Morgunblaðið - 18.09.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Yndislegt 100% viskós,
má nota á tvo vegu
(2 litir í einni)
fleiri litir í boði
Verð 12.850,-
TESS sláin
komin aftur
Borgarbúar eru margir komnirmeð upp í kok við að fylgjast
með framgöngu borgaryfirvalda við
íbúana sem þau eiga að sinna og
sama verða kjörnir fulltrúar þeirra
að búa við.
Ímiðri þessariviku skrifaði Kol-
brún Baldursdóttir
borgarfulltrúi pistil
undir yfirskriftinni:
Borgarstjórnarsal-
inn á ekki að nota til að fá útrás fyrir
persónulega heift!
Þar segir „að þessi uppákoma íborgarstjórninni var með ólík-
indum, ég missti andlitið, og að
horfa upp á heiftina, hjálpi mér.
Ég var komin á fremsta hlunnmeð að bjóða borgarfulltrúa
Pírata að finna fyrir hana góðan sál-
fræðing.
Það hlýtur að búa mikið undirþegar hvert tækifæri innan sem
utan borgarstjórnar er notað til að
hatast út í annan einstakling með
þessum hætti.
Sama gerðist reyndar í Silfrinuþar sem Sigurborg gat ekki á
sér setið. Er þetta ekki komið út í
meiðyrði?
Alla vega á þetta ekki heima íborgarstjórn svo mikið er víst
og gildir engu um hverja ræðir. Við
vorum kosin til að gæta hagsmuna
borgarbúa, það er okkar hlutverk í
borgarstjórn.
Held bara að borgarstjóra hafiverið skemmt, svei mér þá, var
alla vega mín upplifun. Hann beitti
sér í það minnsta ekki neitt til að
stoppa þennan vitleysisgang sem
meirihlutinn kallar yfir sig.“
Kolbrún
Baldursdóttir
Flestum ofbýður
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Við töldum á þessum fundi að
lengra yrði ekki komist, og að það
yrði að setja þetta í kosningu fé-
lagsmanna,“ segir Snorri Magn-
ússon, formaður Landssambands
lögreglumanna, í samtali við mbl.is.
Samninganefnd sambandsins
skrifaði á miðvikudag undir nýjan
kjarasamning við samninganefnd
ríkisins. Fyrri kjarasamningur rann
út 1. apríl 2019.
„Þetta er búið að taka ansi lang-
an tíma, þó ég sé ekki viss um að
þetta sé óvenjulegt miðað við aðra
samninga,“ segir Snorri. Hann seg-
ir að kjaraviðræður við lög-
reglumenn hafi oft dregist á lang-
inn, og að forsvarsmenn LL hafi
ítrekað gert athugasemdir við ferl-
ið.
„Lögreglumenn sitja þarna lengi
sem embættismenn án verkfalls-
réttar og bíða eftir að gerðir séu
samningar við alla í kringum okkur.
Og loksins þegar kemur að okkur
verður allt að gerast á einhverjum
undrahraða,“ segir Snorri.
Samningurinn er lagður fram
samhliða lífskjarasamningi og inni-
heldur einnig launaþróunartrygg-
ingu og nýjan stofnanasamning.
Landssambandið vinnur nú að
kynningarefni um samninginn, en
stefnt er að því að niðurstaða at-
kvæðagreiðslu muni liggja fyrir við
lok næstu viku.
Töldu að ekki yrði lengra komist
Lögreglumenn skrifuðu á miðvikudag undir nýjan kjarasamning við ríkið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samið Lögreglumenn og ríkið hafa
náð saman um nýjan kjarasamning.
Nái frumvarp landbúnaðarráðherra
um breytingar á jarðalögum fram að
ganga á Alþingi falla endanlega úr
gildi öll ákvæði um ættaróðul. Raun-
ar hafa ákvæðin ekki haft neinn til-
gang frá því ákveðið var með breyt-
ingum á sömu lögum fyrir sextán
árum að láta óðalsjarðir erfast með
sama hætti og aðrar eignir.
Fyrstu ákvæði um óðalsjarðir á
Íslandi eru frá árinu 1833 og fyrsta
heildstæða löggjöfin er frá 1936.
Löggjöfin var undir áhrifum frá
norskum lögum og hefð en þar hafa
gilt ákvæði um óðalsréttindi í aldir.
Tilgangur með óðalsrétti var að
halda jörðum í ábúð og tryggja sem
mest að bændur ættu ábúðarjarðir
sínar. Það var gert með því að auð-
velda ættliðaskipti, með því að gera
einum erfingja auðveldara um vik að
taka við ættaróðalinu, oftast elsta
syni bóndans. Einnig voru kvaðir um
hagnýtingu jarðarinnar og takmark-
anir á veðsetningu hennar.
Ekki mun hafa verið mikið um að
bændur gerðu jarðir sínar að ætt-
aróðali nema hjá þeim ábúendum
ríkisjarða sem keyptu jarðirnar
enda var þeim um tíma skylt að gera
þær að ættaróðali.
Með breytingum á jarðalögum ár-
ið 2004 var sett bann við stofnun
nýrra ættaróðala og lögfest að við
andlát þáverandi óðalseiganda eða
maka hans skyldi ættaróðalið falla
úr óðalsböndum og jörðin erfast í
samræmi við ákvæði erfðalaga. Þá
voru 90 óðalsjarðir í landinu og þeim
hefur væntanlega fækkað verulega
síðan þá.
Verði frumvarp til breytinga á
jarðalögum sem nú hefur verið
kynnt að lögum falla úr gildi öll bönd
á meðferð og ráðstöfun jarða sem
töldust eða teljast enn til ættaróðala.
Tekið er fram að lagaákvæðin hafi í
raun engan tilgang eftir þær breyt-
ingar sem gerðar voru á óðalsrétti
árið 2004. helgi@mbl.is
Óðalsréttur end-
anlega afnuminn
Breytingar á jarðalögum undirbúnar
Morgunblaðið/Ómar
Ættaróðal Vatnsendi við Elliðavatn
er ein af óðalsjörðum landsins.