Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Á síðustu árum höf-
um við séð myndbönd
og heyrt af svörtu fólki
sem hefur látist fyrir
hendi lögreglu í Banda-
ríkjunum. Ekkert þess-
ara myndbanda hefur
líklega haft jafn mikil
áhrif og myndbandið
þar sem George Floyd
grátbiður lögreglu um
að leyfa sér að anda.
Nýlega hefur mikið
verið fjallað um Breonna Taylor sem
var skotin af lögreglu á heimili sínu í
Louisville í Kentucky í mars.
Taylor var 26 ára þegar hún var
skotin. Ekki er vitað til þess að Tayl-
or hafi nokkurn tímann brotið af sér.
Hún hafði átt í ástarsambandi við
mann sem var undir eftirliti lögreglu
fyrir fíkniefnabrot. Lögreglan í Lou-
isville grunaði kærasta Taylor um að
nota íbúð hennar til að taka á móti
fíkniefnum og hafði því fengið heimild
til að leita í íbúðinni.
Það sem veldur mestri reiði meðal
mótmælenda í Louisville er að óein-
kennisklæddir lögreglumenn skyldu
brjóta sér leið inn í íbúðina og að einn
þeirra hafi skotið án þess að sjá hvað
eða hvern hann var að skjóta. Sá lög-
regluþjónn hefur verið leystur frá
störfum, aðrir ekki. Fyrrverandi
kærasti Taylor hefur greint frá því að
þau hafi ekki vitað að mennirnir sem
brutu niður hurð á heimili Taylor hafi
verið lögregluþjónar, enda hafi ekk-
ert gefið það til kynna. Dauði Floyd
og Taylor eru tvö dæmi af mörgum
sem hafa vakið athygli á síðustu ár-
um.
BLM-hreyfingin
Alls konar fólk um allan heim tekur
þátt í hreyfingunni Black Lives Mat-
ter (BLM). Þetta fólk á það sameig-
inlegt að vilja berjast gegn kynþátta-
mismunun. Sérstaklega gegn
mismunun og harðræði sem svart
fólk verður fyrir af hendi lögregl-
unnar. Að öðru leyti á fólkið sem tek-
ur þátt í hreyfingunni ekki endilega
mikið sameiginlegt. Fólk tekur þátt í
hreyfingunni með því að tísta mót-
mælum undir kassamerkinu #BLM
á Twitter, mótmæla úti á götu og ein-
hverjir með því að taka þátt í einum
af nokkrum samtökum sem kenna sig
við BLM (t.d. Black Lives Matter
Foundation, Inc). Þau sem starfa með
BLM-samtökum eru aðeins lítið brot
af þeim fjölda sem tek-
ur þátt í hreyfingunni.
Þessi litli hluti er fjöl-
breyttur hópur fólks.
Ein leið sem hefur
verið farin til að draga
úr réttmæti BLM-
hreyfingarinnar er að
benda á að aðilar sem
hafa sagt eða gert eitt-
hvað í nafni BLM hafi
gerst sekir um afbrot
og þar með sé ekki
mark takandi á því sem
mótmælt er. Það er vel
þekkt aðferð að ráðast á
persónur frekar en raunveruleg mál-
efni. Yfirleitt notar fólk þessa aðferð
vegna þess að það er auðveldara held-
ur en að ræða málefni, sem geta verið
flókin og margþætt.
En eru kröfur BLM réttmætar?
Ótal rannsóknir hafa verið gerðar
þar sem markmiðið er að skoða hvort
svartir Bandaríkjamenn séu í raun
líklegri en hvítir til að vera stöðvaðir,
handteknir, beittir harðræði, skotnir
eða drepnir af lögreglu. Þessar rann-
sóknir hafa verið gerðar á ólíkum
svæðum og á mismunandi tímabilum.
