Morgunblaðið - 23.07.2020, Síða 38
Ástkær frændi okkar,
BOGI SIGURÐSSON
frá Vatni í Haukadal,
Dalbraut 27,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 12. júlí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 28. júlí klukkan 13.
Systkinabörn
og aðrir aðstandendur
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
✝ Þórður ÁrniBjörgúlfsson,
fv. rennismiður og
verslunarmaður á
Akureyri, fæddist á
Eskifirði 2. maí
1918. Hann lést á
Öldrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri 5.
júlí 2020.
Hann var sonur
Mörtu Maríu Árna-
dóttur, f. 21.11.
1896 í Ólafsvík, d. 14.7. 1921, og
Björgúlfs Halldórssonar, f. í
Hólagerði, Fáskrúðs-
fjarðarhreppi 7.11. 1893, d. 3.7.
1971. Stjúpmóðir Þórðar var
Marta Jónsdóttir, f. 24.3. 1897,
d. 22.12. 1965.
Þórður kvæntist Unni Frið-
riksdóttur 30.10. 1943, hún lést
31.12. 2006. Börn Unnar og
Þórðar eru: 1) Björg, f. 1945,
börn hennar eru fjögur, barna-
börnin átta og eitt lang-
ömmubarn. 2) Friðrik Viðar, f.
1946, kvæntur Kristínu Jónínu
Halldórsdóttur, börn þeirra eru
fjögur og barnabörnin níu. 3)
rennismiður í Vélsmiðjunni
Odda á Akureyri. Hann stofnaði
ásamt félögum sínum Vélsmiðj-
una Val ehf., sem starfaði
skamman tíma og sameinaðist
síðan Slippstöðinni. Þá tók við
starf sem rennismiður hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri, þar sem
hann vann um árabil. Að loknu
starfi þar tók við starf í raf-
lagnadeild KEA þar til hann
stofnaði, ásamt fjölskyldu sinni,
fyrirtækið Þ. Björgúlfsson ehf.,
en þar starfaði hann fram á árið
2001, þá tæplega 83 ára að aldri.
Á unglingsárum starfaði
Þórður í skátafélaginu, hann
var félagi í Íþróttafélaginu Þór
á Akureyri, æfði þar frjálsar
íþróttir. Þórður tók þátt í starf-
semi Skíðastaðafélagsins og
ferðum Ferðafélagsins. Hann
tók einnig þátt í félagsstarfi
eldri borgara í Víðilundi til
margra ára og lagði stund á
tréútskurð og eftir hann liggja
margir fallegir munir í eigu fjöl-
skyldunnar.
Árið 1960 gekk Þórður í Frí-
múrararegluna þar sem hann
starfaði ötullega í áratugi, enda
átti starfið þar hug hans.
Útför Þórðar Árna Björgúlfs-
sonar verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag, 23. júlí
2020, og hefst athöfnin klukkan
13:30.
Björgúlfur, f. 1949,
sambýliskona hans
er Helga Guðrún
Erlingsdóttir, börn
hennar eru þrjú og
barnabörnin sex.
Þórður flutti til
Akureyrar 17. júní
1930, þá 12 ára,
með föður sínum,
fósturmóður og
ömmu, hann nam
við nýja barnaskól-
ann á Brekkunni og síðan við
Gagnfræðaskólann við Lundar-
götu á Akureyri. Þórður hóf
störf hjá Vélsmiðjunni Odda 16
ára að aldri, þar hóf hann nám í
vélsmíði þegar hann var 23 ára.
Þá nam hann við Iðnskólann á
Akureyri og lauk þaðan prófi í
vélvirkjun árið 1943. Hann
stundaði nám við Vélskólann í
Reykjavík í tvo vetur og lauk
þaðan prófi. Þórður kom að
uppsetningu á vélum og tækjum
í gömlu Laxárvirkjun. Þá var
hann um tíma vélstjóri á Pól-
stjörnunni EA á síldveiðum. Um
langt árabil vann hann sem
Allt það sem augað sér,
æskunnar hörpu knýr,
syngur og segir mér
sögur og ævintýr.
