Morgunblaðið - 30.06.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 30.06.2020, Síða 27
Tilbúinn í stórt hlutverk Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Þrenna Óttar Magnús Karlsson fór illa með FH-inga í Fossvoginum í gær- kvöld og skoraði þrjú af fjórum mörkum Víkinga í leiknum. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Víkingar sýndu og sönnuðu í gær- kvöld að þeir hafa burði til að taka þátt í baráttunni í efri hluta úrvals- deildarinnar á þessu tímabili þegar þeir gjörsigruðu FH-inga 4:1 í Foss- voginum. Óttar Magnús Karlsson sýndi líka og sannaði að hann er tilbúinn til að fara fyrir Víkingum í þeirri baráttu en hann skoraði þrennu í leiknum, tvö glæsimörk með skalla og skoti, og eitt með ótrúlega nákvæmri aukaspyrnu, nánast frá endalínu, í tómt mark FH-inga.  Óttar Magnús hefur með þrennunni nú gert 16 mörk í 31 leik fyrir Víking í efstu deild. Hann er þegar kominn í 9. sætið yfir marka- hæstu Víkingana í deildinni og fór í gærkvöld uppfyrir þá Bjarna Guðnason, prófessor og fyrrverandi alþingismann, og Trausta Óm- arsson sem skoruðu báðir 15 mörk fyrir Víking í deildinni á sínum tíma og deila nú 10. sætinu á markalista þeirra.  Þetta var jafnframt önnur þrenna Óttars í deildinni en hann skoraði þrjú mörk í 3:1 sigri á Breiðabliki árið 2016. Hann og Björgólfur Takefusa (2011) eru einu Víkingarnir sem hafa skorað þrennu í deildinni frá árinu 1992.  Steven Lennon skoraði fyrir FH úr vítaspyrnu og gerði sitt 75. mark í efstu deild. Hann er sá fimm- tándi frá upphafi til að ná þeim markafjölda í deildinni.  Morten Beck Guldsmed, eða Morten Beck Andersen eins og hann heitir stundum, danski sóknarmað- urinn hjá FH, lék sinn 250. deilda- leik á ferlinum í gærkvöld. Morten Beck hefur spilað 11 leiki fyrir FH, 21 fyrir KR og 218 fyrir dönsku fé- lögin Viborg, Fredericia, Hobro, Silkeborg, Skive og AGF.  FH-ingurinn reyndi Pétur Við- arsson þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið höfuð- högg. Tveir aðrir reynsluboltar hjá FH, Guðmann Þórisson og Baldur Sigurðsson, voru ekki með í gær- Morgunblaðið/Eggert Tvenna Valdimar Þór Ingimundarson skoraði bæði mörk Fylkis gegn Gróttu en Helgi Valur Daníelsson slasaðist illa og var fluttur á sjúkrahús. kvöld – báðir voru hvíldir vegna höfuðhögga sem þeir höfðu fengið. „Kærkomin stig fyrir yfirlýsinga- glaða Víkinga sem hafa nú loksins komist á blað og það með því að vinna stórleik sannfærandi,“ skrifaði Kristófer Kristjánsson m.a. um leik- inn á mbl.is. Uppfylla fyrstu kröfurnar Blikar enda þriðju umferðina á toppnum með fullt hús stiga eftir 3:1 sigur á frískum Fjölnismönnum á Kópavogsvelli þar sem þrjár víta- spyrnur litu dagsins ljós. Anton Ari Einarsson í marki Blika varði eina þeirra frá Jóhanni Árna Gunnarssyni sem hefði getað jafnað metin af punktinum. „Leikmannahópur Breiðabliks er gríðarlega sterkur og verður áhuga- vert að sjá liðið þegar það mætir sterkari andstæðingum. Var gerð krafa á níu stig úr fyrstu þremur leikjunum og það má hrósa liðinu fyrir að ná því marki, þótt spila- mennskan hafi ekki verið glæsileg,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson á mbl.is.  Kristinn Steindórsson gerði fyrsta markið og hefur nú skorað í öllum þremur leikjum tímabilsins sem hann hefur spilað með Breiða- bliki. Tvö mörk í tveimur leikjum í deildinni og tvö mörk í einum bikar- leik. Þetta eru gríðarleg viðbrigði fyrir Kristin sem skoraði ekki mark í deildakeppni frá 2015 til 2019. Hann bætti hinsvegar markamet sitt fyrir Breiðablik og hefur nú skorað 36 mörk fyrir félagið í efstu deild, 34 þeirra á árunum 2007 til 2011.  Jón Gísli Ström skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann minnkaði muninn fyrir Fjölni úr vítaspyrnu. Þetta var hans fjórði leikur í deildinni en hann lék þrjá með ÍBV fyrir nokkrum árum. Sætt og súrt fyrir Fylki Gróttumenn sitja á botninum án stiga og marka eftir 2:0 tap gegn Fylki í Árbænum þar sem Valdimar Þór Ingimundarson skoraði bæði mörkin. Oliver Dagur Thorlacius gat kom- ið Gróttu á blað undir lokin en Aron Snær Friðriksson í marki Fylkis varði vítaspyrnu hans. „Þrátt fyrir að hafa verið lengi af stað fyrsta hálftímann voru yfir- burðir Fylkis miklir í Árbænum í kvöld og sigurinn verðskuldaður. Gróttumenn líta þó ekki vel út, hafa enn ekki skorað mark í efstu deild og hafa varla veitt mótherjum sínum alvöru mótspyrnu það sem af er móti,“ skrifaði Lilja Hrund Ava Lúð- víksdóttir m.a. um leikinn á mbl.is.  