Morgunblaðið - 23.07.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.07.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Strandveiðar eru mjög þægi-legt sumarstarf þegar mað-ur er í námi. Ef vel fiskaster hægt að hafa góðar tekjur og mér finnst frábært að geta sleppt því að taka námslán. Tekj- urnar duga mér líka vel inn í vetur- inn,“ segir Axel Örn Guðmundsson, 25 ára sálfræðinemi, sem stundar strandveiðar í sumar eins og undan- farin sumur. Axel var nýlagstur að bryggju á Tálknafirði þegar blaða- maður náði tali af honum seint að kveldi í upphafi vikunnar. „Veturinn sem ég var í tíunda bekk tók ég skipstjórnarréttindi fyr- ir báta sem eru undir tólf metra langir og ég keypti bátinn minn sumarið eftir að ég kláraði grunn- skólann. Ég hef stundað strandveið- ar á mínum báti öll sumur síðan. Ég keypti bátinn notaðan af kunningja mínum, Hartmanni Jónssyni, og ég lét bátinn heita nafninu hans. Hart- mann var orðinn fullorðinn þegar ég keypti bátinn og hættur að vera til sjós og hann var mjög sáttur þegar hann sá að báturinn bar nafn hans. Hartmann lést nokkrum árum eftir að ég tók við bátnum,“ segir Axel og bætir við að hann hafi keypt bátinn á þrjár milljónir. „Ég gerði samning við Hart- mann um að borga helminginn, eina og hálfa milljón, í upphafi sumars en hinn helminginn í lok sumars þegar ég væri búinn að veiða. Ég átti því bátinn skuldlausan í lok þessa fyrsta sumars míns á honum.“ En hvernig gat strákur átt eina og hálfa milljón til að borga út í báti þegar hann hafði nýlokið grunn- skóla? „Ég var búinn að leggja fyrir og safna mér pening, ég hafði verið að vinna með pabba til sjós þegar ég var strákur, ég var öll sumur að veiða með honum og fékk minn hlut. Ég setti líka fermingarpeningana mína í bátasjóðinn minn.“ Talar stundum við mávana Axel er fæddur á Ísafirði, þaðan sem allt hans móðurfólk er, en hann hefur búið í Kópavogi frá því hann var strákur. „Ég má veiða hér á vestur- svæðinu af því að ég er með lögheim- ili hjá ömmu minni á Ísafirði. Ég lærði á þessi svæði hér fyrir vestan af róðrum með pabba. Ég færi mig á milli fjarða eftir því hvernig mér líður, því þetta veiðisvæði nær yfir alla Vestfirðina. Þó að mér finnist best að vera fyrir vestan hef ég líka veitt í kringum Snæfellsnesið og víð- ar. Ég hef líka veitt fyrir sunnan en þá helst grásleppu,“ segir Axel, sem rær alltaf einn eldsnemma að morgni og segist stundum tala við mávana og syngja fyrir himininn, í einverunni tímunum saman úti á ballarhafi. „Netsambandið úti á hafi er gott, svo ég get hringt, hlustað á hlaðvarpsþætti og tónlist. Mér finnst ekkert mál að vera einn á báti. Auðvitað reyni ég að forðast að lenda í háska, en vissulega hefur ein- staka sinnum eitthvað verið að veðri, en aldrei mikil hætta,“ segir Axel, sem er heppinn með það að hann er aldrei sjóveikur. Sjómenn eiga að velja sjálfir Hann segir lengd vinnudagsins fara eftir því hvernig veiðarnar gangi hverju sinni. „Í strandveiðinni er ég aldrei meira en 14 tíma á veiðum í einu, en ég hef líka verið að veiða í öðrum kerfum, til dæmis í leigukvótanum, en þá hef ég verið samfellt í einn og hálfan sólarhring í beit úti á sjó að veiða.