Mild ertu móðir jörð.
Margt hefur guð þér veitt.
Aldrei ég Eyjafjörð
elskaði nógu heitt.
(Davíð Stefánsson)
Pabbi ólst upp á Eskifirði til 12
ára aldurs, hann flutti ásamt föður
sínum, stjúpmóður og ömmu til
Akureyrar árið 1930. Þau sigldu
með skipinu Novu inn Eyjafjörð
17. júní og gleymdi hann aldrei
þeirri ægifögru sjón er blasti við
honum, sjórinn spegilsléttur, lita-
dýrð fjallanna, sólin gaf birtu og
yl, áfangastaðurinn Akureyri tók
vel á móti þeim, þrátt fyrir það var
hann alltaf strákurinn frá Eski-
firði. Pabbi átti því láni að fagna
að eignast góða og trausta vini á
sínum unglingsárum, nú hafa þau
öll kvatt þessa jarðvist og geta
glaðst í Sumarlandinu.
Þó finnst mér ást mín öll,
unaður minn og þrá
tengd við hin fögru fjöll,
fjörðinn og sundin blá.
(Davíð Stefánsson)
Leiðir foreldra minna lágu
saman árið 1936. Áhugi þeirra á
útivist leiddi þau saman, þau
stunduðu fjallgöngur og skíða-
íþróttina af kappi, þau voru fé-
lagar í Skíðastaðafélaginu gamla,
samheldni, gleði og sterk vinátta
réði þar ríkjum. Foreldrar mínir
áttu farsælt líf og bjuggu okkur
systkinunum gott og kærleiksríkt
heimili, þar hef ég átt höfði mínu
að halla alla tíð. Eftir andlát móð-
ur minnar árið 2006 hef ég átt því
láni að fagna að eiga yndislegan
tíma með pabba mínum, bæði á
æskuheimilinu og heimili mínu
fyrir sunnan. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt þennan hugljúfa,
trausta, trygglynda, félagslynda
föður sem hefur alla tíð haft kær-
leikann að leiðarljósi. Allar okkar
ferðir innanlands og utanlands
eru dýrmætar minningar. Snæ-
fellsnesið og Ólafsvík voru pabba
kær, þar er fæðingastaður móður
hans sem féll frá aðeins 23 ára
gömul. Eftir að sonur minn og
tengdadóttir settust að í Ólafsvík
var hann þakklátur og glaður að
geta komið og heimsótt þau og
njóta kærleika þeirra og um-
hyggju.
Pabbi tók tæknina í sínar hend-
ur 90 ára gamall og fékk sér góða
tölvu og prentara. Síðan snjall-
síma og spjaldtölvu, þessa tækni
nýtti hann sér í samskiptum við
fjölskylduna, til að fylgjast með
fréttum, skipaferðum, flugferðum
og hlusta á tónlist á Youtube.
Pabbi tók þátt í starfi eldri borg-
ara í Víðilundi til margra ára og
lagði stund á tréútskurð og eftir
hann liggja margir fallegir munir í
eigu fjölskyldunnar.
Pabbi dvaldi á Grenihlíð, dval-
arheimilinu Hlíð á Akureyri, í tæp
tvö ár og þar leið honum vel. Ég er
þakklát öllu því yndislega starfs-
fólki sem annaðist hann og þeirri
hjartahlýju sem það sýndi honum
og okkur aðstandendum. Að leið-
arlokum hrannast upp ótal minn-
ingar og ég fyllist þakklæti fyrir
að hafa átt þennan einstaka föður.
Þakklæti fyrir allar gleðistundirn-
ar með mér, börnum mínum,
tengdabörnum, barnabörnum og
langömmubarni, söknuður okkar
verður mikill. Megi algóður Guð
blessa minningu föður míns.
Þín dóttir,
Björg Þórðardóttir.
