Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 12
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Aldrei hefur verið jafn mikilvægt og nú, þegar
kórónuveiran hefur valdið miklum búsifjum í at-
vinnulífinu, að fyrirtæki flaggi því að þau séu
framúrskarandi. Þetta segir Gunnar Gunnars-
son, forstöðumaður fyrir greiningu og ráðgjöf
hjá Creditinfo, í samtali við Morgunblaðið.
Creditinfo tekur árlega saman lista yfir fram-
úrskarandi fyrirtæki í samstarfi við miðla Ár-
vakurs. Stefnt er að því að birta listann fyrir
rekstur ársins 2019 hinn 21. október nk., en það
verður ellefta árið í röð sem listinn er birtur.
„Það að komast á listann í ár er merki um að
fyrirtækið hafi verið sterkt og gott áður en kór-
ónuveirufaraldurinn skall á og það sé búið að
halda vel á spöðunum í gegnum faraldurinn það
sem af er 2020,“ segir Gunnar. „Að okkar mati
eru þetta þau félög sem eru líklegust til að
standa af sér áfallið vegna kórónuveirufarald-
ursins sem og önnur áföll. Þetta eru félög sem
hafa sýnt stöðugan góðan rekstur í a.m.k. þrjú
ár.“
80% hafa skilað ársreikningi
Spurður um vinnslu listans í ár segir Gunnar
að um 80% fyrirtækja hafi skilað inn ársreikn-
ingi, en þau hafa fengið frest til 1. október til að
skila inn reikningi sínum. Því sé enn óvissa um
endanlega röðun á lista framúrskarandi fyrir-
tækja. Eitt af skilyrðunum fyrir því að vera valið
framúrskarandi er einmitt að hafa skilað árs-
reikningi á réttum tíma.
Gunnar segir að eitt af því sem tefji ferlið í ár
sé að ríkisskattstjóri hafi endursent eitthvað af
ársreikningum sem innihéldu ekki skýringar á
áhrifum veirunnar á reksturinn á þessu ári.
Listi yfir framúrskarandi fyrirtæki verð-
launar fyrirtæki fyrir rekstrartölur 2019, en
Gunnar ítrekar að einnig sé tekið mið af láns-
hæfismati fyrirtækja eins og það er í dag. „Það
þýðir að það er ekki nóg að vera með góðar
rekstrartölur 2019, heldur máttu ekki vera kom-
inn í fjárhagsvandræði í dag. Ef félög geta ekki
staðið í skilum, eða þau hafa ekki náð samn-
ingum við kröfuhafa sína, getur það komið þeim
í koll.“
Annað sem litið er til við vinnslu listans er
svokallað váhrifamat, en það er nýr mælikvarði
á rekstur fyrirtækja hjá Creditinfo. „Þetta er
kórónuveirumat sem flokkar atvinnugreinarnar
eftir áhrifum veirunnar. Við notum þetta mat til
að hjálpa okkur við forgangsröðun við nánari
skoðun fyrirtækja.“
Mestu váhrifin eru á ferðaþjónustuna, að
sögn Gunnars.
Váhrif á smásölu
Aðrar atvinnugreinar verða einnig fyrir vá-
hrifum, en þar nefnir Gunnar til dæmis smásölu-
fyrirtæki sem selja vörur sem ekki teljast til
nauðsynja. Þó gengur mörgum slíkum fyrirtækj-
um mjög vel í faraldrinum, sem skýrist einkum
af aukinni verslun Íslendinga innanlands, m.a.
vegna samdráttar í ferðalögum til útlanda.
Gunnar segir að meiri handavinna hafi verið
við vinnslu listans í ár því mikill tími hafi farið í
að ganga úr skugga um að fyrirtæki væru enn í
rekstri. Á það einkum við um fyrirtæki í ferða-
þjónustu. „Ferðaþjónusta var 10% af listanum í
fyrra en við sjáum fram á einhverja fækkun þar í
ár. Fyrstu tölur benda til þess.“
Gunnar segir aðspurður að Creditinfo noti
fjölmiðlaumfjöllun, fjárhagsupplýsingar og skýr-
ingar í ársreikningi og samskipti við félögin sjálf
til að glöggva sig á raunverulegri stöðu félag-
anna.
Aldrei mikilvægara en nú
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rekstur Marel verðlaunað fyrir framúrskarandi samfélagsábyrgð árið 2019.
Listi yfir framúrskarandi fyrirtæki birtur 21. október Nýtt váhrifamat metur áhrifin af veirufar-
aldrinum Útlit fyrir fækkun í hópi ferðaþjónustufyrirtækja á listanum 874 framúrskarandi í fyrra
Meðal skilyrða
» Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3.
» Rekstrartekjur að lágmarki 50 mkr. síð-
ustu þrjú ár.
» Rekstrarhagnaður (EBIT>0) síðustu
þrjú ár.
» Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu 3 ár.
» Eignir a.m.k. 100 mkr. síðustu þrjú ár.
» Jákvæð niðurstaða síðustu þrjú ár.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
ríkjunum en aðeins 3% af VLF í
löndunum sunnan Sahara.
Þá hafi svo margar þjóðir ekki
samtímis verið í kreppu síðan 1870.
Sjúkdómsvarnir veikjast
Bent er á margvíslegar afleiðingar
faraldursins.
Bakslag kunni að koma í baráttu
gegn HIV, berklum og malaríu. Þá
kunni bólusetningu að fara aftur um
aldarfjórðung.
Jafnframt er fjallað um stöðuna í
Bandaríkjunum. Vitnað er til könn-
unar bandarísku hagstofunnar um
að 23% hvítra hafi ekki verið vissir
um að þeir ættu fyrir húsaleigu í
ágúst. Hlutfallið hafi verið tvöfalt
hærra meðal svartra og fólks af róm-
önskum uppruna í sama mánuði.
Tjónið reynist margfalt meira
Bill Gates fór yfir stöðuna í sam-
tali við blaðamann The Atlantic en
viðtalið má sjá á YouTube.
Þar sagði hann að efnahagstjónið
af völdum veirunnar yrði þegar upp
er staðið yfir 20 billjónir dala. Til
samanburðar sagði hann í TED--
fyrirlestri árið 2015 að faraldur
kynni að kosta þrjár billjónir dala.
Slíkir útreikningar hljóta eðli máls
að fela í sér mikla óvissu.
Nefna má til samanburðar að Al-
þjóðaferðamálastofnunin áætlar að
um 120 milljónir starfa í ferðaþjón-
ustu séu í hættu og að tjónið verði
ríflega billjón dalir í ár. Samkvæmt
því er hlutur ferðaþjónustu í efna-
hagstjóni heimsins óverulegur.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn felur ekki
aðeins í sér manntjón og þjáningar
heldur magnar hann upp aðra sjúk-
dóma og eykur fátækt.
Þetta er niðurstaðan í skýrslu
mannúðarstofnunar hjónanna Bill og
Melinda Gates, Goalkeepers Report.
Þar er því haldið fram að kórónu-
kreppan sé mesta samdráttarskeið
síðan hergagnaframleiðsla stöðvað-
ist eftir lok síðari heimsstyrjaldar.
Um 18 billjónum dala, eða 18 þús-
und milljörðum dala, hafi verið varið
í að örva hagkerfin. Umfangið sam-
svari að jafnaði 22% af VLF í G20-
Tjónið af veirunni 20 billjónir dala
Efnahagstjónið af völdum veirunnar
jafnast á við hagkerfi Bandaríkjanna
Fjöldi fólks sem býr við sára fátækt*
Hlutfallsleg breyting milli ára á heimsvísu frá 2000 til 2020
5%
0%
-5%
-10%
-15%
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
-1
,2
%
-1
,2
%
-1
,5
%
-1
,5
%
+7,1%
Áætlun fyrir
árið 2020* Fólk sem hefur minni tekjur en 1,9 bandaríkjadali á dag
Heimild: 2020 Goalkeepers Report:
COVID-19 – A Global Perspective
● Eftir að tuttugu og þrír milljarðar
bættust við hlutafé Icelandair Group,
sem gerðist í hlutafjárútboði félagsins á
dögunum, er hlutafé fyrirtækisins nú
28.437.660.653 að nafnvirði. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þá segir að nýju hlutirnir verði afhentir
eigendum í dag, 29. september, og við-
skipti með þá geti hafist á morgun.
Hlutir afhentir í dag
29. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.08
Sterlingspund 177.13
Kanadadalur 103.97
Dönsk króna 21.728
Norsk króna 14.515
Sænsk króna 15.221
Svissn. franki 149.84
Japanskt jen 1.3182
SDR 195.22
Evra 161.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.7211
Hrávöruverð
Gull 1870.05 ($/únsa)
Ál 1708.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.85 ($/fatið) Brent