Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020 ✝ SveinbjörnBenediktsson fæddist á Hvamms- tanga 2. nóvember 1944. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 15. september 2020. Foreldrar Svein- björns voru Bene- dikt Sveinbjörns- son og Ólöf Helga- dóttir. Sveinbjörn var næstelstur fimm bræðra en þeir eru í aldursröð: Ólafur Grétar, Helgi, Jón Gunnar og Hjörtur Már. Axel Þór, kona hans er Silja Ágústsdóttir og á tvö börn, Sigurður Óli, giftur Ester Sig- urpálsdóttur og á fimm börn. Fyrir átti Olga dótturina Agnesi Ólöfu, sem Sveinbjörn gekk í föðurstað, og er hún gift Þórhalli Svavarssyni og á fjór- ar dætur. Barnabarnabörnin eru átta. Eftirlifandi kona Sveinbjörns er Namayanja No- eline sem hann kallaði alltaf Línu. Hennar dóttir er Anna sem Sveinbjörn gekk í föð- urstað. Sveinbjörn var lengst af bóndi á Krossi í Austur- Landeyjum ásamt því að vera þekktur fyrir verslun og við- skipti af ýmsum toga. Sveinbjörn verður jarðsung- inn frá Krosskirkju í Land- eyjum í dag, 26. september 2020, klukkan 14. Sveinbjörn eign- aðist Guðfinnu Sif með fyrrverandi konu sinni, Sig- rúnu Guðmunds- dóttur. Guðfinna er gift Kjartani Kjartanssyni og á tvo syni. Með seinni konu sinni, Olgu Thorarensen, eignaðist hann fjögur börn: Bene- dikt, kvæntur Sigríði Lindu Ólafsdóttur og á þrjá syni, Margrét Sigríður, gift Gylfa Albertssyni og á eina dóttur, Hann er dáinn hann Svein- björn bróðir okkar, næstelstur, 75 ára gamall, fyrstur af okkur fimm bræðrum að kveðja þennan heim. Búinn að berjast í erfiðu sjúkdómastríði undan- farin misseri sem reyndar hófst með ýmsum áhlaupum fyrir tugum ára síðan en stóð þó alltaf upp aftur þangað til nú. Þó var það áberandi alla tíð, hversu kulvís hann var. Klæddi hann sig oft á tíðum allavega í nærbol, skyrtu, tvær peysur, tvennar buxur og þykkan kuldagalla yfir allt saman og virkaði þar af leið- andi mun holdmeiri enn hann var í raun. Þegar maður geng- ur um málverkasal minning- anna, hrúgast fyrir augun fullt af myndum. Sveinbjörn fór oft ótroðnar slóðir í mörgu og spurði ekki endilega til vegar þegar hann lagði af stað, hann var kappsamur, fljóthuga og stundum fljótfær, og var öðr- um mönnum stundvísari. Hann var afar hvatvís og hreinskil- inn svo undan sveið á stundum þó ætlunin hafi ekki verið sú, því hann var sjálfur auðsærður og viðkvæmur en bar það ekki á torg. Næmur á fólk og fann oft óorðna hluti á sér og ber- dreyminn. Hann bjó með sínu fólki á Krossi í mörg ár og oft- ast kenndur við þann bæ. Þeg- ar átti að smala fé eða hrossum heima á Krossi, hljóp hann við fót landið á enda, en gleymdi stundum að segja þeim sem áttu að vera í fyrirstöðu, hvar þeir ættu nákvæmlega að vera eða gera. Kallaði hann þá ein- att skipanirnar eins hátt og hann gat en enginn heyrði orðaskil, enda bóndinn kannski tvo eða þrjá kílómetra í burtu. Síst má gleyma þætti Olgu í búskapnum, hann var stór, því hún var forkur dugleg og gekk í öll verk. Verslun og viðskipti voru hans yndi. Auglýsingar í Bændablaðinu vöktu oft mikla athygli og varla var til sá hlut- ur sem hann ekki gat selt, nú eða skipt og fengið eitthvað annað í staðinn, hvort sem voru 300 tannburstar, bomsur, jólaskraut, hross, leirtau, hey- vinnutæki eða hvað sem var, bæði fyrir sjálfan sig og aðra. Við þessa uppáhaldsiðju sína kynntist hann fjölda fólks um allt land enda áhugasamur um ættir og uppruna og með stál- minni. Á gleðifundum vildi hann, eins og faðir okkar, ávallt að tekið yrði lagið og fannst það snautleg veisla ef ekki var sungið. Söng í kirkju- kór Krosskirkju meðan entist þrek og ýmsum öðrum kórum ásamt að vera meðhjálpari. Honum þótti vænt um kirkj- una. Þekktur var hann fyrir ágætar eftirhermur og sögur sem sagðar voru við eldhús- borðið. Sögur komu síðar á fés- bókina þegar hann náði tökum á þeirri tækni. Honum tókst í sögum sínum að gera hvers- dagslega hluti áheyrilega og áhugaverða. Alltaf