Morgunblaðið - 18.09.2020, Side 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Í LAUGARDAL
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Nýliðinn Sveindís Jane Jónsdóttir, 19
ára, skoraði tvívegis fyrir íslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu sem
vann stórsigur gegn Lettlandi í und-
ankeppni EM 2021 á Laugardalsvelli
í gær.
Leiknum lauk með 9:0-sigri Ís-
lands en Sveindís Jane, sem hefur
farið á kostum með Breiðabliki í úr-
valsdeild kvenna í sumar, var í byrj-
unarliði íslenska liðsins og lék allan
leikinn á vinstri kantinum í sínum
fyrsta landsleik.
Sveindís Jane var ekki eini nýliðinn
sem þreytti frumraun sína á Laugar-
dalsvelli í gær því Barbára Sól Gísla-
dóttir, 19 ára bakvörður Selfoss í
efstu deild, kom inn á sem varamaður
í hálfleik fyrir liðsfélaga sinn í Sel-
fossliðinu, Dagnýju Brynjarsdóttur.
Barbára átti stórgóða innkomu en
hún lagði upp mark í leiknum og átti
svo sendinguna fyrir markið sem fór
af Karlinu Miksone, fyrirliða Letta,
og í netið.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, sem
hefur verið fyrirliði U19 ára landsliðs
Íslands, byrjaði líka sinn fyrsta
landsleik gegn Lettum og hún kór-
ónaði frábæra frammistöðu með sínu
fyrsta landsliðsmarki í uppbótartíma.
Þá skoraði Alexandra Jóhanns-
dóttir annað landsliðsmark sitt í sex
leikjum og því óhætt að segja að
yngri leikmenn liðsins hafi svo sann-
arlega staðið fyrir sínu í sigrinum
gegn Lettum.
Sóknarleikurinn tikkar
Þó að tölur eins og 9:0 eigi auðvitað
ekki að sjást í landsleik er orðið ansi
langt síðan íslenskt kvennalandslið
skoraði níu mörk í leik.
Það gerðist síðast í undankeppni
HM 2015 þegar Ísland tók á móti
Serbíu á Laugardalsvelli, hinn 17.
septemeber 2014.
Íslenska liðið vann þá 9:1-sigur en
Dagný Brynjarsdóttir skoraði ein-
mitt tvívegis í þeim leik, líkt og Harpa
Þorsteinsdóttir og Rakel Hönnudótt-
ir. Þá skoruðu þær Glódís Perla
Morgunblaðið/Eggert
Þrenna Dagný Brynjarsdóttir skorar eitt þriggja marka sinna í fyrri hálfleiknum gegn Lettum. Hún hefur nú skorað 29 mörk í 89 landsleikjum.
Viggósdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir
og Þóra Björg Helgadóttir sitt mark-
ið hver.
Árið 2012 vann Ísland svo 10:0-
útisigur gegn Búlgaríu á Gradski-
vellinum í Lovech í Búlgaríu í júní.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði
tvívegis í leiknum, Sara Björk Þor-
steinsdóttir líka, sem og Katrín
Jónsdóttir. Dagný Brynjarsdóttir,
Katrín Ómarsdóttir, Kristín Ýr
Bjarnadóttir og Dóra María Lárus-
dóttir gerðu svo sitt markið hver.
Varnarleikur liðsins hefur ekki
verið vandamál undanfarin ár en
sóknarleikurinn hefur hikstað. Það er
því fullt af jákvæðum teiknum á lofti
sem snúa að sóknarleik liðsins líka,
sem eru frábærar fréttir.
Framtíðin björt
Jón Þór Hauksson tók við þjálfun
íslenska liðsins í október 2018 og í
ágúst 2019 valdi hann bæði Karólínu
og Alexöndru í leikmannahóp sinn fyr-
ir fyrstu leiki Íslands í undankeppni
EM gegn Ungverjalandi og Slóvakíu í
lok ágúst og byrjun september.
Hann hefur svo hægt og rólega
gefið þeim, ásamt öðrum yngri leik-
mönnum, tækifæri til þess að sýna sig
og sanna þrátt fyrir ungan aldur.
Íslenska kvennalandsliðið gekk í
gegnum erfiða tíma eftir EM í Hol-
landi og var í hálfgerðri stöðnun frá
2017 til ársins 2019.
Endurnýjunin var nánast engin og
sem dæmi voru átta leikmenn sem
byrjuðu bæði leikinn gegn Frökkum í
fyrstu umferð riðlakeppni EM 2017 í
Tilborg í Hollandi og fyrsta leik Ís-
lands í undankeppni EM 2021 á
Laugardalsvelli gegn Ungverjalandi í
lok ágúst.
Með tilkomu yngri leikmanna eins
og Sveindísar, Karólínu, Barbáru og
auðvitað Alexöndru er óhætt að segja
að framtíðin sé björt.
Þær eru í raun himnasending fyrir
kvennalandsliðið og geta svo sann-
arlega tekið við keflinu af leik-
mönnum sem hafa verið lykilmenn í
liðinu undanfarinn áratug.
Þá sér maður liðið loksins taka það
skref fram á við sem þarf til þess að
vera samkeppnishæft í alþjóðlegum
kvennafótbolta í dag.
Sending af himnum ofan
Stórsigur íslenska kvennalandsliðsins gegn Lettum í undankeppni EM 2021
Ungir og óreyndir leikmenn nýttu tækifærið til hins ýtrasta og áttu stórleik
Grótta, Stjarnan og Fram fengu
þar með sitt fyrsta stig í deildinni á
þessu keppnistímabili en Aftureld-
ing er með þrjú eftir að hafa unnið
Þórsara í fyrstu umferðinni.
FH-ingar eru með tvö stig eftir
sigur á Akureyri gegn Þór, 24:19,
en Þórsarar án stiga. FH-ingar
voru með tveggja til þriggja marka
forystu allan síðari hálfleikinn en
slitu Þórsara ekki frá sér fyrr en
þeir skoruðu síðustu þrjú mörk
leiksins. Ásbjörn Friðriksson skor-
aði átta mörk fyrir FH og Valþór
Guðrúnarson sex fyrir Þór.
Jafntefli varð niðurstaðan í tveim-
ur leikjum af þremur þegar 2. um-
ferð Olís-deildar karla í handknatt-
leik hófst í gær.
Matthías Daðason tryggði Fram
stig gegn Aftureldingu í Safamýr-
inni þegar hann skoraði úr víta-
kasti á lokasekúndunni og liðin
skildu jöfn, 27:27.
Úlfar Monsi Rúnarsson hafði þá
komið Aftureldingu yfir. Framarar
brunuðu fram og Þorsteinn Leó
Gunnarsson braut á Andra Má Rún-
arssyni. Þorsteinn fékk rautt spjald
og Fram víti sem Matthías skoraði
úr. Þorgrímur Smári Ólafsson og
Andri Már voru markahæstir hjá
Fram með fjögur mörk hvor. Úlfar
og Bergvin Þór Gíslason skoruðu
sex mörk hvor fyrir Aftureldingu.
Sama niðurstaða varð á Seltjarn-
arnesi þar sem Grótta og Stjarnan
mættust. Stjarnan var yfir 24:22
þegar rúmar fimm mínútur voru
eftir en þá komu þrjú mörk í röð
hjá Gróttu. Sverrir Eyjólfsson
skoraði jöfnunarmarkið fyrir
Stjörnuna á 59. mínútu en liðunum
tókst ekki að skora á lokamín-
útunni.
Spennuleikjum lauk með jafntefli
Ljósmynd/Þórir
Akureyri Einar Rafn Eiðsson ógnar
marki Þórs í Íþróttahöllinni í gær.
ÍSLAND – LETTLAND 9:0
1:0 Elín Metta Jensen 1.
2:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 8.
3:0 Dagný Brynjarsdóttir 18.
4:0 Dagný Brynjarsdóttir 22.
5:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 32.
6:0 Dagný Brynjarsdóttir 40.
7:0 Sjálfsmark 71.
8:0 Alexandra Jóhannsdóttir 87.
9:0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 90.
