Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 18

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Gróska hefur verið með eindæmum góð í Surtsey í sumar. Það kom í ljós í árlegum leiðangri til eyjarinnar 13.-17. júlí. Aldrei fyrr höfðu fundist jafn margar æðplöntutegundir og þar af tvær nýjar. Auk þess komu fram tvær nýjar smádýrategundir, samkvæmt frétt Náttúrufræðistofn- unar Íslands (ni.is). „Ofsaköst vetrarveðra síðastliðinn vetur höfðu sett mark sitt á eyna, brotið vel úr björgum og grafið hvelfingar inn í þau. Sjór hafði geng- ið yfir norðurtangann úr austri, bor- ið grjót úr kambinum inn á flötina, grafið djúpa farvegi í hana og flætt áfram yfir austan megin. Tangaflöt- in hafði fengið nýja ásýnd,“ segir í fréttinni. Metfjöldi æðplantna Gróður var mældur í föstum rann- sóknareitum víða á eynni. Ljós- tillífun plantna og virkni í jarðvegi var einnig mæld og jarðvegssýni tekin til efnamælinga. Niðurbrots- pokar voru grafnir upp og nýir settir í alla reiti. Einnig var gróskustuðull mældur í öllum föstum reitum og í mælireitum við mastur en hann er mælikvarði á blaðgrænu og grósku gróðurs. Alls fundust 67 tegundir æðplantna á lífi, en það er met á einu sumri. Af þeim voru tvær nýjar teg- undir, mýrastör og vætudúnurt. Auk þess fannst aftur hvítmaðra en hún sást síðast árið 1998. Engin tegund hafði horfið síðan árið 2019. Nú hafa alls 78 tegundir æðplantna verið skráðar í Surtsey frá upphafi. Svartbakur var áberandi Máfavarpið var með seinna móti í sumar. Svartbakur var mest áber- andi en hann er stöðugt að taka meira af varplendum sílamáfs og bola honum út á minna gróið hraun. Silfurmáfar voru með færra móti. Lítið bar á ungum máfanna. „Sumir sílamáfar voru enn á eggj- um. Fýlum fer fjölgandi í graslend- inu inni á eynni. Teistur voru alls staðar með ströndum og allnokkrir lundar sátu uppi í björgunum á suð- vestanverðri eynni. Ekki tókst að staðfesta varp þeirra. Hrafnar höfðu gert laup syðst í Surtungi og sáust mest þrír fuglar saman, þar af var ungahljóð í einum. Þúfutittlings- hreiður með eggjum fannst í gamla máfavarpinu og sennilega voru tvö eða þrjú pör í varpi. Maríuerlur með fleyga unga sáust bæði á suðureynni og á Tanga, að minnsta kosti þrjú pör. Snjótittlingar voru eins og jafn- an nokkur pör, minnst fimm. Á Tanga sáust nokkrir sendlingar, sandlóa og steindepill. Æðarkolla hefur haldið sig á eynni undanfarin sumur. Eitt sumarið leiddi hún unga til sjávar. Nú sást henni rétt bregða fyrir þegar hún flaug norður yfir eynni. Nýlegur gæsaskítur sást í gamla varpinu en á hraunklöppum suðaustan á eynni var eldri og fín- gerðari skítur, sennilega frá mar- gæsum sem hafa tyllt sér þar í vor.“ Nýjar tegundir smádýra Þá voru smádýr skoðuð á hefð- bundinn hátt með fallgildrum í flest- um mælireitum og tjaldgildru í máfavarpi. Einnig var smádýrum safnað undan steinum í hraunum og rekaviði á tanganum. Nú þegar eru tvær tegundir komnar fram; hús- humla og smáfluga sem ber heiti eyjarinnar, Limnellia surturi, þótt hún hafi ekki áður fundist í Surtsey. Sjö líffræðingar Náttúru- fræðistofnunar tóku þátt í leiðangr- inum, auk sérfræðings frá Landbúnaðarháskóla Íslands og landvarðar Umhverfisstofnunar. Landvörðurinn hreinsaði fjörur af drasli sem rekið hafði á land. Rusl hefur verið hreinsað úr fjörum Surtseyjar og af tanganum á hverju sumri frá 2016. Veður var ágætt í byrjun en sner- ist síðan í suðaustan strekking og úrhellisrigningu. Til stóð að yfirgefa eyna 16. júlí en það frestaðist til 17. júlí vegna veðurs. Þyrla Landhelgis- gæslunnar flutti leiðangursmennina til og frá eynni. gudni@mbl.is Óvenjumikil gróska í Surtsey Ljósmynd/Sigurður H. Magnússon Gróskan Holurt hefur aukist mikið í Surtsey á síðustu árum og setur svip sinn á eyna. Hún er nú víða eins og blómagarður yfir að líta. Ljósmynd/Erling Ólafsson Landbreytingar Mikil ummerki sáust um stórviðri vetrarins og atgang sjávar. Sjór hafði gengið yfir grjótgarðinn austan megin, fært hann innar og djúpir farvegir grafist í flötina. Eftir stóðu háir melgrashólar og ógróinn sandur. Ljósmynd/Erling Ólafsson Fyrsti fundur Húshumla var í fyrsta sinn staðfest í Surtsey. Fyrir nokkrum árum sást þar humla en tegund varð ekki staðfest. Landnám er ólíklegt. Ljósmynd/Erling Ólafsson Ný tegund Vætudúnurt fannst í fyrsta skipti í Surtsey. Ljósmynd/Erling Ólafsson Silfurmáfar Þeim virðist hafa heldur fækkað í máfavarpinu. Þetta par var með tvo unga. Annar fuglinn bar augljós merki blöndunar við hvítmáf.  Fleiri plöntutegundir en áður hafa fundist  Miklar breytingar á eynni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.