Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 36
6 kartöflur, millistærð ólífuolía sjávarsalt Feykir ostur sýrður rjómi steinselja beikon Skerið kartöflurnar þvert yfir með litlu millibili, passið að fara ekki alla leið niður. Gott er að nota hassel- backbretti í þetta verk. Penslið með ólífuolíu og bak- ið við 220°C í 30 mínútur. Takið kartöflurnar út og penslið aftur yfir með ólífuolíu og stráið salti yfir. Setjið aftur inn í ofn og bakið áfram þar til næstum mjúkar. Rífið Feykisostinn inn á milli rifanna á kartöflunum og aftur inn í ofn þar til osturinn hefur bráðnað. Skreytið með sýrðum rjóma, steinselju og steiktu beikonkurli. Ostafylltar kartöflur með beikonkurli MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Fullkomið fatbrauð f yrir öll tækifæri 900 g smáar kartöflur, skornar í tvennt 1-2 msk. ólífuolía ½ tsk. salt ½ tsk. pipar ½ hvítlaukssalt ½ bolli gráðostur 2 msk. graslaukur, smátt skorinn 1 msk. söxuð kryddjurt að eigin vali (dill, steinselja, basilíka, óreganó) Hitið grillið á hæsta hita. Á með- an grillið er að hitna, útbúið þá tvö- falt lag með álpappír og brettið upp á endana. Setjið kartöflurnar í ál- pappírsbakkann og dreypið ólífu- olíu yfir. Stráið salti, pipar og hvít- laukssalti yfir. Blandið vel saman þannig að hráefnin þeki allar kart- öflurnar. Gott er að setja álpapp- írinn á bökunarplötu svo auðveld- ara verði að flytja kartöflurnar út á grillið. Setjið kartöflubakkann á grillið og lokið grillinu. Best er að láta kartöflurnar snúa þannig að skorna hliðin vísi niður til að þær verði stökkari. Grillið í 15-20 mínútur og hreyfið aðeins við þeim á fimm mínutna fresti. Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar, stráið þá gráðosti yfir og grillið í eina mínútu eða þar til ost- urinn er bráðinn. Takið af grillinu og berið fram. Kartöflumeðlæti sem slær alltaf í gegn Sælkerar landsins geta tekið gleði sína því kartöflurnar eru komnar í verslanir. Neytendur virðast taka þeim fagnandi því þær stoppa stutt við og greinilegt að þeirra hefur verið beðið með eftirvæntingu. Að sögn Kristínar Lindu Sveinsdóttur, markaðsstjóra Íslensks græn- metis, eru spennandi tímar í vændum því nú fari hillur verslana að fyll- ast af uppskeru sumarsins. Nóg sé til af frábæru fyrsta flokks grænmeti sem ætti að gleðja neytendur. Af því tilefni látum við fylgja með nokkar uppskriftir sem eiga það sameiginlegt að vera algjörlega frábærar. Nýjar íslenskar kartöflur komnar í verslanir Tilhlökkunarefni Margir bíða spenntir eftir að nýju kartöflurnar komi í verslanir á sumrin. 900 g kartöflur skornar í báta 2 msk. extra virgin ólífuolía 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. óreganó sjávarsalt nýmalaður svartur pipar 2 bollar rifinn mozzarellaostur 1 bolli rifinn parmesanostur fersk steinselja, söxuð þurrkaðar papriku- eða chiliflögur til skreytingar Hitið grillið á miðlungsháan hita (eða ofn- inn á 210 gráður) Rífið niður fjóra stóra búta af álpappír – hver um sig 25 cm að lengd. Í stórri skál skal blanda saman kartöflum, ólífuolíu, hvítlauks- dufti og óreganó. Kryddið vel með salti og pipar. Skiptið kartöflunum milli álpappírsark- anna. Brjótið hverja örk saman þannig að kartöflurnar séu alveg huldar. Lokið síðan samskeytum vel og vandlega með því að brjóta upp á þau. Setjið álpakkningarnar á grillið og eldið í 10-15 mínútur (sami tími í ofni). Takið af grillinu og opnið. Sáldrið ostinum yfir og lokið aftur. Setjið á grillið í 3-5 mín- útur eða þar til osturinn er bráðinn. Skreytið með steinselju og papriku- eða chiliflögum. Kartöfluosta- sprengja á grillið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.