Mismunandi aðferðafræði hefur leitt
til þess að niðurstöðurnar eru ekki á
einn veg. Þessar rannsóknir taka all-
ar tillit til mismunandi tíðni afbrota á
milli hópa. Í þessum rannsóknum er
því verið að svara því hvort svartur
einstaklingur sé t.d. líklegri til að
vera skotinn af lögreglu en hvítur, að
teknu tilliti til hlutfallslegs fjölda af-
brota sem svartir fremja.
Þegar niðurstöður þessara rann-
sókna eru dregnar saman gefa þær
sterka vísbendingu um að það þurfi
almennt minna til að svartir ein-
staklingar séu handteknir en hvítir,
og að þeir séu frekar beittir ýmis kon-
ar harðræði1). Það er aðeins meira
misræmi í niðurstöðum rannsókna á
skotárásum lögreglu. En þær sem ná
yfir langt tímabil og stóran hluta
Bandaríkjanna sýna að svartir eru
líklegri en hvítir til að vera skotnir af
lögreglu2). Svarið við spurningunni
um hvort mótmæli BLM eigi rétt á
sér er því já.
Ástæður þess að svörtum Banda-
ríkjamönnum er mismunað af hendi
lögreglu eru margþættar. Ein tengist
staðalmyndum af svörtu fólki sem
hættulegra en annað fólk (sbr. kyn-
þáttafordómar). Margir hafa svip-
aðar staðalmyndir um fátækt fólk og
fólk sem býr í hverfum þar sem
margir íbúar eru svartir3).
Það hefur einnig verið bent á að
þjálfun lögreglu sé mjög ábótavant.
Til samanburðar þurfa bandarískir
lögregluþjónar víða að fara á þriggja
mánaða námskeið áður en þeir fá
réttindi til að starfa sem lögreglu-
menn4). Á Íslandi þurfa nú lög-
regluþjónar að ljúka tveggja ára há-
skólanám þar sem mikil áhersla er
lögð á starfsþjálfun og bóklega
áfanga í lögfræði, sálfræði og félags-
og afbrotafræði.
Svartir Bandaríkjamenn
og hærri tíðni afbrota
Fólk hefur gert lítið úr réttmæti
BLM-hreyfingarinnar með því að
vísa í hærri tíðni afbrota svartra
Bandaríkjamanna. Fólk nefnir mis-
munandi tölur sem margar eru
byggðar á rangtúlkun á afbrotatöl-
fræði. Til dæmis hefur fólk notað
hlutfall ofbeldisbrota svartra í ákveð-
inni borg í samhengi við hlutfall
þeirra í Bandaríkjunum almennt. En
hlutfall svartra íbúa er mun hærra í
borgum eins og New York en í
Bandaríkjunum almennt. Einnig hafa
verið notaðar tölur yfir grunaða,
handtekna eða fjölda í fangelsum til
að benda á hlutfall brota sem svartir
fremja. Engar þessara talna gefa
okkur raunverulegan fjölda afbrota
sem eru framdir af ólíkum hópum
fólks. Sem dæmi er nokkuð hátt hlut-
fall morðmála í Bandaríkjunum
óleyst og því ekki nokkur leið að vita
hvernig gerandi lítur út.
Þegar bestu gögn um tíðni afbrota
eru tekin saman, t.d. opinber gögn og
stórar kannanir sem spyrja bæði þol-
endur og gerendur, gefa þau til
kynna að hlutfallslega fleiri svartir
Bandaríkjamenn en hvítir gerist sek-
ir um ofbeldi. En munurinn er ekki
eins mikill og margar tölur sem er
dreift um netið gefa til kynna. Stór
hluti af þessum mun liggur í því að
ungir svartir menn eru líklegri en
hvítir til að búa í hverfum þar sem fá-
tækt er mikil og þar sem of margt
ungt fólk deyr af völdum gengja-
stríða5).
En af hverju býr hærra hlutfall
svartra í slíkum hverfum? Flestar
rannsóknir benda til þess að löng
saga af skertum tækifærum til
menntunar og atvinnu sé þar stór
þáttur. Margra kynslóða mismunun
hefur jafnframt áhrif á sjálfsmynd og
væntingar fólks til menntunar og at-
vinnu.
