Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.07.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Sviðslistahópurinn Strengur kemur til okkar með leiksýningu kl. 14. Allir velkomnir Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Hreyfiþjálfun kl. 9.30. Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30-13. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, sími 411-2600. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Göngu- hópur fer frá Náttúrufræðistofnun Íslands Urriðaholtsstræti 6-8 kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gerðuberg 3-5 Kl. 8:30-16 opin handavinnustofa, kl. 10 leikfimi gönguhóps, kl. 10.30 ganga um hverfið, kl. 13 bíó. Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8-12, billjard kl. 8, qi-gong á Klamra- túni kl. 11, brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Púttæfing kl. 10.30. Gönguferð kl. 13.30. Korpúlfar Kl. 13.30 verður sundleikfimi í Grafarvogssundlaug, svo verðum við með botsía kl. 14 í Borgum. Endilega mætið. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, kl. 10.30 verður hópþjálfun í setu- stofu á 2. hæð. Eftir hádegi, kl. 13.30, hittumst við í matsalnum og syngjum saman íslensk lög við undirspil píanóleikara. Við endum daginn saman á gönguferð um hverfið, lagt verður af stað klukkan 15. Hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Kl. 7.15 vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness, kl. 10.30 kaffispjall í króknum, kl. 11 spilað saman á Skólabraut, kl. 13.30 er pútt í golfskálanum ef veður leyfir, nánari upplýsingar síðar. Hlökkum til að sjá ykkur. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Sögustund verður í kaffinu. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Húsgögn Hastens hjónarúm 2m x 2m Hastens Superia hjónarúm (tvö rúm 1m x 2m) til sölu. Tæplega ársgamalt, annað rúmið er "Firm", hitt er "Soft". Yfirdýna sem nær yfir bæði rúmin. Uppl. í síma 894 4343. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Smá- og raðauglýsingar atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Nú u þú það sem þú eia að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA ✝ Magnús HallurNorðdahl fædd- ist 16. mars 1952. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 7. júní 2020. Foreldrar Magn- úsar eru Norma Norðdahl, fædd 26. september 1935, og Sigurður Ágúst Benediktsson, fæddur 31. mars 1931, látinn 7. september 2006. Börn þeirra og systkini Magnúsar eru Hallgrímur Norðdahl Sigurðs- son, fæddur 1954. Hann er giftur Sig- urbjörgu Trausta- dóttur og eiga þau tvær dætur, Þór- hildi og Normu. Berglind Norð- dahl, fædd 1959. Hún á tvo syni, Sig- urð og Hallgrím. Ragna Margrét Norðdahl, fædd 1971. Eiginmaður hennar er Ægir Rafn Ingólfsson, eiga þau soninn Ingólf Pál. Magnús Hallur kvæntist Jó- hönnu Á. Zoëga Sigmunds- dóttur 6. janúar 1993. Foreldrar Jóhönnu eru Bryndís Zoëga Magnúsdóttir og Sigmundur Indriði Júlíusson. Systkini Jóhönnu eru Júlíus Helgi, Kristjana og María. Börn Magnúsar og Jóhönnu eru Berglind Anna Zoëga Magn- úsdóttir, fædd 18. mars 1981 og Magnús Kári Norðdahl, fæddur 31. október 1997. Berglind er gift Tómasi Krist- jánssyni og eiga þau þrjár dæt- ur: Viktoríu Sif, f. 2006, Elísa- betu Rán, f. 2009, og Alexöndru Heru, f. 2016. Útförin fór fram 18. júní 2020 í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku pabbi minn, Magnús Hallur Norðdahl, er látinn. Hann háði tæplega tveggja ára baráttu við illvígt krabbamein, sem hafði því