Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR Þegar aðeins það besta kemur til greina Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Tímabili lúsmýsins er ekki lokið, að sögn meindýraeyðis, og hefur kom- um á heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins vegna bita fjölgað frá síðasta ári, að sögn forstjóra heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þrátt fyrir það segir Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir að hann hafi orðið minna var við lúsmýið þetta árið en áður. Orsökin er tvíþætt, að mati Steinars. Annars vegar hafi verið kalt í byrjun sumars og því séu líkur á að lúsmýið hafi átt erfiðara uppdráttar en áður. Hins vegar séu Íslendingar farnir að venj- ast óværunni og líkamar Íslendinga sömuleiðis sem sýni nú minni of- næmisviðbrögð en áður. Steinar segir að lúsmýið sé ekki horfið, fyrsta „holli“ sé einfaldlega lokið en hollin séu oftast tvö til þrjú yfir sumartímann. „Lúsmýið er að alla vega fram að mánaðamótum ágúst/september. Þetta er ekki búið núna. Fyrsta holl- ið er alltaf verst en því holli er lokið. Svo kemur annað holl, þetta er eins og það séu tvær til þrjár kynslóðir sem komist upp á sumrin. Lúsmýið ræðst á okkur og drekkur úr okkur blóð svo það geti verpt,“ segir Stein- ar. Flestir bíða óþægindin af sér Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborg- arsvæðinu, segir að hjúkrunarfræð- ingar heilsugæslunnar hafi orðið varir við fleiri fyrirspurnir vegna bita lúsmýs en áður. „Í langflestum tilfellum bíður fólk þetta af sér og gerir ekki neitt en stundum þarf að nota steraáburð eða kláðastillandi lyf,“ segir Óskar. Það eru því almennt þeir sem verða verst úti í slagnum við mýið sem leita til heilsugæslunnar. Spurður hvort fólk sem þangað leiti komi af einhverjum sérstökum landsvæðum eða hverfum innan höf- uðborgarinnar segir Óskar: „Þetta er úti um allt.“ Hann jánkar því að vænlegt sé fyrir höfuðborgarbúa að verjast óværunni en upplýsingar um for- varnir er að finna á vefsíðu heilsu- gæslunnar, www.hg.is. ragnhildur@mbl.is Fleiri á heilsugæslu vegna mýbita  Lúsmýið leikur enn lausum hala  Meindýraeyðir sér minna af mýinu Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Mý Lúsmý er flestum landsmönnum kunnugt en fæstum til ánægju. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Rio Tinto kærði í gær Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins vegna „misnotkunar Landsvirkjunar á yfirburðastöðu fyrirtækisins gagn- vart ISAL“. Álframleiðandinn segir Landsvirkjun hafa misnotað mark- aðsráðandi stöðu sína á raforku- markaði. Í yfirlýsingu frá Rio Tinto segir að láti Landsvirkjun „ekki af skaðlegri háttsemi sinni“ hafi Rio Tinto ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamningi sínum og virkja áætlun um lokun. Um 500 manns starfa hjá fyrirtækinu. Rio Tinto óskar eftir því að Samkeppn- iseftirlitið skoði „samkeppnishaml- andi háttsemi Landsvirkjunar með mismunandi verðlagningu og lang- tímaorkusamningum, svo að álver ISAL og önnur íslensk framleiðsla og fyrirtæki geti keppt á alþjóða- vettvangi“. Alf Barrios, forstjóri Rio Tinto á heimsvísu, segir í tilkynning- unni að ISAL „greiði umtalsvert meira fyrir orku sína en aðrir ál- framleiðendur á Íslandi sem grefur undan samkeppnisstöðu fyrirtækis- ins“. Þá segir Barrios að ISAL geti ekki haldið álframleiðslu sinni á Ís- landi áfram sé verðlagning orkunnar ekki „gagnsæ, sanngjörn og alþjóð- lega samkeppnishæf“. Viðræður Rio Tinto og Lands- virkjunar hafa staðið yfir að undan- förnu. Í tilkynningu Rio Tinto segir að þrátt fyrir ítrekaða viðleitni hafi fyrirtækið „nú komist að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun sé ekki tilbúin til að bæta núverandi raf- orkusamning ISAL sem gerir fyrir- tækið sjálfbært og samkeppnishæft og taka á skaðlegri hegðun og mis- munun Landsvirkjunar gagnvart ISAL“. Vilji ekki aflétta