Það að fæðast utan hjónabands
hefur í sjálfu sér ekki áhrif, eins og
við Íslendingar ættum sérstaklega að
vera meðvituð um. Enda fæðist hér
hærra hlutfall barna utan hjónabands
en víða annars staðar. Það að alast
upp hjá einstæðu foreldri getur haft
áhrif í samfélögum sem eru byggð
upp fyrir börn sem alast upp hjá
tveimur foreldrum, þar sem félagsleg
aðstoð er lítil. Það má því segja að
skortur á félagslegri aðstoð við ein-
stæða foreldra geti ýtt undir afbrot
frekar en það að alast upp hjá ein-
stæðu foreldri.
Krafan um að draga
úr fjármagni lögreglu
Skortur á félagslegri aðstoð tengist
beint kröfu margra mótmælenda um
að draga úr fjármagni lögreglu.
Margir líta svo á að ef dregið er úr
fjármagni lögreglu verði til peningar
til að setja í annars konar félagslega
aðstoð. Í þessu samhengi hefur verið
nefnt að draga þurfi úr heimilisleysi,
hjálpa fólki sem á við fíkniefnavanda
að stríða, auka tækifæri ungs fólk til
að mennta sig og auka aðgengi að sál-
fræði- og félagsráðgjöf. Fólk hefur
bent á að aukið fjármagn í aðrar
stofnanir en lögregluna muni gera
meira fyrir samfélagið í heild, sér-
staklega fyrir fólk sem býr við bágar
félags- og efnahagsaðstæður. Fé-
lagsleg aðstoð er talin frekar til þess
fallin að fækka afbrotum heldur en
aukin löggæsla. Fáir Bandaríkja-
menn vilja hins vegar leggja niður
lögregluna.
Afvegaleiðing umræðunnar
Fólk hefur bent á að svartir lög-
regluþjónar skjóti svarta borgara um
það bil hlutfallslega jafn oft og hvítir.
Aðrir hafa lagt áherslu á að hvítir
Bandaríkjamenn séu líka drepnir af
lögreglu. Auk þess hefur verið bent á
að lögregluþjónar séu drepnir við
störf sín. Allt þetta er rétt. Það er líka
rétt að myndbönd af slíku fara yfir-
leitt ekki í dreifingu á netinu né er
fólk að mótmæli vegna þessara mála.
Ástæða þess að myndbönd af hvít-
um lögregluþjónum að beita svarta
borgara harðræði fara í dreifingu og
ýta undir fjöldamótmæli er að slík
myndbönd virðast staðfesta það sem
margir upplifa að sé útbreitt vanda-
mál í Bandaríkjunum, að lögreglan
mismuni svörtu fólki. Margir trúa því
að of margir lögregluþjónar séu
haldnir kynþáttafordómum eða að al-
mennar aðgerðir lögreglu mismuni
svörtu fólki (sbr. kerfisbundin mis-
munun). Í samræmi við það sem hér
hefur komið fram upplifir svart fólk
að því sé mismunað af hendi lögreglu
vegna þess að því ER mismunað af
hendi lögreglu.
Lögreglustarfið er hættulegt og
flókið starf. Það er verðugt verkefni
að finna leiðir til að draga úr hætt-
unni og úr því álagi sem margir lög-
regluþjónar upplifa. Það verkefni
þarf þó ekki að koma í veg fyrir að
fólk geti krafist bættrar löggæslu. Að
láta eins og það þurfi að velja á milli
þessara tveggja kosta hefur aðeins
þann tilgang að afvegaleiða um-
ræðuna. Það sama má segja um þann
málflutning að til þess að auka fé-
lagslega aðstoð þurfi að draga úr fjár-
magni til lögreglu. Það er ekki ólík-
legt að aukin menntun og þjálfun
lögreglu skili sér bæði í minni mis-
munun gegn minnihlutahópum og í
öruggara starfsumhverfi lögregl-
unnar.
