Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 11
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Alls voru sjö komur farþegaskipa til
Faxaflóahafna þetta sumarið með
1.346 farþega. Þetta er gríðarlegur
samdráttur frá árinu 2019. Það ár
voru 190 komur farþegaskipa til
Faxaflóahafna með 188.630 farþega.
Samdrátturinn milli ára er um 99%.
COVID-19-heimsfaraldurinn hefur
leikið útgerðir skemmtiferðaskipa
grátt og sömuleiðis þau fyrirtæki
sem hafa þjónustað skipin.
Samkvæmt upplýsingum Ernu
Kristjánsdóttur, markaðsstjóra
Faxaflóahafna, voru tekjur fyrir-
tækisins 2019 af farþegaskipum/
skemmtiferðaskipum nálægt 597
milljónum króna, sem var um 14% af
heildartekjum fyrirtækisins það ár-
ið. Hins vegar voru tekjur Faxaflóa-
hafna í ár fyrir farþegaskip í kring-
um 11,2 milljónir. Samdráttur í
tekjum milli áranna er gríðarlegur,
eða um 586 milljónir.
Í byrjun árs 2020 voru áætlaðar
187 skipakomur farþegaskipa til
Faxaflóahafna með 203.214 farþega.
Miðað við þessar tölur átti að vera
8% aukning í farþegafjölda en 2%
fækkun í skipakomum milli ára.
Tekjur ársins voru áætlaðar allt að
700 milljónir króna svo tekjutapið er
tilfinnanlegt fyrir fyrirtækið.
Í ár voru flestir farþeganna frá
Englandi eða 929 talsins. Frakkar
voru 158 og Hollendingar 125. Far-
þegar frá Þýskalandi voru aðeins 14
en voru tæplega 49 þúsund í fyrra.
Bandaríkjamenn voru 11, samanbor-
ið við rúmlega 38 þúsund í fyrra.
„Í kringum apríl/maí fer að bera á
því að skipafélög byrja að afboða
komu sína fyrir sumarið til Íslands,“
segir Erna Kristjánsdóttir.
Afbókanir hrúgast inn
Á þessum tímapunkti taka flest
skipafélög heimsins þá ákvörðun að
stöðva siglingar þar sem faraldurinn
er í mikilli uppsveiflu á mörgum
stöðum í heiminum. Ljóst var á þess-
um tímapunkti að flestar skipakom-
ur, sem búið var að bóka hjá Faxa-
flóahöfnum þetta sumarið, myndu
verða afbókaðar.
Fyrsta skip ársins, Magellan, kom
9. mars og hafði sólahrings viðdvöl í
höfuðborginni. Skipið var gert út af
Cruise & Maritime Voyages en því
miður varð það skipafélag gjald-
þrota í sumar, segir Erna. Cruise
& Maritime Voyages gerði út
skipin Astor, Astoria, Marco
Polo og Magellan, allt skip sem
komu hingað til lands. Skipa-
félagið áætlaði í kringum 100
skipakomur þetta árið til
margra hafna á land-
inu.
Það var síðan
skipafélagið Ponant sem ákveður í
júlí að hefja siglingar til Íslands.
Fram að þeim tíma hafði ekkert far-
þegaskip komið til Faxaflóahafna frá
því í mars. Skipið sem kom heitir Le
Bellot. Um er að ræða leiðangurs-
skip sem getur tekið í kringum 200
farþega. Hins vegar var skipið aldrei
fullbókað í þau sex skipti sem það
kom til Reykjavíkur. Allir farþegar
komu með leiguflugvél frá París til
Keflavíkur og fóru í skimun á Kefla-
víkurflugvelli. Farþegar voru síðan
fluttir ca. 10-15 í hverri rútu niður á
Miðbakka. Farþegar þurftu að passa
sjálfir upp á fjarlægðartakmörk og
bera andlitsgrímur. Þegar neikvæð
niðurstaða var komin, þá fyrst mátti
fólk fara um borð í skipið og sýna
þurfti SMS því til staðfestingar.
Engin smit komu frá skipunum til
landsins enda vel gætt að sóttvörn-
um.
Það eru ekki aðeins Faxaflóahafn-
ir sem hafa orðið fyrir gríðarlegu
tekjutapi vegna faraldurs kórónu-
veirunnar. Hafnir víða um landið
hafa haft góðar tekjur af skemmti-
ferðaskipum undanfarin ár en þær
tekjur hafa hrunið gjörsamlega.
Könnun sem samtökin Cruise Ice-
land létu gera árið 2018 sýndi að
koma skemmtiferðaskipa skapaði
920 störf í landinu og 16,4 milljarða
tekjur. Koma skemmtiferðaskipa
hefur því ótvírætt haft mikil og góð
áhrif á efnahag landsins.
