Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opin www.listverslun.is
Verkfæralagerinn
án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1
Kolibri trnur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavrum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
1 TILBOÐ
af 120 ml
Amsterdam akrýl
ú kaupir færð 1 frítt
Örn Arnarson, fjölmiðlarýnirViðskiptablaðsins, ritaði
meðal annars þetta í pistli sínum í
liðinni viku: „Eftir að Reykjavík-
urborg birti afkomu fyrri helm-
ings ársins spratt upp umræða
um alvarlega fjárhagsstöðu borg-
arinnar og áleitn-
ar spurningar um
hvort reksturinn
væri yfirhöfuð
gjaldfær. Í minn-
isblaði sem fylgir
umsögn borg-
arinnar um laga-
frumvörp ríkis-
stjórnarinnar til
að mæta efna-
hagslegum áhrifum í kjölfar
heimsfaraldurs kórónuveiru er
þessum spurningum svarað með
skilmerkilegum hætti. Þar segir:
Taflan hér að ofan sýnir aðrekstur borgarinnar er með
neikvætt veltufé frá rekstri 2020-
2022 og stendur alls ekki undir
afborgunum af langtímalánum ár-
in 2020-2023. Hér að ofan er gert
ráð fyrir því að tekin verði lang-
tíma jafngreiðslulán til að leysa
vandann. Það þýðir að afborg-
anaþungi lánanna er að óveru-
lega leyti kominn fram á árunum
2020-2024 og veltufé frá rekstri
þarf að vaxa mjög mikið á næstu
árum á eftir til að sveitarfélagið
eigi möguleika á að standa undir
þeim byrðum. Það gerist ekki
nema með verulegri aukningu
tekna eða stórfelldum nið-
urskurði. Þetta eru meginrökin
fyrir því að ríkissjóður komi með
beinum hætti að fjármögnuninni
með sérstökum óendurkræfum
framlögum til að mæta þessum
vanda.“
Það er furðulegt að þessi af-dráttarlausa lýsing á graf-
alvarlegri stöðu fjármála Reykja-
víkurborgar skuli ekki hafa vakið
athygli fjölmiðla og þeir spurt
borgarfulltrúa út í málið.“
Örn Arnarson
Borgin ræður ekki
við afborganir
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tvær skurðdeildir á Landspítalanum í Fossvogi
eru enn lokaðar vegna smita og sóttkvíar starfs-
fólks. Deildunum var lokað fyrir helgi og gert er
ráð fyrir því að sú lokun vari að minnsta kosti í sjö
daga. Þær upplýsingar fengust frá Landspítalan-
um í gær að 36 starfsmenn þar á bæ væru í ein-
angrun og 177 til viðbótar í sóttkví. Aðgerðum á
spítalanum hefur verið frestað af þessum sökum.
Einn starfsmaður Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins er enn í einangrun eftir að annar starfs-
maður greindist með veiruna á dögunum. Aðrir
fjórir voru settir í sóttkví en þeir eru lausir úr
henni.
„Við höfum að vissu leyti verið heppin miðað við
eðli starfsins og fyrir það er ég þakklátur,“ segir
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri.
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir
að enginn starfsmaður hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu sé frá vinnu vegna kórónuveirunn-
ar. Embættið hafi sloppið alveg síðan um versl-
unarmannahelgina þegar 23 starfsmenn
stöðvarinnar við Hverfisgötu voru settir í sóttkví.
hdm@mbl.is
Enn 177 starfsmenn í sóttkví
Skert starfsemi á
Landspítala vegna smita
Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson
Landspítali Yfir 200 starfsmenn spítalans eru í
sóttkví og einangrun vegna kórónuveirusmita.
Haldið var upp á það á Grund í gær
að 90 ár voru frá því að hjúkrunar-
heimilið við Hringbraut 50 var vígt.
Af því tilefni var boðið til köku-
veislu á hverri deild fyrir heimilis-
fólk og starfsmenn, sem gerðu sér
glaðan dag.
Það var sumarið 1927 sem bæjar-
stjórn Reykjavíkur úthlutaði heim-
ilinu lóð milli Hringbrautar og Brá-
vallagötu og vinna við bygginguna
hófst strax. Húsið var nefnt Grund,
eins og gamla heimilið hét sem var
við Kaplaskjólsveg, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Grund.
Fjöldi heimilismanna á þessum tíma
var 56 en árið 1934 voru þeir orðnir
115. Á þessum tíma bjó einnig
starfsfólk á heimilinu, og hluti
hússins var í útleigu. Til marks um
hvað húsið þótti glæsilegt eru orð
gamallar konu sem gekk um það og
sagði: „En hvar eigum við að vera?“
Hún varð alveg orðlaus þegar
henni var sagt að hún mætti kjósa
sér herbergi þar sem hún stóð.
Mörgum þótti húsið óþarflega fínt
og of mikið borið í það. Í húsinu
voru þá 125 herbergi, segir á vef
Grundar.
Kökuveisla á 90 ára
afmæli Grundar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Níræð Slegið var til kaffiveislu á Grund í gær. Við þetta borð, frá vinstri,
sátu Svanhildur Gestsdóttir, Einar Guðmundsson, Sigrún Þorleifsdóttir og
Ólöf Sigríður Sigurðardóttir sem öll fæddust árið 1930, á vígsluári Grundar.