Ef aðferðir lögreglunnar í Banda-
ríkjunum mismuna svörtu fólki á
kerfisbundinn hátt, t.d. með því að
herja á íbúa í hverfum þar sem flestir
eru svartir, hefur kynþáttur einstaka
lögregluþjóns lítil sem engin áhrif.
Það að svartir lögregluþjónar skjóti
líka svarta borgara er því ekki stað-
festing á að engin kerfisbundin mis-
munun eigi sér stað innan lögregl-
unnar.
Nýlega las ég íslenska grein þar
sem því var haldið fram að fólk sem
tekur þátt í BLM-hreyfingunni geri
þá kröfu að svörtu fólki sé ekki refsað
fyrir afbrot sín. Eftir töluverða leit
hef ég ekki fundið nokkurn sem hefur
gert þá kröfu. Há tíðni svartra meðal
þeirra sem eru handteknir, ákærðir
og dæmdir í fangelsi staðfestir ein-
mitt að svartir Bandaríkjamenn séu
látnir bera ábyrgð á sínum brotum.
Í fullkomnum heimi myndu stjórn-
endur fara ítarlega yfir stöðuna frá
mismunandi sjónarhornum og finna
viðeigandi lausnir til að bæta lög-
gæslu. Þeir myndu kalla til sín sér-
fræðinga sem nota vísindalegar rann-
sóknir til að svara því hvernig staðan
er og hvað þarf að gera. Í fullkomnum
heimi værum við ekki að lesa fréttir
um að brotið sé á mannréttindum
mótmælenda. Né að lesa um
skemmdaverk og ofbeldi mótmæl-
enda í annars að mestu friðsamlegum
mótmælum. Það að búa ekki í full-
komnum heimi dregur ekki úr rétt-
mæti BLM-hreyfingarinnar.
1) https://tinyurl.com/y4t4pzox
2) https://tinyurl.com/yxhxo5qx
3) https://rb.gy/jsuvwt
4) https://tinyurl.com/yc8xaulf
5) https://rb.gy/v2hlxy
Rasismi og BLM
Eftir Margréti
Valdimarsdóttur
» Alls konar fólk um
allan heim tekur
þátt í hreyfingunni
Black Lives Matter
(BLM). Þetta fólk á
það sameiginlegt að
vilja berjast gegn
kynþáttamismunun.
Margrét
Valdimarsdóttir
Höfundur er doktor í afbrotafræði
Í seinustu grein sinni í
Morgunblaðinu 25. sept.
sl. vitnar Vilhjálmur
Bjarnason nálægt upp-
hafi orðrétt í minning-
argrein mína um Ey-
stein Þorvaldsson
prófessor þrem dögum
fyrr (án þess þó að geta
höfundar). Þar sem
hann rangtúlkar orð mín
tel ég mér nánast skylt
að birta leiðréttingu, ekki síst þar
sem ég býst við að hann mistúlki
ekki vísvitandi, heldur trúi sjálfur
eigin misskilningi.
Ég gat þess að Eysteinn hefði ver-
ið einn þeirra ungu Íslendinga sem
héldu til náms „fyrir austan tjald“
eftir miðja síðustu öld. Síðan kemur
hin beina tilvitnun í minn texta frá
Vilhjálmi:
„Flest urðu þau fyrir nokkrum
vonbrigðum með „sósíalismann“ en
reyndu lengi vel að sýna skilning á
vandamálinu sem tímabundnum
erfiðleikum eða utanaðkomandi
þrengingum. Þau fóru snemma að
bera saman bækur sínar skriflega og
leita skýringa og komust smám sam-
an að þeirri sameiginlegu niðurstöðu
að sovéska fyrirmyndin væri enginn
sannur sósíalismi
hvað þá kommúnismi.
Þetta var að því leyti
nýstárlegt að niður-
staðan var ekki
sprottin af pólitískum
fjandskap, heldur
miklu fremur upp-
haflegri velvild.“
Þessa klausu mína
kynnir Vilhjálmur
með eftirfarandi orð-
um: „Þannig segir á
einum stað um þá
sem trúðu:“
Við þessa túlkun er það að athuga
að mikill munur er á von og trú.