Morgunblaðið/sisi
Við Miðbakka Le Bellot í einni af sex komum sínum til Reykjavíkur í sumar. Vegna heimsfaraldursins var skipið aldrei fullbókað á ferðum sínum við Ísland.
Samdrátturinn er 99%
Alls komu 1.346 farþegar með skemmtiferðaskipum til Faxaflóahafna í sumar
Í fyrra komu 188.630 farþegar Tekjusamdráttur milli ára er 586 milljónir
Meirihlutavið-
ræður fulltrúa
Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar-
flokks í nýju sam-
einuðu sveitarfé-
lagi á Austurlandi
ganga vel, að
sögn Gauta Jó-
hannessonar,
oddvita sjálfstæð-
ismanna. Segist
hann eiga von á því að gengið verði
frá málefnasamningi fyrir miðja vik-
una.
Ný sveitarstjórn mun formlega
taka við af sveitarstjórnum Borgar-
fjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaup-
staðar, Fljótsdalshéraðs og Djúpa-
vogshrepps fimmtán dögum eftir
kosningar, væntanlega 5. október
næstkomandi.
Sjálfstæðisflokkur var sigurveg-
ari kosninganna, fékk fjóra fulltrúa,
en Framsókn tvo. Verður meirihlut-
inn því með sex fulltrúa af ellefu í
nýrri sveitarstjórn. Meðal helstu
verkefna sveitarstjórnar sem situr
til kosninga vorið 2022, eða í rúm-
lega hálft annað ár, er að setja upp
stjórnsýslu og ganga frá sameining-
unni. Meðal þess er að ákveða sveit-
arfélaginu nafn en Múlaþing fékk
flest atkvæði í nafnakosningu.
helgi@mbl.is
Málefna-
samningur
á lokastigi
Gauti
Jóhannesson
Meirihluti er að
fæðast í „Múlaþingi“
Jón Björn Há-
konarson hefur
tekið við starfi
bæjarstjóra í
Fjarðabyggð.
Jón er oddviti
Framsóknar-
flokksins í bæj-
arfélaginu en
flokkurinn
myndar meiri-
hluta í bæjarstjórn ásamt Fjarða-
listanum. Jón tekur við starfinu af
Karli Óttari Péturssyni, en tilkynnt
var í gærmorgun að hann hefði lát-
ið af störfum að eigin ósk.
Jón hefur það sem af er kjör-
tímabili gegnt embætti forseta bæj-
arstjórnar, formennsku í eigna-,
skipulags- og umhverfisnefnd og
safnanefnd ásamt varaformennsku
í bæjarráði. Lætur hann af öllum
þessum störfum. Karl Óttar var
ráðinn til starfa af meirihlutanum
eftir kosningarnar 2018.
Bæjarstjóraskipti
í Fjarðabyggð
Jón Björn
Hákonarson
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
Á næsta ári er búið að bóka 204
skipakomur með 228.261 far-
þega hjá Faxaflóahöfnum. „Ekk-
ert er öruggt og því vitum við
ekki hvort af þessum skipakom-
um verður. Það verður tíminn að
leiða í ljós,“ segir Erna.
Það velti allt saman á því
hvernig ástandið verður hér-
lendis sem og annars staðar í
heiminum. „Næsta ár gæti því
allt eins endað eins og árið í ár,
en þangað til verður maður að
halda í vonina.“
Komur skemmti-
ferðaskipa hafi áhrif á
marga innviði hér á
landi, hafnir, ski-
paumboðsmenn,
ferðaþjónustuaðila,
leiðsögumenn,
rútufyrirtæki, aðila
sem sjá skipunum
fyrir kosti o.s.frv.
Því er mikið í
húfi fyrir
marga.
Búið að bóka
mörg skip
SUMARIÐ 2021
Erna Kristjánsdóttir
Rétt viðbrögð komu í veg fyrir stór-
bruna hjá Matfugli í Mosfellsbæ í
gær. Eldur kviknaði í stórum ofni
(e. broiler) þar sem mikil fitusöfnun
er og því var töluverð hætta á ferð-
um. Starfsfólk og slökkviliðsmenn
náðu hins vegar fljótt tökum á eld-
inum. Vel á annað hundrað manns
vinna hjá Matfugli og vel gekk að
rýma húsið þegar ljóst var að eldur
hafði komið upp. Engan sakaði og
engin lifandi dýr munu hafa verið í
húsinu þegar eldurinn kom upp.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi
enda mikill eldsmatur á staðnum.
Morgunblaðið/Hallur Már
Útkall Mikill viðbúnaður var fyrir framan
húsnæði Matfugls í Mosfellsbæ.
Lá við stórbruna
hjá Matfugli