Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020 ✝ Þórður Sig-urðsson fædd- ist á Siglufirði 16. október 1936. Hann bjó á Böðv- arsgötu 11 Borg- arnesi. Hann lést í Brákarhlíð 4. sept- ember 2020. Foreldrar hans voru Sigríður Anna Þórðardóttir, f. 5. okt. 1913 á Siglufirði, d. 3. ágúst 1992, og Sigurður Jóhannesson, f. 8. apríl 1905 á Skaga, d. 18. sept. 1972. Þórður var elstur fjögurra bræðra. Bræður hans eru: Haf- steinn, f. 25. mars 1939, d. 15. júní 2006, Jónas Þráinn, f. 20. ágúst 1943, og Valgeir Tómas, f. 3. október 1947. Þórður var giftur Sonju Guðlaugsdóttur frá Siglufirði, f. 12. júní 1936 d. 17. maí 2018. Sonur þeirra er Guðlaugur Þór, 1965 þar sem hann tók við starfi verksmiðjustjóra í Gal- vanó. Hann gerðist síðar lög- reglumaður, kláraði lögreglu- skólann og var varðstjóri og yfirlögregluþjónn þar til hann lauk störfum sökum aldurs. Þórður var virkur forystumað- ur í félagsmálum í Borgarnesi, var alla tíð virkur í Björgunar- sveitinni Brák og gegndi þar formennsku í fjögur ár eftir endurreisn í kringum 1970. Hann var einn af stofnfélögum í Golfklúbbi Borgarness og starfaði með honum fram á síð- ustu ár. Hann gegndi for- mennsku frá 1986-1993. Hann var sæmdur gullmerki GSÍ 2013. Þórður var einnig einn af stofnfélögum flugklúbbsins Kára, starfaði og flaug um ára- bil. Útför Þórðar verður í dag, 26. september 2020, klukkan 13 frá Borgarneskirkju. Streymt verður frá útförinni á kvikborg.is: https:// tinyurl.com/y2jvbluu/. Virkan hlekk má nálgast á https://www.mbl.is/andlat/. f. 19. desember 1967, giftur Ágústu Johnson, f. 2. des- ember 1963. Börn þeirra eru tvíbur- arnir Sonja Dís Johnson Guðlaugs- dóttir og Þórður Ársæll Johnson Guðlaugsson, f. 2002. Ágústa á tvö börn frá fyrra hjónabandi, þau Önnu Ýri Johnson Hrafns- dóttur, f. 1991, og Rafn Frank- lín Johnson Hrafnsson, f. 1994. Þórður ólst upp á Siglufirði og eftir iðnnám þar flutti hann til Reykjavíkur þar sem hann kláraði meistaranám í ketil- og plötusmíði og lengst af starfaði hann við það fag hjá Stálsmiðj- unni. Einnig var hann til sjós bæði á togurum og millilanda- skipum um árabil. Hjónin Þórður og Sonja fluttust til Borgarness árið Lífshlaup pabba er á enda. Við endamarkið ríkir ekki sorg heldur þakklæti og söknuður. Það er hinn rétti gangur lífsins að fullorðið fólk fylgi foreldrum sínum síðasta spölinn. Nú eru þau bæði farin, mamma og pabbi, og ég veit að með þeim hafa orðið fagnaðarfundir að nýju. Pabbi var ekki maður margra orða, hvorki í samskiptum við mig né aðra. En það sem hann sagði skipti þeim mun meira máli. Hann var hreinskilinn og gerði aldrei minnstu tilraun til að fegra hlutina. Pabbi var í senn hlýr og traustur, þolinmóð- ur og gerði líka sanngjarnar kröfur. Hann vandaði um við mig þegar þess þurfti, hvatti mig og hrósaði. Pabbi kenndi mér svo margt. Hann kenndi mér að meta nátt- úruna, kenndi mér að veiða og að bera virðingu fyrir bráðinni. Hann kenndi mér á landið og svo margt um mannfólkið. Pabbi lagði mér lífsreglur og innrætti mér gildi. Slíkt verður ekki lagt á hefðbundnar vogarskálar en það er þó verðmætara en flest annað. Pabbi var yfirlögregluþjónn í Borgarnesi. Ég man að eitt sinn spurði ég hann hvort það væri ekki gaman að vera lögreglu- maður. Hann svaraði því neit- andi, það væri ekki gaman. Ástæðan var sú að lögreglu- menn hittu gjarnan fólk sem ætti erfitt og væri að