Helgi Valur Daníelsson, fyrir- liði Fylkismanna, meiddist illa snemma í seinni hálfleik og var flutt- ur á sjúkrahús. Óttast var að um fót- brot væri að ræða. Helgi er elsti úti- spilari deildarinnar í ár en hann verður 39 ára í næsta mánuði.  Þrenna frá Óttari Magnúsi og Víkingar sýndu hvað í þeim býr gegn FH  Blikar með fullt hús án þess að sýna sitt besta  Grótta án stiga og marka ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020 Undirritaður hefur nú gengið á bak orða sinna þriðja sumarið í röð. Pílagrímsferð til Grenivíkur hefur verið í kortunum síðan Magnamenn komust upp í fyrstu deildina fyrir þremur árum. En ávallt þegar Framararnir mínir eiga leið um Eyjafjörð er ég vant við látinn, einhverra hluta vegna. Við áhugamennirnir um knattspyrnu sjáum gjarnan róm- antík í því að keyra hingað og þangað í þrjá, sex eða níu klukkutíma til að sjá einn níutíu mínútna leik, með hléi. Í raun hefur enginn boltaunnandinn lif- að, fyrr en hann hefur lagt í slíkt ferðalag. En ekki komst ég til Grenivíkur í sumar, enn eina ferðina; og er það sérlega ergilegt í ljós þess að mínir menn kváðu loks niður Magna-grýluna. Ekki er þó ástæða til að ör- vænta. Fyrsta deildin býður upp á óteljandi tækifæri til ferðalaga á hvert landshorn. Það er í raun varla farandi á útileik, nema menn séu tilbúnir að leggja á sig erfitt og jafnvel glæfralegt ferða- lag. Það er erfitt að vera í fyrstu deild, vegna þess að það á að vera erfitt! Í sumar hef ég hugsað mér að heimsækja Leiknismenn á Fá- skrúðsfirði, Víkinga í Ólafsvík og ÍBV í Vestmannaeyjum. Það hlýt- ur að vera fátæklegt að búa á höfuðborgarsvæðinu og styðja lið í efstu deild. Jú jú, þú getur skroppið á Ak- ureyri og hætt þér í gegnum Hvalfjarðargöngin en rómantíkin er ekki mikil í því. Fína fólkið ekur um á milli Hlíðarenda, Kópavogs og Kapla- krika og horfir á knattleiki í nú- tímaglæsihýsum án þess að þurfa nokkuð að hafa fyrir hlut- unum. Og svo sleikur og putt fyrir af- ganginn! Það er nú ekki öfunds- vert að vera í þessari svokölluðu úrvalsdeild. BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Burnley lyfti sér upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu í gærkvöld með góðum úti- sigri á Crystal Palace í London, 1:0. Miðvörðurinn Ben Mee skoraði sigurmarkið á 62. mínútu og hélt með því upp á stóran áfanga en hann lék sinn 300. deildaleik fyrir félagið. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla. Burnley er komið með 45 stig og fór uppfyrir Palace, Arsenal og Sheffield United og í áttunda sætið, með jafnmörg stig og Tottenham sem er í 7. sæti. Burnley komið í áttunda sætið AFP 300 Ben Mee hélt upp á áfangaleik- inn með sigurmarki Burnley. Öllum leikmönnum í úrvalsdeildum karla og kvenna í fótbolta stendur til boða að fara í skimun hjá Ís- lenskri erfðagreiningu í þessari viku í kjölfarið á smitunum sem upp hafa komið síðustu daga. Frestuðum leikjum fjölgaði í gær þegar næstu tveimur leikjum kvennaliðs Fylkis var frestað vegna smits í herbúðum félagsins. Þar með standa eftir aðeins fjórir leikir af þeim tíu sem fram áttu að fara í næstu tveimur umferðum kvenna- deildarinnar. Enn hefur aðeins ein- um karlaleik verið frestað. Allir í skimun og frestað hjá Fylki Morgunblaðið/Árni Sæberg Sóttkví Smit kom upp í röðum Fylkiskvenna um helgina. BREIÐABLIK – FJÖLNIR 3:1 1:0 Kristinn Steindórsson 8. 2:0 Thomas Mikkelsen (víti) 56. 2:1 Jón Gísli Ström (víti) 73. 3:1 Gísli Eyjólfsson 84. M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Ingibergur Kort Sigurðsson (Fjölni) Örvar Eggertsson (Fjölni) Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni) Jón Gísli Ström (Fjölni) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7. Áhorfendur: 1.335. VÍKINGUR R. – FH 4:1 1:0 Óttar Magnús Karlsson 26. 2:0 Davíð Örn Atlason 38. 3:0 Óttar Magnús Karlsson 45. 3:1 Steven Lennon (víti) 51. 4:1 Óttar Magnús Karlsson 84. MM Óttar Magnús Karlsson (Víkingi) M Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Erlingur Agnarsson (Víkingi) Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Hörður Ingi Gunnarsson (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Dómari: Pétur Guðmundsson – 6. Áhorfendur: 1.152. FYLKIR – GRÓTTA 2:0 1.0 Valdimar Þór Ingimundarson (v) 63. 2:0 Valdimar Þór Ingimundarson 73. MM Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki) M Daði Ólafsson (Fylki) Birkir Eyþórsson (Fylki) Pétur Theódór Árnason (Gróttu) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 6. Áhorfendur: 915.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.