Morgunblaðið - 29.08.2020, Qupperneq 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
✝ Þórarinn Arn-fjörð Magn-
ússon fæddist í
Bolungarvík 20.
janúar 1934. Hann
lést á dvalarheim-
ilinu Kirkjuhvoli á
Hvolsvelli 12. sept-
ember 2020. For-
eldrar hans voru
hjónin Hallfríður
Dagmar Sölvadótt-
ir ljósmóðir, f. 2.
október 1905, d. 8. ágúst 1989
og Magnús Guðbergur Guð-
mundsson (uppeldisfaðir) versl-
unarmaður, f. 6. nóvember
1896, d. 24. apríl 1964. Blóð-
faðir Þórarins var Sveinn Jóns-
son leigubílstjóri frá Torfastöð-
um í Fljótshlíð, f. 4. mars 1892,
d. 31. mars 1982. Sammæðra
systir Þórarins var Rúna
Magnúsdóttir Schröder, f. 19.
febrúar 1937, d. 12. júlí 2009.
Þórarinn var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans er Ruth Mar-
grét Friðriksdóttir frá Ham-
Kristrún Dagmar, sambýlis-
maður Halldór Fannar Sig-
urfinnsson. Seinni maki Frið-
riks er Þórunn Óskarsdóttir og
eiga þau tvær dætur: 1)
Freyja, unnusti Aron Ísak, 2)
Selma.
Seinni kona Þórarins var
Matthildur Guðmundsdóttir frá
Núpi í Fljótshlíð, f. 1. nóv-
ember 1925, d. 12. ágúst 2002.
Þórarinn ólst upp fyrstu árin
sín á Bíldudal og flutti síðar
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur. Hann gekk í
Landakotsskóla og fór síðan í
Verslunarskólann, Samvinnu-
skólann og Tollvarðaskólann.
Ferðalög áttu snemma hug
hans og ungur að árum vann
hann á millilandaskipum við
ýmis störf og einnig fór hann
sem fararstjóri á Gullfossi.
Hann vann á Veðurstofu Ís-
lands í Keflavík um nokkurra
ára bil og réð sig síðan sem
tollvörður og síðar tollfulltrúi
á skipavakt í Reykjavík og
starfaði þar í 40 ár. Síðustu tvö
starfsárin sín vann hann sem
húsvörður hjá Landsbanka Ís-
lands á Laugavegi. Auk ferða-
laga hafði Þórarinn mikinn
áhuga á málaralist.
Útförin fór fram í kyrrþey.
borg í Þýskalandi,
f. 10. ágúst 1934.
Þau eignuðust tvö
börn, Hallfríði
Dagmar, f. 3. júní
1956 og Friðrik
Sölva, f. 9. apríl
1960. Hallfríður
Dagmar er búsett í
Þýskalandi og á
þrjú börn með
fyrrverandi eigin-
manni sínum,
Heinz Munch: 1) Britta Ingunn,
maki Fabian Jansen, dóttir
þeirra er Ylva Karlotta, 2) Nils
Munch og 3) Olaf Munch. Frið-
rik Sölvi er búsettur á Hvols-
velli. Hann var giftur Jónínu
Huldu Gunnlaugsdóttur og
eiga þau þrjár dætur: 1) Ruth
Margrét, maki Auðun Daní-
elsson, 2) Arnleif Margrét,
sambýlismaður Sölvi M. Lúð-
víksson, Arnleif á þrjú börn,
Örnu, Söru og Kára með fyrr-
verandi sambýlismanni sínum
Steinari Baldurssyni og 3)
Það var fyrir 24 árum að ég
kynntist tengdapabba, Þórarni.
Svo skemmtilega vildi til að þeg-
ar ég kynnist eiginmanni mín-
um, Friðriki, komumst við að
því að við erum þremenningar
og ég því að eignast nýja frænd-
ur. Ég komst fljótt að því að
Þórarinn hafði mikla unun af því
að lesa og þar áttum við sameig-
inlegt áhugamál. Hann las
Morgunblaðið í ræmur í orðsins
fyllstu merkingu því hann tók
það allt í sundur og það var
ómögulegt að kíkja í Moggann
eftir að hann var búinn með
hann. Hann drakk allt í sig sem
þar stóð og mundi svo allt sem
hann las. Hann var vel talandi á
þýska tungu og var áskrifandi
að þýsku blöðunum Stern og
Spiegel til margra ára og hans
gæðastundir voru að lesa þessi
blöð, drekka svart kaffi, fá sér
sígó og maula smá namms
namms, en meiri nammigrís er
vandfundinn.
Skip og allt sem þeim tengd-
ist áttu hug hans allan og það
voru ekki fáar sögurnar sem
hann gat sagt þegar hann vann í
tollinum á skipavakt og „Foss-
arnir“ hans voru að koma. Hjá
tollinum vann hann í 40 ár og
var vel liðinn. Hann tók stund-
um að sér fararstjórn, bæði inn-
anlands og utan, og það var í
einni slíkri skipsferðinni sem
hann kynntist seinni konu sinni
Matthildi, sem lést 2002.
Önnur skemmtileg tilviljun
sem kom í ljós þegar ég kom inn
í fjölskyldu Þórarins var sú að
Matthildur og pabbi minn voru
jafnaldrar og fermingarsystkin
og bæði úr Fljótshlíðinni.
Hann var vel inni í heimsmál-
unum og hafði sterkar skoðanir
á hlutunum og gat alveg látið
menn heyra það ef þeir voru á
annarri skoðun. Eftir að tengda-
pabbi var orðinn einn kom hann
yfirleitt um jólin til okkar á
Hvolsvöll. Friðrik fór þá oftast á
Þorláksmessu og sótti hann og
við borðuðum rúgbrauð, reyktan
silung, egg og hann drakk te
með. Þegar hann var búinn
nuddaði hann nefið og munninn
aftur og aftur með vasaklútnum
sínum og sagði okkur sögur frá
gamla tímanum. Það verður
skrýtið að upplifa Þorláksmessu
og jólin án þess að Þórarinn sé
með okkur.
Nú þegar ljóst er að þessar
sögur frá gamla tímanum, sem
manni fannst nú stundum of oft
kveðnar, munu ekki hljóma í
eyrum manns aftur fyllist maður
söknuði. Þórarinn elskaði að
ferðast og fór víða, bæði sjó- og
flugleiðis, og þekkti marga staði
í heiminum. Nú er síðasta ferða-
lag hans á nýjan stað hafið og
þar mun Matthildur taka vel á
móti honum og þau ferðast sam-
an um nýja heima.
Með þakklæti fyrir samfylgd-
ina.
Þín tengdadóttir,
Þórunn Óskarsdóttir.
Elsku afi. Ég á bágt með að
trúa því að við eigum ekki eftir
að fara á fleiri bryggjurúnta
saman, mér verður alltaf hugsað
til þín þegar ég keyri um á
Granda og man eftir öllum
skemmtilegu sögunum sem þú
sagðir okkur, þá oftast sögur úr
Tollgæslunni. Heimsóknirnar á
Háaleitisbrautina voru alltaf
jafn skemmtilegar, og ekki
skemmdi að þú áttir alltaf
namms namms handa okkur
Selmu! Jólin eru og verða alltaf
sú hátíð sem mér verður hvað
mest hugsað til þín, það var svo
hátíðlegt þegar þú varst kominn
í sætið þitt í sófanum að lesa
blöðin og hlusta á jólakveðjurn-
ar, það er alveg á hreinu að þú
komst með jólin og ég er svo
þakklát fyrir allar þær yndis-
legu samverustundir sem við
áttum. Takk fyrir allan stuðn-
inginn í öllu sem ég tek mér fyr-
ir hendur afi, ég veit að þú held-
ur áfram að styðja mig hvar
sem þú ert.
Hvíldu í friði afi minn, minn-
ingu þína mun ég varðveita að
eilífu.
Freyja Friðriksdóttir.
Nýlega hefur vantað fleiri
engla upp til himna og ákvað
guð að afi væri bestur í það
hlutverk.
