Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020 Guðmundur Andri Tryggvason hef- ur framlengt samning sinn við norska knattspyrnufélagið Start til þriggja ára, eða út árið 2023. Hann kom til félagsins frá KR 2018 en á enn eftir að spila deildaleik með því. Guðmundur var lánaður til Vík- ings í fyrra og var þá markahæsti leikmaður liðsins í úrvalsdeildinni með 7 mörk í 16 leikjum. Hann hef- ur misst af fimm fyrstu leikjum Start í norsku úrvalsdeildinni í sumar vegna meiðsla en Jóhannes Harðarson þjálfari segir hann vera framtíðarmann fyrir liðið. Samdi við Start til ársins 2023 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Start Guðmundur Andri Tryggva- son lék með Víkingum í fyrra. Nokkrar líkur eru á að Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsmaður í knattspyrnu leiki fyrsta leik sinn með Burnley í sex mánuði á morg- un þegar lið hans tekur á móti Shef- field United í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann hefur ekki spilað frá 4. jan- úar en hann hefur glímt við þrálát meiðsli í kálfa frá síðasta hausti. Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, sagði í gær að góðar líkur væru á að Jóhann kæmi við sögu í leiknum en farið hefði verið var- lega með að ýta honum aftur af stað vegna meiðslanna. Morgunblaðið/Hari Fjarvera Jóhann Berg Guðmunds- son hefur verið lengi frá keppni. Gæti spilað eft- ir hálfs árs hlé DANMÖRK Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Eggert Gunn- þór Jónsson varð danskur bikarmeist- ari með liði sínu SønderjyskE á mið- vikudaginn eftir 2:0-sigur gegn AaB frá Álaborg í úrslitaleik dönsku bik- arkeppninnar sem fram fór í Esbjerg. Eggert, sem er 31 árs gamall, lék sem miðvörður í leiknum en honum var skipt af velli á 63. mínútu eftir að hafa fengið gula spjaldið á 32. mín- útu. Þetta er fyrsti stóri titillinn í sögu SønderjyskE en Eggert hefur leikið með liðinu frá árinu 2017. „Við bjuggumst að sjálfsögðu við erfiðum leik enda eru þeir með virki- lega gott lið,“ sagði Eggert Gunnþór í samtali við Morgunblaðið. „Úrslitin voru ekki búin að detta með þeim í undanförnum leikjum á meðan það hefur verið ágætisstígandi í leikjum okkar þar sem við höfum náð í góð úr- slit. Við mættum mjög vel stemmdir til leiks og með gott hugarfar líka. Þeir eru stærri klúbbur en við og ofar í töflunni líka en í bikarnum þá er það dagsformið sem skiptir mestu máli. Við mættum mjög tilbúnir til leiks og vissum upp á hár hvernig þeir ætluðu sér að spila leikinn. Þegar leikplanið þeirra gekk ekki upp fannst mér þeir fara aðeins inn í skelina og þeir voru hálfráðþrota ef svo má segja. Heilt yfir fannst mér við vera betra liðið, þeir gerðu lítið og sköpuðu sér fá færi, og sigurinn var því bara sanngjarn þegar uppi var staðið.“ Hvatningin til staðar SønderjyskE er ungt félag sem var stofnað árið 2004, þegar nokkur félög á Suður-Jótlandi voru sameinuð, og hafði, fram að leik miðvikudagsins, aldrei unnið stóran titil í knattspyrn- unni. „Það var mikil hvatning fyrir okk- ur fyrir leikinn, vitandi það að SønderjyskE hafði aldrei unnið stór- an titil áður. Að sama skapi þarf lítið að hvetja mann áfram þegar það er bikar í boði og það var í sjálfu sér al- veg næg hvatning fyrir leikmenn liðsins fyrir leikinn. Þá snerist þetta líka um það að reyna búa til ákveðna sigurhefð fyrir klúbbinn og það var virkilega gaman að fá að taka þátt í því. Það eina sem var leiðinlegt við þennan leik var hversu fáir stuðningsmenn gátu fagnað með okkur í leikslok vegna kórónuveirufaraldursins. Vonandi fáum við hins vegar tíma til þess að fagna með stuðnings- mönnunum, þegar líða fer á sum- arið, en eftir á er ég fyrst og fremst stoltur að hafa verið hluti af fyrsta liðinu hjá SønderjyskE sem vinnur bikar.