ganga í gegnum sínu verstu lífsreynslu oft á tíðum. Hann hafði hvorki þörf fyrir né ánægju af því að beita valdi sínu. Hann gerði það auðvitað ef á þurfti að halda. Þannig var honum sérstaklega illa við að foreldrar væru að hræða börnin sín með lögregl- unni, því börn, jafnvel umfram fullorðna, þyrftu að treysta lög- reglunni. Þetta lýsir vel því hvernig pabbi sinnti sínu starfi, hann vildi vera þjónn fólksins en ekki yfirvald. Pabbi innrætti mér lífsgildi sem hafa verið mitt leiðarljós alla tíð, til að mynda að koma eins fram við alla, fara ekki manngreinarálit. Ég hitti full- trúa erlends ríkis að máli um daginn og sá kvartaði mjög yfir því að ég hefði farið gagnrýn- isorðum um stjórnarhætti og stöðu mannréttindamála í ríki hans. Ég sagði honum þá sögu af pabba. Þannig var að pabbi kom alltaf heim af löggustöðinni í hádegismat og gekk þá fram og til baka. Á leiðinni blasti við honum sama sjónin á hverjum degi í götu, en pabbi vinar míns lagði bílnum ólöglega á hverju einasta degi. Og á hverju ein- asta degi skrifaði pabbi upp sektarmiða og lagði á bílinn. Svo fór að þessi pabbi vinar míns bað mig á endanum að tala við pabba og fara þess á leit að hann hætti að sekta hann. Svar pabba var á þessa leið: Það er erfitt að vera lögreglustjóri í litlum bæ en þú verður að gæta þess að koma jafnt fram við alla, annars fer allt í vitleysu. Ég ætla ekki að halda því fram að þessi litla saga hafi sannfært sendimann erlenda ríkisins en ég hugsa samt að hann hafi átt- að sig á samhenginu. En þannig er það, að lífsgildi foreldra okkar og annarra sem áhrif hafa á okkur móta okkur fyrir lífstíð. Fyrir þau lífsgildi sem mér voru innrætt af mínum foreldrum verð ég alltaf þakk- látur. Þau studdu mig með ráð- um og dáð en á sama tíma gerðu þau kröfur til þess að ég stæði á eigin fótum og að ég stæði í lappirnar. Á þeim tíma sem ég ólst upp í Borgarnesi léku allir krakkar sér saman, stórir og litlir á ólíkum aldri. Ég minnist þess að hafa gjarnan verið tusk- aður til af eldri strákum og þá greip ég gjarnan til þess ráðs að segja að pabbi minn væri lögga og hann myndi taka þá ef þeir létu mig ekki í friði. Oftast dugði þetta til en einhvern tím- ann kom ég heim eftir að hafa verið tuskaður nokkuð ærlega til af stærri strákum og bað pabba að nú um að beita sér í málinu. Hans svar var skýrt: Ef þú get- ur ekki barið þá, þá skaltu hlaupa. Aldrei að koma til mín með svona lagað. Við kveðjustund rifjast þetta allt saman upp og svo miklu fleira. Söknuðurinn er mikill en minningarnar gera hann ljúfan frekar en sáran. Ég fæ pabba og mömmu aldrei þakkað að fullu allt sem þau voru mér. Guðlaugur Þór Þórðarson. Þórður tengdafaðir minn hef- ur kvatt eftir erfið veikindi. Við fyrstu kynni fór ekki fram hjá mér að þar fór einstaklega heillandi og hlýr maður. Hann tók verðandi tengdadóttur af mikilli velvild og vinsemd vel og brá aldrei skugga á okkar sam- skipti enda Þórður einstakt ljúf- menni. Traustur, hlýr, sérlega úrræðagóður, hjálpsamur, skyn- samur og réttsýnn eru lýsandi orð fyrir hann eins og ég kynnt- ist honum. Glettni og kímnigáfa þótti mér einkennandi í hans fari og hann nálgaðist viðfangsefni lífs- ins og tilverunnar af jákvæðni, yfirvegun og æðruleysi. Sjarm- erandi glettnisblikið í auga, bros og góðlátleg stríðni var aldrei langt undan og alveg fram á síð- asta dag. Eitt af því sem ég kunni vel að