Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÖRGUM GÖGNUM af öllum tegundum snjalltækja Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Hagnaður Marels hf. á öðrum árs- fjórðungi 2020 nam 30,7 milljónum evra, eða tæplega 4,9 milljörðum ís- lenskra króna. Hagnaðurinn minnk- ar um 10% milli ára, en á sama fjórð- ungi í fyrra nam hann 34,3 milljónum evra. Eignir félagsins hafa lækkað frá síðasta ári. Þær námu í lok fjórð- ungsins rúmum 1,7 milljörðum evra, eða rúmlega 270 milljörðum ís- lenskra króna, en voru á sama tíma í fyrra tæplega 1,9 milljarðar evra. Eigið fé félagsins hefur sömuleiðis lækkað milli ára. Það nemur nú 892 milljónum evra, eða 141 milljarði ís- lenskra króna, en var á sama tíma í fyrra 956 milljónir evra. Eiginfjárhlutfall félagsins er 52%. Hraðað tækifærum Árni Oddur Þórðarson forstjóri fyrirtækisins segir að heimsfaraldur kórónuveirunnar hafi hraðað tæki- færum til aukinnar sjálfvirkni og stafrænnar þróunar. Segir hann að kauphegðun neytenda sé að taka miklum og sennilega varanlegum breytingum. „Á síðustu 4-6 mánuð- um höfum við merkt aukna spurn eftir matvælum í verslunum í stað heimsókna á veitingastaði. Neytend- ur huga nú meira að gæðum, sjálf- bærni í framleiðslu og verðlagi. Með- an faraldurinn stóð sem hæst var meira um stórinnkaup þar sem eftir- spurn eftir frosinni matvöru var mikil, en nú má merkja að viðskipta- vinir fari tíðar í smásöluverslanir og leiti í auknum mæli eftir ferskri mat- vöru,“ segir Árni Oddur í tilkynning- unni. Um horfur í rekstrinum segir Árni að markaðsaðstæður hafi verið krefjandi vegna ástandsins í heim- inum, en Marel búi að góðri dreif- ingu tekna á milli markaða og iðn- aða. Þá segir hann ekki vitað hver fjárhagsleg áhrif COVID-19 munu verða á Marel. Uppgjör Tekjur Marels voru 305,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður Mar- els 4,9 milljarðar  Óvíst með áhrif kórónufaraldursins 23. júlí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.36 Sterlingspund 176.96 Kanadadalur 103.38 Dönsk króna 21.439 Norsk króna 15.202 Sænsk króna 15.582 Svissn. franki 148.75 Japanskt jen 1.2994 SDR 193.86 Evra 159.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.8493 Hrávöruverð Gull 1823.2 ($/únsa) Ál 1646.5 ($/tonn) LME Hráolía 43.17 ($/fatið) Brent Tekjur Icelandair Group á milli ára drógust saman um 85% á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur fram í bráða- birgðaafkomutöl- um flugfélagsins. Ástæðuna má rekja til kórónuveiru- faraldursins. Námu tekjur um 60 milljónum Bandaríkjadala eða 8,2 mö. kr., og rekstrartap 100-110 milljónum Bandaríkjadala, eða 13,7- 15 mö. kr. Handbært fé félagsins í lok fjórðungsins nam 154 milljónum Bandaríkjadala, eða um 21 ma. kr. Uppgjör annars ársfjórðungs verður birt 27. júlí nk. Félagið stefnir á hlutafjárútboð í næsta mánuði og búist er við að samkomulagi við hag- aðila ljúki fyrir mánaðamót. 14-15 ma. tap Ice- landair Veira Tap Iceland- air var viðbúið.  Handbært fé í lok fjórðungs 21 ma. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Upphaf fasteignafélag hefur sölu nýrra íbúða á Kársnesi í lok sumars. Um er að ræða 38 íbúðir af alls 129 sem verða á Hafnarbraut 12. Upphaflega stóð til að af- henda fyrstu íbúðirnar haustið 2019 en erfið staða Upphafs og aðrir þættir seinkuðu þeim áætlunum. Eigið fé þurrkaðist nær út en um var að ræða marga millj- arða króna. Erlendur Fjeldsted, fram- kvæmdastjóri Upphafs, segir áform- að að setja 33 íbúðir í sölu í nóvem- ber og 58 í lokaáfanga. Verið er að klára sýningaríbúðir og söluvef. Faraldurinn tafði verkefni Erlendur segir áformað að ljúka verkefninu í maí. Kórónuveirufar- aldurinn hafi tafið þetta og önnur verkefni hjá Upphafi. „Framkvæmdir hafa verið stöðug- ar en tafir orðið á afhendingu að- fanga. Til dæmis á innréttingum, handriðum og öðru sem kemur að ut- an. Það hefur verið nægur mann- skapur en vantað efni til að klára verkefnin,“ segir Erlendur. Á Hafnarbraut 12 verða 129 litlar og meðalstórar íbúðir í nokkrum stigagöngum og tvískiptur bílakjall- ari undir húsunum. Má ætla að sölu- verðmæti Hafnarbrautar 12 geti numið 6-7 milljörðum með hliðsjón af verði nýrra íbúða í hverfinu. Erlendur segir aðspurður að vaxtalækkanir Seðlabankans hafi örvað markaðinn. „Við teljum að þetta sé ágætistími til að setja íbúðirnar á sölu, meðal annars út af vaxtastiginu. Vaxta- lækkanirnar hafa hleypt lífi í mark- aðinn,“ segir Erlendur. Íbúðirnar henti breiðum hópi, þar með talið fyrstu kaupendum og fólki sem er að minnka við sig. Upphaf fasteignafélag er í eigu GAMMA Novus. Þegar Upphaf hafði verið endurfjármagnað stóð til að verktaka- og þjónustufyrirtækið VHE myndi ljúka uppbyggingu á Hafnarbraut 12. Svo fór að aðilar sömdu um að fá annan verktaka að verkinu og tók Þingvangur yfir upp- bygginguna. Góð sala í Mosfellsbæ Ásamt Hafnarbrautinni er Upp- haf að byggja íbúðir við Gerplu- stræti, við Vefarastræti og við Bjarkarholt í Mosfellsbæ. Erlendur segir 25 íbúðir til viðbót- ar á leið í sölu við Gerplustræti. Sal- an á Vefarastræti hafi gengið mjög vel og séu aðeins tvær íbúðir óseldar. Þá sé búið að selja 12 af 36 íbúðum á Bjarkarholti og séu 15 á leið í sölu í ágúst og 40 síðla hausts. Salan í Mos- fellsbæ hafi komið á óvart. Upphaf hefur því haft ágætt tekjustreymi undanfarið. „Félagið stendur ágætlega. Það var endurfjármagnað á sínum tíma. Við erum að klára verkefni og svo er- um við að skoða þróunarverkefni og meta hvað við eigum að gera við þau,“ segir Erlendur. Ekki sé útlit fyrir annað en að Upphaf verði starfandi á næstu misserum hið minnsta. Upphaf hefur sölu íbúða  Fyrsti áfangi á Kársnesreit í sölu í sumarlok  Þingvangur tók yfir verkefnið  Upphaf er fullfjármagnað og eru horfur á að það verði starfandi næstu misseri Morgunblaðið/Baldur Bakgarður Fyrsti áfanginn á Hafnarbraut 12 kemur í sölu á næstunni. Erlendur Örn Fjeldsted Afkoma Arion banka á öðrum fjórð- ungi þessa árs er jákvæð um 4,9 milljarða, samkvæmt drögum að uppgjöri sem fé- lagið sendi til Kauphallar Ís- lands í gær. Til samanburðar var afkoma sama árs- fjórðungs í fyrra rúmir tveir millj- arðar króna. Reiknuð arð- semi á ársgrund- velli er sam- kvæmt drögunum 10,5% á þessu ári. Í tilkynningu Arion banka segir að afkoman sé umtalsvert umfram það sem spár greiningaraðila hafi gert ráð fyrir. Í tilkynningunni er gefin sú skýr- ing á afkomunni að jákvæð þróun markaða á tímabilinu hafi sett mark sitt á uppgjörið en hreinar fjármuna- tekjur bankans eru jákvæðar um 2,7 milljarða króna. Niðurfærsla útlána á tímabilinu nemur tæpum einum milljarði króna, sem er veruleg lækkun frá fyrsta fjórðungi og rekstraráhrif félaga til sölu eru óveruleg á fjórðungnum. Arion hagnaður 5 ma.kr.  Jákvæð þróun markaða á tímabilinu Rekstur Afkoman batnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.