“ Líður vel í Danmörku Eggert býr ásamt konu sinni og dóttur í Haderslev sem er rúmlega 20.000 manna bær á Suður-Jótlandi í Danmörku en óvíst er hvað tekur við hjá honum eftir sumarið. „Mér líður mjög vel í Danmörku og hjá SønderjyskE. Bærinn er hæfilega stór og hér er mjög nota- legt að vera. Mér líkar vel að spila með SønderjyskE þannig að það er lítið hægt að setja út á lífið hérna í Danmörku sem hentar bæði mér og fjölskyldunni mjög vel. Ég verð samningslaus eftir tíma- bilið og ég geri fastlega ráð fyrir því að forráðamenn félagsins muni setj- ast niður með mér að tímabili loknu. Við erum ekki enn þá öruggir um sæti í efstu deild á næstu leiktíð og núna er markmiðið einfaldlega að enda í efstu tveimur sætum okkar fallriðils og sleppa þannig við umspil um fall úr deildinni. Að enda í efstu tveimur sætunum myndi líka gera það að verkum að við færum í umspil um síðasta lausa Evrópusæti dönsku úrvalsdeildarinnar þótt bikarsig- urinn á dögunum hafi að sjálfsögðu tryggt okkur Evrópusæti.“ Skoðar öll tilboð Leikmaðurinn útilokar ekki að snúa aftur heim til Íslands í sumar en hann er frá Eskifirði og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Fjarðabyggð árið 2004. „Það er aðrir möguleikar í stöð- unni fyrir mig en ég ákvað að klára tímabilið með SønderjyskE áður en ég færi að taka ákvörðun um fram- haldið. Ég reikna hins vegar með því að mín mál muni skýrast á næstu tveimur til þremur vikum.“ Ég er ekki að yngjast neitt því miður og það hefur alveg komið til tals að snúa heim til Íslands. Það hafa einhver lið heima haft samband en það hafa engar viðræður átt sér stað. Ég mun skoða öll tilboð sem berast, þegar þar að kemur, og taka svo ákvörðun sem hentar fjölskyld- unni og fótboltaferlinum best á þess- um tiltekna tímapunkti.“ Líkaminn í góðu standi Eggert á að baki 21 A-landsleik fyrir Ísland en hann hefur sloppið vel við meiðsli á tíma sínum hjá danska liðinu. „Líkaminn er í toppstandi og ég hef ekki lent í miklum meiðslum hjá Søn- derjyskE undanfarið, og hef spilað flesta leiki með liðinu. Ég var frá í fjóra mánuði fyrst þegar að ég kom til félagsins, fyrir þremur og hálfu ári síðan, en síðan þá hef ég sloppið nokkuð vel og hef ekki misst mikið úr. Það hefur verið gaman að vera fastamaður í liðinu og að geta líka miðlað af reynslu sinni til yngri leik- manna. Við erum með ungan hóp sem hefur kannski aðeins þurft að beina í rétta átt á köflum og það hefur verið gott að geta gefið aðeins af sér. Þegar kemur að íslenska landslið- inu þá vill maður auðvitað alltaf vera hluti af því en að sama skapi hef ég ekki verið mikið inni í myndinni að undanförnu. Ég reyni þess vegna að einbeita mér bara að því að standa mig vel fyrir SønderjyskE og svo vonar maður bara að eftir því sé tekið,“ sagði Eggert Gunnþór í sam- tali við Morgunblaðið. Stoltur af fyrsta bikar- sigrinum Ljósmynd/Aðsend SønderjyskE Eggert Gunnþór Jónsson með danska bikarinn í búningsklef- anum eftir sigurinn á AaB. Liðið er þar með komið með Evrópusæti.  Eggert Gunnþór Jónsson vann fyrsta stóra titilinn í sögu SønderjyskE Pepsi Max-deild karla Valur – ÍA.................................................. 1:4 Staðan: Breiðablik 3 3 0 0 7:1 9 Stjarnan 2 2 0 0 6:2 6 ÍA 4 2 0 2 9:6 6 Valur 4 2 0 2 8:5 6 FH 3 2 0 1 6:7 6 KR 3 2 0 1 3:4 6 Víkingur R. 3 1 2 0 5:2 5 Fylkir 3 1 0 2 3:3 3 HK 3 1 0 2 5:7 3 KA 2 0 1 1 1:3 1 Fjölnir 3 0 1 2 3:8 1 Grótta 3 0 0 3 0:8 0 Lengjudeild karla ÍBV – Víkingur Ó ..................................... 2:0 Magni – Leiknir F .................................... 0:2 Keflavík – Leiknir R ................................ 1:2 Fram – Afturelding.................................. 1:0 Staðan: Fram 3 3 0 0 6:1 9 ÍBV 3 3 0 0 6:1 9 Þór 3 3 0 0 7:3 9 Leiknir R. 3 2 1 0 5:2 7 Keflavík 3 2 0 1 10:3 6 Grindavík 2 1 0 1 2:2 3 Leiknir F. 3 1 0 2 4:6 3 Víkingur Ó. 3 1 0 2 2:6 3 Vestri 2 0 1 1 0:2 1 Magni 3 0 0 3 1:6 0 Þróttur R. 3 0 0 3 1:6 0 Afturelding 3 0 0 3 2:8 0 2. deild karla Selfoss – Völsungur.................................. 