Hvorki Eysteinn né ég vorum trú-
hneigðir og trúðum ekki fölskvalaust
á eitthvert sæluríki fyrir austan.
Hinsvegar gerðum við okkur á yngri
árum vonir um að í svonefndum al-
þýðulýðveldum væri verið að reyna
að aflétta því arðráni sem mestur
hluti mannkynsins hefur þurft að
búa við eins lengi og heimildir ná.
Ég þekkti vitaskuld ekki hjartað og
nýrun í hverjum og einum en tel víst
að langflest hafi verið á svipuðu róli,
viljað kynna sér ástandið af eigin
raun og smám saman komist að fyrr-
greindri niðurstöðu, hver með sínum
hætti, að hér væri ekki um sósíal-
isma í þeirra skilningi að ræða. Samt
væri hægt að stunda þar nám rétt
einsog annarstaðar þótt menn væru
ekki sáttir við stefnu stjórnvalda í
ýmsum málum. Menn héldu bara
áfram að vera sósíalistar eftir eigin
höfði.
Annað mál er að það fólk var
vissulega til, einkum meðal alda-
mótakynslóðarinnar, sem barði
höfðinu við steininn og vildi ekki
trúa öðru en Sovétríkin væru á réttri
leið. En þau voru tæpast teljandi á
fingrum annarrar handar meðal
þeirra sem dvöldust þar eftir síðari
heimsstyrjöld.
Moggalygi
Vilhjálmur gleður mig óvænt með
því að gefa upp annan bolta. Hann
segir:
„Moggalygin var að mestu sann-
leikur, en það skyldi aldrei viður-
kennt.“
Hér er um aðra innrætingu að
tefla. Morgunblaðið hélt því löngum
fram að vinstrimenn notuðu orðin
Morgunblaðslygi eða Moggalygi um
frásagnir Morgunblaðsins af ástand-
inu austantjalds. Þetta er ekki rétt.
Þá sjaldan þessi orð voru notuð á
prenti af öðrum en Morgunblaðinu
sjálfu var þegar vinstri blöð vísuðu
til frétta Morgunblaðsins af verkföll-
um eða öðrum ágreiningsmálum inn-
anlands. Nú er hægt að leita uppi
orðanotkun á timarit.is. Elstu dæmi
um orðin í vinstri blöðum eru þessi:
Verkamaðurinn 27. mars 1926, 1.
Um frásögn af verkfalli.
Alþýðublaðið 28. júlí 1942, 2. Um
útsvör í Reykjavík.
Þjóðviljinn 22. maí 1951, 4. Um
mannfjölda á útifundi Sósíal-
istaflokksins.
Frjáls þjóð 12. okt. 1957, 1. Um
útsvör í Rvík.
Þjóðviljinn 30. okt. 1957, 3. Um
frásögn af verkfallsbroti.
Þjóðviljinn 2. júlí 1961, 6. Um
styrktarsjóð verkalýðsfélaganna.
Eina dæmið um notkun vinstra
blaðs á þessu orði um austantjalds-
mál er í grein eftir Jóhannes úr
Kötlum 11. janúar 1956, bls. 7 þar
sem hann kallar áróðurinn um
yfirvofandi árás Rússa á Ísland
Morgunblaðslygi. Hinsvegar eru yf-
ir hundrað dæmi um bæði þessi orð í
Morgunblaðinu sjálfu.
Svo vonum við hið besta en trúum
ekki fyrr en við tökum á.
Von eða trú?
Eftir Árna
Björnsson
» Þar sem hann
[Vilhjálmur Bjarna-
son] rangtúlkar orð mín
tel ég mér nánast skylt
að birta leiðréttingu,
ekki síst þar sem ég
býst við að hann mis-
túlki ekki vísvitandi,
heldur trúi sjálfur
eigin misskilningi.
Árni Björnsson
Höfundur er doktor í
menningarsögu.
arnibjorns@simnet.is
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA