Morgunblaðið - 18.09.2020, Side 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þrátt fyrir að peningamagnið hafi
aukist á árinu hefur það oft verið
hærra sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu á öldinni.
Fram kom í ViðskiptaMogganum
í fyrradag að peningamagnið hefði
aukist um 227 milljarða frá lokum
janúar til loka júlí í ár. Það virtist
vera þriðja mesta aukningin á því
tímabili næst á eftir 2007 og 2008.
Þ.e.a.s. þriðja mesta aukningin á
nafnvirði.
Vísað er til peningamagns og
sparifjár sem er flokkur M3.
Viðmælendur Morgunblaðsins í
fjármálageiranum töldu ýmsar leið-
ir færar til að bera saman aukn-
inguna í peningamagni í ár og fyrri
ár.
Deilt niður á landsframleiðslu
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, reiknaði
að beiðni blaðsins út þróun peninga-
magns á öldinni út frá landsfram-
leiðslu. Nánar tiltekið núvirti hann
peningamagnið fyrr á öldinni, á
hverjum ársfjórðungi fyrir sig, og
deildi því í landsframleiðsluna.
Niðurstöðurnar eru sýndar á
grafinu hér til hliðar. Uppsafnað
sparifé á þátt í aukningunni í ár.
Eins og sjá má var hlutfall pen-
ingamagns í júlí sl. 75,2% af lands-
framleiðslunni, eða ívið hærra en í
júní 2007 sem var
þá met á öldinni.
Peningamagn-
ið sem hlutfall af
landsframleiðslu
jókst síðan
gríðarlega fram
að efnahags-
hruninu 2008 og
hélst í kringum
100% út árið
2009.
Það lækkaði síðan fram á vor
2013 er það fór að hækka á ný. Það
hefur síðan gengið í bylgjum eins
og sjá má á grafinu.
Jón Bjarki segir þessar tölur
vitna um að aukningin undanfarið
sé ekki einsdæmi. Þar nægi að
horfa til bóluáranna fram að
hruninu 2008.
Varðandi skýringar á aukning-
unni megi nefna að Seðlabankinn
hafi hætt að bjóða mánaðarinnlán
og létt á kvöðum á bankana. Þá
hefði ríkissjóður selt bönkunum rík-
isvíxla og geymt söluvirðið á reikn-
ingum hjá Seðlabankanum og líf-
eyrissjóðir dregið úr fjárfestingu
erlendis. Þessar og aðrar aðgerðir
séu líklegar til að ýta við peninga-
margfaldaranum.
Talið þrýsta á verðlag
Spurður hvaða áhrif aukið pen-
ingamagn kunni að hafa á verð-
bólgu segir Jón Bjarki að fyrir all-
mörgum árum hefðu viðbrögðin
„frekar verið þau að hafa áhyggjur
af því að það myndi mynda verð-
þrýsting“.
„Viðhorf fræðaheimisins gagn-
vart sambandi peningamagns og
verðbólgu er hins vegar að breyt-
ast. Þá sér í lagi af því að það hefur
auðvitað sýnt sig að þessi rosalega
peningaprentun sem hefur verið í
gangi í stóru seðlabönkunum allan
áratuginn, í mismiklum mæli og á
mismunandi tímum, hefur ekki leitt
til aukinnar verðbólgu og þeir eru
enn að ströggla við að ná verðbólgu
upp, þrátt fyrir allar þessar æfing-
ar.
Það hefur leitt til þess að menn
eru í meira mæli orðnir efins um að
sambandið milli aukins peninga-
magns og verðbólgu sé eins sterkt
og látið var í veðri vaka fyrir 10 ár-
um, hvað þá 25-30 árum.
Í upphafi áratugarins töldu ýmsir
hagfræðingar fullvíst að það myndi
að lokum skapast verðbólguvanda-
mál í Bandaríkjunum þegar pen-
ingar voru prentaðir [eftir hryðju-
verkaárásirnar 2001 og eftir
fjármálakreppuna 2008]. En svo
varð ekki. Þannig að greinin er í
mikilli naflaskoðun varðandi þetta
samhengi og nú treysta fáir sér til
að draga svona sterkar ályktanir og
ætla að aukning á peningamagni sé
ávallt áhyggjuefni. Aðrir þættir
geta dempað á móti og hægt á pen-
ingamargfaldaranum,“ segir Jón
Bjarki sem telur að yfirfæra megi
þessa alþjóðlegu umræðu á Ísland.
Hafa áhrif á móti
Hér hafi strangari kvaðir á bank-
ana, meðal annars varðandi lausafé
og eigið fé, dempandi áhrif.
„Þannig að á meðan peninga-
magn eykst tímabundið og hægt er
að benda á góðar skýringar á aukn-
um innlánum í kerfinu er aukningin
kannski ekki mikið áhyggjuefni. Við
þurfum ekki að óttast að þetta eitt
og sér verði verðbólguvaldur. Ef við
færum hins vegar að sjá þennan
vöxt ár eftir ár, samhliða minni
slaka í hagkerfinu, myndi maður
setja spurningarmerki við það,“
segir Jón Bjarki. Hann bendir svo á
að hlutfall peningamagns og lands-
framleiðslu sé víða mun hærra en á
Íslandi.
„En ef við förum að taka þessu af
of mikilli léttúð er ekki hægt að úti-
loka að þetta læðist aftan að okkur.
Sem betur fer erum við í bili ekki
komin inn á sérstakar hættubraut-
ir,“ segir Jón Bjarki.
Þarf ekki að leiða til verðbólgu
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir aukningu peningamagns ekki þurfa að leiða til verðbólguskots
Í upphafi aldarinnar hafi margir spáð verðbólgu út af mikilli peningaprentun stóru seðlabankanna
Hlutfall peninga í umferð* af vergri landsframleiðslu frá ársbyrjun 2000
Peningamagn sem hlutfall af landsframleiðslu
110%
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
Heimild: Seðlabanki Íslands
Útreikningur: Íslandsbanki
* M3: verðtryggð innlán,
orlofsreikningar, innlán
v/viðbótarlífeyrissparnaðar
og annað bundið sparifé,
M2: almennt óbundið
sparifé og M1: veltiinnlán,
seðlar og mynt í umferð.
66,0%
100,7%
41,5%
75,2%
Morgunblaðið/Golli
Á uppleið Peningamagnið eykst.
Jón Bjarki
Bentsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is
AXIR FYRIR KRÖFUHARÐA
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
3.019.20
Verð 3.890
3.043.e
Verð 8.330
3.043.d
Verð 4.960
3.003.d
Verð 7.340
3.051.d
Verð 4.980
3.038.t
Verð 5.900
Verð 20.960
MIKIÐ ÚRVAL
i Ekelund
rð 20.960
Öxi Hatce
Verð 18.
Öx
Ve
Öxi Carpenters t mini
340
Öxi Hultan
Verð 19.680
Öxi Splitting
Verð 24.110