Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fór í
þurrkví í Hafnarfirði í gær. Þar fer
fram ábyrgðarskoðun, í samræmi við
smíðasamning. Gert er ráð fyrir að
skipið verði frá í um það bil þrjár vik-
ur og leysir Herjólfur III það af á
meðan. Fór sá gamli fyrstu ferðina í
Landeyjahöfn í fyrradag.
Guðbjartur Ellert Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir að
frá því skipið kom til landsins hafi
komið upp ýmis mál, stór og smá,
sem þurfi að fara yfir og lagfæra.
Fulltrúar pólsku skipasmíðastöðv-
arinnar og viðeigandi undirverktaka
komi til landsins til að fara yfir þessi
atriði. Meðal atriða sem lagfæra þarf
er loftræsting í rými fyrir rafhlöður
skipsins. Ekkert atriði er það stórt að
skipið hafi ekki getað siglt.
Gamli Herjólfur er djúpristari en sá
nýi. Er nægilegt dýpi í Landeyjahöfn,
eins og er, og verður fylgst með þróun
mála. Guðbjartur segir að hann sé hins
vegar viðkvæmari fyrir sjólagi og veðri
en nýrra skipið. Verður að koma í ljós
hvernig þau mál þróast næstu vikur.
Enn siglt í Landeyjahöfn
Sigling í Landeyjahöfn er alltaf
fyrsti kostur hjá skipstjórum Herjólfs
en ef útlit er fyrir að ekki gefi í Land-
eyjahöfn er siglt til Þorlákshafnar.
Litlar frátafir hafa verið það sem af er
hausti og sömu sögu er að segja um
síðasta ár, því siglt var að mestu til
Landeyjahafnar fram að jólum. Jan-
úar og febrúar eru hins vegar venju-
lega erfiðari viðfangs vegna veðurs og
sjólags. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Hafnarfjarðarhöfn Herjólfur er kominn í þurrkví til ábyrgðarskoðunar. Gert verður við það sem ekki stenst kröfur.
Herjólfur í skoðun
í slipp í þrjár vikur
Ýmis atriði sem seljandinn lagfærir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Göngugötusvæði í Kvosinni mun
stækka umtalsvert auk þess sem
vistgötum mun fjölga, gangi áætl-
anir eftir. Umhverfis- og skipulags-
svið lagði fram tillögu þess efnis í
síðustu viku. Á vef borgarinnar má
sjá tillögurnar og á meðfylgjandi
korti má sjá áætlaðar breytingar
miðað við núverandi umferð.
Í fyrstu verða götur á borð við
Tryggvagötu, Hafnarstræti og Póst-
hússtræti gerðar að vistgötum, svo
dæmi séu nefnd. Vistgata er gata
þar sem umferð gangandi vegfar-
enda og hægfara ökutækja, eins og
reiðhjóla, hjólaskauta eða hjóla-
bretta, hefur forgang umfram um-
ferð bíla og er hraði takmarkaður
við gönguhraða og gangandi vegfar-
endur. Í núgildandi lögum er há-
markshraði á vistgötum 10 km/klst.
Í tillögunum er einnig kynnt fram-
tíðarsýn sem gengur út á að hluta
vistgatna verði síðar breytt í göngu-
götur. Gangi það eftir verður allt
svæðið umhverfis Austurvöll gert að
göngugötu auk Hafnarstrætis, svo
tekin séu dæmi. Sumar götur verði
þó áfram vistgötur. Má þar m.a.
nefna hluta Suðurgötu við Ingólfs-
stræti og Tryggvagötu.
Opin fyrir meira plássi
Hildur Björnsdóttir, sem situr í
skipulags- og samgönguráði fyrir
Sjálstæðisflokkinn, er jákvæð gagn-
vart fyrirhuguðum breytingum. „Ég
hef sjálf verið mjög opin fyrir því að
skapa meira pláss fyrir fólk í mið-
borginni og skapa aukið mannlíf.
