Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020 50 ára Auður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogi. Hún lauk stúdentsprófi frá MK og BA í grafískri hönn- un í Danmörku þar sem hún bjó og starfaði í tólf ár sem prenthönnuður fyrir Brandtex og Name IT. Á Íslandi hefur Auður unnið fyrir Icewear og LínDesign sem prenthönnuður en í dag kennir hún myndlist. Börn: Fannar Freyr Jóhannsson f. 31.3. 1997 og Guðrún Soffía Jóhannsdóttir f. 16.1.2003. Foreldrar: Móðir Auðar er Guðrún Soffía Guðnadóttir listakona f. 25.8. 1948, stjúpfaðir hennar er Ingvar Gunnarsson f. 12.05 1949 og faðir hennar Jónas Sveins- son f. 14.01. 1949. Auður Laila Jónasdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert upp á þitt besta og hefur já- kvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika þínum. Nýttu þér andlegt og líkamlegt at- gervi þitt til hins ítrasta því allt annað er svik við sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Á komandi vikum er allt eins líklegt að þér gefist kostur á því að fara í afslöpp- unarferð. Að vera og finnast maður vera við stjórnvölinn er frábær tilfinning. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er rétti tíminn til að gera breytingar hvort heldur er heima fyrir eða í starfi. Reynið að gera eitthvað nýtt í dag sem opnar ykkur nýja sýn á umhverfið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú grunar einhvern um að plokka í hjartastrengina þína. Einbeittu þér að þínu verki og þá munu aðrir sjá að þú ert á réttri leið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er allt í sómanum hjá þér um þessar mundir í vinnunni svo þú getur leyft þér að slaka svolítið á. Gættu þess svo að miklast ekki af hjálpseminni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú kannt að þurfa að bregða þér af bæ með litlum fyrirvara. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú heyrir innsæið hvísla að þér, og það verður háværara eftir því sem þú legg- ur betur við eyrun. Forðastu alla útúrdúra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú getur átt von á spennu í samskiptum þínum og náins vinar. Mundu að engin manneskja er annars eign. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur mikla þörf fyrir það að hlúa að öðrum og skalt leyfa þér það. Tilfinningarnar eru hreinar og klárar. Láttu eftir þér að lyfta þér upp með góðu fólki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er óþarfi að vera að burðast með allar heimsins syndir á bakinu. Veldu vel þá sem þú vilt um- gangast áfram. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mundu að rannsaka málin áður en þú ákveður til hvaða ráðstafana sé rétt að grípa. Raðaðu hlutunum í forgangsröð og taktu eitt verkefni fyrir í einu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Óvæntur gestur veitir þér nýja sýn á mál sem þú hefur lengi verið að glíma við. Vertu með opinn huga, kannski er þetta betri lausn. lenskra aðalverktaka 1990-2004, stj.form. frá 1996, í stjórn Íslenska járnblendifélagsins 1992-2001, stj.form. 1995-98, í þingkjörinni nefnd um fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi 1991-2003, form. í fjögur ár, í framkvæmdan. um