Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 10
BAKSVIÐ
Atli Steinn Guðmundsson
skrifar frá Ósló
Í dag er runninn upp lokadagur aðal-
meðferðar í Mehamn-málinu fyrir
Héraðsdómi Austur-Finnmerkur í
Vadsø í Noregi. Munu sækjandi og
verjandi málsins, þeir Torstein Lind-
quister og Bjørn Andre Gulstad, þá
flytja lokaræður sínar í málinu
frammi fyrir Kåre Skognes héraðs-
dómara, meðdómendum hans og
öðrum sem fylgjast með málinu og
Skognes ljúka aðalmeðferðinni með
því að tilkynna dagsetningu dóms-
uppkvaðningar í málinu. Réttarhlé
var haldið í gær og því enginn mál-
flutningur þann daginn, en þá fimm
daga sem aðalmeðferðin stóð í síð-
ustu viku var dagskráin þéttskipuð.
Fyrsta daginn flutti Elena Unde-
land, kærasta Gísla Þórs Þórarins-
sonar heitins, vitnisburð sinn og
svaraði þar fjölda spurninga héraðs-
dómara, sækjanda, verjanda og síns
réttargæslulögmanns, Mette
Yvonne Larsen. Fengu viðstaddir
þar með að heyra frásögn hennar af
atburðum síðustu dagana fyrir atlög-
una að Gísla Þór, 27. apríl í fyrra,
hótunum ákærða í garð þeirra Gísla
og hennar upplifun af morgninum
örlagaríka. Því næst gaf ákærði í
málinu, Gunnar Jóhann Gunnarsson,
sína framburðarskýrslu, kvaðst játa
sig sekan um manndráp af gáleysi,
ekki ásetningi eins og ákæran hljóð-
ar upp á, og játaði sök í öllum öðrum
ákæruliðum, líflátshótunum, hús-
broti á heimili hálfbróður síns, stuldi
á bifreið hans og akstri undir áhrif-
um. Gerði Gunnar Jóhann ítarlega
grein fyrir líðan sinni síðustu dagana
fyrir voðaatburðinn og sagði svo frá
því hvernig hann hefði farið um borð
í bát sem hann hefði haft aðgang að
og sótt þar tvíhleypta haglabyssu af
hlaupvíddinni 12 ga. áður en hann
hélt á heimili hálfbróður síns á sjötta
tímanum um morguninn og beið
hans þar.
Ákvað að fara heim til hans
„Strákarnir sögðu við mig „Gunn-
ar, í kvöld skulum við bara drekka,“
og ég var svo sáttur við það, ég vildi
bara drekka mig fullan og geta
gleymt ástandinu í bili. Við fórum
svo út, fórum á skemmtistaði en það
var bara enginn úti að skemmta sér
þetta kvöld. Svo þegar við komum á
Nissen-barinn [í Mehamn] helltist
þetta allt yfir mig aftur, ég fór að
hugsa um hvernig bróðir minn gæti
gert mér þetta. Og þá ákvað ég að
fara heim til hans og hræða hann,“
sagði Gunnar á mánudaginn í síðustu
viku, eins og mbl.is greindi frá.
Galli á skotvopninu
Næstu daga héldu vitnaleiðslur
áfram og lagði þar meðal annars
heilbrigðisstarfsfólk fram sínar
skýrslur, vinir, ættingjar, íslenskir
sjómenn í Mehamn og sérfræðingar
norsku rannsóknarlögreglunnar
Kripos í skotvopnum, fingraförum
og blóðferlarannsóknum. Gerðu þeir
Kripos-menn grein fyrir ítarlegum
rannsóknum á skotvopninu og
kynntu þá niðurstöðu sína að galli
hefði reynst á öryggislás vopnsins
sem lýsti sér þannig að hægt hefði
verið að hleypa af því án þess að
þrýsta á gikkinn, en Gunnar Jóhann
hefur haldið fast við þann framburð
sinn að skot hafi hlaupið af þegar
hálfbróðir hans greip snögglega til
byssunnar. Hafi þeir svo tekist á um
stund en Gísli Þór þá þegar verið
kominn með þann áverka á læri sem
varð hans bani á meðan beðið var eft-
ir lögreglu sem ók frá varðstofu sinni
í Kjøllefjord, en þaðan er um alllang-
an veg að fara til Mehamn.
Sagðist Gulstad verjandi þess full-
viss, í samtali við Morgunblaðið á
þriðjudag, að Skognes héraðsdómari
felldi dóm fyrir gáleysi í málinu. Á
föstudaginn hvatti Gulstad saksókn-
ara svo til að breyta ákæru sinni og
ákæra fyrir manndráp af gáleysi.
Mette Yvonne Larsen, réttargæslu-
maður brotaþola, sagði við blaðið á
fimmtudagskvöld að hún stæði við
spádóm sinn frá því hún ræddi við
mbl.is í janúar og reiknaði með 13 til
15 ára dómi, en í janúarviðtalinu
kvað hún það undarlega háttsemi að
koma með hlaðna haglabyssu ætlaði
maður ekki að gera neitt.
Kröfðust algjörrar vissu
Anja Mikkelsen Indbjør, lögmað-
ur og saksóknari lögreglunnar í
Finnmörk, sem sat öll réttarhöldin,
ræddi við mbl.is á föstudaginn og
sagði lögregluna ekki hafa viljað
sleppa öðrum Íslendingi úr haldi,
sem í fyrstu var grunaður um aðild
en fékk svo stöðu vitnis í málinu, fyrr
en algjör vissa hefði legið þar fyrir.
Eins ræddi hún um skotvopnið, sem
lögreglan hékk eins og hundur á roði
á að Gunnar hefði fyrst útvegað sér
að morgni 27. apríl en ljóst varð við
aðalmeðferðina að hann hefði aðeins
þurft að sækja í bát sem hann hafði
aðgang að.
Hillir undir dóm í Mehamn-máli
Lokadagur aðalmeðferðar í dag Fjöldi vitna síðan á mánudag fyrir viku Ólíkar spár verjanda og
réttargæslumanns um málalok Ákærði hefur haldið fast við framburð um slys við átök um byssuna
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Dómarinn Kåre Skognes héraðsdómari stimplaði sig inn hjá að minnsta
kosti hluta viðstaddra sem ákaflega huggulegur gestgjafi dómstólsins.
Réttarhöld í
þriðju tilraun
» Aðalmeðferð frestað vegna
galla á ákæru og veirunnar
» Lokaræður saksóknara og
verjanda verða fluttar í dag
» Nær hálft annað ár frá laug-
ardagsmorgninum 27. apríl
2019 í Mehamn
» Nánast öruggt má telja að
málinu verði áfrýjað til Lög-
mannsréttar Hálogalands í
Tromsø
» Langur biðtími eftir máls-
meðferð tók sinn toll af minni
sumra vitnanna
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík
Ýmsar stærðir kælikerfa
í allar stærðir sendi- og
flutningabíla, fyrir kældar
og frystar vörur. Vottuð
kerfi fyrir lyfjaflutninga.
Við ráðleggjum þér með
stærð og gerð búnaðarins
eftir því sem hentar
aðstæðum hverju sinni.
ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING
FÆRANLEG KÆLITÆKI
Í SENDIBÍLA