Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 35

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 35
Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Ingibjörg Birna Ársælsdóttir segir það ólýsanlega tilfinningu að fá svarta beltið. „Ég hafði sett stefnuna á þetta í mörg ár en það er erfitt að setja tilfinningarnar í orð hvernig það var að ná áfanganum. Ég finn helst fyrir gríðarlegu stolti og þakklæti. Þetta er alveg ótrúlega stór áfangi fyrir mig eins og sást vel þegar ég fékk beltið. Ég varð ansi meyr, með allt yndislega fólkið í kringum mig sem ég hef verið samferða í íþróttinni í gegnum árin.“ Þú ert fyrsta íslenska konan til þess að ná þessum árangri í greininni. Af hverju hafa ekki fleiri konur kom- ist eins langt? „Við erum ennþá mun færri konur en karlar í íþróttinni og það er alveg hægt að segja að þetta hafi verið mjög karllæg íþrótt hingað til en það er að breytast. Hægt og rólega eru að koma inn fleiri og fleiri ótrúlega flottar og öflugar konur bæði hér heima og er- lendis. Íþróttin hentar að sjálfsögðu alveg jafnvel báðum kynjum og ég er alltaf að sjá fleiri konur byrja að æfa eftir því sem fleiri prufa að mæta.“ Ingibjörg Birna byrjaði að stunda íþróttina fyrir tæpum níu árum, þá 19 ára gömul. „Ég var á tímapunkti í mínu lífi þar sem ég var ekki með neina skýra stefnu og vissi í rauninni ekki alveg hvað mig langaði til að gera eða hverju ég hafði gaman af. Eftir fyrstu æfinguna breyttist það heldur betur en ég fann strax að bardagaíþróttir höfðuðu sterkt til mín. Bæði íþróttin sjálf, hreyfingarnar og tæknin en ekki síður félagsskapurinn og allt samfélagið í kringum glímuna,“ segir Ingibjörg Birna. Í dag starfar hún sem yfirþjálfari Reykjavík MMA auk þess að vera ÍAK-einka- og styrkt- arþjálfari og næringarþjálfari frá Precision Nutrition. Andlegi þátturinn mikilvægur Í glímunni hefur Ingibjörg Birna ekki bara lært líkamlega færni heldur skiptir líka miklu máli að huga að andlega þættinum og vera með höf- uðið rétt skrúfað á. Hún segir glímu stundum líkt við skák og finnst henni heillandi að læra inn á hvernig hægt er að nota útsjónarsemi og tækni á móti stærri og sterkari einstaklingi. „Það að lenda í slæmri stöðu og læra að anda í gegnum það, finna leið- ir til að komast úr stöðunni á yfir- vegaðan hátt eða jafnvel gefa upp leikinn og byrja upp á nýtt þegar ég finn að ég er komin í stöðu sem er mér um megn er nokkuð sem ég yfirfæri beint á mitt daglega líf. Mér þykir líka einstaklega fallegt að íþróttin er köll- uð „the gentle art“ og þú ákveður allt- af sjálf hversu langt þú vilt ganga og gefur upp leikinn þegar þú vilt ekki ganga lengra í óþægilegri stöðu,“ seg- ir Ingibjörg Birna og segir þetta bæði gott fyrir egóið og kenna holla auð- mýkt og virðingu. Ingibjörg Birna stundar jóga, fer í kakóserímóníur í Andagift, gerir önd- unaræfingar, les bækur og hlustar á hlaðvörp til þess að þjálfa andlega þáttinn. Það fer eftir dögum hvað hún gerir hverju sinni en hún reynir alltaf að hugleiða á morgnana og á kvöldin. Hún passar að eiga stund fyrir sig og reynir að eiga í uppbyggilegum sam- skiptum. Góðir vinir hjálpa líka og eru margir af hennar bestu vinum úr glímunni. Mataræði og svefn skipta máli Hvernig er venjulegur dagur hjá þér? „Þeir eru svolítið misjafnir en eins og staðan er núna vakna ég milli sjö og átta, tek þá hugleiðslu og rólegheit þar sem ég bý mér til einhvern huggu- legan morgunmat, fer svo í framhaldi að þjálfa. Upp úr hádeginu drilla ég, horfi á tækniatriði eða lyfti. Á svo nokkuð rólega stund, þjálfa og æfi seinnipartinn, svo er það yfirleitt kvöldmatur og rólegheit með fjöl- skyldunni.“ Venjulega æfir Ingibjörg Birna glímu fimm til sex sinnum í viku, fer yfir ákveðin tækniatriði tvisvar til þrisvar í viku og lyftir einu sinni eða tvisvar í viku. Þetta er mikið af æfing- um en hún segir mataræðið skipta miklu máli til þess að ná árangri, sömuleiðis svefn, öndun og hug- leiðslu. Þegar þetta er í lagi finnur hún mun á afkastagetu og líðan sinni. „Ég hef prófað alls kyns með mat- aræðið en það sem ég aðhyllist er að borða það sem er næst náttúrunni. Ég sleppi því að borða mat með inni- haldsefnum sem ég þekki ekki og svo er ég að vísu með ákveðnar mat- arsérþarfir sjálf út frá því hvað ég hef fundið að fer vel í minn kropp en það er auðvitað eins mismunandi og við erum mörg hvað hentar hverjum og einum. Ég elda mikið sjálf og hef mjög gaman af því að prófa mig áfram með uppskriftir. Ég borða alltaf vel af grænmeti og hugsa um fjölbreytni í fæðuvali. Alltaf vel af fiski og eggjum, svo kjöt svona inn á milli. Ég hef haldið mig að mestu frá glúteni, mjólkurvörum og sykri en eins og ég segi þarf hver og einn að finna það fyrir sig hvað hentar.“ Settu þér markmið Það setja ekki allir stefnuna á svarta beltið eins og Ingibjörg Birna en þó skiptir máli að vera með skýrt markmið að mati hennar þegar blaða- maður spyr hvað meðalmaðurinn þurfi að hafa í huga til að ná árangri. „Ég myndi segja að það fyrsta væri að setja sér markmið. Hvaða markmiði langar þig að ná og af hverju? Þá fer að verða auðveldara að setja upp plan í framhaldi; hvernig þú kemst þangað af því að sýnin er orðin skýr. Mín ráðlegging er alltaf að setja þér hófleg og minni markmið sem þú veist að þú nærð að framkvæma á leiðinni í átt að stærra markmiðinu. Og hugsa um að markmiðin séu fólgin í því sem þú hefur stjórn á í staðinn fyrir utanaðkomandi aðstæður. Svo er auðvitað aðalatriðið að njóta ferð- arinnar því það er hún sem skiptir máli. Ég veit að þetta er algjör klisja en það er ástæða fyrir því að þetta er klisja.“ „Þú ákveður alltaf sjálf hversu langt þú vilt ganga“ Ingibjörg Birna Ársælsdóttir fékk svarta beltið í brasilísku jiu jitsu á dögunum, fyrst íslenskra kvenna. Ingibjörg Birna fann sig í íþróttinni 19 ára gömul en fyrir það vissi hún ekki alveg hvað hana langaði að gera eða hverju hún hefði gaman af. Svarta beltið Ingibjörg Birna er með svarta beltið í brasilísku jiu jitsu. Bardagakona Ingibjörg Birna Ársælsdóttir lifir og hrærist í heimi bardagaíþrótta. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. ESTRO Model 3042 L 164 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,- L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.