og ekki á góðan hátt. Ég er í skóla úti og þurfti að koma heim þar sem öllu var lokað og í leiðinni missti ég aðstöðuna mína til að æfa. Ég kom heim en þá var allt lokað þar líka. Ég gat kastað en ekki lyft neitt af viti. Ég leigði mér lóð en ég var ekki með neina aðstöðu svo ég æfði í stofunni heima, sem var erfitt. Þegar allt var opnað aftur var síðan erfitt að komast á flug aftur en þetta er allt að koma og ég er að finna gleðina í íþróttinni aftur,“ sagði hún. Vigdís viðurkennir að aukin sam- keppni sé að skila sér á keppnisvell- inum. „Það er mikill drifkraftur sem fylgir því að við Elísabet séum svona jafnar. Núna verður maður að vinna fyrir þessu og maður verður að gera hlutina 110 prósent,“ sagði Vigdís Jónsdóttir. Búin að ná sér eftir meiðsli Elísabet var að glíma við meiðsli síðari hluta síðasta árs en hún er loks komin almennilega af stað á ný. „Ég var að glíma við erfið meiðsli í mjó- bakinu sem höfðu mikil áhrif á æf- ingarnar í vetur. Undirbúnings- tímabilið síðasta haust var erfitt og ég æfði nánast ekkert í ágúst og september og mjög takmarkað út árið. Ég er sem betur fer öll að koma til og klár í sumarið. Ég kastaði yfir 60 metra strax á fyrsta móti sumars- ins og þetta var fínt fyrsta mót og gott að komast af stað. Ég veit ég get kastað lengra en þetta en ég get ekki kvartað miðað við að þetta hafi verið fyrsta mót mitt í sumar,“ sagði El- ísabet Rut. Reynum að hrista upp í þessu hvor hjá annarri  Vigdís og Elísabet bítast um Íslandsmetið  Samkeppnin drífur þær áfram Ljósmynd/FRÍ Ákveðin Hin unga Elísabet Rún Rúnarsdóttir ætlar sér að ná Íslandsmetinu af Vigdísi á nýjan leik. Ljósmynd/University of Memphis Reyndari Vigdís Jónsdóttir viðurkennir að það hafi ver- ið áfall að missa Íslandsmetið til Elísabetar í fyrra. Deildar- og bikarmeistarar Stjörn- unnar í körfubolta hafa fengið liðs- styrk því félagið hefur samið við Slóvenann Mirza Sarajlija. Sarajlija er 29 ára gamall bakvörður og lék síðast með Revda í B-deild Rúss- lands. Áður hefur hann leikið með liðum í Slóveníu, Króatíu, Svart- fjallalandi, Albaníu, Serbíu og Bosníu, m.a. unnið albanska meist- aratitilinn, og spilaði 17 ára gamall í Euroleague. Á hann að fylla í skarðið sem Nikolas Tomsick skilur eftir sig, en Tomsick samdi við Tindastól eftir síðasta tímabil. Slóveni á leið í Garðabæinn Ljósmynd/FIBA Reyndur Mirza Sarajlija hefur leik- ið körfubolta í mörgum löndum. Handknattleikskonan Hanna Guð- rún Stefánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun leika með liðinu næsta vetur. Verð- ur tímabilið það 26. hjá Hönnu í meistaraflokki. Hanna, sem er 41 árs, lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka tímabilið 1994/95 og skoraði sín fyrstu mörk í meistaraflokki tveim- ur árum síðar. Hefur hún verið í herbúðum Stjörnunnar frá árinu 2010. Þá hefur hún einnig leikið með Holstebro í Danmörku. Hanna skoraði 42 mörk í tólf leikjum í úr- valsdeildinni á síðustu leiktíð. Hanna tekur sitt 26. tímabil Morgunblaðið/Eggert 41 Hanna Guðrún Stefánsdóttir heldur áfram af fullum krafti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.