Ísland: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar-
dóttir. Vörn: Gunnhildur Yrsa Jónsdótt-
ir, Ingibjörg Sigurðardóttir (Guðný
Árnadóttir 56), Glódís Perla Viggósdótt-
ir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja:
Alexandra Jóhannsdóttir, Sara Björk
Gunnarsdóttir (Hlín Eiríksdóttir 69),
Dagný Brynjarsdóttir (Barbára Sól
Gísladóttir 46). Sókn: Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir, Elín Metta Jensen,
Sveindís Jane Jónsdóttir.
MM
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
M
Glódís Perla Viggósdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Barbára Sól Gísladóttir
Dómari: Désirée Grundbacher, Sviss.
Áhorfendur: Engir.
Sara Björk Gunnarsdóttir lands-
liðsfyrirliði í knattspyrnu er útnefnd
hjá UEFA sem ein þriggja bestu miðju-
manna í Meistaradeild Evrópu 2019-
20 þar sem hún varð Evrópumeistari
með Lyon. Niðurstaðan í kjöri 87
blaðamanna og þjálfara verður kunn-
gjörð 1. október en UEFA skýrði frá því
í gær að Sara, Dzsenifer Marozsán hjá
Lyon og Alexandra Popp hjá Wolfs-
burg væru í efstu þremur sætunum.
Rúnar Alex Rúnarsson gæti skrifað
undir fimm ára samning við enska
knattspyrnustórveldið Arsenal í dag
en það mun kaupa markvörðinn af Dij-
on í Frakklandi fyrir tæplega tvær
milljónir punda.
Hólmar Örn Eyjólfsson landsliðs-
maður í knattspyrnu gengur vænt-
anlega til liðs við Rosenborg í Noregi á
nýjan leik um helgina en hann hefur
leikið með Levski Sofia í Búlgaríu í
þrjú ár.
Gareth Bale er á leið til enska
knattspyrnuliðsins Tottenham á ný
eftir sjö ára fjarveru. Hann kemur í láni
frá Real Madrid og er reiknað með að
gengið verði frá samningum við hann í
London í dag.
Liverpool er að ganga frá kaupum á
spænska knattspyrnumanninum
Thiago Alcantara frá Bayern München
fyrir 20 milljónir punda.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er
í 8. sæti á þremur höggum undir pari
eftir fyrsta hring á Opna portúgalska
mótinu í golfi, á Evrópumótaröðinni,
þeirri sterkustu í Evrópu. Haraldur
Franklín Magnús er í 76. sæti á fjórum
höggum yfir pari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék
annan hringinn á móti á áskorenda-
mótaröð kvenna í golfi í Tékklandi í
gær á 77 höggum. Hún er í 21. sæti
fyrir lokahringinn í dag á samtals
fimm höggum yfir pari.
Enska knattspyrnuliðið Tottenham
komst naumlega í 3. umferð Evrópu-
deildarinnar í fótbolta í gærkvöld með
2:1-sigri á Lokomotiv Plovdiv í Búlg-
aríu. Harry Kane og Tanguy Ndombélé
skoruðu á lokamínútum leiksins.
Sean Dyche, knattspyrnustjóri
Burnley, sagði í gærkvöld að hann ótt-
aðist að meiðsli Jóhanns Bergs Guð-
mundssonar landsliðsmanns í knatt-
spyrnu væru alvarleg. Hann var borinn
af velli eftir 15 mínútna leik gegn Shef-
field United í enska deildabikarnum í
gær og Dyche sagði að um meiðsli í
hné væri að ræða.
Eitt
ogannað
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – Keflavík......... 19.15
Víkingsv.: Víkingur R. – Augnablik.... 19.15
2. deild karla:
Rafholtsvöllur: Njarðvík – ÍR ............. 16.45
Ásvellir: Haukar – KF .............................. 18
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höll: Valur – ÍR .......................... 17.30
Hleðsluhöll: Selfoss – KA .................... 19.30
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Origo-höll: Valur – Fram ..................... 20.15
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Hertz-höll: Kría – Fram U .................. 19.30
Ísafjörður: Hörður – Vængir Júpíters 19.15
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Fjölnir/Fylkir......... 19.30
Í KVÖLD!