Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 42

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 — HVAÐA KRÖFUR GERUM VIÐ? Við leitum að stjórnendum sem búa yfir: • Færni í því að skapa liðsheild á vinnustað og leiða fólk til árangurs • Samskiptafærni, jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi, þjónustulund og metnaði • Meistaraprófi á háskólastigi sem nýtist í starfi • Árangursríkri reynslu af stefnumótun  áætlanagerð • Reynslu af því að stýra fjölbreyttum hópi sérfræðinga • Reynslu af verkefnastjórnun og teymisvinnu • Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur Um er að ræða embætti sem fela í sér tækifæri til að koma að og hafa áhrif á umgjörð og þróun atvinnulífs og stuðla að fæðu- og matvælaöryggi. Um starfs- kjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í embættin til fimm ára frá 1. október 2020. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Umsókn skal skilað með tölvu- pósti á netfangið postur@anr.is. Skýrt skal vera í umsókn um hvaða starf er sótt. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf á íslensku um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættinu. Hæfnisnefnd skipuð af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 393/2012 og skilar greinargerð til ráðherra. — SKRIFSTOFUSTJÓRI SKRIFSTOFU LANDBÚNAÐARMÁLA Skrifstofan fer m.a. með málefni er varða bú- vörusamninga, landbúnaðarlands, starfsskil- yrði landbúnaðar, greiningar og þátttöku í gerð viðskiptasamninga. — SKRIFSTOFUSTJÓRI SKRIFSTOFU MATVÆLA- ÖRYGGIS OG FISKELDIS Skrifstofan fer m.a. með málefni er varða heil- brigði afurða landbúnaðar og sjávarútvegs, dýravelferð og fiskeldis í hafi og á landi. — SKRIFSTOFUSTJÓRI SKRIFSTOFU SJÁVARÚTVEGSMÁLA Skrifstofan fer m.a. með málefni er varða stjórn fiskveiða, fiskveiðisamninga við erlend ríki, veiði í fersku vatni, starfsskilyrði sjávarútvegs, markaði og greiningar Umsóknarfrestur er til 12. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar um embættin veitir Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í gegnum netfangið postur@anr.is — HVER ERUM VIÐ? Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu starfa tveir ráðherrar sem fara með málaflokka ráðuneytisins; sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hjá ráðuneytinu starfar sam- hentur hópur um 70 starfsmanna sem koma úr ýmsum áttum og búa yfir mikilli sérfræðiþekkingu. Málaflokkarnir eru mikilvægir og verkefnin ærin, andinn er léttur og föstudagskaffið klikkar sjaldnast. Sameiginlegur þráður í viðhorfi starfsmanna til verkefna er vilji til að nýta sem best það fjármagn sem ráðuneytið fer með og þjónusta atvinnulíf og hinn almenna borgara. Við viljum vera í fararbroddi í nýsköpun, nýtingu á tækni og þekkingu og höfum verið leiðandi í einföldun regluverks. — HVERJA VILJUM VIÐ FÁ Í LIÐIÐ? Skrifstofustjórar leiða starf skrifstofa undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Við leitum að leiðtogum sem geta stutt við starfsfólk okkar í þeim verkefnum sem eru framundan gagnvart breyttum áherslum og auknu umfangi mála- flokka. Við viljum ráða til starfa einstaklinga sem þrífast á krefjandi verk- efnum, skynja taktinn í samfélaginu, geta haldið utan um mannauðinn okkar og hafa reynslu af því að skapa liðsheild. Innsýn, þekking eða reynsla af málefnasviðinu er nauðsynleg. — HVAÐ FELST Í STARFINU? Skrifstofustjórar stýra starfsemi sinnar skrifstofu og annast almennan rekstur. Þeir bera ábyrgð á því að skrifstofan sinni stjórnsýslulegum skyldum sínum, sýni frumkvæði í stefnumótun og fylgja eftir stefnumarkandi ákvörð- unum ráðherra. Skrifstofustjórar draga fram það besta í starfsfólki sínu, setja markmið og mæla árangur. Skrifstofustjórar hafa umsjón með að stofnanir ráðuneytisins sinni lögbundnu hlutverki, þær starfi í samræmi við samþykk- tar áætlanir og viðhafi vandaða stjórnsýslu og rannsóknir. Skrifstofustjórar leiða samstarf við aðrar skrifstofur, önnur ráðuneyti, Alþingi, hagaðila og aðra innlenda og erlenda aðila sem koma að málefnum viðkomandi skrifstofu. — HVERT LANGAR OKKUR AÐ FARA? Við ætlum að efla fagskrifstofur okkar og skerpa á skiptingu málaflokka til þess að vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Frá 1. október n.k. verða þrjár nýjar fagskrifstofur settar á fót í stað tveggja. Um er að ræða skrifstofu landbúnaðarmála, skrifstofu matvælaöryggis og fiskeldis og skrif- stofu sjávarútvegsmála. Á hverri skrifstofu um sig munu starfa 8-10 manns. Í starfsemi þeirra munum við leggja áherslu á verkefnamiðað skipulag í teymis- vinnu. Við viljum bæta upplýsingagjöf til almennings, stofnana og starfsfólks. Við viljum halda áfram að vera lausnamiðuð, bæta skipulag og auka skilvirkni enn frekar. Við leitum að forystufé Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir laus embætti þriggja skrifstofustjóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.