Morgunblaðið - 18.09.2020, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ef allt væri með felldu í atvinnulíf-
inu væru veiðar á hörpuskel í
Breiðafirði og vinnsla í Stykkis-
hólmi í fullum gangi þessa dagana.
Svo er ekki og mjög litlar veiðar
verða leyfðar á hörpuskel í vetur.
Lætur nærri að aflaheimildir þessa
árs séu í kringum 1% af því sem var
oft á árum áður á Breiðafirði.
Stofninn í Breiðafirði hefur ekki
náð sér á strik eftir sýkingu upp úr
aldamótum og frá haustinu 2003 til
2012 voru engar veiðar leyfðar. Til-
raunaveiðar hófust haustið 2014 og
hafa síðustu ár verið veidd 266 til
944 tonn. Sjávarútvegsráðuneytið
gaf í síðustu viku út reglugerð um
veiðar á 93 tonnum á hörpuskel í
Hvammsfirði og Breiðasundi, ná-
lægt Stykkishólmi og er það í sam-
ræmi við ráðgjöf. Veiðar eru ekki
leyfðar á öðrum svæðum.
Hefur ekki náð sér á strik
Mestur var hörpuskelsaflinn
17.100 árið 1985, þar af 12.100 tonn
í Breiðafirði, þar sem langmest var
veitt af hörpuskel. Á tíunda ára-
tugnum var aflinn oft í kringum
átta þúsund tonn í Breiðafirðinum
þar til hann fór að síga niður á við
upp úr aldamótum. Annars staðar
við landið hafa ekki verið stundaðar
veiðar á hörpuskel svo heitið geti
frá aldamótum.
Jónas P. Jónasson, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir að
helstu veiðisvæði hafi gefið mikið
eftir í tilraunaveiðum síðustu ára.
Hins vegar virðist sýkingin vera
horfin og vöðvi skeljarinnar yfirleitt
góður og í samræmi við það sem áð-
ur var. Hinsvegar séu enn stór
svæði þar sem skelin hafi ekki náð
sér á strik á nýjan leik í kjölfar
sýkingarinnar og of stífrar veiði á
árum áður.
Nýliðun og hagstæð skilyrði
Erfitt sé að segja hvenær stofn-
inn nái sér á strik á ný þannig að
nýting geti orðið eitthvað í líkingu
við það sem áður var. Til þess þurfi
hagstæð skilyrði í umhverfinu og
góða nýliðun, sem skili sterkum ár-
göngum. Jónas segir augljóst að
fara þurfi mjög varlega við veiðar á
næstu árum.
Hann segir að tilraunaveiðarnar
hafi gefið gagnlegar upplýsingar
um stofninn og ekki síður mynda-
tökur af veiðislóðum skeljarinnar.
Við veiðarnar síðustu ár hafi meðal
annars verið notast við léttari plóga
til að raska veiðislóðinni sem
minnst.
Jónas segist vona að aðferðir
finnist við skelveiðar þannig að
veiðimenn geti hreinlega valið skelj-
ar af botninum. Tilraunir hafi m.a.
verið gerðar til að sjúga skeljarnar
upp, en þróun slíkra aðferða hafi
gengið hægt.
Gaf eftir í tilraunaveiðum
Aflaheimildir í hörpuskel eru aðeins
lítill hluti þess sem var á árum áður
Sýkingin í skelinni virðist vera horfin
Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun
Rannsóknir Um borð í Hannesi Andréssyni SH á Breiðafirði sumarið 2017.
Unnið er að uppsetningu kantljósa í
Hvalfjarðargöngum og er unnið við
verkið frá klukkan 22 á kvöldin til 6.30
á morgnana. Vegfarendur eru beðnir
að sýna tillitssemi meðan á verkinu
stendur, en verklok eru áætluð 15.
október. Fram kemur á heimasíðu
Vegagerðarinnar að of oft sýni öku-
menn ekki nægilega tillitssemi í kring-
um vinnusvæðið, sem geti skapað
hættu fyrir starfsmenn.
Uppsetning kantljósanna var boðin
út í vor og bauð Orkuvirki lægst og
vinnur verkið. Sett verða upp LED-
ljós með 25 metra millibili og koma
þau í stað vegstika í göngunum. Fram
kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar
að slík ljós spari bæði tíma og fyrir-
höfn því þrífa þurfti vegstikur mán-
aðarlega með sérstökum vélum í göng-
unum. Ljósin auki einnig öryggi og
gagnist sem rýmingarlýsing ef reykur
kemur í göngin.
Sex til átta manns á vegum Orku-
virkis vinna að gerð kantlýsingarinnar
á nóttunni. Einni akrein er lokað í senn
á 200 til 300 metra kafla. Sett eru upp
umferðarmerki, umferð stýrt með
ljósamerkjakerru, ökumenn varaðir
við með blikkandi ljósum við ganga-
munnana og hraði lækkaður.
Setja upp
kantlýsingu
Unnið á næturnar
Fólk fari varlega
Hvalfjörður Þörf er á tillitssemi.
Verð áður 1699 kr. kg
- 35%
1099
Grísakótilettur
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
1399 kr.kg
Grísahnakki
Verð áður 1989 kr. kg
- 30%
Verð áður 1899 kr. kg
- 25%
1399 kr.kg
asnitsel / grísagúllas
á grísakjöti!
TILBOÐ
kr.
kg 499 kr.kg
Grísaskankar
Verð áður 749 kr. kg
Grís
- 30%
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Verð áður 2398 kr. kg
1599 kr.kg
Grísalundir
- 30%