einkavæðingu 1996-2006, form. frá 2004. Þá sat hann í stjórn Myndlistarsafns Tryggva Ólafssonar, Neskaupstað 2007-2019. Jón var ritstj. Magna, kjördæmisblaðs í Vesturlands- kjördæmi, 1979-85. Jón er áhugamaður um stangveiði og fer í sumar sem fyrr í Laxá í Leir- ársveit með góðum og skemmtilegum veiðihópi sem Jón og Gestur Jónsson lögmaður stofnuðu fyrir 30 árum. Hann spilaði einnig lengi bridge í spilaklúbbi sem góðir vinir og skóla- bræður Jóns, þeir Pétur Reimarsson efnaverkfræðingur og Sigurjón Benediktsson tannlæknir, stofnuðu á skólaárunum í MR á sínum tíma. Jón hefur ánægju af djassi, er stuðnings- maður ÍA og Liverpool, fer stundum á leiki erlendis, oftast með Ými syni sínum, en síðast með vini sínum Árna og yfirlögfræðingur. Hann sat í kjaradómi 1993-2006, kjörinn af Al- þingi. Á löngum ferli fékkst Jón við fjöl- breytt viðfangsefni og kynntist mörgu góðu fólki. Árin í forsætis- ráðuneytinu skera sig þó úr og vinn- an á köflum ævintýri líkust. Fylgdi Jón t.d. ráðherra á fund Yassers Ara- fats sem þá var í Túnis og leiddi það- an útlagastjórn Palestínu. „Stein- grímur fór í opinbera heimsókn til Egyptalands og málin þróuðust þannig að tækifæri bauðst til að heimsækja Arafat. Þetta var mjög viðkvæmt mál enda Arafat mjög um- deildur maður og fá ríki sem viður- kenndu útlagastjórnina. Ekki var um opinbera heimsókn að ræða en á hana var samt litið sem óbeina viður- kenningu Íslands á Palestínuríki. Steingrímur var því í þessu efni langt á undan sinni samtíð.“ Jón segir að Arafat hafi virkað elskulegur og þægilegur í viðmóti og varði fund- urinn með honum í nærri heilan dag þar sem málin voru rædd yfir arab- ískum mat að viðstöddum stórum hluta útlagastjórnarinnar. „Árin fáu í ráðuneytinu voru áhugaverð en drógu um leið úr áhuga mínum á beinni stjórnmálaþátttöku.“ Félagsstörf og áhugamál Jón sat í stjórn Stúdentaráðs HÍ 1973-74, í miðstjórn Frams.fl. 1978-88 og 1990-2007 og framkv.stjórn 1985- 86, var bæjarf. á Akranesi 1978-82, í bæjarráði 1980-82, skólan. Fjölbr.sk. Vesturlands 1978-79 og 1986-87, stjórn Hitaveitu Akraness og Borg- arfjarðar 1979-87, formaður 1985-86, v.þingm. fyrir Vesturlandskjörd. 1979-87, form. stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga 1987-91, form. nefndar ríkisstj. 1989 um stofnun og verkefni umhverfisráðuneytis, í stjórn Ís- lensks markaðar 1989-91, í stjórn Ís- J ón Sveinsson fæddist í Reykjavík og ólst upp við Smiðjustíginn í Skugga- hverfi og síðan í Norður- mýri. Spurður hvað hafi mótað hann mest sem barn segir Jón að það hafi verið sumrin sem hann var í sveitinni, hjá afasystkinum sín- um í Skorholti í Melasveit í Borgar- firði. „Ég beið eftir því allan veturinn að komast í sveitina á vorin til að taka þátt í sauðburðinum og vildi vera þar sem lengst – og fram yfir réttir,“ seg- ir Jón og bætir við að frelsið og nátt- úran í sveitinni hafi gert sér gott. „Svo lærði ég að vinna enda látinn taka þátt í störfunum í samræmi við aldur og getu. Þar lærði ég líka að fjölskyldan og traustir vinir skipta mestu í lífinu. Þá var það gott vega- nesti að fá að búa með heilbrigðu, skynsömu og góðu fólki í sveit.