Morgunblaðið - 18.09.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Leyniuppskrift að napóleonskökum
fylgir með í kaupum á Gamla bak-
aríinu á Ísafirði, sem nú er til sölu.
Árni Aðalbjarnarson bakarameistari,
sem í áratugi hefur mundað köku-
keflið, hnoðað
deig og bakað,
ætlar að láta stað-
ar numið í októ-
berlok og bak-
aríinu verður
lokað frá og með
1. nóvember selj-
ist fyrirtækið ekki
fyrir þann tíma.
„Ég vona innilega
að einhver taki við
þessum rekstri; að hér verði áfram
bakarí, veitingahús eða kaffistaður.
Svona starfsemi þarf að vera hér í
miðbænum,“ segir Árni, sem er 67
ára að aldri og finnst nú tímabært að
draga saman seglin.
Úr frönsku byltingunni
Gamla bakaríið var stofnað árið
1871 af Þorsteini Þorsteinssyni. Afi
Árna, Tryggvi Jóakimsson, keypti
bakaríið árið 1920, en var ekki
menntaður í faginu og réð því til sín
hinn þýska Hanz Häsler. Sá lagði
margt gott til, svo sem uppskrift að
napóleonskökum. Þær eru kenndar
við Napóleon Bónaparte; herforingja
í frönsku byltingunni 1789 og síðar
þjóðarleiðtoga Frakka. Kökurnar eru
sannkallað sætabrauð; bakaðar úr
smjördeigi, fylltar með sultu og van-
illukremi og svo settur á þær glassúr.
„Margar uppskriftirnar hér í
bakaríinu hafa verið notaðar síðan í
tíð afa míns,“ segir Árni, sem hefur
starfað í bakaríinu frá barnsaldri;
fyrst með Aðalbirni föður sínum, sem
lést 1970, en lengst með Ruth
Tryggvason móður sinni, sem lést
2011. Ruth sinnti lengi afgreiðslu í
bakaríinu sem þekkt er fyrir mikið
vöruúrval. Vínarbrauð, franskar
vöfflur, harðar kringlur, rúllutertur
og marsipankökur eru í afgreiðslu-
borðinu – fyrir svo utan hið daglega
brauð sem Vestfirðingar kunna vel að
meta.
Heimsborgari
kann að meta kökur
Einn af góðum viðskiptavinum
Gamla bakarísins er Ólafur Ragnar
Grímsson, fv. forseti Íslands. „Ísfirð-
ingurinn Ólafur Ragnar er heims-
borgari sem kann að meta kökur.
Hann segir samt að hvergi hafi hann
fengið betri napóleonskökur en hér. Í
sinni fyrstu opinberu heimsókn vest-
ur árið 1996 kom hann og fékk kökur
– sem gerðist oft eftir það. Í forseta-
tíð hans sendum við kökur stundum
suður með flugi þegar veislur voru
haldnar á Bessastöðum. Guðni Th.
hefur enn ekki falast eftir napóleons-
kökum, hvað sem verður! Einhverju
sinni föluðust fínir bakarar fyrir
sunnan eftir uppskriftinni, sem ég lét
að sjálfsögðu ekki frá mér, en nú er
hún föl og fyrirtækið í kaupbæti,“
segir Árni að síðustu.
Uppskriftin er föl og
fyrirtækið í kaupbæti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Góðgæti Alda Albertsdóttir í Gamla bakaríinu á Ísafirði hér með bakka af
napóleonskökum sem bæði alþýðan vestra og þjóðhöfðingjar gera góð skil.
Napóleonskökur á Ísafirði Sætabrauð sent á Bessastaði
Árni
Aðalbjörnsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Í stuttu máli hefur verið unnið að
þessu stóra máli í takt við það sem
lagt var upp með og er verkefnið á
áætlun. Lífs-
kjarasamning-
arnir, samgöngu-
sáttmálinn,
samgönguáætlun,
lög um félagið
Betri samgöngur
og nú stofnun
þess eru allt hluti
af því,“ segir
Dagur B. Egg-
ertsson borgar-
stjóri um stöðu
mála varðandi Keldnalandið.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær var tillaga Sjálfstæðisflokksins
um skipulagningu hagkvæms hús-
næðis fyrir almennan markað á
Keldum felld í borgarstjórn. Bent
hefur verið á að samkvæmt yfirlýs-
ingu um stuðning stjórnvalda við
lífskjarasamninginn eigi ríki og borg
að hefja skipulagningu landsins. Nú-
verandi áform gera ráð fyrir að upp-
bygging þar fari af stað 2030.
„Keldnalandið er mjög stórt og
getur rúmað mikla uppbyggingu.
