Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 6
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Ekki er ástæða til að herða sóttvarna-
aðgerðir vegna kórónuveirunnar inn-
anlands að svo stöddu að mati Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis. Fram
kom á upplýsingafundi almanna-
varnadeildar ríkislögreglustjóra í
gær að tölur gæfu til kynna að smit
meðal fólks utan sóttkvíar væri á nið-
urleið, en áfram mætti þó búast við
smiti meðal fólks sem þegar væri í
sóttkví við greiningu.
Skynsamlegt er að mati Þórólfs að
herða ekki aðgerðir að svo stöddu, til
að koma í veg fyrir samfélagslegan
skaða sem af því hljótist. Þá sagði
hann að búast mætti við því að þær
varrúðarráðstafanir sem nú væru í
gildi myndu áfram gilda næstu mán-
uði. Þá var ekki annað að heyra á Þór-
ólfi á fundinum en að þær reglur sem
nú væru í gildi við landamærin, tvö-
föld skimun með sóttkví, yrðu áfram í
gildi næstu mánuðina. Það væri
öruggast út frá sóttvarnasjónarmið-
um að fyrirkomulagið yrði framlengt,
en sex vikur eru frá því að reglurnar
tóku gildi. Núgildandi reglugerð fell-
ur að óbreyttu úr gildi 6. október.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
sagði spurður hvort ástæða væri til að
auka eftirlit lögreglu með þeim sem
kæmu hingað til lands að hann væri
ekki „sérstaklega spenntur fyrir því
að hér sé lögreglan að banka á dyr og
kanna hvort fólk sé í sóttkví eða ekki“.
Tilefni spurningarinnar var frétta-
flutningur af erlendum ferðamönnum
sem gripnir voru í miðborg Reykja-
víkur aðfaranótt sunnudags þegar
þeir áttu að vera í sóttkví.
„Þetta er mjög mikil grundvallar-
spurning um í hvernig samfélagi við
viljum búa. Viljum við búa í samfélagi
með mjög miklu lögreglueftirliti eða
viljum við búa í samfélagi þar sem við
treystum borgurunum?“ spurði Víðir
á fundinum. Sagði Víðir að einhvers
konar millivegur væri þó farinn í að-
gerðum lögreglunnar. „Við fylgjum
eftir þeim ábendingum sem berast
um hugsanleg brot á sóttkví og það er
til rammi sem grípur þau mál.“
Fimm á sjúkrahúsi
Fimm liggja nú inni á Landspítala
með kórónuveiruna, þar af er einn í
öndunarvél. 39 smit veirunnar
greindust í gær og voru 34 þeirra sem
greindust í sóttkví við greiningu.
Alma Möller landlæknir sagði á
upplýsingafundinum í gær að róður-
inn væri að þyngjast á Landspítala.
Auk þess að sinna tæplega 500 sjúk-
lingum á göngudeild væru nú á þriðja
hundrað starfsmenn spítalans í
sóttkví eða einangrun. Fresta hefði
þurft skurðaðgerðum vegna álags.
Aftur á móti hefði ekki þurft að
skerða aðra starfsemi spítalans og
hvatti Alma fólk áfram til að sækja
sér heilbrigðisþjónustu sem það
þyrfti á að halda, hvort sem væri
vegna andlegra eða líkamlegra veik-
inda.
Þá var greint frá því í gær að kór-
ónuveirupróf sem gæfu niðurstöður á
15 til 30 mínútum hefðu verið fram-
leidd og yrði dreift um allan heim. Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur
gefið út svokallað neyðarsamþykki
fyrir notkun einnar slíkrar tegundar
og von er á að önnur tegund hljóti náð
fyrir augum stofnunarinnar á allra
næstu dögum.
Miklar vonir eru bundnar við hin
nýju veirupróf og gætu þau hægt á út-
breiðslu faraldursins í löndum um
heim allan. Eru þau einkum talin geta
nýst við umfangsmiklar skimanir á
heilbrigðisstarfsfólki en víða í þróun-
arlöndum hefur margt heilbrigðis-
starfsfólk látist af völdum Covid-19.
Prófið sem þegar hefur verið sam-
þykkt er frá suðurkóreska fyrir-
tækinu SD BioSensor. Það minnir á
óléttupróf í útliti og er niðurstaða
sýnatöku sýnd með bláum strikum:
tvö blá strik tákna jákvætt sýni. Hin
tegundin, sem bíður samþykkis, er
frá bandarísku fyrirtæki.
Öruggast að halda
í tvöfalda skimun
Sóttvarnalæknir telur ekki ástæðu til að herða aðgerðir
Kórónuveirusmit á Íslandi
Nýgengi smita frá 30. júní
2.663 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 26. sept.
