Morgunblaðið - 18.09.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bandaríska athafnakonan Michelle
Roosevelt Edwards, áður þekkt undir
nafninu Michelle Ballerin, skráði sig í
gær fyrir nær helmingi þeirrar upp-
hæðar sem Icelandair stefnir að því að
afla í hlutafjárútboði félagsins, sem
hófst á miðvikudagsmorgun en lauk í
gær klukkan 16. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Morgunblaðsins er
um að ræða sjö milljarða króna fjár-
festingu, og samkvæmt sömu heimild-
um vonast Edwards til að eignast með
kaupunum fjórðungshlut í flugfélaginu.
Þá herma sömu heimildir að Ed-
wards hyggist í fyllingu tímans leggja
saman krafta WOW air og Icelandair,
en athafnakonan komst fyrst í frétt-
irnar á síðasta ári hér á landi þegar hún
keypti eignir WOW air úr þrotabúi
flugfélagsins. Lýsti hún fyrirætlunum
sínum í ítarlegu viðtali við Viðskipta-
Moggann.
Stefnt var að því að safna tuttugu
milljörðum króna í útboðinu, en hægt
yrði að bæta við þremur milljörðum ef
eftirspurn yrði meiri en framboð. Út-
boðsgengi var ein króna hver hlutur.
Landsbanki og Íslandsbanki sölu-
tryggja sex milljarða af hlutafjárútboði
Icelandair og skuldbinda sig til að
kaupa þann hluta verðbréfa sem
áskrift næst ekki fyrir í almennu út-
boði.
Tilboðsbók A og B
Þrír milljarðar hluta voru í boði í til-
boðsbók B, en þar var lágmarksáskrift
100.000 krónur en hámarksáskrift
tuttugu milljónir að kaupverði.
Sautján milljarðar voru í boði í tilboðs-
bók A, en þar var lágmarksáskrift tutt-
ugu milljónir króna en ekkert hámark.
Þá fylgdu hlutunum áskriftarréttindi
sem samsvara 25% af skráningu nýrra
hluta. Hægt verður að nýta áskriftar-
réttindin á verði sem fer stighækkandi
frá útboðsgengi, í þremur skrefum, á
ákveðnum tímabilum, yfir tveggja ára
tímabil.
Morgunblaðið hafði samband við
forsvarsmenn helstu lífeyrissjóða í
gær og fékk meðal annars þær upplýs-
ingar að stærsti lífeyrissjóður lands-
ins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins, hefði keypt fyrir tvo milljarða
króna. Í skriflegu svari segir Harpa
Jónsdóttir framkvæmdastjóri að málið
hafi verið vel undirbúið, mikið rætt,
mörg ólík sjónarmið hafi komið fram,
en niðurstaðan hafi verið að kaupa fyr-
ir tvo milljarða. Upphæðin er um 0,2%
af heildareignum lífeyrissjóðsins eins
og þær voru í lok árs 2019.
Ennfremur fengust þær upplýsing-
ar frá Eftirlaunasjóði íslenskra at-
vinnuflugmanna að sjóðurinn hefði
keypt fyrir 450 mkr. Arnaldur Lofts-
son, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyr-
issjóðsins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sjóðurinn tjáði sig ekki um
þátttöku í útboðinu fyrr en niðurstaða
útboðsins lægi fyrir.
Hjá Almenna lífeyrissjóðnum feng-
ust þær upplýsingar að sjóðurinn hefði
tekið þátt í útboðinu, en upphæðin var
ekki gefin upp.
Morgunblaðið hafði samband við
Ólaf Ásgeirsson hjá greiningar-
fyrirtækinu IFS og innti hann eftir
túlkun á atburðarás gærdagsins.
Sagði Ólafur að sú staðreynd að
hlutabréfamarkaðurinn hefði verið
„grænn“ í gær og úrvalsvísitalan
hækkað um 1,65% væri merki um al-
menna bjartsýni með útboðið og
framhaldið.
Snorri Jakobsson hjá Jakobsson
Capital segir að það líti út fyrir að
Michelle Roosevelt Edwards verði
ráðandi hluthafi í Icelandair eftir
útboðið, og hún sé líklega með sinni
fjárfestingu búin að tryggja sér
25% af eigin fé félagsins. Þar með sé
Icelandair komið að stórum hluta í
erlenda eigu. „Lífeyrissjóðir eru
frekar óvirkir í stjórnum hluta-
félaga og þarna kemur aðili sem
verður örugglega mjög virkur og
ráðandi.“
Milljarðaþátttaka staðfest
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Icelandair Niðurstöður útboðsins verða kynntar í dag, en stefnt var að því að safna a.m.k. tuttugu milljörðum króna.