miður yfirhöndina í lokin. Pabbi háði þessa baráttu með sæmd og sjarma svo sögur fóru af á deildinni. Hann bjó yfir miklum karakter og var ákveðinn og ósér- hlífinn maður en í senn svo hjarta- hlýr og vildi allt fyrir fjölskyldu sína gera. Það eru mörg lýsing- arorð sem koma upp í hugann við minningar um pabba, tvö af þeim, „bóngóður“ og „verndandi“, eru mér þó efst í huga. Hann var ávallt til staðar fyrir sína. Ég minnist allra snjóhúsanna sem við byggð- um saman úti í garði og urðu að risaköstulum í arkitektúrstíl, allra ísrúntanna niður í bæ, allra útileg- anna, allra skiptanna sem hann sótti mig fótgangandi á æfingar og nokkrum árum síðar í partí og svo mætti lengi telja. Ef mamma sagði nei sagði pabbi alltaf já. Væntum- þykja hans var augljós og jókst bara þegar tengdasonurinn og barnabörnin komu til sögunnar. Viðbrögðin sem hann sýndi við fréttum af fyrsta barnabarninu voru meiri en ég hafði nokkru sinni upplifað af hans hálfu. Pabbi grét af gleði en hvorki fyrr né síð- ar sá ég hann gráta. Þær áttu hann alveg skuldlaust alla daga síðan. Hann var ein af grunnstoð- um okkar en er nú farinn og er það heldur erfitt að sætta sig við og læra að lifa með. Þakklæti og fjöl- margar minningar sitja þó eftir í huga okkar og hjarta. Með söknuði kveð ég þig pabbi minn og óska þér góðrar ferðar. Hvíl í friði. Þín dóttir, Berglind Anna Zoëga. Nú er Maggi vinur okkar búinn að kveðja. Hann var sannur vinur vina sinna og ég get ekki annað en minnst hversu of við leituðum til hans með greiða, stóra sem smáa og alltaf var svarið frá honum: Já elskan mín, ekkert mál, eða: Já elskan mín, ég redda því, hvort sem um var að ræða að skutla eða sækja stelpurnar fyrir okkur, passa hundana eða kíkja til kisu ef við vorum í burtu. Alltaf var hann tilbúinn að hlaupa undir bagga. Maggi var óneitanlega skapstór og var oft tilbúinn að rökræða um ýmis málefni en var langoftast hress í góðu skapi og bersýnilegt að hann vildi að öllum í kringum sig liði vel. María og Íris sem ólust upp með Magga og Jóhönnu hérna rétt hjá minnast hans með söknuði. Samræður okkar enduðu of með því að við urðum sammála um að vera ósammála en það var svo allt gleymt þegar við hittumst næst. Við áttum margar skemmti- legar samverustundir við að spila og hann hafði sérstaklega gaman af borðspilum þar sem hann fékk að leika. Hann hafði alltaf brand- ara og skemmtisögur á takteinum, oft af sjálfum sér frá því hann var yngri. Hann hafði líka gaman af að ferðast um landið og það var gam- an að hlusta á hann segja frá ferð- inni sem hann fór um Austfirðina með Flintstone, hundinum sínum. Við eigum eftir að sakna þess að Maggi droppi inn úr göngutúr, bara svona rétt til að kíkja í einn kaffibolla og smá spjall um daginn og veginn. Elsku besta Jóhanna, Berglind, Magnús Kári, Tommi og afastelp- urnar hans þrjár sem hann var svo hreykinn af, við vottum ykkur okk- ar dýpstu samúð og hugsum til ykkar. Hafðu hjartans þakkir fyrir fal- lega og góða vináttu, elsku vinur. