Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hergilsey á Breiðafirði var smöluð á
sunnudag, en þar hefur fé frá bænd-
um í Krákuvör í Flatey gengið sum-
arlangt. Ellefu manns tóku þátt í
smalamennskunni að Magnúsi
bónda Jónssyni meðtöldum. Á ýmsu
gekk því féð var í þremur eyjum og
hljóp á milli þeirra þegar að því var
þrengt, en eftir mikil hlaup virtist
féð fegið að komast um borð í fjár-
flutningabátinn. Reyndar kom smá-
vegis leki að honum í flutningnum,
en með dælu tókst að halda aftur af
lekanum og engum varð meint af
þessu ævintýri í Hergilsey.
Alls voru 34 kindur fluttar í land,
fullorðið fé og lömb, að sögn Magn-
úsar. Hann saknar reyndar eins
lambs og verður svipast um eftir því
á næstunni. Í fyrra vantaði einnig
eitt lamb og var talið að það hefði
drepist. Svo var þó ekki því þegar
fólk kom til vinnu við æðarvarpið í
Hergilsey í vor birtist hrúturinn
óvænt og var hinn sprækasti eftir
einveru í eyjunni yfir veturinn.
Hann var orðinn vígalegur í tveimur
reyfum þegar smalað var á sunnu-
dag, en fylgdi hinu fénu um borð í
bátinn. Féð sem sent verður til slátr-
unar fer með Baldri upp á Brjáns-
læk í dag og síðan til slátrunar á
Sauðárkróki. aij@mbl.is
Ljósmynd/Þórdís Gunnarsdóttir
Smalað Bliki BA 17 á læginu í Hergilsey á sunnudag, féð rennur í rólegheitum um borð í flutningabátinn.
Ævintýri við smala-
mennsku í Hergilsey
Hrúturinn birtist óvænt eftir vetrardvöl í eyjunni
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland leggur
sérstaka barnaskýrslu fram við Barnaréttar-
nefnd Sameinuðu þjóðanna,“ segir Steinunn
Jakobsdóttir, kynningarstjóri Unicef á Ís-
landi.
Um sérstaka barnaskýrslu er að ræða, en
hún verður kynnt fyrir Barnaréttarnefnd SÞ í
dag. Þrjú ungmenni hafa unnið að skýrslunni
undanfarin misseri. „Það helsta í þessu er að
börn eru í fyrsta skipti að fara að kynna eigin
skýrslu. Börn eiga rétt á því að tjá sig um mál
sem að þeim koma og þetta er alveg ótrúlegt
tækifæri til þess,“ segir Steinunn.
Sjónarmið barna mikilvæg
Skýrslan verður kynnt samhliða skýrslu níu
frjálsra félagasamtaka um stöðu mannrétt-
inda barna á Íslandi. Um viðbótarskýrslu við
fimmtu og sjöttu skýrslu Íslands til barna-
réttarnefndarinnar er að ræða. Ritstjórn
skýrslunnar tók til starfa árið 2018 og kallaði
eftir fulltrúum frá ungmennaráðum um allt
land. Í verkefnahópinn bættust við sex ung-
menni yngri en 18 ára sem unnu skýrsluna.
„Þau voru fengin til að vinna skýrsluna, en
það voru þrjú ungmenni sem sáu aðallega um
umsjón verkefnisins,“ segir Steinunn og bætir
við að vonir séu bundnar við að skýrslan nýt-
ist barnaréttarnefndinni.
„Þau vonast auðvitað til þess að nefndin
taki þeirra skýrslu og punkta alvarlega.
Nefndin er að fara nákvæmlega yfir hversu
vel okkur gengur að uppfylla barnasáttmál-
ann. Ungmennin völdu sér ýmis málefni sem
þeim fannst mikilvægust,“ segir Steinunn.
Nefnir hún í því samhengi m.a. netofbeldi,
geðheilbrigði og jafnrétti barna.
„Við bindum vonir við að þessar skýrslur
saman verði teknar alvarlega. Það var haft
samráð við börn og ungmenni víða um land.
Ungmenni hafa innsýn í málefnin sem sér-
fræðingar hafa ekki. Þau hafa rödd sem verð-
ur að heyrast.“
Börnin kynna sína eigin skýrslu
Í fyrsta skipti sem Ísland leggur fram barnaskýrslu Verður tekin fyrir í Barnaréttarnefnd Samein-
uðu þjóðanna í dag Binda vonir við að skýrslan nýtist Samráð við börn og ungmenni víða um land
Morgunblaðið/Ómar
Börn að leik Ungmenni munu í dag kynna skýrslu fyrir Barnaréttarnefnd SÞ, í fyrsta skipti.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
mættu í gær á ríkisráðsfund á
Bessastöðum, en þar funduðu þeir
með forseta Íslands. Var um reglu-
legan fund ráðsins að ræða, en
þingsetning fer fram á fimmtudag
og mun forsætisráðherra þá flytja
stefnuræðu sína auk þess sem um-
ræður fara fram um stefnuræðuna
um kvöldið.
Fjárlagafrumvarp verður svo
kynnt í kjölfarið og fyrri umræða
um fjármálaáætlun mun fara fram í
næstu viku. Ljósmyndarar og ann-
að fjölmiðlafólk var beðið að bera
grímu þegar ráðherrar mættu á
Bessastaði, en ekki var óskað eftir
að annað starfsfólk og ráðamenn
gerðu svo. Ríkisráð kemur saman
tvisvar á ári, annars vegar milli
þinga og hins vegar um áramót.
Á ríkisráðsfundum endur-
staðfestir forseti öll frumvörp sem
staðfest hafa verið á Alþingi frá síð-
asta ríkisráðsfundi. Fundur ríkis-
ráðs átti að fara fram í vor en var
frestað vegna þingstubbsins sem
fram fór fyrr í haust. Þingsetning
verður nokkuð óhefðbundin vegna
kórónuveirufaraldursins. Aðeins
örfáum gestum verður boðið til
setningar þingsins, en athöfnin
hefst með guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni að venju.
Komu saman
á Bessastöðum
Alþingi verður sett á fimmtudag
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson