Morgunblaðið - 11.08.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2020
Samgöngustjóri Reykjavíkur leggur
til þá breytingu á úthlutun sér-
merktra bílastæða fyrir sendiráð að
þeim verði mest úthlutað tveimur
slíkum stæðum í borgarlandinu.
Annað af tveimur sérmerktum
bílastæðum má vera við bústað sendi-
herra, verði því við komið, eða við
aðrar skrifstofur þeirra. Reglurnar
gilda ekki um ræðismannsskrifstofur.
Sérmerktum stæðum verður ekki út-
hlutað innan miðborgar Reykjavíkur.
Á gjaldskyldum svæðum skal greitt
gjald fyrir sérmerkt stæði samkvæmt
gjaldská Bílastæðasjóðs Reykjavík-
ur.
Tillaga samgöngustjóra var sam-
þykkt í skipulags- og samgönguráði.
Afgreiðslu hennar var hins vegar
frestað í borgarráði.
Úthlutun sérmerktra bílastæða til
sendiráða skal endurskoða á fimm
ára fresti. Það verður næst gert í júní
árið 2025. sisi@mbl.is
Bílastæði Sendiráð geta nú fengið tvö slík stæði sérmerkt í Reykjavík.
Sendiráðin fái tvö
sérmerkt bílastæði
Morgunblaðið/Ómar
Stærðir: 18–24
Verð: 10.995
Margir litir
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin.
Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur
stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira
öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
í fyrstu skónum frá Biomecanics
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
SMÁRALIND
www.skornir.is
Skoska fyrirtækið Skyrora er nú á
lokastigum leyfisveitinga vegna til-
raunaskots Skylark Micro eldflaugar
fyrirtækisins á Langanesi. Fyrsti
skotglugginn er frá 12. til 16. ágúst.
Markmið tilraunanna frá Langanesi
er að prófa rafeinda- og samskipta-
búnað eldflaugarinnar auk æfinga á
skotferlum fyrirhugaðra áætlunar-
skota. Atli Þór Fanndal hjá Geimvís-
inda- og tækniskrifstofunni segir að
eldflaugin fari um 30 kílómetra upp í
loftið, sem sagt ekki alveg út í geim.
„Skyrora er fyrirtæki sem hefur ver-
ið að þróa smærri gerðir af eld-
flaugum sem hafa það hlutverk að
flytja gervihnetti út í geim. Það vill
svo til að Ísland hentar ágætlega fyr-
ir slíkt svo þau leituðu eftir því fyrir
um 7 mánuðum að fá að gera þetta til-
raunaskot hér,“ segir Atli. Um er að
ræða fyrstu eldflaugina sem skotið
verður héðan í 50 ár. Atli segir Ísland
eiga sér nokkuð merkilega sögu þeg-
ar kemur að þátttöku í geimmálum.
„Tunglfararnir til dæmis æfðu sig hér
á Íslandi og Frakkar skutu héðan
upp eldflaugum fyrir um 50 árum,“
segir Atli. Skylark Micro eldflaugin
er tveggja þrepa eldflaug og um fjór-
ir metrar á hæð. Tilraunaskotið er
liður í áhættustýringu Skyrora áður
en áætlunarflaugar fyrirtækisins,
Skylark L og Skyrora XL, verða
prófaðar. lilja@mbl.is
Eldflaug Sky-
rora skotið
frá Langanesi
Fyrsti skotglugg-
inn 12. til 16. ágúst
Eldflaug Skylark L eldflaug skoska
fyrirtækisins Skyrora í prófunum.
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Ljóst er að menningar- og
íþróttalíf hér á landi hefur orðið
fyrir miklu höggi sökum faraldurs
kórónuveiru. Fjölda viðburða hef-
ur verið aflýst auk þess sem óvíst
er hvernig veturinn kemur til með
að þróast. Ísleifur Þórhallsson,
framkvæmdastjóri viðburða hjá
Senu, segir að verið sé að gera
fyrirtækjum í skemmtanaiðnaði
gríðarlega erfitt fyrir. Þannig sé í
raun ekki hægt að skipuleggja
neina viðburði fram í tímann.