128,2 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
5 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af 1 á gjörgæslu
274.842 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
149.680
sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.779 einstaklingar eru í skimunarsóttkví
100
80
60
40
20
0
128,2
6,5
1.897 einstaklingar eru í sóttkví
492 eru með virkt smit og í einangrun
Nýgengi innanlands
Nýgengi, landamæri
júlí ágúst september
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Grímunotkun getur forðað einstak-
lingum frá því að sæta sóttkví. Þó
þarf viðkomandi aðili að hafa virt
fjarlægðarmörk og passað upp á
sóttvarnir. Þetta segir Anna Sigrún
Baldursdóttir, aðstoðarmaður for-
stjóra Landspítala.
Segir hún að miðað sé við um-
rædda reglu þegar starfsmenn spít-
alans eiga í hlut. Þannig hafi spít-
alanum tekist að fækka starfsmönn-
um sem sæta þurfi sóttkví. „Ef fólk
sinnir sóttvörnum, virðir fjarlægðar-
mörk og er með grímu getur það
komist hjá sóttkví. Núna fara miklu
færri heilbrigðisstarfsmenn í sóttkví
en í fyrri bylgju. Í fyrri bylgjunni var
gríman ekki almenn og á þeim stöð-
um þar sem fólk var ekki með grímu,
t.d. í Skaftahlíðinni, var talsvert af
smitum,“ segir Anna sem tekur fram
að grímur spítalans séu frábrugðnar
hefðbundnum grímum. Um er að
ræða þriggja laga veiruheldar grím-
ur. „Það er grímuskylda hjá spítal-
anum. Það þarf ansi margt að leggj-
ast með þér til að þú sleppir við
sóttkví. Ef þú tekur hana af þér eða
ert nálægt einhverjum sem er smit-
aður þá þarftu að fara í sóttkví. Hins
vegar ef þú ert með grímu og tals-
vert frá þá ertu í góðum málum.
Þetta er mjög matskennt, en gríman
er algjört lykilatriði,“ segir Anna, en
fjölmörg dæmi eru þess að starfs-
menn spítalans hafi sloppið við
sóttkví að framangreindum skilyrð-
um uppfylltum.
Spurð hvort almennir borgarar
geti sömuleiðis komist hjá sóttkví
fylgi þeir skilyrðunum kveður Anna
já við. „Að öllum líkindum, ef aðilinn
hefur verið með grímu, sinnir sótt-
vörnum og virðir fjarlægðarmörk.“
Fólk með grímu
komist hjá sóttkví
Dæmi um að ein-
staklingar hafi ekki
þurft að sæta sóttkví
Morgunblaðið/Eggert
Gríma Einstaklingar með grímu
geta komist hjá því að sæta sóttkví.
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
„Þetta getur blossað upp hér og þar
en það er verst þegar þetta blossar
upp í áhöfn. Þarna er samfélagið svo
þröngt og náið að það kemst nánast
enginn undan því að smitast, ef
svona smit kemur þar upp á annað
borð,“ segir Gunnar Tómasson,
framkvæmdastjóri útgerðarfélags-
ins Þorbjarnar hf., sem gerir út línu-
bátinn Valdimar GK. Allir fjórtán
skipverjar á bátnum reyndust smit-
aðir af kórónuveirunni og eru komn-
ir í einangrun.
Gunnar segir að á fimmtudaginn í
síðustu viku hafi einn skipverji um
borð veikst. Þegar farið var að
kanna málið kom í ljós að annar
hafði veikst sem hafði verið með
skipverjunum í síðasta túr en sá
hafði farið heim til sín í frí. Tekið var
strax af honum sýni og reyndist það
jákvætt. Fyrir vikið var gengið út
frá því að sá sem var veikur um borð
væri líka smitaður af veirunni. Eftir
þetta fjölgaði þeim sem voru veikir
um borð og voru þeir orðnir sex til
sjö þegar báturinn kom til hafnar. Á
sunnudaginn varð svo ljóst að allir
um borð höfðu smitast. „Þetta gekk
mjög vel allt saman. Við vorum fegn-
ir því að þeim tókst að komast klakk-
laust í land,“ sagði Gunnar fram-
kvæmdastjóri við Morgunblaðið í
gær.
Skipverji á Þórunni smitaður
Einn skipverji á togaranum Þór-
unni Sveinsdóttur VE greindist á
laugardaginn með kórónuveiruna og
eru þeir sem voru með honum í síð-
asta túr jafnframt komnir í sóttkví.
Þetta staðfesti Gylfi Sigurjónsson
skipstjóri í gær en hann einn þeirra
sjö sem eru í sóttkví.
Gylfi segir bátinn vera núna úti á
sjó og að skipverjarnir sem þar eru
um borð fari í skimun þegar þeir
koma í land á morgun.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veikindi Línubáturinn Valdimar GK í höfn í Reykjanesbæ í gærdag.
Allir um borð
reyndust smitaðir
Fjórtán skipverjar á Valdimar GK
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Smit Þórunn Sveinsdóttir VE er
væntanleg til hafnar á morgun.
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is