Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 35
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir
gudrunselma@mbl.is
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir segir
það ólýsanlega tilfinningu að fá
svarta beltið. „Ég hafði sett stefnuna
á þetta í mörg ár en það er erfitt að
setja tilfinningarnar í orð hvernig það
var að ná áfanganum. Ég finn helst
fyrir gríðarlegu stolti og þakklæti.
Þetta er alveg ótrúlega stór áfangi
fyrir mig eins og sást vel þegar ég
fékk beltið. Ég varð ansi meyr, með
allt yndislega fólkið í kringum mig
sem ég hef verið samferða í íþróttinni
í gegnum árin.“
Þú ert fyrsta íslenska konan til
þess að ná þessum árangri í greininni.
Af hverju hafa ekki fleiri konur kom-
ist eins langt?
„Við erum ennþá mun færri konur
en karlar í íþróttinni og það er alveg
hægt að segja að þetta hafi verið mjög
karllæg íþrótt hingað til en það er að
breytast. Hægt og rólega eru að koma
inn fleiri og fleiri ótrúlega flottar og
öflugar konur bæði hér heima og er-
lendis. Íþróttin hentar að sjálfsögðu
alveg jafnvel báðum kynjum og ég er
alltaf að sjá fleiri konur byrja að æfa
eftir því sem fleiri prufa að mæta.“
Ingibjörg Birna byrjaði að stunda
íþróttina fyrir tæpum níu árum, þá 19
ára gömul.
„Ég var á tímapunkti í mínu lífi þar
sem ég var ekki með neina skýra
stefnu og vissi í rauninni ekki alveg
hvað mig langaði til að gera eða
hverju ég hafði gaman af. Eftir fyrstu
æfinguna breyttist það heldur betur
en ég fann strax að bardagaíþróttir
höfðuðu sterkt til mín. Bæði íþróttin
sjálf, hreyfingarnar og tæknin en
ekki síður félagsskapurinn og allt
samfélagið í kringum glímuna,“ segir
Ingibjörg Birna. Í dag starfar hún
sem yfirþjálfari Reykjavík MMA auk
þess að vera ÍAK-einka- og styrkt-
arþjálfari og næringarþjálfari frá
Precision Nutrition.
Andlegi þátturinn mikilvægur
Í glímunni hefur Ingibjörg Birna
ekki bara lært líkamlega færni heldur
skiptir líka miklu máli að huga að
andlega þættinum og vera með höf-
uðið rétt skrúfað á. Hún segir glímu
stundum líkt við skák og finnst henni
heillandi að læra inn á hvernig hægt
er að nota útsjónarsemi og tækni á
móti stærri og sterkari einstaklingi.
„Það að lenda í slæmri stöðu og
læra að anda í gegnum það, finna leið-
ir til að komast úr stöðunni á yfir-
vegaðan hátt eða jafnvel gefa upp
leikinn og byrja upp á nýtt þegar ég
finn að ég er komin í stöðu sem er mér
um megn er nokkuð sem ég yfirfæri
beint á mitt daglega líf. Mér þykir líka
einstaklega fallegt að íþróttin er köll-
uð „the gentle art“ og þú ákveður allt-
af sjálf hversu langt þú vilt ganga og
gefur upp leikinn þegar þú vilt ekki
ganga lengra í óþægilegri stöðu,“ seg-
ir Ingibjörg Birna og segir þetta bæði
gott fyrir egóið og kenna holla auð-
mýkt og virðingu.
Ingibjörg Birna stundar jóga, fer í
kakóserímóníur í Andagift, gerir önd-
unaræfingar, les bækur og hlustar á
hlaðvörp til þess að þjálfa andlega
þáttinn. Það fer eftir dögum hvað hún
gerir hverju sinni en hún reynir alltaf
að hugleiða á morgnana og á kvöldin.
