Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var stofnuð 1. janúar árið 2020 við sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Sameiningin átti að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðis- og mannvirkjamál á einum stað ásamt því að efla stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta fyrir almenning. Hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja almenningi aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem er til eignar eða leigu. Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfar öflugur hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Stofnunin hefur aðsetur á tveimur stöðum, annars vegar í Borgartúni í Reykjavík, þar sem starfa rúmlega 80 starfsmenn og hins vegar á Sauðárkróki þar sem starfa rúmlega 20 starfsmenn. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar má finna á: www.hms.is Um framtíðarstörf er að ræða og fullt starf. Áætlað er að ráða í u.þ.b. 5-7 stöðugildi sérfræðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. • Menntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla af brunahönnun og brunavörnum • Áhugi og þekking á málum sem snúa að brunavörnum • Forystuhæfileikar og drifkraftur • Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar • Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Skipulagning og samræming eftirlits með öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna • Umsjón með brunavarnaáætlunum sveitarfélaga • Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir fagaðila • Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um eldvarnir • Úrvinnsla tölfræðiupplýsinga • Aðkoma að rannsóknum í kjölfar eldsvoða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugum sérfræðingum til að taka þátt í uppbyggingu á nýju sviði eldvarna hjá stofnuninni sem staðsett verður á Sauðárkróki. Hlutverk sviðsins er að sinna lögbundnu eftirliti og samræmingarhlutverki á sviði eldvarna. Sviðið hefur eftirlit með slökkvistarfi á Íslandi, samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga, annast rannsóknir, fræðslu og forvarnir á sviði eldvarna og annast löggildingu slökkviliðsmanna. Eldvarnasvið ber jafnframt ábyrgð á starfrækslu Brunamálaskólans. Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni: Sérfræðingur á sviði brunavarna Sérfræðingur á sviði slökkvistarfs • Reynsla af slökkvistarfi eða þekking á starfsemi slökkviliða • Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar • Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum • Reynsla af skipulagningu fræðslustarfs er kostur • Reynsla af gæðaeftirliti og úttektum er kostur • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Skipulagning á eftirliti með starfi slökkviliða og gerð leiðbeininga • Umsjón með úttektum á slökkviliðum og búnaði slökkviliða og eftirfylgni • Skipulagning og umsjón með öllu námi innan Brunamálaskólans • Mat á fræðsluþörfum slökkviliðsmanna og námsmat • Löggilding slökkviliðsmanna og starfsleyfi • Samskipti við hagsmunaaðila og svörun fyrirspurna Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni: Forvarnarfulltrúi • Menntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegu starfi • Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar • Reynsla af gerð og útgáfu kynningarefnis er kostur • Þekking á stafrænum miðlum og samskiptaleiðum er kostur • Reynsla af skipulagningu fræðslu og kynningum er kostur • Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum er skilyrði • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði • Skipulagning og umsjón forvarnarstarfs á sviði eldvarna • Umsjón með gerð og útgáfu kynningarefnis og leiðbeininga • Umsjón með kynningum, námskeiðum og forvarnarfræðslu • Samstarf við hagsmunaaðila á sviði forvarnarstarfs um eldvarnir • Þátttaka í verkefnum eldvarnasviðs Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni: Viltu efla brunavarnir á Íslandi og byggja upp nýtt eldvarnasvið á Sauðárkróki? Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.