„Það er gríðarlega erfitt að
halda uppi menningarlífi í svona
ástandi. Ef það er alltaf verið að
draga úr og herða takmarkanir er
ómögulegt að skipuleggja eitt-
hvað. Það skiptir litlu hvað það
er, það getur enginn haldið neinu
gangandi,“ segir Ísleifur og bætir
við að skortur sé á upplýsingum
frá stjórnvöldum. Þá vanti skýrari
stefnu til að hægt sé að skipu-
leggja tímann fram undan. „Ég
held að Kári hafi orðað þetta best:
Nú er komið að því að taka mjög
sársaukafulla ákvörðun. Það er
ekki bæði hægt að halda landinu
opnu og vera án veiru. Ef landið
er opið þýðir það að menning og
íþróttir eru í klessu hér heima.
Nú verður að ákveða hvaða stefna
er tekin í þessum málum. Það er
ekki hægt að gera hvort tveggja,“
segir Ísleifur.
Mörg afleidd störf
Gríðarlegur fjöldi fólks bygg-
ir lífsviðurværi sitt á afleiddri
starfsemi stórra menningar-
viðburða. Segir Ísleifur að brans-
inn í heild eigi mjög erfitt upp-
dráttar um þessar mundir. „Það
eru heilu greinarnar sem eru af-
leiddar af menningarstarfsemi.
Þar er hægt að nefna ljósa-, hljóð-
og uppsetningarfyrirtæki. Auk
þess eru verktakar og svo tónlist-
armennirnir sjálfir. Þeim mun
lengur sem þetta ástand dregst
þeim mun erfiðara verður að ráða
við þetta. Þetta er því erfið
ákvörðun fyrir stjórnvöld en hana
verður að taka,“ segir Ísleifur og
bendir á að jólavertíð tónlistar-
manna sé að mestu fyrir bí.
Menningarlíf verði, þar til veiran
er með öllu farin, að liggja í dvala.
Listamenn lifa á viðburðum
„Menn eru að reyna að sjá til
lands og ég veit að jólavertíðin
hefði til dæmis bjargað mörgum
fyrir horn. Nú er allt í uppnámi
enda getur enginn treyst því að
halda viðburði í svona ástandi.
Það getur allt verið komið í bak-
lás með engum fyrirvara,“ segir
Ísleifur sem tekur fram að lista-
menn lifi á tekjum viðburða.
Tekjur af spilun laga á netinu séu
jafnframt ekki nægilega miklar til
að hægt sé að lifa á þeim.
Óvíst með tónleika Bocelli
Eins og Morgunblaðið greindi
fyrst frá í vor voru tónleikar
ítalska tenórsins Andrea Bocelli
færðir. Upphaflega áttu þeir að
fara fram 23. maí í Kórnum, en
haldist núverandi áætlun óbreytt
eiga þeir að fara fram 3. október
nk. Að sögn Ísleifs hefur engin
ákvörðun verið tekin. Þó er ljóst
að ekki verður hægt að halda
stóra tónleika í núverandi ástandi.
„Við munum fara eftir öllum
reglum og ekki taka neina sénsa.
Við erum að skoða allar sviðs-
myndir,“ segir Ísleifur sem við-
urkennir að óvissan sé talsverð.
„Það er eins og allt annað
núna. Það er óvissa, við getum
ekki neitað því. Það er ekki hægt
að taka ákvarðanir fyrr en plan
stjórnvalda er komið í ljós. Við
trúðum því eins og flestir að við
værum hægt og rólega á leið út
úr takmörkunum en sú von er
augljóslega úti.“
Öllum viðburðum slegið
á frest sökum faraldurs
Morgunblaðið/Ófeigur
Tónleikar Enga viðburði er hægt að skipuleggja vegna faraldurs kórónu-
veiru. Óvíst er hvenær næsti stóri viðburður verður haldinn hér á landi.
Fari svo að fjöldatakmarkanir haldist óbreyttar verður
afar erfitt að halda stóra viðburði. Ísleifur segir að
tveggja metra reglan komi ekki síður í veg fyrir tónleika
og aðra sambærilega viðburði.
„Það er ljóst að það er ekki hægt að halda svona
stóra tónleika með harðri tveggja metra reglu. Slík regla
kemur í veg fyrir eiginlega alla viðburði,“ segir Ísleifur
og bætir við að mest sé hægt að halda nokkur
hundruð manna tónleika. „Ef þú ert með þrjú
þúsund manna sal er kannski hægt að koma
þrjú hundruð manns fyrir með tveggja metra
reglu. Með þessa reglu í gildi verður mjög
þungt að halda uppi menningarlífi hér á
landi,“ segir Ísleifur.
Engir stórir viðburðir
REGLURNAR ÍÞYNGJANDI
Ísleifur
Þórhallsson