Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 39
hann soninn Þór, f. 21.12. 1969, d. 11.10. 1995. Kristín er búsett í Sví- þjóð. Þór eignaðist dótturina Lauf- eyju Soffíu. Seinni kona Jóhanns er Inger R. Jessen, kennari og BS í líffræði, f. 30.6. 1937, d. 03.11. 2010. Foreldrar Inger eru Viggó R. Jessen vélfræð- ingur, f. 30.9 1909, d. 22.6. 1990 og Hulda R. Jessen, f. 13.9. 1916, d. 7.4. 2006. Bróðir Inger er Kristján R. Jes- sen prófessor í taugavísindum við University College í Lundúnum. Með Inger eignaðist Jóhann soninn Viggó Karl, f. 3.10. 1974, vöruhönnuð, sem er búsettur í Reykjavík. Systir Jóhanns er Selma Axelsdóttir, f. 3. júlí 1927, d. 6.12. 1932. Faðir hans er Gunnlaugur Axel Jóhannsson, skip- stjóri og fiskmatsmaður á Siglufirði og Akureyri, síðast búsettur í Reykja- vík, f. 6.1. 1899 í Árgerði í Svarfaðar- dal í Eyjafjarðarsýslu, d. 6.12. 1975. Móðir Jóhanns er Ingiveig Þorsteins- dóttir, húsfreyja á Siglufirði og Akur- eyri, síðast búsett í Reykjavík, f. 30.12 1902 í Svínárnesi í Grýtubakkahreppi í S-Þingeyjarsýslu, d. 17.11. 1985. Jóhann Axelsson Guðný Svanlaugsdóttir húsfreyja á Kussungsstöðum í Fjörðum, síðar á Svínárnesi Jóakim Jóakimsson járnsmiður og bóndi. Frá Kussungsstöðum í Fjörðum, flutti síðar í Svínárnes Anna Jónína Jóakimsdóttir húsfreyja í Svínárnesi Þorsteinn Gíslason bóndi og skipasmiður í Svínárnesi, Grýtubakkahreppi, S-Þing. Ingiveig Þorsteinsdóttir húsfreyja á Siglufirði, Akureyri og í Reykjavík Rakel Jóhanna Jóhannsdóttir Kröyer húsfreyja í í Svínárnesi Gísli Jónasson skipasmiður í Svínárnesi, Grýtubakkahreppi. Fór til Ameríku 1889 og kom aftur ári seinna Kristín Sigurðardóttir húsfreyja í Klaufabrekkukoti í Svarfaðardal og síðar í Sauðanesi Baldvin Gunnlaugur Þorvaldsson bóndi og hreppsstjóri á Böggvisstöðum, Svarfaðardalshr., Eyjaf. Þóra Sigríður Baldvinsdóttir húsfreyja í Árgerði og Sauðanesi, Svarfaðardalshr. síðast búsett á Dalvík Jóhann Gunnlaugsson bóndi. Fékk viðurkenningu fyrir björgunarstörf frá bresku ríkisstjórninni Sesselja Jónsdóttir húsfreyja í Hrappsstaðakoti, Svarfaðardal, Eyjaf. Gunnlaugur Sigurður Sigurðsson bóndi á Ytra-Kálfsskinni og Hrappsstaðakoti, Svarfaðardal, Eyjaf. Úr frændgarði Jóhanns Axelssonar Gunnlaugur Axel Jóhannsson skipstjóri á Siglufirði, Akureyri og í Reykjavík DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020 „LED-PERUR VIRKA EKKI FYRIR LEIKFANGAOFNINN MINN.” „SKAFÐU ÞETTA NÚ UPPAF TEPPINU OG FÆRÐU HONUM Á HREINUM DISKI.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta jólanna saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG SKILDI RESTINA AF ÁVAXTAKÖKUNNI EFTIR ÚTI FYRIR FUGLANA HVAÐ ERU ÞEIR AÐ GERA? ÞEIR ERU AÐ FÆRA ÍKORNUNUM HANA ÉG ER SVO NIÐURDREGINN – ÉG ÞARF EITTHVERT LYF SEM LAGAR ÞAÐ! ÉG ÁTTI VIÐ ÞAÐ VANDAMÁL AÐ STRÍÐA, EN MÉR BATNAÐI ÁN LYFJA! HVERNIG? ÉG HEF EKKI HÆTT AÐ BROSA EFTIR AÐ ÉG FÉKK MÉR ÞENNAN HVOLP! Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Við hann oft ég lausan leik. Lausan oft ég gef hann Bleik. Rák er brún og rönd á kinn. Reipi eða kaðallinn. Dyggur lesandi Vísnahorns svarar: Í vísnagátu Guðmundar gægðist ég í laumi og slampaðist á sértækt svar sem sko felst í „taumi“. Þessi er lausn Hörpu á Hjarðar- felli: Oft ég leik við lausan taum. Lausan taum ég hesti gef. Eftir skilur tárið taum. Taum á milli vagna hef. Eysteinn Pétursson svarar: Taumlaust sinni ljúfum leik. Lausan tauminn gef ég Bleik. Tár í stríðum taumum renna. Taumar harðir lófa brenna. Bragi Ragnarsson svarar: Taumlaus kveikir gleði glaum, getur taumur fáki stýrt. Oft má líta tára taum, tel ég orðið þar með skýrt. Sigmar Ingason leysir gátuna þannig: Taumleysi margur temur sér svo tóbakið út á kinnar fer. Á beisli þarf að brúka góðan taum. Bleikur laus við taumhald ratar heim. Þorgerður Hafstað sendi þessa lausn: Taumlaus gleði, gæðastundir. Glæstur foli, slakur taumur. Sviti í taumi, samningsfundir. Sundrast reipi, taumur aumur. Lausn gátunnar vill fá að vera svona segir Helgi R. Einarsson: Hér fögur reið og frelsi er, fer um kinnar straumur og reipi. Svo nú sýnist mér svarið vera taumur. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Oft við taum ég lausan leik. Lausan tauminn gef ég Bleik. Sá ég tóbaks taum á kinn. Taumur er reipi um bagga minn. Þá er limra: Það er þyngra en tárum tekur hið taumlausa smákónga dekur, þvers og langs klofið er þing nú rofið, og þjóðarskútan míglekur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fyrst þarf maður taum- inn, þá sporana Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Ljósaskilti fyrir þitt fyrirtæki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.