meta í fari Þórðar var hve hreinskiptinn hann var og reyndi ekki að „sykurhúða“ hlutina. „Þú hefur fitnað dreng- ur minn,“ átti hann til að segja góðlátlega við son sinn þegar honum þótti mittismál hans hafa stækkað óæskilega mikið. Skila- boðin voru einföld og skýr, sögð af hlýjum hug og hittu í mark. Almennt spurður álits á mál- um sagði hann óhikað skoðun sína þó einhverjum kynni e.t.v. að þykja hún ögn óþægileg. Hreinskilni hans var mér mjög að skapi og þótti svo dásamlega hressandi þegar hann var til dæmis spurður „hvernig smakk- ast?“, þá kom svarið frá honum blátt áfram, en það gat t.d. verið „fínt en sósan er of þunn.“ Það var alltaf ánægjulegt að fá Þórð í mat til okkar í Loga- foldina, enda mikill matmaður og naut þess út í ystu æsar að borða góðan mat – og því meiri rjómi því betra. Má segja að það hafi í raun verið rannsóknarefni eitt og sér hvað hann gat borðað óhemju mikið og alltaf í fínu formi. Óhætt er að segja að Þórður hafi verið glæsimenni, áberandi hraustur og líkamlega sterk- byggður. Hann virtist leggja mikið í það ævilangt að halda líkamanum í góðu ástandi þrátt fyrir að veikindin gerðu honum erfitt fyrir í seinni tíð. Það virt- ist fátt bíta á þennan stæðilega mann. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því síðustu ár hvernig hann tókst á við hinn erfiða sjúkdóm sem hann glímdi við í rúman áratug af þeirri yf- irvegun sem einkenndi hann. Hann hélt sínu striki eins og honum frekast var unnt og af einbeitingu og kappi stundaði ýmsar æfingar og veigraði sér ekki við að iðka daglega æfingar með lóðum, kominn vel yfir átt- rætt. Tvíburarnir Sonja Dís og Þórður Ársæll voru einu barna- börn Þórðar og Sonju og rækt- uðu þau samband sitt við börnin af mikilli natni og alúð. Fengu þau oft og iðulega að heimsækja afa og ömmu í Borgarnesi. Þórður var dásamlegur afi og augljóslega veitti það honum mikla gleði og ánægju að kynn- ast krökkunum og verja tíma með þeim. Amma og afi buðu þeim með sér í útilegu á hús- bílnum og margar sundferðirnar voru farnar með afa í sundlaug Borgarness. Tvíburunum þótti afar vænt um afa sinn og áttu afar dýrmætt samband sem þau munu búa að um ókomin ár. Þær voru alltaf ljúfar heim- sóknir fjölskyldunnar í hæga, rólegheita lífið á Böðvarsgötunni og mikill söknuður að þær verða nú ekki fleiri. Þakklæti fyrir góðar minning- ar er mér efst í huga á kveðju- stund. Með sorg í hjarta kveð ég elsku tengdapabba. Blessuð sé minning Þórðar Sigurðssonar. Ágústa Johnson Komið er að kveðjustund, elsku afi okkar hefur nú kvatt þessa jarðvist. Afi Þórður var frábær afi og það er ótal margs að minnast. Við vorum svo heppin að fá að dvelja oft í Borgarnesi nánast frá fæðingu og kynntumst ömmu Sonju og afa Þórði vel og ekki má gleyma labrador-hund- inum skemmtilega, honum Patta. Það sem kemur upp í hugann þegar við rifjum upp lífið á Böðvarsgötunni er afi með stóra gula kaffibollann sinn, drakk alltaf úr sama bollanum. Okkur fannst hann ætti að fá sér nýjan, en nei, ekki afi. Þó bollinn væri, að því er virtist, orðinn 100 ára, brúnn og lúinn, var hann góður og gildur og engin ástæða til að skipta. Afi golfari. Hann afi var alltaf í golfi og var frábær golfari. Hann kenndi okkur að spila golf og leyfði okkur alltaf að keyra golfbílinn sinn frá því að við rétt sáum upp fyrir stýrið. Afi og Patti. Patti var mjög fjörugur hundur og gat verið mjög