Morgunblaðið - 23.07.2020, Side 26
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Landsnet hefur óskað eftir tilboðum í
byggingu strengja- og útivistarbrúar
yfir Glerá á Akureyri. Bærinn veitti
Landsneti nýlega leyfi til að hefja
framkvæmdir. Gleráin hefur verið brú-
uð á fjölmörgum stöðum í gegnum árin
fyrir gangandi og akandi, bæði í byggð
og í Glerárdal. Eru þær vel á annan
tuginn. Svokölluð Bandagerðisbrú var
fyrsta akfæra brúin yfir Glerá, byggð
árið 1922, og um hana lá þjóðvegurinn
út frá Akureyri.
Landsnet áformar að byggja 220 kV
raflínu, Hólasandslínu 3, milli Akur-
eyrar og Hólasands, sem er milli Mý-
vatns og Laxárdals. Línuleiðin er rúm-
ir 70 kílómetrar og verður línan að
hluta til lögð í jörðu. Línunni er ætlað
að auka raforkuöryggi á svæðinu.
Til að bera upp strengi Hólasands-
línu 3 verður byggð 45 metra löng
stálbogabrú yfir Glerá við Rangárvelli.
Brúin er samstarfsverkefni Lands-
nets, RARIK og Akureyrarbæjar. Í
brúargólfinu verða ídráttarrör fyrir
háspennustrengi RARIK og strengir
Landsnets verða í upphengdum ryðfrí
stálrörum undir brúargólfi. Akur-
eyrarbær nýtir brúna sem göngu-,
hjóla- og reiðbrú.
Jarðstrengur til suðurs
Í almennri lýsingu með fram-
kvæmdaleyfinu segir:
Frá tengivirki á Rangárvöllum efst í
byggðum Akureyrar mun jarð-
strengur liggja til suðurs samhliða nú-
verandi loftlínum, Kröflulínu 1 og Lax-
árlínu 1 og þverar Glerárgil á nýrri
strengjabrú en bygging hennar er
hluti af framkvæmdinni. Þá liggur leið-
in ofan við hesthúsahverfið í Breiðholti
og gegnum Naustaborgir rétt vestan
við hverfisverndarsvæði í Naustaflóa.
Sunnan Naustaborga beygir streng-
leiðin úr línugötu núverandi raflína til
austurs og liggur með Grafargili norð-
an við Kjarnaskóg og orlofsbyggðina.
Frá Kjarnaskógi liggur leiðin suður
fyrir flugvöll og þverar vestustu kvísl
Eyjafjarðarár við flugbrautarendann,
grafinn í árbotninn. Austari kvíslar ár-
innar eru þveraðar með greftri við
gömlu brýrnar, til að halda raski á
verndarsvæði óshólma Eyjafjarðarár í
lágmarki. Í miðkvísl Eyjafjarðarár
liggur svo leið jarðstrengsins út úr
umdæmi Akureyrarbæjar og yfir í
Eyjafjarðarsveit. Strengleiðin í Eyja-
firði var valin í samstarfi við viðkom-
andi landeigendur, sveitarfélög og
Isavia vegna nálægðarinnar við Akur-
eyrarflugvöll. Framkvæmdir eru
áformaðar á árunum 2020 og 2021.
Glerá á upptök sín í jöklum á
Tröllaskaga og einnig úr ferskvatns-
lindum í Glerárdal, segir í frjálsa al-
fræðiritinu. Hún rennur gegnum
Akureyri út í sjó í Eyjafirði. Eyrin
Oddeyri er mynduð af framburði ár-
innar. Glerá var mikilvæg í iðnsögu
Akureyrar, en á Gleráreyrum var
Sambandið með umfangsmikinn verk-
smiðjurekstur. Þar er nú verslunar-
miðstöðin Glerártorg.
Áin var stífluð til raforkuframleiðslu
við Glerárfossinn 1921 og Glerár-
virkjun tók til starfa 1922. Hún var af-
lögð 1963 en Norðurorka endurbyggði
hana á árunum 2004-05. Áætluð orku-
framleiðsla er nú um 1,8 Gwst/ári.
Glerá setur mikinn svip á Akureyri og
skiptir bæjarbúa miklu máli eins og
gefur að skilja.
Enn ein brúin byggð yfir Glerá
Landsnet byggir brú fyrir strengi
Nýtist göngufólki og hestamönnum
Nýja brúin Tölvumynd sem Landsnet lét útbúa og sýnir mögulegt útlit brúarinnar. Hún verður 45 metra löng.