Hún passar að eiga stund fyrir sig og
reynir að eiga í uppbyggilegum sam-
skiptum. Góðir vinir hjálpa líka og
eru margir af hennar bestu vinum úr
glímunni.
Mataræði og svefn skipta máli
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér?
„Þeir eru svolítið misjafnir en eins
og staðan er núna vakna ég milli sjö
og átta, tek þá hugleiðslu og rólegheit
þar sem ég bý mér til einhvern huggu-
legan morgunmat, fer svo í framhaldi
að þjálfa. Upp úr hádeginu drilla ég,
horfi á tækniatriði eða lyfti. Á svo
nokkuð rólega stund, þjálfa og æfi
seinnipartinn, svo er það yfirleitt
kvöldmatur og rólegheit með fjöl-
skyldunni.“
Venjulega æfir Ingibjörg Birna
glímu fimm til sex sinnum í viku, fer
yfir ákveðin tækniatriði tvisvar til
þrisvar í viku og lyftir einu sinni eða
tvisvar í viku. Þetta er mikið af æfing-
um en hún segir mataræðið skipta
miklu máli til þess að ná árangri,
sömuleiðis svefn, öndun og hug-
leiðslu. Þegar þetta er í lagi finnur
hún mun á afkastagetu og líðan sinni.
„Ég hef prófað alls kyns með mat-
aræðið en það sem ég aðhyllist er að
borða það sem er næst náttúrunni.
Ég sleppi því að borða mat með inni-
haldsefnum sem ég þekki ekki og svo
er ég að vísu með ákveðnar mat-
arsérþarfir sjálf út frá því hvað ég hef
fundið að fer vel í minn kropp en það
er auðvitað eins mismunandi og við
erum mörg hvað hentar hverjum og
einum. Ég elda mikið sjálf og hef
mjög gaman af því að prófa mig
áfram með uppskriftir.
Ég borða alltaf vel af grænmeti og
hugsa um fjölbreytni í fæðuvali. Alltaf
vel af fiski og eggjum, svo kjöt svona
inn á milli. Ég hef haldið mig að mestu
frá glúteni, mjólkurvörum og sykri en
eins og ég segi þarf hver og einn að
finna það fyrir sig hvað hentar.“
Settu þér markmið
Það setja ekki allir stefnuna á
svarta beltið eins og Ingibjörg Birna
en þó skiptir máli að vera með skýrt
markmið að mati hennar þegar blaða-
maður spyr hvað meðalmaðurinn
þurfi að hafa í huga til að ná árangri.
„Ég myndi segja að það fyrsta
væri að setja sér markmið. Hvaða
markmiði langar þig að ná og af
hverju? Þá fer að verða auðveldara að
setja upp plan í framhaldi; hvernig þú
kemst þangað af því að sýnin er orðin
skýr. Mín ráðlegging er alltaf að setja
þér hófleg og minni markmið sem þú
veist að þú nærð að framkvæma á
leiðinni í átt að stærra markmiðinu.
Og hugsa um að markmiðin séu fólgin
í því sem þú hefur stjórn á í staðinn
fyrir utanaðkomandi aðstæður. Svo
er auðvitað aðalatriðið að njóta ferð-
arinnar því það er hún sem skiptir
máli. Ég veit að þetta er algjör klisja
en það er ástæða fyrir því að þetta er
klisja.“
„Þú ákveður
alltaf sjálf
hversu langt
þú vilt ganga“
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir fékk svarta beltið í
brasilísku jiu jitsu á dögunum, fyrst íslenskra
kvenna. Ingibjörg Birna fann sig í íþróttinni 19 ára
gömul en fyrir það vissi hún ekki alveg hvað hana
langaði að gera eða hverju hún hefði gaman af.
Svarta beltið Ingibjörg
Birna er með svarta beltið
í brasilísku jiu jitsu.
Bardagakona Ingibjörg Birna
Ársælsdóttir lifir og hrærist í
heimi bardagaíþrótta.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
ESTRO Model 3042
L 164 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-