Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 229. tölublað 108. árgangur
TJÓNIÐ JAFNAST
Á VIÐ HAGKERFI
BANDARÍKJANNA
ÁTTI EKKI VON Á AÐ SPILA
MIKILVÆGT AÐ
SJÁ FEGURÐ
Í ÁSTANDINU
FJÖGUR MÖRK EFTIR 15 MÁNAÐA HLÉ 26 ODDUR ARNÞÓR 28NIÐURSTAÐA GATES 12
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
Ekki er ástæða til að herða sótt-
varnaaðgerðir vegna kórónuveir-
unnar að svo stöddu, að mati Þór-
ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.
39 greindust með kórónuveiruna í
gær, þar af voru 34 í sóttkví við
greiningu. Fimm liggja inni á Land-
spítala, þar af er einn á gjörgæslu.
Þórólfur sagði á upplýsingafundi
almannavarna í gær að öruggast
væri út frá sóttvarnasjónarmiðum
að núverandi fyrirkomulag landa-
mæraskimunar yrði framlengt. Þá
sagði Þórólfur enn fremur að búast
mætti við að þær varrúðarráðstaf-
anir sem nú væru í gildi innanlands
giltu áfram næstu mánuði. »6
Ljósmynd/Almannavarnir
Á fundi Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir og Alma Möller landlæknir.
Ekki ástæða til
að herða aðgerðir
að svo stöddu
Fyrstu tölur yfir fyrirtæki á lista
yfir framúrskarandi fyrirtæki hjá
Creditinfo benda til þess að færri
ferðaþjónustufyrirtæki verði þar í
ár en í fyrra. Að sögn Gunnars
Gunnarssonar, forstöðumanns
greiningar og ráðgjafar hjá Credit-
info, voru ferðaþjónustufyrirtæki
10% af listanum í fyrra.
Listi yfir framúrskarandi fyrir-
tæki verðlaunar fyrirtæki fyrir
rekstrartölur 2019, en einnig er
tekið mið af lánshæfismati fyrir-
tækja eins og það er í dag. »12
Framúrskarandi
ferðaþjónustufyr-
irtækjum fækkar
skemmtiferðaskipum nálægt 597 milljónum
króna, sem var um 14% af heildartekjum fyrir-
tækisins það árið. Hins vegar voru tekjur Faxa-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Alls voru sjö komur farþegaskipa til Faxaflóa-
hafna í sumar með 1.346 farþega. Þetta er gríð-
arlegur samdráttur frá árinu 2019. Það ár voru
190 komur farþegaskipa til Faxaflóahafna með
188.630 farþega. Samdrátturinn milli ára er um
99%, eða sem nemur 187.284 farþegum.
Covid-19-heimsfaraldurinn hefur leikið út-
gerðir skemmtiferðaskipa grátt og sömuleiðis
þau fyrirtæki sem hafa þjónustað skipin. Margar
hafnir á Íslandi hafa orðið fyrir miklum tekju-
samdrætti frá fyrra ári.
Samkvæmt upplýsingum Ernu Kristjáns-
dóttur, markaðsstjóra Faxaflóahafna, voru
tekjur fyrirtækisins 2019 af farþegaskipum/
flóahafna í ár fyrir farþegaskip í kringum 11,2
milljónir. Samdráttur í tekjum milli áranna er
gríðarlegur, eða um 586 milljónir.
Í byrjun árs 2020 voru áætlaðar 187 skipakom-
ur farþegaskipa til Faxaflóahafna með 203.214
farþega. Um mánaðamótin apríl/maí byrjuðu af-
bókanir að hrúgast inn enda höfðu öll helstu
skipafélög heims hætt siglingum vegna heims-
faraldurs kórónuveirunnar.
Aðeins tvö skemmtiferðaskip komu til Reykja-
víkur í sumar, Magellan einu sinni og Le Bellot
sex sinnum. Í ár voru flestir farþeganna frá Eng-
landi eða 929 talsins. Frakkar voru 158 og Hol-
lendingar 125. Farþegar frá Þýskalandi voru að-
eins 14 en voru tæplega 49 þúsund í fyrra.
Bandaríkjamenn voru 11, samanborið við rúm-
lega 38 þúsund í fyrra. »11
Farþegum fækkar um 187 þúsund
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Magellan Annað tveggja farþegaskipa sem
komu í sumar. Það kom til Reykjavíkur í mars.
Aðeins komu 1.346 farþegar með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Aron Þórður Albertsson
Búist er við því að leiðtogar ríkis-
stjórnarinnar kynni í dag tillögur
stjórnarinnar varðandi lífskjara-
samningana fyrir aðilum vinnumark-
aðarins. Forsvarsmenn ríkisstjórn-
arinnar og Samtaka atvinnulífsins
funduðu í ráðherrabústaðnum í gær-
morgun og aftur síðdegis. Eftir fyrri
fundinn ákvað forysta SA að fresta
atkvæðagreiðslu félagsmanna sinna
sem átti að hefjast á hádegi í gær.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra vildi ekki tjá sig um efni
fundanna, en hann sagðist gera ráð
fyrir að þær tillögur sem ræddar
voru yrðu kynntar aðilum vinnu-
markaðarins fyrir hádegi í dag.
Kalli á sértækar aðgerðir
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði eftir
fundinn í gærmorgun að umræðu-
efni fundarins hefði verið þess virði
að þróa áfram og var gærdagurinn
nýttur í það. ASÍ og SA hefur greint
á um þær forsendur sem liggja að
baki lífskjarasamningunum og hvort
þær séu brostnar eða ekki. For-
svarsfólk ASÍ ræddi við stjórnvöld
símleiðis í gær en enginn formlegur
fundur var boðaður. Drífa Snædal
sagði í gær að ASÍ hefði aftur á móti
ekki rætt við SA í gær. Spurð nánar
út í samtöl hennar við stjórnvöld
sagðist Drífa ekki vilja tjá sig um
þau að öðru leyti en að ASÍ hefði sagt
að um sértæka kreppu væri að ræða
sem kallaði á sértækar aðgerðir.
Hugnast ekki orðræðan
Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi
forseti ASÍ, segir í samtali við Morg-
unblaðið að staðan á vinnumarkaði
sé mjög snúin. Hún sé þó ekki
óþekkt, en áhyggjuefni er að aðilar
ræðist ekki við. Honum hugnast ekki
orðræða verkalýðsforystunnar.
Tillögur kynntar í dag
Atkvæðagreiðsla SA um hvort segja eigi upp lífskjarasamningum hefst á hádegi
Viðbúið að stjórnvöld kynni tillögur Snúin staða, segir fyrrverandi forseti ASÍ
MLífskjarasamningar »4 og 14
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Gengið úr ráðherrabústaðnum Forysta Samtaka atvinnulífsins og Sigurður Ingi Jóhannsson eftir síðari fund SA og leiðtoga ríkisstjórnarinnar í gær.