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Guðbjörg, Egill, María og Íris. Með þessum fáu orðum kveð ég Magga vin minn og frænda. Við Maggi kynntumst fyrst er við vorum að skríða upp úr barna- skóla þegar fjölskylda hans fluttist í sama hús og ég bjó í. Fljótlega kom í ljós að við vorum náskyldir og samgangur milli fjölskyldanna hófst. Maggi, ég og Halli bróðir hans vorum fæddir með árs milli- bili og því gaman að kynnast góð- um leikfélögum. Góðsemi Magga kom strax í ljós og vildi hann öllum gott gera. Hann átti samt ekki alltaf sjö dag- ana sæla í skóla, hafði misst auga í slysi og auk þess lesblindur. Það var ekki höndlað eins vel á þeim árum og nú er reynt að gera. Leið- ir okkar urðu því ólíkar er ég hélt áfram í skóla en hann fór út á vinnumarkaðinn. Nokkru seinna fluttist fjöl- skylda hans í Kópavoginn. Okkar tengsl héldust þó og var ýmislegt brallað, heimsóknir, böll, rúntar og að ógleymdum Þórsmerkur- ferðum. Báðum þótti okkur gaman að ferðast. Síðar í lífinu hitti svo á að við bjuggum nærri hvor öðrum og því auðvelt að endurnýja vinskapinn og mynda tengsl milli okkar fjöl- skyldna sem hafa haldið alla tíð síðan. Áhuginn fyrir jeppum og ferða- mennsku var til staðar hjá okkur báðum og fórum við saman í nokkrar slíkar ferðir bæði að vetri og sumri og nutum þeirra í botn. Í svona ferðum var stundum óþol- andi hvað Maggi var morgunhress þegar aðrir höfðu vakað fram eft- ir. Síðustu þrjú ár herjuðu veikindi á hann og gat hann lítið ferðast frá heimilinu. Hann reyndi þó að vera hress og kátur í samskiptum við aðra og áttum við nokkrar góðar stundir saman, er rifjuð voru upp fyrri ævintýri og bernskubrek. Jóhönnu konu hans, börnum og barnabörnum sendum við samúð- arkveðjur. Ómar og Sigurbjörg. Magnús Hallur Norðdahl Elsku mamma mín, það ætlar að reynast mér erfitt að skrifa um þig minningargrein, einhvern veginn hélt ég að þú ættir einhver ár eftir, við ættum eftir að fara í aðra Spánarferð, fá okkur ís, fara á rúntinn og svo óteljandi margt fleira. Þú elsk- aðir meira en allt að ferðast og næstsíðasta ferðin þín var hing- að á Höfn, þú vildir alls ekki koma með flugi því þú vildir njóta bílferðarinnar og sjá allt sem fyrir augu bar á leiðinni á þínar fallegu æskuslóðir. Þú Sigrún Guðmundsdóttir ✝ Sigrún Guð-mundsdóttir fæddist 25. ágúst 1939. Hún lést 14. júní 2020. Útförin fór fram 3. júlí 2020. varst umkringd flestum niðjum þín- um og fékkst að sjá litla ömmustrákinn minn í fyrsta sinn, þú ljómaðir með öll barnabarnabörnin í kringum þig. Hún var alveg frábær ferðin okkar til Spánar 2018, á uppáhaldshótelið sem þú varst búin að vera mörgum sinnum á, sjá ströndina þar sem þú vildir helst sitja undir sólhlíf og lesa, þú rat- aðir út um allt. Ég labbaði með þig í hjólastólnum fleiri kíló- metra á dag og þú naust hverrar mínútu og þegar komið var að heimför sagðir þú að þú værir alveg til í að vera lengur. Þú varst alltaf mikill dugnaðarfork- ur í vinnu og gafst þig alla í hana. Þegar við systkinin vorum yngri og þú að vinna til rúmlega sjö á föstudögum var það venjan að við tókum til og þurrkuðum af, í laun fengum við einn nammipoka sem var bróðurlega skipt í þrennt. Þú elskaðir að keyra, fórst með okkur ófáar ferðir á sunnudögum til Kefla- víkur og svo var Eden í Hvera- gerði mjög vinsælt. Þú vílaðir ekki fyrir þér að keyra í loft- köstum hingað austur að heim- sækja okkur á sumrin þegar við vorum hjá ömmu og afa. Það er erfið og skrýtin tilhugsun að fá ekki að heyra aftur í þér því við töluðum saman á hverjum degi og stundum oft á dag, alltaf spurðir þú um veiðar hjá Hann- esi og Sævari, og hvað væri að frétta af Agli og Björgvini, ég átti alltaf að hringja í þig þegar við vorum komin austur að nóttu eða degi því þú varst áhyggjufull yfir þessum ferðalögum á okkur á öllum tímum ársins. Elsku mamma mín, ég kveð þig með orðunum sem ég kvaddi þig allt- af með, milljón kossar og knús, ég elska þig. Þín dóttir, Signý.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.