2:1 ÍR – Dalvík/Reynir................................... 3:4 Þróttur V. – Haukar................................. 1:2 Staðan: Kórdrengir 3 3 0 0 9:0 9 Haukar 3 3 0 0 8:4 9 Selfoss 3 2 0 1 7:6 6 Njarðvík 3 2 0 1 5:5 6 Dalvík/Reynir 3 1 1 1 5:7 4 Fjarðabyggð 2 1 0 1 5:3 3 KF 3 1 0 2 3:4 3 Víðir 2 1 0 1 1:3 3 ÍR 3 1 0 2 5:8 3 Þróttur V. 3 0 2 1 3:4 2 Kári 3 0 1 2 6:8 1 Völsungur 3 0 0 3 4:9 0 3. deild karla KV – Vængir Júpíters.............................. 5:1 Ægir – Álftanes ........................................ 1:2 Staðan: KV 3 2 0 1 9:5 6 Ægir 3 2 0 1 7:5 6 Reynir S. 2 2 0 0 5:3 6 Álftanes 3 1 2 0 3:2 5 Elliði 2 1 1 0 6:1 4 Tindastóll 2 1 1 0 4:3 4 KFG 2 1 0 1 7:5 3 Augnablik 2 0 1 1 2:3 1 Höttur/Huginn 2 0 1 1 2:3 1 Sindri 2 0 1 1 2:5 1 Einherji 2 0 1 1 3:8 1 Vængir Júpiters 3 0 0 3 2:9 0 Lengjudeild kvenna Víkingur R. – Tindastóll .......................... 1:3 Staðan: Keflavík 3 2 1 0 10:1 7 Tindastóll 3 2 1 0 6:2 7 Haukar 3 1 2 0 5:3 5 Grótta 3 1 2 0 2:1 5 Afturelding 3 1 1 1 2:2 4 ÍA 3 0 3 0 4:4 3 Víkingur R. 3 0 1 2 2:6 1 Augnablik 2 0 1 1 1:6 1 Fjölnir 2 0 0 2 0:3 0 Völsungur 1 0 0 1 0:4 0 England B-deild: Charlton – Millwall.................................. 0:1  Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik- mannahópi Millwall. Staða efstu liða: Leeds 40 22 9 9 60:33 75 WBA 40 20 14 6 67:38 74 Brentford 40 20 9 11 70:33 69 Nottingham F. 40 18 13 9 53:40 67 Fulham 40 19 10 11 54:44 67 Cardiff 40 15 16 9 57:51 61 Derby 40 16 12 12 55:52 60 Millwall 41 14 17 10 48:44 59 Ítalía B-deild: Frosinone – Spezia .................................. 2:1  Sveinn Aron Guðjohnsen var allan tím- ann á varamannabekk Spezia. Noregur B-deild: Grorud – Lilleström ................................ 0:1  Arnór Smárason var ekki í leikmanna- hópi Lilleström. Tromsö – Raufoss .................................... 0:1  Adam Örn Arnarson lék allan leikinn með Tromsö. Spánn Atlético Madrid – Mallorca ..................... 3:0 Staða efstu liða: Real Madrid 33 22 8 3 61:21 74 Barcelona 33 21 7 5 74:35 70 Atlético Madrid 34 16 14 4 46:25 62 Sevilla 33 15 12 6 48:33 57 Villarreal 33 16 6 11 53:40 54 Getafe 33 14 10 9 42:31 52 Real Sociedad 33 15 5 13 50:42 50 Athletic Bilbao 33 12 12 9 38:28 48  Níu leikmenn NBA-deildarinnar í körfubolta greindust með kórónuveiruna er skimað var innan deildarinnar í vik- unni. Tæp vika er í að liðin ferðast til Florida til að klára yfirstandandi tímabil sem hefur verið í frí síðan í mars. Alls hafa 25 leikmenn og tíu aðrir starfsmenn félaga greinst með veiruna síðan deildin byrjaði að skima leik- menn 23. júlí. „Allir leikmenn sem greinast með veiruna verða í einangrun þar til þeir jafna sig,“ segir í yfirlýsingu sem deildin sendi frá sér. Munu lið ferðast til Orlando í Florida 7. júlí næstkomandi en áætlað er að deildin hefji göngu sína á nýjan leik 30. júlí. Leikmenn, þjálfarar og annað starfsfólk munu búa í Walt Disney-garðinum á með- an tímabilið er klárað, en allir leikir fara fram á sama velli. Níu smit til viðbótar í NBA LeBron James Þýskalandsmeistarar Bayern München í knattspyrnu hafa staðfest komu sóknarmannsins Leroy Sané til félagsins. Félagaskiptin hafa legið lengi í loftinu, en Sané hefur verið sterklega orðaður við Bæjara í allan vetur. Sané skrifar undir fimm ára samning við Bayern, en hann kemur til fé- lagsins frá Manchester City. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það er talið vera í kringum 55 milljónir punda. Sané hefur leikið með City frá 2016, en hann er 24 ára gamall. Hann vildi ekki skrifa undir nýjan samning við fé- lagið og því ákvað að City að selja hann núna í stað þess að missa sóknarmanninn frítt næsta sumar. Sané varð tví- vegis Englandsmeistari með City á tíma sínum á Englandi og þá var hann valinn bestu ungi leikmaður deildarinnar tímabilið 2017-18. Orðinn leikmaður Bayern Leroy Sané

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.