“ Jón lauk stúdentsprófi frá MR 1971. Í gegnum störf að félagsmálum á menntaskólaárunum kviknaði hjá honum áhugi á laganámi og lauk Jón embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1976. Hdl.-réttindi öðlaðist hann 1979 og hrl. 1997. Jón var fulltrúi bæjarfógetans á Akranesi 1976-80, rak lögfræðistofu þar 1980-89 og samhliða í Reykjavík 1987-88. Bjuggu Jón og kona hans á Akranesi í ellefu ár og eignuðust þar fjölda góðra vina og kunningja, og eiga þaðan afar góðar minningar. Árin 1988 til 1991 var Jón aðstoð- armaður Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, rak því næst lög- fræðiskrifstofu í Reykjavík 1991-99 sem sameinaðist annarri lögfræði- stofu 1999 með stofnun lögfræðistof- unnar Landslaga. Árið 2006 hóf Jón störf sem lögmaður hjá Landsvirkjun og lögfræðilegur ráðgjafi, einkum í stóriðju-, raforku- og samninga- málum. Frá 2008 til 2019 var Jón yfir- maður lögfræðimála Landsvirkjunar Indriðasyni menntaskólakennara. Þá er hann áhugamaður um um- hverfismál, verndun votlendis og fugla, einkum verndun mófugla og vatnalífríkis. Þá eiga þau hjónin, Guð- rún og Jón, sumarhús við Grunna- fjörð, þar sem þau dvelja oft með fjöl- skyldu sinni, stunda þar skógrækt og æðarrækt, m.a. í Akurey skammt undan landi. Fjölskylda Jón kvæntist 30.10. 1971 Guðrúnu Sigríði Magnúsdóttur, f. 23.5. 1949, kennara og prjónabókahöf. Foreldrar hennar voru Magnús E. Baldvinsson úrsmíðameist. í Rvík, f. 12.12. 1923, d. 30.12. 2006, og k.h. Unnur Benedikts- dóttir húsm., f. 10.6. 1924, d. 14.3. 2013. Börn Jóns og Guðrúnar eru fjögur: 1) Unnur Ýr, f. 19.2. 1970, flugfr., gift Konrad Aðalmundssyni, flugstj., synir þeirra eru Baldvin Birnir, Jón Kári og Konrad Jakob; 2) Ingvar Ýmir, f. 21.9. 1975, þrívídd- arhönnuður, kvæntur Steinunni Huld Gunnarsdóttur leikskólak., börn þeirra eru Sara Rut, Sóley Bestla og Ingi Hrafn; 3) Kristín Ösp, f. 30.8. 1977, lögfræðingur, gift Haraldi Hall- steinssyni jarðfr., börn þeirra eru Hafrún Halla, Hallsteinn Skorri, Hersir Jón og Herdís Guðrún; 4) Hildur Hlín, f. 4.10. 1983, margmiðl- unarhönn., gift Halldóri Vilberg Óm- arssyni, verkefna- og þróunarstj. hjá Avis, sonur þeirra er Fannar Máni. Systir Jóns er Anna, f. 19.9. 1946, kennari. Synir hennar eru Sveinn Logi, Birgir Steinn og Viðar Jökull. Foreldrar Jóns voru Sveinn Jónsson, f. 3.6. 1918, d. 27.12. 1991, kaupm. í Reykjavík, og k.h., Kristín Ingv- arsdóttir, f. 22.6. 1926, d. 31.5. 2010, verslunarm. og húsmóðir í Reykjavík. Jón Sveinsson lögmaður – 70 ára Umdeildur Á fundi með Arafat í Túnis. Steingrímur Hermannsson f.m. „Fjölskyldan og traustir vinir skipta mestu“ Samrýnd Hjónin Jón og Guðrún. 40 ára Gunnar fæddist á Hvols- velli og ólst upp þar, og í Reykjavík frá 10 ára aldri. Hann lauk námi frá húsasmíða- braut FB 2001 og á sama tíma vélsmíðanámi við Borgarholtsskóla. Gunnar vann við smíðar til ársins 2009. Versl- unarstjóri Byko á Selfossi frá 2010. Maki: Ástrós Rún Sigurðardóttir kennari, f. 17.05 1980. Börn: Rúnar Freyr, f. 2005, Sindri Snær, f. 2008, Rakel Sif, f. 2012. Foreldrar: Inga Kristín banka- starfsmaður, f. 1953, og Rúnar Kristjánsson kranabílstjóri, f. 1956. Gunnar Bjarki Rúnarsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.