Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 28
BAKSVIÐ Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn stendur í miklum framkvæmdum en í vor hófst vinna við stækkun fiskvinnsluhúss um 600 fermetra. „Verið er að stækka rýmið vegna bolfisk- vinnslu, setja upp nýja lyftarageymslu, stækka móttökukælinn og koma fyrir betri aðstöðu fyrir aðgerð og grásleppuvinnslu en hluti stækkunar er líka vegna búnaðar fyrir vinnslu uppsjávarfisks. Einnig verður þarna rými fyrir kælivélabúnað vegna fiskvinnslu,“ sagði Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri. Stefnt er að því að taka nýja hlutann í notk- un fyrir jól en ekki er pressa á að ljúka þess- um framkvæmdum fyrir komandi sumar- vertíð. Ísfélagið hefur í gegnum tíðina staðið í stöð- ugri uppbyggingu og endurnýjun í starfsem- inni á Þórshöfn, bæði í fiskimjölsverksmiðju og frystihúsi, og með þessum framkvæmdum bætast 600 fermetrar við fiskvinnsluhúsið. Það er óhætt að segja að þessi þróun síðustu ára hefur verið mjög ánægjuleg fyrir sam- félagið og nærumhverfi á Þórshöfn. Stærri skip kalla á stækkun hafnar Undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir í veiðum og meðhöndlun á uppsjávarfiskteg- undum með öflugri og stærri skipum sem koma með fiskinn vel kældan og í góðu ásig- komulagi í land til vinnslu. Þessu fylgir að víða hefur þurft að fara í framkvæmdir í höfn- um svo þessi skip geti landað. Einnig er sú þróun að flutningaskipin hafa verið að stækka sem jafnframt kallar á stækkun hafna. Í sumar stendur til að hreinsa og dýpka hluta af höfninni á Þórshöfn og ljóst er að á næstunni er nauðsynlegt að fara í frekari framkvæmdir á dýpkun og auka við viðlegu- kanta hafnarinnar. Á bryggjuna er komið nýtt vigtarhús og aðstaða fyrir starfsmenn á hafn- arsvæði hefur batnað til muna. Siggeir segir óvíst hvenær sumarvertíðin fari í gang en makrílveiði hefur verið dræm undanfarið. Þegar vertíðin hefst er þörf fyrir aukinn mannskap og fjölgar í bænum, þá eykst þörfin eftir leiguhúsnæði en vöntun er á því á Þórshöfn. Samfelld bolfiskvinnsla hefur verið hjá Ís- félaginu í allt sumar og skip Ísfélagsins, Dala- Rafn, Ottó og Litlanes, sjá um að koma með afla til vinnslu í bolfiski. Mjög góð veiði hefur verið á handfærin hjá strandveiðibátum og öðrum en tregt á línu en sjómenn segja töluvert af síld vera í firðinum. Þorskurinn liggur í síldinni og étur sig fullan og tekur þá frekar á króka en línu. Hafa bátasjómenn orðið varir við mikið af síld og einnig eitthvað af loðnu á svæðinu undanfarin ár. Fiskverð er einnig ágætt, frá 470 kr. á kíló upp í 520 kr. fyrir fisk í stærðarflokki 8 plús, svo vel gengur á strandveiðinni. Nokkuð langt er fyrir bátana að sækja, allt upp í 40 mílur, en fæstir strandveiðibátar fara þó svo langt því þeir fara út á miðnætti og þurfa að vera búnir að landa tímanlega áður en fiskurinn fer á uppboð. Um tíu bátar eru á strandveiðum frá Þórshöfn núna. Mótmæla fyrirkomulagi strandveiða Mikil óánægja ríkir hjá sjómönnum í smá- bátafélaginu Fonti á Norðausturlandi með það fyrirkomulag á strandveiðum að hafa einn heildarpott fyrir öll veiðisvæði en hratt geng- ur nú á þann pott. Stjórn Fonts sendi í sumar áskorun til ráðherra sjávarútvegsmála um að taka aftur upp svæðaskiptingu á strandveiði- afla og bendir á að fiskgengd byrjar ekki að marki hér á svæðinu fyrr en síðari hluta strandveiða, í júlí og ágúst, en þá er lítið orðið eftir í heildarpottinum þar sem fyrri hluta tímabils hefur verið góð veiði bæði fyrir sunn- an og vestan. Áður hefur verið bent á að lítið réttlæti sé fólgið í því að einn heildarpottur sé yfir strandveiðar meðan ekki er öllum tryggð- ur sami dagafjöldi og því mikil mismunun fyr- ir svæðin þar sem fiskgengd er seinni hluta tímabilsins. Uppbygging hjá Ísfélaginu á Þórshöfn  Fiskvinnsluhúsið stækkað um 600 fermetra  Mjög góð veiði hjá handfærabátum í sumar og sam- felld bolfiskvinnsla  Stærri skip en áður koma til Þórshafnar og það kallar á endurbætur á höfninni Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Uppbygging Búið er að reisa fyrstu veggina. Smiðirnir Guðjón Gamalíelssson og Kristján Úlfarsson vinna við stækkun á fiskvinnsluhúsinu. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Afurðaverð á markaði 21. júlí 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 354,65 Þorskur, slægður 436,59 Ýsa, óslægð 238,71 Ýsa, slægð 191,21 Ufsi, óslægður 53,49 Ufsi, slægður 69,72 Gullkarfi 179,62 Blálanga, slægð 130,32 Langa, óslægð 128,80 Langa, slægð 179,21 Keila, óslægð 55,70 Keila, slægð 99,91 Steinbítur, óslægður 107,06 Steinbítur, slægður 162,74 Skötuselur, slægður 498,54 Grálúða, óslægð 52,00 Grálúða, slægð 81,11 Skarkoli, slægður 355,65 Þykkvalúra, slægð 388,37 Sandkoli, slægður 21,00 Gellur 1.281,00 Gullkarfi, slægður 49,00 Hlýri, óslægður 181,53 Hlýri, slægður 193,96 Lúða, slægð 668,01 Lýsa, slægð 25,00 Makríll 89,00 Náskata, slægð 13,00 Sandhverfa, slægð 1.525,00 Skata, slægð 93,11 Undirmálsýsa, óslægð 87,73 Undirmálsýsa, slægð 13,90 Undirmálsþorskur, óslægður 150,16 Undirmálsþorskur, slægður 149,25 Síðumúli 13 108 Reykjavík S. 577 5500 ibudaeignir.is Halldór Már Sverrisson Löggiltur fasteignasali S: 898 5599 halldor@ibudaeignir.is Evert Guðmundsson Löggiltur fasteignasali S: 823 3022 evert@ibudaeignir.is Ólafía Pálmadóttir Viðskiptafr./lögg. leigumiðlari S: 864 2299 ibudaeignir@ibudaeignir.is VILTU BJÓÐA ÍBÚÐINA ÞÍNA TIL LANGTÍMALEIGU? Tökum að okkur að útvega trausta leigjendur. Traust og fagleg þjónusta. Allar nánari upplýsingar veitir: Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.