erfiður að tjónka við og sá eini sem gat tamið hann var afi. Hann kenndi honum ótal kúnstir sem okkur þótti óskiljanlegt hvernig hann fór að því. Afi hafði alveg sérstakt lag á því að ala upp góða hunda. Afi matargat. Honum afa þótti ótrúlega gott að borða og þegar okkur langaði ekki í meiri ýsu þá dró afi okkur að landi. Okkur þótti það ekki slæmt. Enginn borðaði jafn mikið og afi. Afi var alltaf hress og kátur og sama hvað hann var orðinn slæmur af veikindum sínum í lokin þá náði hann alltaf að vera brosandi og hress þegar við komum í heimsókn til hans. Hann var alla tíð endalaust góð- ur við okkur og það fór heldur ekki framhjá okkur hve góður hann var við ömmu og hugsaði alltaf vel um hana. Vertu sæll elsku afi, takk fyr- ir allt. Við munum alltaf elska þig. Þín Sonja Dís og Þórður Ársæll. Þórður Sigurðsson, sem við kveðjum í dag, var elsti sonur Siggu föðursystur og elsta barnabarn vitavarðarhjónanna á Siglunesi nyrst á Tröllaskaga. Sérlega kært var á milli foreldra okkar alla tíð og hríslaðist sá vinskapur milli kynslóðanna. Þeir Þórðarnir voru miklir véla- karlar, sem batt þau bönd enn fastar. Þórður frændi hefur alltaf verið nálægur frá því ég man fyrst eftir mér og fljótlega Sonja líka, sú frábæra kona, sem lést fyrir rétt tveimur árum. Þau voru oftast nefnd í sömu andránni á æskuheimili mínu og þannig var það alltaf. Bæði dásamlegar manneskjur. Þórður var flinkur ljósmyndari og enn er uppi á vegg í stofunni á Laugarveginum gullfalleg ljós- mynd af þeim hjónum ungum, sem hann hafði tekið sjálfur og sent foreldrum mínum fyrir langalöngu. Fyrir mér var Þórður afskap- lega traustur, agaður maður, sem ég man aldrei eftir að hafa séð reiðan. Hann var eiginlega eins og klettur. En hann átti sannarlega margar aðrar hliðar, sem hann var spar á að sýna. Þórður var glaðsinna og gat ver- ið lúmskt fyndinn, jafnvel pínu prakkari. Hann elskaði náttúru Íslands, hafði gaman af veiðum og ferðaðist víða um landið með fjölskylduna og myndavélina. Þórður var mikill dýravinur og oftast var hundur á heimilinu. Á efri árum heillaðist hann af golf- inu og stundaði stíft meðan stætt var. Það var sérlega gam- an að taka hús á þeim hjónum á Böðvarsgötunni þegar þau voru bæði heima og spjalla við þau og grínast um lífið og tilveruna. Þórði og Sonju hlotnaðist mikil hamingja þegar þau tókust á við foreldrahlutverkið. Einka- sonurinn Guðlaugur Þór, kraft- mikill, frískur og fínn, varð þeim mikill gleðigjafi og ber foreldr- um sínum einstaklega fagurt vitni. Þau voru enda stolt af stráknum og fjölskyldu hans alla tíð. Ég hitti frænda minn síðast þegar ég leit inn hjá honum í Brákarhlíð stuttu áður en Covid skall á. Þangað flutti hann fljót- lega eftir að Sonja lést. Elli kerling hafði því miður lagst þungt á Þórð frænda með park- inson þannig að hann þurfti skjól. Þórði leið vel í Brákarhlíð en vitanlega var hann ekki sátt- ur við líkamlegt ástand sitt. Hugurinn var í góðu lagi, t.d. teiknaði Þórður og útskýrði fyr- irkomulagið á vatninu í húsi fjöl- skyldunnar á Siglunesi eins og fagmaður. Fyrir nokkru greind- ist hann svo með krabbamein, sem lagði hann að velli á til- tölulega stuttum tíma. Minningar mínar um Þórð Sigurðsson eru fjölmargar, góð- ar, bjartar og ljúfar, og fyrir þær er ég þakklát. Guðlaugi Þór og fjölskyldu votta ég samúð mína og minnar fjölskyldu. Blessuð sé minning Þórðar frænda. Árdís