Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020 Stigveldi, myndlistarsýning Sig- urðar Atla Sigurðarsonar, opnaði í Ásmundarsal síðastliðinn fimmtu- dag. Þetta er fyrsta einkasýning Sigurðar Atla í Reykjavík sem er af þessari stærðargráðu. Þar má sjá þær aðferðir sem Sigurður hefur verið að þróa til að vinna með kart- onskurð sem aðferð við listsköpun og silkiþrykk á striga. Sigurður Atli stundaði nám við Listaháskóla Íslands og École Supérieure d’Art et de Design Marseille-Méditerr- anée. Hann hefur haldið ýmsar einkasýningar og samsýningar bæði hérlendis og erlendis; í Prag, París og New York. Myndlistarmaður Sigurður Atli vinnur með kartonskurð og silkiþrykk. Sýning Sigurðar Atla í Ásmundarsal Sýningin Shape- less Vibrations opnar í Mid- punkt, í Hamra- borg í Kópavogi, kl. 16 í dag, laug- ardaginn 4. júlí. Shapeless Vibra- tions er samsýn- ing tveggja lista- kvenna, hinnar frönsku Claire Paugam og hinnar íslensku Valgerðar Ýrar Magnús- dóttur. Þær stunduðu báðar nám við Listaháskóla Íslands. Með inn- setningum listakvennanna skoða þær hugmyndina um formleysu, viðfangsefni sem þær kanna í gegn- um listsköpun sína. Þess má geta að Claire Paugam hlaut hvatningar- verðlaun Íslensku myndlistar- verðlaunanna fyrr á árinu. Kanna formleysu á samsýningu Claire Paugam TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ólafur okkar Björn Ólafssoner að upplagi trymbill einsog við þekkjum en hann hef- ur og standsett sig sem marghátt- aðan hljóðfæraleikara og tónskáld á síðustu árum. Jo Berger Myhre er kontrabassaleikari en fer, eins og Ólafur, inn á mörg tónlistarleg svið sömuleiðis. Fyrsta plata þeirra sem dúetts var The Third Script (2017) en sú síðari, Lanz- arote, kom út síðasta haust. Fyrir báðar plötur hafa þeir verið til- nefndir til ýmissa verðlauna, t.a.m. norsku Spellemann-tónlistarverð- launanna og íslensku tónlistarverð- launanna. Í báðum tilfellum í svo- felldum opnum flokki, enda tónlistin afar óræð verður að segjast. Giska aðgengileg Fyrri platan var unnin svo til eingöngu af þeim félögum en í þetta sinnið fengu þeir aðstoð frá Íslandi. Eiríkur Orri Ólafsson blæs í tromp- et og Ingi Garðar Erlendsson blæs í túbu og básúnu. Það er Hubro, norsk útgáfa sem er helguð þar- lendri djass- og spunatónlist, sem gefur út, en það er undirmerki Grappa, sem er stærsta óháða út- gáfa Noregs. Plötuumslögin eru hönnuð af Yokoland og fylgja sömu fagurfræðilegu línu (ekki ósvipað og hjá ECM). Lanzarote var hljóð- rituð í Reykjavík og Ósló en þeir fé- lagar hafa einnig náð að spila efnið á tónleikum, m.a. í Mengi hér á landi. Tónlistin er óræð eins og segir. Á mörkum „ambient“-tónlistar og einhvers konar djass. Giska að- gengileg en með óvæntum snún- ingum um leið. Hægstreym og stillt Að byggja á bjargi Ljósmynd/Jenny Berger Myhre með miklu rými. Platan er ekki nema rétt rúmur hálftími en að sama skapi þétt og áhrifarík, ein- mitt fyrir þær sakir. Stök píanóslög fá að titra lengi lengi og blástur þeirra Eiríks og Inga liggur undir í einslags snotrum drunga ef hægt er að lýsa því svo! Meðfram þessu skjóta raf- og áhrifshljóð upp kolli. Stundum er framvindan eins og um framsækna nútímaklassík sé að ræða en maður heyrir líka í rokk- og poppbakgrunni þeirra félaga nokk- uð greinilega. Allir þessir ólíku vinklar byggja síðan undir sannfær- andi og heilsteypt verk. Lanzarote er nefnilega falleg plata. Stillt og íhugul. Sorgbundin en uppfull af vonarglætum um leið. Tilfinningaríkt og gróteskt „Platan tók lengri tíma en sú fyrsta,“ segir Óli Björn í opinberri tilkynningu: „En líkt og síðast, þá er þetta byggt á spuna fyrst og fremst. Svo er nostrað hressilega við þetta í eftirvinnslunni; hljóðfærum og hljóðum bætt við eins og þurfa þykir.“ Lanzarote er nafn á eyju í Kan- aríeyjaklasanum en líka nafn á prósa eftir Michel Houellebecq en þeir félagar hafa verið að lesa verk hans og ræða. Jo Berger Myhre seg- ir í sömu tilkynningu að þeir hafi heillast af andstæðunum hjá Houellebecq, þessu tilfinningaríka og þessu gróteska, og að platan búi yfir þessu sama að einhverju leyti. Tileinkað Jóhanni Upphafslagið „Grain of sand“ er þá tileinkað Jóhanni Jóhannssyni heitnum en hann og Ólafur störfuðu náið saman í gegnum hin ýmsu verkefni. Lagið hljómar eins og meðvituð hylling, býr yfir sömu djúpu melankólíunni og mörg verka Jóhanns. Ólafur heldur áfram í nefndri tilkynningu: „Lagið er upp- fullt af sorg,“ staðfestir hann. „Við sömdum það nokkrum dögum eftir harmafregnina. Lanzarote er líka um leið sá staður sem við hittumst síðast á. Við höfðum spilað saman á tónleikum í helli einum og sögðum bless á flugvellinum. Grínuðumst með að næst yrðum við að fara á ströndina.“ »Lanzarote er nefni-lega falleg plata. Stillt og íhugul. Sorg- bundin en uppfull af vonarglætum um leið. Hljóðfæraleikararnir Ólafur Björn Ólafsson og Jo Berger Myhre hafa nú gefið út tvær plötur í sameiningu og hafa þær vakið verðskuldaða athygli í tónlistarkreðsum Norðurlandanna. Tveir Ólafur Björn Ólafs- son og Jo Berger Myhre. Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Sýnd með íslensku tali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.