Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 20
SVIÐSLJÓS Hallur Már Hallsson hallurmar@mbl.is Fyrsta verkefni ofurgreindarinnar var að afla þróunarteyminu tekna. Eins mikilla og hægt var að afla á sem skemmstum tíma. Fyrstu millj- arðarnir, í dollurum talið, urðu til í efnisveitu sem byggðist á flóknu neti gerviframleiðenda sem sköpuðu tölvugerðar bíómyndir og sjónvarps- þætti, ekki ósvipað því sem hefur malað gull fyrir Disney-samstæðuna. Með því að stúdera allar kvikmyndir og allt það sjónvarpsefni sem skipt hefur máli í gegnum tíðina ásamt lestri og greiningu á því sem hefur verið skrifað um efnið náði ofur- greindin fullkomnum tökum á listinni á einungis nokkrum dögum. Í hvik- ulum bransa þar sem framleiðsla er bæði mannfrek og dýr höfðu hefð- bundnar framleiðsluaðferðir mann- fólksins ekki roð við skilvirkni ofur- greindarinnar sem þróaði nú eigin hugbúnað og vélbúnað. Stærsta vandamálið var að fela slóð tölvu- framleiðslunnar með flóknu neti framleiðslufyrirtækja um allan heim. Vissulega voru þau mönnuð fólki sem hélt þó að það léki hlutverk í gang- virki þessa ört vaxandi efnahagsrisa. Svona hefst dæmisaga um ofur- greindina Prómóþeus í inngangi bók- arinnar Life 3.0 eftir sænsk- bandaríska eðlisfræðinginn Max Tegmark sem gegnir stöðu við MIT. Í bókinni veltir hann fyrir sér hvaða áhrif gervigreind komi til með að hafa á mannkyn og þróun lífs á jörð- inni. Hvað gerist þegar gervigreind öðlast sjálfstæða færni til að þróa sjálfa sig og vélbúnaðinn sem hún byggist á? Bókin er á köflum stórfurðulegt torf en á köflum mjög áhugaverð. Sérstaklega greip þessi hugmynd um streymisveituna mig. Bókin er gefin út árið 2017 og þótt hlutirnir gerist hratt í þessum geira væri varla hægt að kalla hana gamla. Tilbúnir „listamenn“ Árið 2016, um það leyti sem bókin hefur verið skrifuð, byrjuðu blaða- menn að rýna í nokkra „listamenn“ sem voru að gera það gott á mörgum spilunarlistum tónlistarveitunnar Spotify sem á undanförnum áratug hefur náð hálfgerðri einokunarstöðu í að streyma tónum í eyru heims- byggðarinnar. Þar er sænska athafnaskáldið Daniel Ek við völd en í ljós kom að fjölmargir listamenn á Spotify eru tilbúningur. Oddur Klemenzson og Sigríður, sem maður myndi ætla að væru jafn íslensk og haglél í september, eru þar á meðal. Svo er þó ekki eins og fjallað hefur verið um. Þegar rýnt er í upplýsingar um lagið „Foreign Fields“ með Sig- ríði kemur í ljós að þar er fram- leiðsluteymið Quiz & Larossi að baki, höfundur er Robin Bennich. Quiz & Larossi, sem heita Andreas Romd- hane og Josef Svedlund, eru áber- andi í umfjöllun Music Business Worldwide um málið. Blaðamönnum MBW taldist til að tvíeykið hefði samið tónlistina fyrir um átta lista- menn sem eru áberandi á spilunar- listum eins og Peaceful Piano, Piano In The Bacground, Deep Focus o.s.frv. Listum þar sem tónlistinni er ætlað að vera í bakgrunni, hálfgerð lyftutónlist sem á að vera til staðar en ekki trufla. Þetta eitt og sér er auðvitað ekkert athugavert út af fyrir sig. Höfund- arverk hafa alla tíð verið gefin út undir fölskum forsendum. Stað- reyndin er þó sú að umræddir spil- unarlistar eru afar vinsælir og starfs- menn Spotify velja sjálfir tónlistina inn á þá. Að ná lagi inn á Peaceful Piano-listann mætti líkja við að