Í gegnum lífsins æðar allar
fer ástargeisli, Drottinn, þinn,
í myrkrin út þín elska kallar,
og allur leiftrar geimurinn,
og máttug breytast myrkraból
í morgunstjörnur, tungl og sól.
(Matthías Jochumsson)
Það er með miklum söknuði
sem við kveðjum afa Þórð, hann
var mikið góðmenni og einstak-
lega traustur maður. Við öll fjögur
systkinin eigum yndislegar minn-
ingar um svo ótrúlega langt árabil
með þessum fróðleiksfúsa vin-
gjarnlega manni, honum afa okk-
ar. Eyró, Eyrarvegur 19, var
heimili afa og ömmu þar sem fjöl-
skyldan safnaðist ósjaldan saman
í matar- eða kaffiboð og átti ljúfar
fjölskyldustundir. Afi og amma
voru víðsýnt fólk sem elskaði að
eyða tíma með fjölskyldu sinni,
skarkalinn og gleðin sem fylgdi
barnabörnum veitti þeim alltaf
gleði. Dagsferðir í berjamó í
Ólafsfjarðarmúla með nesti,
heimagerðar skonsur og hafra-
kex. Gönguferðir í Kjarnaskógi og
veiðiferðir í Stóra-Viðarsvatn í
Þistilfirði eru allt skemmtilegar
minningar sem ylja okkur um
hjartað og gleðja sálina.
Afi var og er fyrirmynd okkar,
hann hætti að vinna 83 ára og til-
einkaði sér tölvutæknina þegar
hann var 90 ára. Honum fannst
mjög áhugavert að ferðast um á
netinu og fylgdist meðal annars
með ferðum skipa og flugvéla um
heiminn og skoðaði teikningar af
skipum og flugvélum. Hann
spjallaði við okkur á Skype og
Messenger og hlustaði á tónlist á
youtube og bara átti ekki til orð
yfir þessari frábæru tækni sem
hann hafði gaman af að tileinka
sér. Afa fannst gaman að ferðast
og átti yndislegar stundir á ferð-
um sínum um Snæfellsnesið og í
Ólafsvík þar sem hann dvaldi oft á
tíðum en mamma hans, afi og
amma hvíla í kirkjugarðinum á
Ingjaldshóli. Afi lagði mikla
áherslu á að vera snyrtilegur og
hafði skoðun og áhuga á fötum
fram á síðustu stund, við höfum öll
farið í búðaferðir fyrir hann bæði í
Herrafataverslun Guðsteins eða
Dressmann og sú síðasta var núna
í maílok en þá vantaði hann nýjar
íþróttabuxur.
Þessi lífsglaði, vingjarnlegi ein-
staklingur snerti okkur öll svo
djúpt, alltaf fullur af áhuga á því
umhverfi sem hann var í hverju
sinni, líðan fjölskyldu sinnar, gleði
yfir lífinu og að njóta þess sem það
hafði upp á að bjóða.
Elsku afi okkar, það var aldrei
langt í húmorinn hjá þér og alveg
fram á síðustu stund gastu grínast
við okkur og gantast með aðstæð-
ur. Þú varst að skipuleggja kaffi-
boð fyrir fjölskylduna þína undir
lokin, varst bara ekki alveg búinn
að ákveða staðinn. Við ætlum öll
að vera eins og þú þegar við verð-
um stór. Gleðigjafar, jákvæð,
þakklát, húmoristar og auðmjúk.
Elsku afi, takk fyrir að vera fyrir-
mynd og takk fyrir allan dýrmæta
tímann sem við fengum með þér.
Hvíldu í friði í sumarlandinu
með ömmu Unni.
Marta María, Þórður Tryggvi,
Unnur Rannveig, Hulda
Þorbjörg og fjölskyldur.