trúnaði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í samtali við mbl.is að kæran kæmi sér verulega á óvart. „Við teljum okkur að öllu leyti fara eftir samkeppnislögum á Íslandi og í Evrópu,“ sagði Hörður. „Þetta kemur okkur mjög á óvart, að þeir séu að fara þessa leið með samning sem var gerður fyrir tíu árum að frumkvæði Rio Tinto og eftir að bæði fyrirtæki hafa ráðist í miklar fjár- festingar og tekið á sig langtíma- skuldbindingar,“ sagði Hörður og bætti við að Landsvirkjun geti ekki tjáð sig efnislega um kæruna eða samninginn í heild sinni. „Það gerir okkur erfitt fyrir að tjá okkur efn- islega um málið að þeir neita að af- létta trúnaði á samningnum. Það er mjög sérstakt að leggja fram þessa kæru og tjá sig efnislega um samn- inginn með þessum hætti en vera svo ekki tilbúnir að leggja hann á borð- ið,“ sagði Hörður. Spurður út í samn- ingaviðræðurnar við Rio Tinto segist Hörður lítið geta tjáð sig að svo stöddu. „Við höfum boðið þeim breytingar á samningnum sem við teljum að komi til móts við þær erf- iðu aðstæður sem eru uppi í dag en þeir hafa ekki svarað því,“ sagði Hörður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Álverið í Straumsvík Álframleiðandinn segir Landsvirkjun hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína í raforku. Kæra Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins  Landsvirkjun segir Rio Tinto ekki vilja aflétta trúnaði Morgunblaðið/Hari Landsvirkjun Forstjórinn segir að kæran hafi komið sér verulega á óvart. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra segist ekki gera athuga- semdir við kæru Rio Tinto til Landsvirkjunar. „Við búum í landi þar sem menn geta látið reyna á rétt sinn, það er lítið við því að segja þegar menn gera það,“ sagði Bjarni í samtali við mbl.is í gær. Rio Tinto kærði í gær Lands- virkjun til Sam- keppniseftirlits- ins, en í tilkynningu frá álframleiðandanum segir að Lands- virkjun hafi misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína á fram- orkumarkaði og láti Landsvirkjun ekki af „skaðlegri háttsemi sinni“ hafi fyrirtækið ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamn- ingi sínum og virkja áætlun um lokun. Fjölda álvera verið lokað Bjarni segir að koma verði í ljós hvernig málinu vindur áfram. Bendir hann á að fjölda álvera í Evrópu hafi verið lokað á und- anförnum árum og að á sama tíma hafi ekkert nýtt álver verið reist í álfunni. „Kína hefur tekið til sín æ stærri hluta heimsframleiðslunnar, sem brýst út í því að fyrirtæki sem eru í rekstrarvanda út af breyttri heimsmynd láta reyna á sína stöðu,“ segir Bjarni. Þá segist hann telja að ákveðinn tvískinn- ungur ríki í alþjóðapólitík. Hann segir það tímabært „að fara fram á það til dæmis í Evrópusamvinnu að staðinn verði vörður um iðn- aðarvöru innan Evrópska efna- hagssvæðisins, sem augljóslega fer fram með mun umhverfisvænni hætti en sú framleiðsa sem er seld inn á svæðið.“ Geti munað tugum prósenta Þá segir Bjarni það skjóta skökku við að standa á alþjóð- legum ráðstefnum með þjóðum sem lýsi árangri í aðgerðum gegn losun gróðurhúsalofttegunda sem einum af mikilvægari málefnum samtímans, en á sama tíma kaupi stórir bílaframleiðendur ESB óhikað vörur frá framleiðendum sem virði markmiðin að vettugi. Hann segir þar geta munað tugum prósenta í kolefnislosun, en þrátt fyrir það fái framleiðendur á ís- lensku áli ekki eina evru umfram aðra framleiðendur fyrir sína af- urð. Spurður hvort kæra Rio Tinto til Samkeppniseftirlitsins kalli á afléttingu trúnaðar á raf- orkusamningi fyrirtækisins við Landsvirkjun segir Bjarni: „Nú verður Rio Tinto að svara sjálft fyrir það, en ég hef skilið það þannig að það strandi á þeim sjálf- um að opna samninginn og gera skilmála hans alla opinbera.“ Framhaldið verði að koma í ljós  Fjármálaráðherra gerir ekki at- hugasemdir við kæru Rio Tinto Bjarni Benediktsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.