Morgunblaðið - 23.07.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.07.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við landfyllinguna miklu við Klettagarða í Sundahöfn eru langt komnar. Nú hefur almenningi verið heimiluð för um landfyllinguna og Faxaflóahafnir hafa komið fyrir bekkjum/borðum á völdum stöðum svo fólk getið tyllt sér niður. Hins vegar verður innkeyrslunni lokað svo landfyllingin fyllist ekki af bifreiðum. Tota gengur út af fyllingunni og þegar þangað er komið blasir við fólki stórglæsilegt útsýni í allar áttir, útsýni sem ekki hefur verið í boði áður. Glæsilegt er að horfa yfir borgina, þar sem háhýsin við ströndina og Hallgríms- kirkja gnæfa yfir byggðina. Ekki er síður til- komumumikið að horfa yfir sundin til Viðeyjar og Viðeyjarstofu. Og fyrir framan totuna er Skarfasker, sem fólk hefur ekki áður getað skoðað í slíku návígi. Til að auðvelda fólki að komast út á þennan stað hefur verið komið fyrir malaryfirlagi með- fram sjóvarnargörðunum, yst á landfylling- unni. Í framtíðinni verður göngustígur malbik- aður meðfram sjóvörninni, en óvíst er að það náist að malbika stíginn á þessu ári, að því er Gísli Gíslason hafnarstjóri tjáir blaðinu. Framkvæmdir við landfyllinguna hófust vorið 2019 og hafa gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Reiknað var með að þeim myndi ekki ljúka fyrr en 2021. Einnig hefur kostnaðaráætlun staðist, en reiknað var með að framkvæmdirnar kostuðu 260 milljónir. Heildarflatarmál á fylltu landi innan sjó- varnargarða er um 2,3 hektarar. Til að útbúa slíka landfyllingu þarf mikið af grjóti. Svo heppilega vildi til að hægt var að flytja grjót úr grunni Nýja Landspítalans við Hringbraut í landfyllinguna, allt að 280 þús- und rúmmetra. Þetta reyndist mikið happ fyr- ir spítalann, því til stóð að flytja allt grjótið úr grunninum um 35 kílómetra leið upp í Bolöld- ur, sem er námasvæði fyrir ofan Sandskeið. Þess í stað þurfti aðeins að aka nokkra kíló- metra niður í Sundahöfn með 25 þúsund vöru- bílshlöss. Sparnaðurinn var á annað hundrað milljónir auk miklu minni áhrifa á umhverfið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Esjan og Viðey Hér má sjá útsýnið af nýju landfyllingunni yfir Sundin, Skarfasker er til vinstri á myndinni. Faxaflóahafnir hafa komið fyrir bekkjum/borðum, svo almenningur geti tyllt sér niður. Nýr útsýnisstaður í höfuðborginni Borgarútsýni Þegar horft er í vesturátt blasir Laugarnesið við frá nýju sjónarhorni. Einnig er frábært útsýni yfir borgina, þar sem háhýsin við ströndina, íbúðarhús og turnar, gnæfa yfir byggð. Ríkið Laga á húsið að utan sem innan. Gera upp Gamla ríkið Seyðisfjarðarkaupstaður hefur haf- ið hugmyndasamkeppni um nýtingu á „Gamla ríkinu“ að Hafnargötu 11 á Seyðisfirði. Húsið var byggt árið 1918 og hýsti ÁTVR í hartnær 50 ár, en húsið þyk- ir hafa mikið sögulegt gildi varðandi stíl, gerð og þá starfsemi sem hefur þar verið. Ríkissjóður hefur afsalað sér húsinu til Seyðisfjarðarkaup- staðar en bæjarstjóri Seyðisfjarð- arkaupstaðar, Aðalheiður Borgþórs- dóttir, segir að ríkið muni setja 100 milljónir króna í að laga það að utan sem innan, og innrétta kjallara og önnur rými í húsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.