“ Fyrirkomulagið í strandveiðum segir hann vera þannig að hann megi veiða 770 kíló á dag, sem honum finnst hamlandi. „Aðrar hömlur eru þær að ég má ekki veiða föstudaga, laugardaga og sunnudaga, og ég má aðeins veiða tólf daga í mánuði, þessa fjóra mán- uði sem strandveiðar standa yfir, í maí, júní, júlí og ágúst. Að mínu mati ættu sjómenn að velja sína veiðidaga eftir veðri og engu öðru. Þessi óþarfa pressa er á menn að róa í stað þess að hafa 48 daga yfir allt sumarið og geta valið eftir sínu höfði. Svo mætti svæðis- skiptingin fara líka mín vegna og sjávarpláss sem eru vel staðsett við fiskimið ættu að fá að njóta þess,“ segir Axel, sem dregur mestmegnis þorsk úr söltum sjó á strandveiðum sínum, en líka aðeins ufsa og ein- staka aðrar tegundir fljóta með. Axel vinnur yfir vetrartímann með háskólanáminu á leikskólanum Núpi í Kópavogi. „Ég held við séum ekki margir sjómenn sem störfum á leikskólum landsins,“ segir Axel stoltur og bæt- ir við að hann hafi aðeins ætlað að vinna tímabundið á leikskólanum. „Ég festist þar af því að mér finnst þetta æðislegt starf. Ég vona að sálfræðinámið nýtist mér á leik- skólastiginu í framtíðinni,“ segir Ax- el, sem einnig er langt kominn með nám í viðskiptafræði. Keypti sér bát eftir tíunda bekk „Ég held við séum ekki margir sjómenn sem störfum á leikskólum landsins,“ segir Axel Örn Guðmundsson, sem stundar strandveiðar á sumrin en nemur sál- fræði við Háskóla Íslands yfir vetrartímann. Ekkert blávatn Axel við veiðar úti á sjó með svaðalega stóran fisk. Sjóari Axel er aldrei sjóveikur. Hartmann Bátur Axels ber nafn fyrri eiganda og hefur reynst honum vel. Á sumrin er ótalmargt skemmtilegt sem krakkar geta tekið sér fyrir hendur, því þá er nú aldeilis veðrið til að njóta útiveru. Útivera felst ekki alltaf í líkamlegum áskorunum eða íþróttaiðkun, hún getur líka falist í því að nota heilann, skapa og búa til eitthvað skemmtilegt. Nú ættu krakkar á aldrinum 8 til 12 ára að kætast, því í dag, fimmtudag 23. júlí, efnir Íslenska myndasögusamfélagið til mynda- söguratleiks í Laugardalnum. Við- burðurinn er á vegum Barnamenn- ingarhátíðar og hefst ratleikurinn fyrir utan Ásmundarsafn klukkan 11, og fer fram á nokkrum mið- stöðvum í kringum Laugardal. Krökkunum verður kennt að búa til myndasögu skref fyrir skref og þegar leiknum lýkur fá krakkarnir verðlaun (á meðan birgðir endast) fyrir að klára leikinn. Í tilkynningu kemur fram að Ís- lenska myndasögusamfélagið (ÍMS) beiti sér fyrir því að halda og kynna menningarlega myndasögu- viðburði svo myndasögur geti náð sterkri fótfestu á Íslandi. Félagar eru bæði áhuga- og fagfólk í myndasögugeiranum. Myndasöguratleikurinn er liður í því. Félagið var stofnað haustið 2019 af Ötlu Hrafneyju, Védísi Huldu- dóttur og Einari Vali Mássyni, sem öll vinna sem fagaðilar í mynda- sögugeiranum. Myndasöguratleikur í Laugardalnum Krakkar stíga sín fyrstu skref sem myndasöguhöfundar Gefandi sköpun Öllum börnum er hollt að taka þátt í að skapa eitthvað. Vefverslun selena.is Frí heimsending um allt land Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Aðhaldsbolir Mjög góðir aðhaldsbolir sem móta línur og veita gott aðhald yfir magasvæði og undir höndum Ný sending Stærðir: S-2XL 10.500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.