Morgunblaðið - 23.07.2020, Side 52

Morgunblaðið - 23.07.2020, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerru- smíða 2012 2019 ÍKyrralífsmyndum birtast ljóðsem tala svo beint inn í sam-tímann að lesandinn finnurfyrir þeim innra með sér og allt um kring. Snögg viðbrögð höf- undar við sögulegum atburðum á tímum heimsfaraldurs eru brýn og birta mynd af manneskjunni í hring- iðu veirunnar. kveiki á kerti klukkan tvö og spenni greipar um sprittklútinn meðan æðstuprestarnir leiða okkur gegnum farsóttarritúalið Í ljóðunum er að finna húmor jafnt sem þunga ádeilu og ósk um betri heim handan ganganna. eftir hlé væri réttlátt að við fengjum að rísa upp saman í jafnrétti og frelsi Ljóðmæland- inn birtir bæði dökka og ljósa mynd af tilver- unni, sú dökka felur í sér ljóð um heilbrigðisstarfsmenn sem neyðast til að velja hver fær að deyja og hver að lifa, en sú ljósa inniheldur ábend- ingar um bjartar hliðar heimsfarald- urs: betri stöðu í loftslagsmálum og endurmat á því sem máli skiptir í tilverunni. Kyrralífsmyndir er mikilvæg skáldskaparheimild um líðan mann- eskjunnar á þessum margumræddu „fordæmalausu tímum“. Ljóð bók- arinnar eiga eflaust eftir að lifa tím- ana tvenna og kalla fram minningar um veröld sem var þegar fram líða stundir. Þær stundir eru ekki komn- ar til okkar enn og ófyrirsjáanlegt hvað framtíðin ber í skauti sér. Í þessu augnabliki er lestur Kyrralífs- mynda leið til að skilja betur þann óskiljanlega veruleika sem við lifum í, leið fyrir lesandann til að átta sig á eigin tilveru og annarra. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ljóðskáldið Ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur er sögð mikilvæg skáldskaparheimild um líðan manneskjunnar á „fordæmalausum tímum“. Aðkallandi ljóð- list í faraldri Ljóð Kyrralífsmyndir bbbbm Eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. Mál og menning, 2020. Kilja, 64 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Fyrir jafngamlan skarf ogþann er hér um lyklar ervarla seinna vænna aðviðurkenna það: Enn ein kynslóðaskiptin, af nærri þrenn- um, hafa nú gengið yfir síðan hans árgangur (1946) tók fyrst að hæn- ast að listmúsík á kostnað ung- lingapopps æskuáranna seint á 7. áratug. Persónulega einkum að klassískum meisturum, og má vel vera að hefði manni gefizt hagstæðara tímaforskot hefði athyglin beinzt meir og fyrr að módernískum verkum, eins og títt er um tónkera er kynnast list listanna þegar frá blautasta barnsbeini. En því verður ekki breytt úr þessu. Hlýtur þessi nýi diskur, Atonement [,Friðþæging‘] eftir Pál Ragnar Pálsson (f. 1977), fyrir vik- ið að sæta aðstæðum rýnanda – jafnvel þótt vitaskuld hefði verið æskilegra ef jafnný og framsækin verk fengju sértæka meðhöndlun yngri eða allavega módernískt meðvitaðri umfjallanda, sem því miður er ekki í boði að sinni. Með þeim fyrirvara skal þó tekið fram, að ,hljóðlistin‘ á þessum diski – ef svo mætti kalla verk sem snúast auðheyrilega meira um „sánd“ og áferð en ,gamaldags‘ lagræna úrvinnslu – var engan veginn áhrifalaus í mínum eyrum. Blöstu víða við sterkar huglægar myndir við oft eitilsnarpar and- stæður, sem voru að vísu jafn fjöl- túlkanlegar í hugskoti hlustandans og úr mun hefðbundnari músík, ef ekki meira. Þar eð þær minntu