Árið er 1968. Við erum þrír vin-
ir og bekkjarbræður úr Sam-
vinnuskólanum í fríi á Akureyri og
leitum að sjálfsögðu uppi bekkjar-
bróður okkar og vin, Friðrik
Þórðarson. Okkur er tekið með
kostum og kynjum á Eyrar-
veginum þar sem húsbóndinn,
Þórður, fer fyrir og ræðir við
komumenn. Vinir sonar hans eru
sjálfkrafa einnig vinir hans – sú er
a.m.k. tilfinning okkar félaganna.
Þannig voru mín fyrstu kynni
af heiðursmanninum Þórði Árna
Björgúlfssyni, sem kvaddur er í
dag. Árin sem í hönd fóru fólu í sér
ótal margar Akureyrarferðir á
vinafund og ómissandi þáttur
þeirra ferða var að hitta þau hjón-
in á Eyrarveginum Þórð og Unni
þar sem manni var ævinlega tekið
eins og fjölskyldumeðlim þótt
engin slík tengsl væru til staðar.
Þegar aðstæður mínar breyttust
og til sögunnar komu kona og
þrjár dætur breytti það engu – all-
ur hópurinn hlaut sama áhuga,
alúð og umhyggju.
Atvikin höguðu því svo, að
vegna starfs míns sem endur-
skoðandi tók ég að mér að sjá um
ýmsa reikningslega aðstoð fyrir
fyrirtæki Þórðar og fjölskyldu, Þ.
Björgúlfsson hf., og hélst sá hátt-
ur í meira en tvo áratugi. Það var
einstaklega áhugavert að sjá þar
iðnaðarmanninn og rennismiðinn
Þórður Árni
Björgúlfsson
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar elskulega eiginmanns,
föður og afa,
BENEDIKTS BJÖRGVINSSONAR
prentara.
Erna Gísladóttir
börn, tengdabörn og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN SIGURÐSSON
bifreiðastjóri,
frá Sleitustöðum í Skagafirði,
sem lést á heimili sínu mánudaginn 13. júlí,
verður jarðsunginn frá Hóladómkirkju föstudaginn 24. júlí
klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sælureit
ættarinnar, Fagralund, sem honum var einkar hugleikinn.
Reynir Þór Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Íris Hulda Jónsdóttir Björn Gunnar Karlsson
Gísli Rúnar Jónsson
Lilja Magnea Jónsdóttir Skúli Hermann Bragason
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn,
ÞÓRÐUR GUÐMUNDUR
SÆMUNDSSON,
sem varð bráðkvaddur fimmtudaginn
11. júní, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. júlí
klukkan 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Drífa Sigurbjarnardóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐNI ÞÓR MAGNÚSSON
húsgagnasmiður,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð Eskifirði
16. júlí.
Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju miðvikudaginn 29. júlí
klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð Hulduhlíðar.
Ragnheiður Þórólfsdóttir
Guðrún Þóra Guðnadóttir Sigurjón Kristjánsson
Magnús Guðnason Jóna Mekkín Jónsdóttir
Jónína Guðnadóttir Jósep Snæbjörnsson
Kristín Guðnadóttir Heimir Tryggvason
Guðný Ragnheiður Guðnad. Ómar Geirsson
Aðalbjörg Guðnadóttir Sigtryggur Brynjarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGÞÓR SIGURÐSSON
netagerðarmeistari,
Sóleyjarima 3,
lést mánudaginn 20. júlí á Landspítalanum
við Hringbraut. Útför auglýst síðar.
Ingigerður Anna Guðmundsdóttir
Ragnheiður Guðrún Sigþórsdóttir
Bjarki Sigþórsson Björk Valdimarsdóttir
Sigríður Sigþórsdóttir Hilmar K. Lyngmo
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR HALLDÓR GARÐARSSON,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn
19. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 5. ágúst klukkan 13.
Óli Haukur Mýrdal Ína Hrund Ísdal
Sunna Dís Ólafsdóttir Daníel Árnason
Hanna Þurý Ólafsdóttir
Garðar Ólafsson Thelma Guðlaug Arnardóttir
og afabörn