Ný göngubrú yfi r
Glerá á Akureyri
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Þingva
llastræ
ti
Miðhúsabraut
Sú
luv
eg
ur
Gl
er
á
Glerá
Hlíða
rfjal
lsveg
ur
Fyrirhuguð göngubrú
yfi r Glerá og stígar
G
le
rá
Gle
rá
A K U R E Y R I
Morgunblaðið/Kristján
Glerárvirkjun Hefur fært Akureyr-
ingum birtu og yl í marga áratugi.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
Tvö tilboð bárust í framkvæmdir við
samgöngubætur í Grafarvogi norður
ásamt verkefnum umferðaröryggis-
áætlunar á sama svæði.
Verktækni ehf. bauðst til að vinna
verkið fyrir tæpar 70 milljónir
króna, 87% af kostnaðaráætlun, sem
hljóðaði upp á 80 milljónir. Tinnu-
berg ehf. bauð 75,5 milljónir.
Um er að ræða verkefni til að
auka öryggi gangandi vegfarenda.
Gangbrautir verða hækkaðar upp,
bætt við þrengingum og/eða hraða-
hindrunum, lýsing verður bætt og
sömuleiðis verða skilti lagfærð.
Gönguþveranir, sem verða merkt-
ar sem gangbrautir, eru á Strand-
vegi, Breiðuvík, Hamravík, Víkur-
vegi, Mosavegi, Vættaborgum og
Móavegi.
Þegar framkvæmdin var sam-
þykkt í borgarráði bókuðu borgar-
ráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að
það væri fagnaðarefni að fara ætti í
samgöngubætur í norðanverðum
Grafarvogi enda hafi verið kallað
eftir þeim svo árum skiptir. „Það eru
þó vonbrigði að ekki hafi verið komið
til móts við óskir foreldra um það að
koma undirgöngum eða göngubrú
yfir Strandveg enda gríðarlega
hættuleg leið fyrir börn og ekki í
takt við það sem lofað var þegar
ákveðið var að sameina og loka skóla
í norðanverðum Grafarvogi.“
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grafarvogur Ráðist verður í samgöngubætur í nyrsta hluta hverfisins.
Samgöngubætur í
Grafarvogi norður
Mögulega muna einhverjir eftir því
þegar upp kom metingur um það
hvort fleiri brýr væru yfir Elliða-
árnar í Reykjavík eða Glerá á Akur-
eyri.
„Þetta byrjaði með því að ég
gerði frétt um að Elliðaárnar væru
mest brúaða áin á Íslandi. Ég man
nú ekki lengur hvert tilefnið var,“
segir Eggert Skúlason, fyrrverandi
fréttamaður á Stöð 2, nú veiði-
fréttamaður mbl.is, þegar hann
rifjar þetta upp. Ekki man Eggert
árið en þetta hafi verið á tíunda
áratug síðustu aldar.
„Eftir að fréttin birtist kom upp
metnaður í norðanmönnum og
Óskar Þór Halldórsson, sem var
fréttamaður fyrir Stöð 2 á Akur-
eyri á þeim tíma, fór og taldi
brýrnar yfir Glerá mjög nákvæm-
lega og sagði þær vera fleiri. Gerði
hann um þetta frétt sem svar við
minni frétt.“
Eggert taldi þetta ekki rétt hjá
Óskari og gerði sömuleiðis ná-
kvæma talningu á brúnum yfir
báðar kvíslar Elliðaánna. „Ég var
allt að því smásmugulegur því ég
taldi meira að segja brúna sem
laxateljarinn hangir á. Þannig fékk
ég fleiri brýr og kvaddi Óskar í
nýrri frétt með þessum orðum:
„Toppaðu það!“ Ekki heyrðist
meira í þeim norðanmönnum.“
Eggert minnir að tölurnar hafi
verið 15:13, Elliðaánum í vil, en
tekur fram að þetta sé sagt án
ábyrgðar. Síðan eru liðin mörg ár
og brúm yfir Glerá hefur verið
bætt við. Nú er það spurning hvort
nýja brúin, sem Landsnet ætlar að
smíða, skjóti Glerá í efsta sætið!
sisi@mbl.is
Metingur í fréttum Stöðvar 2
HVER ER MEST BRÚAÐA ÁIN Á ÍSLANDI?
Eggert
Skúlason
Óskar Þór
Halldórsson
Veiðivefur
í samstarfi við