iðu- lega á ýmist ljóðræn eða dramatísk augnablik listrænna kvikmynda var oft næsta freistandi að kenna hljóðhrifin við ,kvikmyndatónlist án kvikmyndar‘. Sérfróðari menn en undirr. verða að skera úr um nánari flokk- un verka Páls meðal ,isma‘ nútíma- hljóðsmíða, þó svo að bæði bak- grunnur höfundar í hérlendu rokki innan hljómsveitarinnar Maus og síðan námsárin í Eistlandi og kynni hans af arfleifð Arvos Pärts hljóti að segja sína sögu. Eftir standa engu að síður á köflum mögnuð „móment“ (svo maður sletti) metnaðarfulls höf- undar í einbeittri túlkun Caput- sveitarinnar undir stjórn Guðna Franzsonar – með nístandi tæru sópranframlagi eistneskrar eig- inkonu Páls, Tui Hirv, við ljóð Ás- dísar Sifjar Gunnarsdóttur í þrem- ur af fimm verkum disksins. Morgunblaðið/Eggert Augnablik Rýnir segir að eftir standi á köflum mögnuð „móment“ metnaðarfulls höfundar í einbeittri túlkun Caput með nístandi tæru sópranframlagi eistneskrar eiginkonu Páls, Tui Hirv. Hér sjást þau hjón Páll og Tui. Framsækin friðþæging Geisladiskur Atonement bbbmn Verk eftir Pál Ragnar Pálsson. (2014, 9:22)*, Lucidity (2017, 9:02), Stalker’s Monologue (2013, 9:53)*, Midsummer’s Night (2018, 5:54) og Wheel Crosses Under Moss (2011, 9:55)*. Tui Hirv S*, Caput Ensemble. Stjórnandi: Guðni Franzson. Upptökur í Kaldalónssal Hörpu 9.-12.3. 2019. Útg.: DSL-92241, Sono Luminus 2020. Lengd: 44:11. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Enn er óvíst hvenær nýjasta kvik- mynd hins virta og vinsæla leik- stjóra Christopher Nolan, Tenet, verður frumsýnd en upphaflega átti að frumsýna hana 17. júlí. Vegna kórónuveirufaraldursins var frumsýningu frestað til 31. júlí og svo aftur til 12. ágúst. Ástandið í Bandaríkjunum veldur þessum endurteknu frestunum, fyrst og fremst, og greinir kvikmyndavef- urinn Deadline frá því að fyrir- tækið Warner Bros., sem framleiðir myndina og dreifir, hafi nú tekið hana af dagatali sínu yfir frumsýn- ingar. Yfirmaður fyrirtækisins, Toby Emmerich, segir frumsýn- ingardag þó munu liggja fyrir inn- an tíðar. Eru þetta sannarlega slæmar fréttir fyrir bíóþyrsta því um stórmynd er að ræða hvað kostnað varðar og viðbúinn sumar- smell. Við bætist að afar fáar nýjar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í sumar. Bið Úr Tenet sem margir bíða með óþreyju. Hvenær verður Tenet frumsýnd? Reykjavík Safarí er yfirskrift við- burðar sem fram fer í kvöld kl. 20 til 22. Boðið verður upp á átta menningargöngur á jafnmörgum tungumálum, þ.e. ensku, pólsku, spænsku, filippseysku, arabísku, farsi, frönsku og litháísku. Þátttak- endur verða leiddir um helstu menningarstaði miðborgarinnar, segir í tilkynningu, og fræddir um listasöfn, bókasöfn, leikhús og fleiri skemmtilega staði í borginni. Gangan hefst fyrir utan Borgar- bókasafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15, og endar þar einnig með sam- komu og boðið verður upp á hress- ingu og lifandi tónlist með Jelenu Ciric og Margréti Arnardóttur. Gangan er á vegum Borgar- bókasafnsins, Borgarsögusafns Reykjavíkur og Listasafns Reykja- víkur og munu starfsmenn safn- anna taka á móti hópunum. Leiðsögumenn Átta tungumál verða töluð í menningargöngum kvöldsins. Leiðsagnir á átta tungumálum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.