Eigandi WOW staðfestir kaup á sjö milljörðum hluta í Icelandair-útboði LSR
staðfestir tveggja milljarða kaup EFÍA kaupir fyrir 450 milljónir króna
Eignir Fiskikóngsins námu 199
mkr. í lok síðasta árs, en þær voru
153 mkr. í lok 2018. Eigið fé félags-
ins nemur 66 mkr., og jókst um 37%
milli ára, en það var 48 mkr. í lok
árs 2018.
Í ársreikningnum er vikið að
rekstri þessa árs, og segir að áhrif
kórónuveirufaraldursins á félagið
hafi verið mikil þar sem heildsala
hafi dregist verulega saman m.a.
sökum samdráttar í veitingageir-
anum.
Hagnaður Fiskikóngsins ehf., sem
rekur m.a. vinsælar fiskbúðir í
Reykjavík, nam tæpum 18 millj-
ónum króna á síðasta ári, sam-
kvæmt nýbirtum ársreikningi fé-
lagsins. Það er um 64% aukning frá
árinu á undan, þegar hagnaðurinn
var tæpar ellefu milljónir króna.
Tekjur félagsins á síðasta ári
voru hátt í milljarður króna, nánar
tiltekið 935 milljónir. Það er um-
talsverð aukning frá árinu á undan
þegar tekjurnar voru 730 mkr.
Velta Fiskikóngsins tæpur milljarður
Hagnaður eykst um 64% milli ára
Morgunblaðið/Golli
Fiskur Samdráttur hefur orðið í fiskbúðum Fiskikóngsins á þessu ári.
18. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 135.28
Sterlingspund 175.65
Kanadadalur 102.75
Dönsk króna 21.586
Norsk króna 15.063
Sænsk króna 15.425
Svissn. franki 149.32
Japanskt jen 1.2873
SDR 191.68
Evra 160.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 197.3857
Hrávöruverð
Gull 1964.8 ($/únsa)
Ál 1767.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.72 ($/fatið) Brent
Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri
markaðs- og við-
skiptaþróun-
arsviðs Lands-
virkjunar, hefur
verið ráðin til
Eyrir Venture
Management til
þess að leiða nýj-
an vísisjóð sem Eyrir er að hleypa af
stokkunum, Eyrir Sprotar II. Í til-
kynningu frá Eyri segir að Eyrir
Sprotar II, muni sérhæfa sig í að
styðja við uppbyggingarferli ís-
lenskra sprotafyrirtækja. „Ég er af-
skaplega spennt fyrir því að efla og
vinna að framgangi nýsköpunar og
frumkvöðlastarfs á Íslandi,“ segir
Stefanía í tilkynningunni.
Stýrir nýj-
um sjóði
Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir
Styður við upp-
byggingarferli
Fly Play, sem kynnt hefur áform um
flug til og frá landinu, krefst þess að
eftirlitsstofnun EFTA (ESA) dragi
til baka samþykki sitt fyrir ríkis-
ábyrgð lána til Icelandair.
Í bréfi sínu til ESA tíundar lög-
maður Play, dr. Haukur Logi Karls-
son, að forsendur ríkisábyrgðar séu
byggðar á röngum forsendum og
fullyrðir að ef allar upplýsingar
hefðu legið fyrir í upphafi hefði nið-
urstaða ESA orðið önnur. Utan þess
að draga samþykki til baka er gerð
sú krafa að ferli leyfisveitingarinnar
verði rannsakað með formlegum
hætti.
Á heimasíðu Stjórnarráðsins er
staðfest að stjórnvöldum hafi borist
kæra frá ESA, en einnig er áréttað
að ríkisaðstoð til Icelandair sé byggð
á sama lagalega grundvelli og
ákvarðanir ESA í sambærilegum
ákvörðunum um leyfilega ríkis-
aðstoð vegna Covid-19, m.a. vegna
flugfélaganna: SAS, Condor, Austri-
an Airlines og Alitalia.
Play kærir
ríkisaðstoð
Ríkið vísar í for-
dæmi frá Evrópu
Morgunblaðið/Hari
Flug Play ósátt við ríkisaðstoð.