Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Stigveldi, myndlistarsýning Sig-
urðar Atla Sigurðarsonar, opnaði í
Ásmundarsal síðastliðinn fimmtu-
dag. Þetta er fyrsta einkasýning
Sigurðar Atla í Reykjavík sem er af
þessari stærðargráðu. Þar má sjá
þær aðferðir sem Sigurður hefur
verið að þróa til að vinna með kart-
onskurð sem aðferð við listsköpun
og silkiþrykk á striga. Sigurður
Atli stundaði nám við Listaháskóla
Íslands og École Supérieure d’Art
et de Design Marseille-Méditerr-
anée. Hann hefur haldið ýmsar
einkasýningar og samsýningar
bæði hérlendis og erlendis; í Prag,
París og New York.
Myndlistarmaður Sigurður Atli vinnur
með kartonskurð og silkiþrykk.
Sýning Sigurðar
Atla í Ásmundarsal
Sýningin Shape-
less Vibrations
opnar í Mid-
punkt, í Hamra-
borg í Kópavogi,
kl. 16 í dag, laug-
ardaginn 4. júlí.
Shapeless Vibra-
tions er samsýn-
ing tveggja lista-
kvenna, hinnar
frönsku Claire Paugam og hinnar
íslensku Valgerðar Ýrar Magnús-
dóttur. Þær stunduðu báðar nám
við Listaháskóla Íslands. Með inn-
setningum listakvennanna skoða
þær hugmyndina um formleysu,
viðfangsefni sem þær kanna í gegn-
um listsköpun sína. Þess má geta að
Claire Paugam hlaut hvatningar-
verðlaun Íslensku myndlistar-
verðlaunanna fyrr á árinu.
Kanna formleysu
á samsýningu
Claire Paugam
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ólafur okkar Björn Ólafssoner að upplagi trymbill einsog við þekkjum en hann hef-
ur og standsett sig sem marghátt-
aðan hljóðfæraleikara og tónskáld á
síðustu árum. Jo Berger Myhre er
kontrabassaleikari en fer, eins og
Ólafur, inn á mörg tónlistarleg svið
sömuleiðis. Fyrsta plata þeirra sem
dúetts var The
Third Script
(2017) en sú
síðari, Lanz-
arote, kom út
síðasta haust.
Fyrir báðar
plötur hafa
þeir verið til-
nefndir til ýmissa verðlauna, t.a.m.
norsku Spellemann-tónlistarverð-
launanna og íslensku tónlistarverð-
launanna. Í báðum tilfellum í svo-
felldum opnum flokki, enda tónlistin
afar óræð verður að segjast.
Giska aðgengileg
Fyrri platan var unnin svo til
eingöngu af þeim félögum en í þetta
sinnið fengu þeir aðstoð frá Íslandi.
Eiríkur Orri Ólafsson blæs í tromp-
et og Ingi Garðar Erlendsson blæs í
túbu og básúnu. Það er Hubro,
norsk útgáfa sem er helguð þar-
lendri djass- og spunatónlist, sem
gefur út, en það er undirmerki
Grappa, sem er stærsta óháða út-
gáfa Noregs. Plötuumslögin eru
hönnuð af Yokoland og fylgja sömu
fagurfræðilegu línu (ekki ósvipað
og hjá ECM). Lanzarote var hljóð-
rituð í Reykjavík og Ósló en þeir fé-
lagar hafa einnig náð að spila efnið
á tónleikum, m.a. í Mengi hér á
landi.
Tónlistin er óræð eins og segir.
Á mörkum „ambient“-tónlistar og
einhvers konar djass. Giska að-
gengileg en með óvæntum snún-
ingum um leið. Hægstreym og stillt
Að byggja á bjargi
Ljósmynd/Jenny Berger Myhre
með miklu rými. Platan er ekki
nema rétt rúmur hálftími en að
sama skapi þétt og áhrifarík, ein-
mitt fyrir þær sakir. Stök píanóslög
fá að titra lengi lengi og blástur
þeirra Eiríks og Inga liggur undir í
einslags snotrum drunga ef hægt er
að lýsa því svo! Meðfram þessu
skjóta raf- og áhrifshljóð upp kolli.
Stundum er framvindan eins og um
framsækna nútímaklassík sé að
ræða en maður heyrir líka í rokk- og
poppbakgrunni þeirra félaga nokk-
uð greinilega. Allir þessir ólíku
vinklar byggja síðan undir sannfær-
andi og heilsteypt verk. Lanzarote
er nefnilega falleg plata. Stillt og
íhugul. Sorgbundin en uppfull af
vonarglætum um leið.
Tilfinningaríkt og gróteskt
„Platan tók lengri tíma en sú
fyrsta,“ segir Óli Björn í opinberri
tilkynningu: „En líkt og síðast, þá er
þetta byggt á spuna fyrst og fremst.
Svo er nostrað hressilega við þetta í
eftirvinnslunni; hljóðfærum og
hljóðum bætt við eins og þurfa
þykir.“
Lanzarote er nafn á eyju í Kan-
aríeyjaklasanum en líka nafn á
prósa eftir Michel Houellebecq en
þeir félagar hafa verið að lesa verk
hans og ræða. Jo Berger Myhre seg-
ir í sömu tilkynningu að þeir hafi
heillast af andstæðunum hjá
Houellebecq, þessu tilfinningaríka
og þessu gróteska, og að platan búi
yfir þessu sama að einhverju leyti.
Tileinkað Jóhanni
Upphafslagið „Grain of sand“
er þá tileinkað Jóhanni Jóhannssyni
heitnum en hann og Ólafur störfuðu
náið saman í gegnum hin ýmsu
verkefni. Lagið hljómar eins og
meðvituð hylling, býr yfir sömu
djúpu melankólíunni og mörg verka
Jóhanns. Ólafur heldur áfram í
nefndri tilkynningu: „Lagið er upp-
fullt af sorg,“ staðfestir hann. „Við
sömdum það nokkrum dögum eftir
harmafregnina. Lanzarote er líka
um leið sá staður sem við hittumst
síðast á. Við höfðum spilað saman á
tónleikum í helli einum og sögðum
bless á flugvellinum. Grínuðumst
með að næst yrðum við að fara á
ströndina.“
»Lanzarote er nefni-lega falleg plata.
Stillt og íhugul. Sorg-
bundin en uppfull af
vonarglætum um leið.
Hljóðfæraleikararnir Ólafur Björn Ólafsson og Jo Berger Myhre hafa nú gefið út tvær plötur
í sameiningu og hafa þær vakið verðskuldaða athygli í tónlistarkreðsum Norðurlandanna.
Tveir Ólafur Björn Ólafs-
son og Jo Berger Myhre.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð
á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson,
sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION
EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI
Sýnd með
íslensku tali