vinna í happdrætti, tekjurnar af spilun bara inni á þeim lista eru umtals- verðar. Smellirnir „Landmannalaug- ar“ og „Seljalandsfoss“ eftir Odd okkar hafa fengið um tólf milljón spilanir á veitunni. Sumir „lista- mennirnir“ eru með tugi milljóna spilana, þegar allt er lagt saman er ljóst að um háar fjárhæðir er að ræða, líklega taldar í hundruðum milljóna. Reglulega spretta upp umræður á meðal tónlistarfólks hér á landi um fyrirkomulagið. Margir tónlistar- menn hafa lagt mikið á sig til að fram- leiða tónlist sem þeir sjá fyrir sér að geti átt heima á listunum. Vonbrigðin eru umtalsverð þegar svo reynist úti- lokað að koma tónlistinni þar fyrir á meðan gervilistamenn græða á tá og fingri, tja í það minnsta ná upp í kostnað! Tortryggnin er líka talsverð. Tónlistarmaður sem ég hafði sam- band við þegar ég var að vinna grein- ina var alveg til í að fara yfir málin en vildi alls ekki láta nafns getið þar sem hann stefnir á útgáfu fljótlega og vildi ekki styggja báknið. Veröld ný og góð Í sögunni um Prómóþeus var fólkið að baki gervigreindinni, Omega- hópurinn, sem betur fer býsna vel innrætt. Þegar skemmtanaiðnaður- inn var sigraður var næsta skref að byggja upp fjölda tæknifyrirtækja um allan heim sem komu með nýjar tæknilausnir (hannaðar af Prómó- þeusi) á markað sem breyttu lifn- aðarháttum mannfólks til hins betra. Næst var að leggja undir sig fjöl- miðlun. Það reyndist frekar auðvelt þar sem fjármögnunin byggðist á sterkum grunni. Fréttastöðvar spruttu upp á öllum mörkuðum þar sem áður óséðum upphæðum var eytt í að skapa skynsamlega umræðu þar sem ábyrg og öfgalaus umfjöllun var í fyrirrúmi án nokkurrar kröfu um að skapa tekjur. Þannig skapaðist mikið traust al- mennings á öllu sem Omega-veldið kom nálægt. Fréttir og umfjöllun náðu að minnka tortryggni á milli ólíkra hópa og þjóða. Allt var reiknað út af Prómóþeusi um hvernig hægt væri að gera samfélagið skilvirkara og réttlátara. Fjallað var með raun- sönnum hætti um hvernig vopnuð átök gögnuðust fáum og ógnuðu sak- lausu fólki. Að lokum kom að yfirtöku á hinum pólitíska vettvangi þar sem mannúðleg markmið réðu för. Í stað hernaðarútgjalda var fjármunum frekar beint í þarfari farveg. Þið sjáið hvert þetta er að fara; valdahlutföllin skekktust og Omega-hópurinn náði völdum á jörðinni í krafti ofurgreind- ar Prómóþeusar sem reiknaði út hvernig hægt væri að hámarka ham- ingju allra sem hana byggja. Tryggja friðsælt líf á jörðinni og næstu heim- kynnum mannkyns inn í eilífðina. Ég er nú ekki að ýja að því að Ek og félagar hafi svona háleit markmið, en … er það mögulegt að við séum byrjuð að hlusta á tónlist sem er búin til af gervigreind? Og ef svo er skiptir það einhverju máli? Hlustar þú á gervigreind?  Fjöldi listamanna á tónlistarveitunni Spotify er gervimenn en ekki til í raunveruleikanum  Smellirnir „Landmannalaugar“ og „Seljalandsfoss“ hafa fengið um tólf milljón spilanir á veitunni AFP Gervimaður Róbotinn Sophie ræðir við gesti á gervigreindarráðstefnu á Indlandi. Sophie er hönnuð hjá fyrirtækinu Hanson Robotics í Hong Kong. Lög Oddur flækir ekki málin, lögin bera nöfn þekktra ferðamannastaða. Ítarlegri grein með mynd- og tóndæmum er að finna á mbl.is. mbl.is 20 FRÉTTIRTækni MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.