Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 56
Útsala
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
2. júlí - 10. ágúst
LOTUS. 3ja sæta. Ljósgrátt áklæði. viðarfætur.
L217 cm. 99.900 kr.NÚ 59.940 kr. SPARAÐU 39.960 kr.
CADO. Borðstofuborð L200 x B95 cm. Gegnheil olíuborin hnota. Hægt að kaupa
framlengingar. 179.900 kr.NÚ 125.900 kr. SPARAÐU 54.000 kr.
SEAFORD SÓFABORÐ.
Með tímaritahirslu. 110x60 cm. 19.900 kr.
NÚ 13.900 kr. SPARAÐU 6.000 kr.
SQUARE SÓFABORÐ.
Hvítur marmari 50x50 cm. 24.900 kr.
NÚ 17.400 kr. SPARAÐU 7.500 kr.
HYPE STÓLL. Djúprautt flauelsáklæði.
29.900 kr.NÚ 17.900 kr.
SPARAÐU 12.000 kr.
30%
30%
40%
40%
30%
Þýska fréttatímaritið Spiegel hefur birt nýjan lista yfir
söluhæstu bækur Þýskalands og í öðru og fjórða sæti
listans eru þýskar þýðingar á bókum Ragnars Jónas-
sonar, annars vegar Dunkel eða Dimma í öðru sæti og
hins vegar Insel eða Drungi í fjórða sæti. Listinn nær
yfir skáldsögur sem seldar voru í Þýskalandi undan-
farna viku. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem tvær bæk-
ur eftir sama íslenska höfundinn eru meðal fimm sölu-
hæstu bóka vikunnar þar í landi.
Tvær bækur eftir Ragnar meðal
fimm söluhæstu bóka Þýskalands
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 205. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Mitt persónulega markmið var bara að komast í byrj-
unarliðið, það er ekki gefið hjá Breiðabliki. Það er svo
bara frábært ef ég næ að skora og leggja upp á liðs-
félaga mína,“ segir Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jóns-
dóttir sem skoraði þrennu fyrir Breiðablik í stórsigr-
inum á Val í fyrrakvöld, 4:0, þegar bestu kvennalið
landsins mættust á Kópavogsvelli. »47
Markmiðið hjá mér var bara
að komast í byrjunarliðið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skel í rifjum úti á Breiðafirði sem
molnar og rekur með straumum á
land mótar svip lands og náttúru í
einni af fallegri sveitum landsins.
Rauðisandur, sem er syðst á Vest-
fjörðum, ber nafn með rentu; sand-
urinn hefur rauðleitan blæ en annars
eru svipbrigði hans mörg og ráðast
m.a. af birtu og veðráttu. Sjö manns
búa á þremur bæjum í sveitinni, þar
sem ferðaþjónusta er vaxandi vegur.
Tjaldsvæði er á Melanesi og
Franska kaffihúsið er á Saurbæ, þar
sem er kirkja sveitarinnar.
Ekið um sneiðinga
Úr sunnanverðum Patreksfirði
liggur leiðin yfir Skersfjall og niður
á Rauðasand, þar sem ekið er um
sneiðinga í bröttum brekkum í
Bjarngötudal. Þaðan blasir við stór-
brotið og fallegt umhverfi
„Hingað á Rauðasand hafa margir
komið í sumar,“ segir Ástþór Skúla-
son sem með Sigríði Maríu Sigurðar-
dóttur konu sinni rekur ferðaþjón-
ustu á Melanesi. Hann lenti í
umferðarslysi fyrir 17 árum og hefur
síðan verið í hjólastól. Var lengi eftir
það með sauðfjárbú en einbeitir sér
nú að ferðaþjónustunni.
„Fyrstu ferðamenn ársins komu
hingað í apríl, í miðju samkomu-
banni. Tjaldsvæðið opnuðum við 3.
maí og síðan þá hefur komið ein ein-
asta nótt að ekki séu gestir. Þessa
starfsemi höfum við byggt upp á síð-
astliðnum sex árum og skapað okkur
viðurværi með þessu.“
Höfuðáttir gilda ekki
Á Rauðasandi gilda sérstakar
málhefðir þegar lýst er hvert leið
skuli liggja eða vísað er til vegar.
Höfuðáttirnar fjórar gilda ekki í því
sambandi. Sagt er inn, út, yfir, fram
og niður. Í miðri sveitinni er sagt að
fara inn að Melanesi og út að
Lambavatni, en svo heitir bær sem
getið er í útvarpi dag hvern. Í ára-
tugi hafa verið gerðar veðurathug-
anir á Lambavatni, síðari árin að
mestu með sjálfvirkri tækni en raka-
og úrkomumæla verður að vitja um.
Þeim verkum var Þorsteinn
Tryggvason bóndi á Lambavatni að
sinna þegar Morgunblaðið var á
Rauðasandi.
„Hér getur rignt mikið í sunnan-
átt og orðið mjög hvasst eins og
gerðist í hvellinum í kringum síðustu
helgi. Þá var hér norðaustanátt og
vindur fór í 38 metra á sekúndu í
mestu hviðunum,“ segir Þorsteinn,
sem í þessari afskekktu sveit er með
mjólkurframleiðslu og 30 kýr í fjósi.
Heyskapurinn gengur ágætlega.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Melanes Ástþór Skúlason og Sigríður María Sigurðardóttir starfrækja ferðaþjónustu sem margir nýta sér.
Út og yfir á Rauðasandi
Náttúrufegurð á vinsælum ferðamannastað Sjö í sveit
Litadýrð Horft inn að Sjöundá yfir
sandinn, sem skartaði sínu fegursta.
Lambavatn Þorsteinn Tryggvason í
úrkomumælingum fyrir mjaltir.