Þórðardóttir. Þórður var föðurbróðir minn en líka miklu meira en það. Hann var hluti af pabba. Það var sjaldan minnst á Þórð án þess að minnast líka á pabba, taugin þeirra á milli var það sterk enda voru aðeins þrjú ár á milli þeirra í aldri. Við andlát pabba var því mikil huggun að hafa Þórð. Það var alltaf hægt að leita til hans og var hann ein- staklega ráðagóður, hlýr og skemmtilegur. Á sumrin voru þeir bræður, Þórður og pabbi, oftar en ekki saman á Siglunesi. Nesið var þeirra paradís og var sérstaklega gaman að vera þar með þeim, taka þátt í brasinu og hlusta á sögur frá fyrri tíð, minningar af fólkinu á Nesi og lífinu á Siglufirði. Þórður var glaður með nesferðina sumarið 2018 en þar átti hann ánægju- legan tíma með Gulla syni sín- um, Þórði Ársæli, sonarsyni sín- um, Valgeiri bróður sínum, Hilmari bróðursyni og Hafsteini Úlfari, syni mínum. Borgarnes hefur alltaf verið fastur punktur í öllum ferðum norður á Siglufjörð og suður aft- ur. Frá því ég man eftir mér var alltaf stoppað hjá Þórði og Sonju, stundum stutt, bara rétt til að kyssa og knúsa, og stund- um lengur. Eftir að við fluttum til Siglufjarðar var hvergi betra að stoppa á leið suður en í Borg- arnesi. Bæði voru Þórður og Sonja höfðingjar heim að sækja og afskaplega barngóð. Börnin mín fengu óskipta athygli og væntumþykju. Ekki var verra að til var tvennt af öllum leik- föngum svo ágreiningur um leik- föng kom aldrei upp. Því var hægt að drekka kaffi og spjalla í ró og næði. Mikill var missir Þórðar þegar Sonja lést fyrir tveimur árum enda höfðu þau fylgst að í gegnum lífið allt frá barnsaldri. Gulli annaðist föður sinn vel og var gaman að sjá glampann í augum Þórðar þegar hann sagði frá barnabörnunum, tvíbbunum sínum þeim Sonju Dís og Þórði Ársæli. Þau voru augasteinar hans og Sonju. Með sorg í hjarta en miklu þakklæti kveð ég minn ástkæra föðurbróður og votta Gulla, Ágústu og börnum samúð mína svo og föðurbræðrum mínum þeim Valgeiri og Jónasi. Ég trúi því að Sonja hafi tekið vel á móti Þórði sínum svo og pabbi og að ég muni finna fyrir þeim bræðrum á Siglunesi næsta sumar. Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir. Elsku Þórður, það verður skrýtið að fara ekki lengur í Borgarnes til þess að heimsækja þig, eða ég, „Mazza mág“, að hringja í þig, „Dodda mág“, og heyra í þér. En allt hefur sinn tíma, það vitum við öll. Þú fékkst loks hvíld eftir erfið veik- indi og ert nú kominn í faðm elsku Sonju þinnar. Samfylgd okkar er orðin löng. Þú komst inn í fjölskylduna fyr- ir 65 árum þegar þú trúlofaðist Sonju systur minni. Er það mér ógleymanlegt þegar þið komuð heim til mömmu og pabba, mjög laumuleg, þannig að ég fór að hlusta og heyrði þegar þið hvísl- uðuð því að mömmu og pabba að þið væruð búin að trúlofa ykkur. Ég átti þá að vera sofn- uð. Þið voruð einstaklega fallegt og glæsilegt par. Fljótlega fluttuð þið frá Siglu- firði til Reykjavíkur og byrjuðuð að búa. Ég flutti til ykkar á Brá- vallagötuna 16 ára gömul og átt- um við margar ógleymanlegar ánægjustundir saman. Þið voruð mér eins og aðrir foreldrar upp frá því og er ég ævinlega þakk- lát fyrir það. Síðan fluttum við í Sólheimana. Árið 1965 fluttuð þið í Borg- Þórður Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minning þín lifir. Með kæru þakklæti fyrir allt. Anna Ýr og Rafn Franklín. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.