Lykilatriðið varðandi þróun þess og í
raun forsenda er að leysa samgöngu-
málin. Ef hverfinu yrði bætt við án
þess myndu íbúarnir og bílar þeirra
bætast við umferðina á Miklubraut
kvölds og morgna. Það myndi bitna
harkalega á þeim og íbúum Grafar-
vogs, Grafarholts, Úlfarsárdals, Ár-
bæjar og Breiðholts. Lausnin er
Borgarlína og breyttar ferðavenjur.
Borgarlína mun verða frábær val-
kostur fyrir íbúa á Keldum og for-
senda þess að umferðin frá hverfinu
sprengi ekki nærlægar umferðar-
æðar,“ segir Dagur.
Hann segir að í samgöngusátt-
mála höfuðborgarsvæðisins hafi öðr-
um áfanga Borgarlínu verið flýtt og
hún nái til Keldna um 2030. „Keldna-
landið mun jafnframt skapa tekjur
sem ætlaðar eru til að fjármagna
hluta samgöngusáttmálans,“ segir
Dagur. Hann segir að sérstakt hluta-
félag sem halda mun utan um þróun
svæðisins verði vonandi stofnað fyrir
næstu mánaðamót.
„Næsta skref er að gera samning
milli ríkis og borgar, með aðkomu fé-
lagsins, um þróun Keldnalandsins, í
takt við ákvæði lífskjarasamnings-
ins,“ segir borgarstjóri.
Allt á áætlun
varðandi Keldur
Samgöngumál forsenda, segir Dagur
Dagur B.
Eggertsson
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Rósa Björk Brynjólfsdóttir yfirgaf
þingflokk Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs (Vg) í gær og sagði
sig úr flokknum í leiðinni. Ekki er
hægt að segja að það hafi komið
mörgum á Austurvelli og næstu
grösum á óvart, en þingmenn sem
Morgunblaðið ræddi við sögðu að
það hefði aðeins verið spurning um
tíma og tilefni, sem hún veldi sér.
Tilefnið reyndist vera brottvísun
egypsku fjölskyldunnar, sem mikið
hefur verið fjallað um, en þrátt fyrir
að Rósa Björk hafi verið varaformað-
ur flóttamannanefndar Evrópuráðs-
þingsins hefur hún ekki fjallað um
það mál opinberlega áður.
Úrsögn Rósu Bjarkar hefur engin
áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og
stjórnarmeirihlutann, þar sem
hvorki hún né Andrés Ingi Jónsson,
sem einnig var kjörinn á þing fyrir
Vg, studdu stjórnarsamstarfið í upp-
hafi. Andrés Ingi sagði skilið við
þingflokkinn í nóvember í fyrra og
hefur síðan starfað utan þingflokka.
Rósa Björk hefur lítið látið uppi
um framtíðina hvað það varðar og
svaraði ekki í síma í gær, en ýmsir
telja að hún kunni að ganga til liðs
við þingflokk Samfylkingar með það
fyrir augum að leiða lista hennar í
Suðvesturkjördæmi í alþingiskosn-
ingunum næsta haust.
Þegar er farið að ræða hvernig
framboðslistar flokkanna kunni að
skipast fyrir þær kosningar, en í
Samfylkingunni er þar ekki síst horft
til Suðvesturkjördæmis. Þar situr
Guðmundur Andri Thorsson nú fyrir
flokkinn, en ekki hefur komið fram
hvort hann hyggist leita endurkjörs.
Það var einnig nefnt að hún kynni
að vilja styðja Helgu Völu Helga-
dóttur, sem í gær kynnti áform um
að bjóða sig fram til varaformennsku
í Samfylkingunni.
Heimildir Morgunblaðsins meðal
vinstrigrænna herma að þar á bæn-
um hafi menn aðallega verið hissa á
því að hún hafi ekki yfirgefið þing-
flokkinn fyrr. Margir bjuggust við
því að hún myndi láta verða af því um
svipað leyti og Andrés Ingi, en af því
varð ekki.
Meðal samstarfsflokkanna á þingi
voru þingmenn einnig pollrólegir og
töldu stöðuna lítið breytta, það væri
aðeins komið formlega fram, sem
menn hefðu gengið að vísu fram að
því. Eftir sem áður væri ríkisstjórn-
armeirihlutinn óbreyttur og tryggur.
Eftir að Rósa Björk er gengin úr
þingflokki Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs eru níu þingmenn
eftir í þingflokknum, þar af tveir ráð-
herrar og einn forseti Alþingis.
Morgunblaðið/Eggert
Út Eftir að Rósa Björk er gengin út eru níu þingmenn eftir í þingflokknum.
Rósa Björk úr
þingflokki Vg
Talin geta gengið í Samfylkinguna