Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020 Alltaf er manni sagt að maður geti orðið það sem maður vill, við öl- um börnin okkar upp á þessum orðum. Sannleikurinn er ekki svo einfaldur. Fólkið sem ákveður að eignast börn fyrst, vinna, koma sér fyrir í lífinu og mennta sig svo, það fólk á ekkert svo auðvelt með að „verða það sem það vill verða“ eða mennta sig í því sem það langar. Að sækja um nám Við hjónin höfum bæði lokið ígildi stúdentsprófs, ég hjá frum- greinadeild HR og hann hjá Keili, og þetta nám er hannað og ætlað fyrir fólk eins og okkur, sem ákvað að fara aðrar leiðir í lífinu en að byrja á því að mennta sig. Námið er auglýst þannig að það ætti að veita þér inngöngu inn í flesta háskóla hérlendis sem og er- lendis. Er það raunin? Aldeilis ekki! Nú sóttum við bæði um nokkrar brautir í HA í fyrrahaust, hann sótti um þrjár brautir og ég tvær, við útskrifuðumst bæði með mjög fínar einkunnir. Við komumst ekki inn í neitt af því sem við sóttum um vegna þess að við uppfylltum í rauninni ekki þessa kröfu; að vera með stúdents- próf. Þetta er svarið sem allir fá sem fá synjun: Umsækjandi uppfylli ekki inntökuskilyrði; staðfest afrit af námsferli/stúdentsprófi/prófskírteini barst ekki í tæka tíð; forgangsraða þurfti umsóknum vegna mikillar að- sóknar og umsóknin ekki uppfyllt nægilega þá matsþætti sem voru til grundvallar. Meðaleinkunn 8,XX ekki nóg Maðurinn minn sækir svo um lög- reglunám við HA núna og fær synjun á sömu forsendum. Sem er óskiljan- legt svona miðað við hvað er stans- laust verið að tala um hvað vantar mikið af lögreglumönnum hér, og þessi maður á fullt erindi í þetta starf þó ég segi sjálf frá (hlutlaust mat). Og þegar fólk er orðið eldra en 35 ára er það komið með ágætis lífs- og starfs- reynslu, orðið þroskaðra en nýútskrif- aður menntskælingur, búið að upplifa hitt og þetta sem gefur fólki aðra sýn á lífið og er með aðrar áherslur en þegar maður er um tvítugt. Hefði maður haldið að horft væri á þessi atriði, já. Er það raunin? Virðist ekki vera, sem er einstaklega sorglegt þar sem það vantar gott fólk í þessi störf. Einnig er kynjakvóti í lögregl- unámið, þeir taka inn jafnmikið af konum og körlum þó svo að annað kynið gæti verið hæfari einstaklingur en hitt. Þessi pistill snýst alls ekki einungis um lögreglunámið, heldur aðgengi að námi fyrir fólk sem er komið með lífs- reynslu, með vinnu, heimili og börn, langar að mennta sig meira og „verða“ loksins eitthvað. Sem dæmi eftir synjunina í lögreglufræðinni ákveður hann að sækja um sálfræði- braut við HA þangað til aftur opnast fyrir inntöku í lögreglufræði (eftir s.s. ár). Sálfræði er einnig áhugasvið og tengist nú að miklu leyti starfi lög- reglu. Hann fær enn og aftur synjun á sömu forsendum. Maður með með- aleinkunn ágætlega yfir átta. Framboð í lágmarki Það bjóða ekki allir skólar hér upp á fjarnám fyrir fólk „eins og okkur“. Við höfum ekki tök á því að stunda nám við Hí, við höfum ekki tök á því að hætta að vinna og henda okkur í staðnám, þess vegna er fjarnám svo sniðugt og besti kosturinn. Háskólinn á Akureyri er eini skól- inn sem býður upp á fjarnám á öllum brautum hjá sér en hann tekur ekki inn fólk sem útskrifast frá Keili, og greinilega ekki HR heldur. Háskóli Íslands er með einstaklega lélegt fjarnámsframboð, nánast ekki neitt; Bifröst er ekki fyrir millistéttarfólk eins og mig sjálfa, og Háskólinn í Reykjavík ekki heldur, bara skóla- gjöldin í þeim skólum geta sligað fólk. Þetta gerir manni nánast ómögulegt