Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 39
RAFVIRKJAR!
Óskum eftir að ráða rafvirkja til framtíðar-
starfa. Umsókn sendist á netfangið
rafbodi@rafbodi.is.
Þurfa að geta byrjað sem fyrst.
Fjögur embætti héraðsdómara
laus til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar fjögur embætti héraðsdómara, sem hér segir:
• Embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Skipað verður í embættið hið
fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
• Embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Skipað verður í embættið frá
1. janúar 2021.
• Embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjaness. Skipað verður í embættið hið
fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
• Embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Skipað verður í embættið
hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr.
620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af
dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum,
s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur,
fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni,
s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt
atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta
veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5.
mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa
ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 12. október nk. Til þess að hraða afgreiðslu
umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða
með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
25. september 2020.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Áratuga reynsla
í ráðningum
hagvangur.is