þegar ég heimsótti hann á sjúkrabeð nefndi hann hversu stoltur hann væri af börnunum sínum öllum, sem komið hafa sér svo vel áfram í lífinu með dugnaði og staðfestu. Nú er hann farinn, dreng- urinn sem fluttur var í kassa á hesti frá fæðingastað sínum, Hvammstanga, inn í afskekkt- an Austurárdalinn, maðurinn sem keypti eina fyrstu trak- torsgröfu sem flutt var til landsins, ungi pilturinn sem keypti sér nýjan Landróver nýlega kominn með bílpróf, maðurinn sem var hálfgerð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Nú er hann kominn í sum- arlandið og þeir pabbi syngja lagið „ Aftur kemur vor í dal“, svo bætist mamma í söngtríóið og þá er tekið eitthvað fallegt úr sálmabókinni. Amma Sigríð- ur kemur og segir; „þú ert þá kominn Bjössi minn, ertu ekki svangur?“ Hjörtur Benediktsson. Skömmu eftir miðja öldina, sem leið, tók fólk á mölinni að koma sér upp grasblettum við híbýli sín, sum nýrisin. Fyr- irtækjum var komið á fót til þess að útvega túnþökur að leggja á húsagarða. Sumir starfsmanna komu þökunum fyrir, en aðrir sóttu í nærliggj- andi byggðir, Mosfellssveit og Kjalarnes. Þar var rist ofan af túnum með skurðarvél og grassverðinum ekið í áfanga- stað á vörubílum. Á Bjargar- stöðum hafði Sveinbjörn orð fyrir þeim feðgum, unglings- maður, bjartur yfirlitum og síðhærður eftir landsiðnum; naut óskoraðrar hylli torf- skurðarmanna. Og svo trygg- lyndur var hann og langminn- ugur, að þráðurinn sem þarna var spunninn slitnaði aldrei. Séra Bjarni Sigurðsson á Mosfelli hafði fermt Svein- björn í Lágafellskirkju. Og slíka virðingu bar Sveinbjörn fyrir presti sínum, að hann lærði öll versin í þeim 12 sálm- um, sem sr. Bjarni setti börn- unum fyrir. Furðaði marga á því, að Bjössi á Bjargarstöð- um, sem fram til þessa hafði verið talinn námsmaður að hófi, skyldi vera orðinn svo áhugasamur og fylginn sér. Má segja, snemma hafi beygst krókurinn, því að Sveinbjörn var alla ævi trúað- ur að hætti forfeðranna, hlynntur kristni og klerkum, kirkjurækinn og bæði sóknar- nefndarformaður og meðhjálp- ari. Auk þess söng hann löngum í kirkjukór; byrjaði að syngja við guðsþjónustur og aðrar athafnir í Lágafells- kirkju og lærði bassann í sálm- unum með því að standa við hliðina á Jóni heitnum V. Bjarnasyni, garðyrkjubónda á Reykjum, og fá þannig röddina í eyrað. En Sveinbirni var fleira til lista lagt en söngurinn. Hann var næm hermikráka; hafði að heita mátti hljóð úr hvers manns barka. Einkum var eft- irtektarvert, hve honum tókst að líkja eftir ógleymanlegum vini, Eggert sæla oddvita og alþingismanni Haukdal á Berg- þórshvoli. Enn er erfitt að stilla sig um að skella upp úr, er þess er minnst, þegar Sveinbjörn var að herma eftir Eggert. Sat hann og bankaði með fingrum annarrar handar ofan í eldhúsborðið eða sól- bekkinn og leit ýmist út um gluggann eða skimaði að öðr- um kosti upp um veggi og loft. Þessu látæði drengsins góða höfðu fleiri löngum gefið gaum og reynt að leika eftir. En Sveinbjörn sýndi yfirburði sína með því að láta Eggert eigi að- eins hvarfla augum upp í horn kokkhússins, þar sem loft og veggir koma saman, heldur horfa jafnframt athugull niður á eldhúsgólfið og virða fyrir sér, rannsakandi og alvarlegur í bragði, skotið, þar sem gólf- listarnir mætast. Á miðjum aldri hlaut Svein- björn að þola veikindi, sem honum tókst, með Guðs hjálp, að sigrast á. En síðustu miss- erin urðu honum þung í skauti. Megi gagnkvæmar þakkir fyrir það, sem Guð gaf, bera yfir skugga tregans og sveipast birtu þeirra fyrirheita, sem við eigum öll í helgu vori, þar sem allt er orðið nýtt, og þar sem Sveinbjörn Benediktsson er að eilífu heill og sæll og blessaður í nafni Jesú Krists, sem fyrir hann er dáinn og fyrir hann er upprisinn og geymir hann og gleður að eilífu. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Ég keypti fyrir mörgum ár- um traktor af Sveinbirni og í sinni ógleymanlegu söluræðu sagði hann að traktorinn væri ónýtur. Það stóð heima en sá vin- skapur sem fylgdi með í kaup- unum þennan daginn var hins vegar heill og vatt upp á sig með hverju árinu. Símtölin voru mörg og hvert öðru skemmtilegra enda mikill sagnamaður á ferð sem hafði frá mörgu að segja á viðburða- ríkri ævi. Þó svo að Sveinbirni væri fátt óviðkomandi voru viðskipti með notaða hluti oft megininn- tak símtalanna. „Getur þú skotist fyrir mig upp í Breið- holt og náð í straubolta sem ég var að kaupa – já og kannski í leiðinni út í Hafnarfjörð og náð í ísskáp sem mér áskotnaðist.“ „Á ég ekki að selja fyrir þig þessar bækur sem þú ert búinn að burðast með á milli húsa í öll þessi ár?“ „Ég þarf að ræða aðkallandi mál við þig, geturðu hitt mig í Mjóddinni strax?“ Símtölin verða ekki fleiri við þennan einstaka og litríka kar- akter en fyrir þau og alla hitt- ingana, þar sem hispursleysið, húmorinn og gamansemin voru ríkjandi, er ég ævinlega þakk- látur. Ég er líka þakklátur fyr- ir traktorinn – þótt hann hafi verið ónýtur. Fjölskyldu Svein- björns og vinum sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Björn Jóhannsson. Sveinbjörn Benediktsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, tengdaföður og afa, VALÞÓRS BJARNA SIGURÐSSONAR, Spóaási 12. Guðrún Magnúsdóttir Magnús Valþórsson Guðrún Lísa Sigurðardóttir Sigrún Valþórsdóttir Valdimar Þorsteinsson Eyrún Valþórsdóttir Gestur Örn Ákason barnabörn Hugheilar þakkir til vina og vandamanna nær og fjær fyrir hlýhug og samúðarkveðjur vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður, dóttur og systur okkar HALLFRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR Við þökkum innilega fyrir alúð og stuðning lækna og hjúkrunarfólks í störfum sínum við Hallfríði í veikindum hennar. Ármann Helgason Gunnhildur Halla Ármannsdóttir Tryggvi Pétur Ármannsson Ólafur Tómasson Stefanía María Pétursdóttir Tómas Björn Ólafsson María Ólafsdóttir Kristín Anna Ólafsdóttir og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar og afi, DAVID CHARLES LANGHAM, lést mánudaginn 31. ágúst á líknardeild Landspítala í Kópavogi. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum hlýju og samúð. Helga Gunnarsdóttir Gavin Langham Heidi Langham Jasper og Charles Jenna og Chloe Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN EGGERTSSON, fyrrverandi bóndi, Hofsstöðum, lést miðvikudaginn 16. september á dvalarheimilinu Brákarhlíð. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju mánudaginn 28. september kl. 13. Vegna aðstæðna verður útförin einungis fyrir fjölskyldu og nánustu vini. Þökkum auðsýnda samúð. Soffía Hulda Guðjónsdóttir Vilborg Kjartansdóttir Eggert Kjartansson Katharina Kotschote Róbert Kjartansson Haukur Gísli, Ingibjörg, Kristín Lára, Elín Una Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, ÞORSTEINN Ó. LAUFDAL, lést laugardaginn 19. september í faðmi fjölskyldunnar á Eir hjúkrunarheimili. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka starfsfólki á Eir fyrir hlýhug og góða umönnun. Þökkum auðsýnda samúð. Jóhanna G. Tómasdóttir Njála Laufdal Friðrik Baldursson Helga Laufdal Hans Ragnar Þorsteinsson Ósk Laufdal Ólafur J. Kolbeins afabörn og langafabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR, Kársnesbraut 139, Kópavogi, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey 17. ágúst, að ósk hinnar látnu. Sendum starfsfólki á Báruhrauni sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Guðrún Halla Gunnarsdóttir Ólafur Héðinsson Gunnar Ólafur Gunnarsson Ingibjörg Elísabet Jakobsd. Hallur Örn Árnason Ester Rós Björnsdóttir Erla María Árnadóttir Jónas Valtýsson Iðunn Svala Árnadóttir Sigurður Arnór Sigurðsson Hörður Hólm Ingibjargarson Sædís Hólm Ingibjargard. Eyjólfur Kristinn Jónsson Sverrir Grétar Hólm Bergþóra Guðmundsdóttir og langömmubörnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.