að mennta sig komin á þennan aldur ef þú þarft að taka fjarnám með vinnu. Nú erum við bæði komin yfir 30 ár- in, höfum lagt blóð, svita og nánast tár í það að ná okkur í þá menntun sem á að gera okkur kleift að sækja um háskóla svo maður geti nú orðið það sem maður vill þegar maður „verður stór“. Nei, því miður, þú get- ur ekki orðið það sem þú vilt! Eru þetta skilaboðin sem við þurfum að fara að segja börnunum okkar? Mikið vona ég ekki. Við erum fyrirmynd- irnar þeirra, við viljum sýna þeim að sama hvað þá getirðu alltaf menntað þig. Ekki þau einu Við könnuðum málið og höfðum samband við framhaldsskóla hér í bænum og könnuðum hvað vantaði upp á til þess að fá fullgilt stúdents- próf miðað við að komast inn á t.d. viðskiptabraut. 13 áfanga vantaði upp á, 13! Við sendum inn einkunnir og allt sem þurfti, sem annað okkar hafði lokið á öllum námsferlinum, mörg ár aftur í tímann. Finnst okkur þetta bara í lagi, að fólk sem er búið að leggja á sig að ná sér í þessa menntun komist ekki í há- skóla eftir að hafa lokið strembnu námi með þetta að markmiði? Í ljósi þess að ungur drengur nýútskrifaður steig fram með sína sögu á visir.is, dúx með nánast full- komna mætingu sem „lenti“ í þessu sama, að komast ekki þarna inn því framhaldsskólinn sem hann var í upp- fyllir ekki þær kröfur sem HA setur, þá finnst mér kominn tími á að þetta inntökuferli verði endurskoðað hjá Háskólanum á Akureyri og að ein- hver stígi inn í. Nú biðla ég til ráðherra og annarra sem að málinu koma að gera eitthvað í þessu, það er óboðlegt að fólk sem hefur metnað, vilja og getu til að mennta sig geti það ekki. Eins og gefur að skilja erum við einstaklega ósátt og svekkt yfir þessu og finnst þörf á að varpa ljósi á þetta. F.h. allra „ómenntaðra“ foreldra og annarra í sömu stöðu. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Eftir Kolbrúnu Evu Kristjánsdóttur og Heimi Frey Heimisson » Fólkið sem ákveður að eignast börn fyrst, vinna, koma sér fyrir í lífinu og mennta sig svo, það fólk á ekk- ert svo auðvelt með að „verða það sem það vill verða“ eða mennta sig í því sem það langar. Höfundar eru óháskólagengnir, ennþá að minnsta kosti. Heimir Freyr Heimisson Kolbrún Eva Kristjánsdóttir 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina Skemmtilegt að skafa Þegar litið er yfir umsagnir um breytingarnar á stjórnarskránni, sem standa fyrir dyrum og eru í samráðsgátt, þá kemur í ljós, að stærsta hlutann af svokölluðum athugasemdum er varla hægt að kalla athugasemdir, því að þær eru skrifaðar af því fólki, sem í tíma og ótíma argar og gargar eftir glænýrri stjórnarskrá og kennir þeirri, sem nú er í gildi, um allt, sem aflaga fer á landinu og jafnvel heiminum öllum, ef svo ber undir, og heldur, að ný stjórnarskrá leysi allan vandann, sem er fjarri sanni, þar sem flest af því kemur ekkert stjórnarskránni við, og er aðeins mein- loka úr fólkinu sjálfu. Þetta fólk bendir alltaf á þessi stjórnar- skrárdrög, sem voru gerð um árið, sem nýja stjórnarskrá, sem „þjóðin“ hafi kosið sér. Hvaða þjóð er fólkið að tala um? Ég kannast nú ekki við að tilheyra þeirri „þjóð“, þótt ég sé hluti af íslensku þjóðinni, og er ánægð með þá, sem fyrir er. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Þjóðin, sem vill nýja stjórnarskrá Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnarskrá Höfundur kannast ekki við að til- heyra „.þjóðinni" sem kaus sér nýja stjórnarskrá en tilheyri þó íslensku þjóðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.