Birgir Ísleifur var farsæll borgar-
stjóri sjálfstæðismanna og hann
gerði Austurstræti að göngugötu á
sínum tíma og svo eru í gangi fram-
kvæmdir við Tollstjórahúsið sem eru
útfærsla sjálfstæðismanna. Við höf-
um því stutt slíkar tillögur ef svo ber
undir. En við bíðum þó eftir könnun
á afstöðu borgarbúa til göngugatna
og viljum sjá útkomuna úr henni áð-
ur en lengra er haldið auk þess að
tryggja samráð við rekstraraðila á
svæðinu,“ segir Hildur.
Hjálmar Sveinsson, fulltrúi frá
Samfylkingu í ráðinu, segir að auk
þessara breytinga telji hann vert að
horfa til svipaðra aðgerða annars
staðar. „T.d. að gera Hlemm að bíl-
lausu torgi og ákveðin svæði Lauga-
vegarins,“ segir Hjálmar.
Núverandi vistgata Núverandi göngugata
Tillaga að vistgötu í umferðarskipulagi
Framtíðarsýn: vistgata verði göngugata
Göngugötur og vistgötur
í miðbæ Reykjavíkur
G
a
rð
a
s
tr
æ
ti
G
ró
fi
n
M
jó
s
tr
æ
ti
G
a
rð
a
st
ræ
ti
A
ð
a
ls
tr
æ
ti
Vesturgata
Nýlendugata
Vesturgata
Ránargata
Bárugata
Geirsgata
Geirsgata
Túngata
Vonarstræti
Austur-
völlur
A lþingi
Ráðhús
Reykjavíkur
T jörnin
Kolaportið
Tollhúsið
S
u
ð
u
rg
a
ta
T
ja
rn
a
rg
a
ta
Læ
kj
ar
ga
ta
Læ
kj
ar
ga
ta
A
us
tu
rb
ak
ki
M
iðbakki
Tryggvagata
Tryggvagata
Bankastræti
Amtmannsstígur
Austurstræti
Vallarstræti
Hafnartorg
Hafnarstræti
Kirkjustræti
Áætlað að Hafnarstræti
verði einnig göngugata
Áætlanir um vist- og göngugötur á stóru svæði í Kvosinni
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Starfshópur Vestmannaeyjabæjar og
Vegagerðarinnar sem ætlað er að
endurskoða ákvæði þjónustusamn-
ings vegna Vestmannaeyjaferjunnar
Herjólfs kom saman til fundar í
fyrsta skipti síðdegis í gær. „Við ætl-
um að vinna málið hratt og örugg-
lega,“ segir Arnar Pétursson, einn
fulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Starfshópurinn var skipaður að ósk
Vegagerðarinnar vegna krafna Herj-
ólfs ohf. um viðbótargreiðslur frá rík-
inu vegna meiri mönnunar skipsins
en gert var ráð fyrir í samningi og
fleiri atriða.
Hittast aftur eftir viku
Arnar segir að lögð hafi verið drög
að því hvernig ætlunin er að nálgast
málið og síðan
muni starfshópur-
inn hittast eftir
viku. Í millitíðinni
þurfi að vinna
ákveðna heima-
vinnu. Aðspurður
kveðst Arnar
bjartsýnn á far-
sæla lausn máls-
ins.
Vestmannaeyja-
bær tilnefndi þrjá fulltrúa úr stjórn
Herjólfs ohf. í starfshópinn, þá Arnar
Pétursson, Guðlaug Friðþórsson og
Pál Þór Guðmundsson auk Kristínar
Edwald lögmanns. Bergþóra Þor-
kelsdóttir forstjóri fer fyrir fulltrúum
Vegagerðarinnar. helgi@mbl.is
Unnið „hratt
og örugglega“
Fyrsti fundur um þjónustusamning
Arnar
Pétursson
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?