Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 34

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Ertu að gera upp gamalt hús ? Ð BYGGJUM Á LANGRI HEFÐ tu við – sjón er sögu ríkari Stofnað 1919 Laugavegi 29 • sími 552 4320 www.brynja.is • verslun@brynja.is Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16 Eigum úrval af alls kyns járnvöru. Hurðahúnar, glugga- og hurðalamir, stormjárn, læsingar, útiljós, bátasaumur og spíkerar allar stærðir o.fl. VI Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Það er erfitt að átta sig á hvað vakir fyrir fólki sem vill stífla þjóðvegina fyrir einka- bílum, þrátt fyrir þann efnahagslega skaða sem það veldur at- vinnulífinu sem og menningarlegri aft- urför. Engin skyn- semisrök benda í þessa átt. Til þess að skilja þetta þarf að leita á svið trúarbragðafræða. Trúin Til er sú trú, antibílismi, að einkabíllinn sé af því vonda. Ekki svo slæm trú sé hún iðkuð í hófi, hún á sinn þátt í því að einkabílar í dag vega ekki nema þriðja part, og eyða ekki nema fjórða parti, af því sem var fyrir um 50 árum ef fólk kaupir sparneytinn bíl. En eins og í öðrum trúarbrögðum hafa þróast sértrúarhópar í þessum söfnuði sem eru sannfærðir um að einkabíll sé synd. Synd gegn um- hverfinu, loftslaginu og náttúrunni. Þá skiptir engu máli að útblástur og mengun einkabíla er afar lítil miðað við aðra þætti. Að útrýma þeim lagar loftið ekki neitt. Syndin Íslenskir sértrúarflokkar eins og Hjálpræðisherinn og aðventistar komu frá Noregi. Þeir hafa reynst ágæt viðbót við trúarlíf Íslendinga en sama verður ekki sagt um anti- bílistana, þeir eru nú í óðaönn að herma eftir Noregi og það í miklu stærri stíl en þeir, og ætla greinilega að gera mun betur. Þeim finnst ekki nóg að flestir Ís- lendingar eru forhertir syndarar sem eiga bíl, heldur er syndin svo lævís og lipur að marg- ir af hinum trúuðu láta freistast og fá sér bíl eða fá lánaðan bíl til að fara á fundi og þess háttar. Sem sagt, ekki gott. Gegn þessu er ekki nema ein leið, að gera miklu betur en þeir í Nor- egi. Gefa fólki fullkomið frelsi til að velja sannleikann, og aðeins hann. Valið skal standa á milli þess að hjóla, ganga eða að ferðast með Borgarlínu. Að velja syndina er ekki til umræðu. Sannleikurinn mun gera yður frjálsa (Jóh. 8.31–32). Línan Á meðfylgjandi mynd má sjá Vaulevejen í Stavanger sem er fyrirmyndin að Borgarlínunni. Embættismenn og ráðgjafar fengu fyrirmæli um að teikna svona veg. (www.youtube.com/ watch?v=uaC71NpSIbg) Þetta er vegur 44 í Stavanger. Hann er gerður samkvæmt eldri til- lögum, nema 60 % vegarins í miðj- unni eru tekin undir strætó og þar mega aðrir ekki vera. Þetta stíflar fjölfarna vegi gersamlega á álags- tímum fyrir allri umferð nema strætó. Vegurinn er lokaður inni með girðingu, en gönguop eru á stöku stað. Meiningin er að fólk komi þar í gegn, gangi að næstu stoppistöð og fari þar yfir akbrautina inn á reinarnar sitthvorumegin við strætóbrautina. Menn geta ímyndað sér hvernig það gengur við íslensk- ar aðstæður að skjótast yfir ak- brautina inni á milli bíla sem snemma á morgnana og á kvöldin geta verið á 60-80 km hraða. Í ís- lensku myrkri og misjöfnum veðr- um er þetta hrein dauðagildra fyrir börn og eldri borgara. Til að mæta þessari hættu voru sporvagnarnir lagðir niður á sínum tíma. Að setja strætó á sama stað og gömlu spor- vagnana er bilun. Er þetta þá svona í Stavanger? Nei, þetta er ekki svona í Stav- anger. Við hliðina á vegi 44 er annar vegur, Motorveien E39. Stærsti og dýrasti bílvegur í Noregi og Evrópu allri. Bílvegur sem þverar alla norsku firðina frá Bergen til Þránd- heims og þar eru verkfræðilegar lausnir sem vekja aðdáun um allan heim. Ef herma á eftir Stavanger, af hverju er E39 ekki valinn? Það væri fínt að fá einn svoleiðis þó ekki væri nema frá Reykjavík til Kefla- víkur. En að hugsa þannig er víst synd. Nánar tiltekið hugrenninga- synd en þær geta verið hinar verstu syndir samkvæmt gömlum textum. Og Reykjavík stendur gegn allri synd með öllu sínu skipulagsvaldi. Svo Stavanger skal það vera. Þrátt fyrir að kostnaðurinn sé Reykjavík, sem er að verða gjald- þrota, gersamlega ofviða. En Stav- anger kunni ráð við því og notaði það áður en þeir lögðu sína línu. Þeir fundu olíu. Þeir fundu Ekofisk- svæðið sem er búið að vera auðs- uppspretta Stavanger í 50 ár. Hvernig væri nú að beina öllu sínu trúarlega afli í að finna olíu? Borgarlínan má bíða á meðan og í 50 ár í viðbót. Það mun enginn sakna hennar. Trúin, syndin og línan: Hugmyndafræði Borgarlínunnar Eftir Jónas Elíasson »Borgarlínan er fund- in upp af pólitískum ástæðum, eftiröpun anti- bílista á norskum vegi. Útfærslan er stór- hættuleg ef tekið er mið af íslenskum aðstæðum. Jónas Elíasson Höfundur er prófessor. jonaseliassonhi@gmail.com Skjáskot/YouTubeBussveien, Statens Veivæsen, Noregi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.