Afi hefur alltaf verið stuðn-
ingsmaður minn og stutt mig í
öllu sem ég geri hvort sem það
er í skóla eða fótbolta. Afi hafði
mikla trú á mér í boltanum og
sagði oft við vinkonur mínar
sem vinna á dvalarheimilinu sem
hann dvaldi á að hann væri svo
stoltur af mér. Ég fæ alltaf hlýtt
í hjartað við þessa tilhugsun. Ég
ætla að halda áfram að gera þig
stoltan, afi.
Takk fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman, fyrir allan
stuðning sem þú hefur veitt
mér, fyrir allt símaspjallið og
takk afi fyrir að vera til staðar
fyrir okkur öll.
Minning þín er ljós í lífi mínu.
Þín
Selma.
Ég hafði lengi vonað að á vegi
mínum yrði maður að nafni Þór-
arinn A. Magnússon. Einkenni-
legt var að gera þá ekki gang-
skör að því að leita manninn
uppi, en af einhverjum ástæðum
gerði ég það ekki. En svo kom
að því að leiðir okkar Þórarins
lágu saman, og það á mjög
ánægjulegan hátt þegar verð-
andi eiginkona hans og vinnu-
félagi minn, Matthildur Guð-
mundsdóttir, kynnti okkur, en
við erum hálfbræður samfeðra.
Það kom nokkru síðar í minn
hlut að segja þeim Þórarni
hverra manna hann væri og
höfðu þau í fyrstu eingöngu mín
orð fyrir því, en sem betur fer
hafa þau reynst á rökum reist.
Við nánari kynni gast mér ákaf-
lega vel að Þórarni og ég fann
með honum skyldleika. Fyrir til-
stuðlan Matthildar tókust með
okkur góð kynni og vinátta sem
entist í áratugi. Þórarinn var
mannkostamaður. Hann var
ekki allra; valdi vini af kost-
gæfni en nennti ekki að sinna
öðrum. Hann var ákaflega
trygglyndur. Þórarinn reyndist
móður sinni einstakur sonur,
ekki síst í elli hennar, og Matt-
hildi góður maki. Sambúð þeirra
var fögur. Hún einkenndist af
svipuðum áhugamálum og mik-
illi tillitssemi. Þórarinn var
nokkur heimsborgari að eðlis-
fari; átti vegna vensla mikil
tengsl við Þýskaland, og var
góður þýskumaður. Hann las
heimsfréttir af þýskum tímarit-
um. Að loknu góðu námi meðal
fyrstu nemenda Samvinnuskól-
ans freistuðu hefðbundin versl-
unarstörf hans ekki; hann réðst
til Veðurstofu Íslands. Með hon-
um hafði snemma vaxið áhugi á
útlöndum, hann hafði ungur
kynnst farmennsku hjá Ríkis-
skipum og í leyfum réðst hann í
afleysingar hjá Eimskip. Á þess-
um árum voru í fæðingu störf
hérlendis sem lutu að farar-
stjórn. Efnt var til námskeiða til
að búa ungt fólk undir að taka á
móti erlendum ferðamönnum, en
ekki síður að leiðbeina löndum
sínum í ferðum til útlanda. Þór-
arinn var á fyrsta námskeiðinu
og bjó að því alla ævi. Aldrei
gerði hann þó fararstjórn að að-
alstarfi, en auðnaðist að sinna
henni með öðrum störfum, eink-
um erlendis. Hann hætti hjá
Veðurstofunni en starfaði sem
tollvörður lengst ævinnar,
löngum sem yfirmaður. Hann
var mjög farsæll í starfi og mik-
ils metinn. Við Matthildur Guð-
mundsdóttir frá Núpi í Fljóts-
hlíð vorum árum saman
vinnufélagar í Prentsmiðju Jóns
Helgasonar á Bergstaðastræti
27, síðar í Gutenberg í Síðumúla
16. Þegar ég hitti Matthildi
fyrst í prentsmiðjunni fannst
mér að ég hefði lengi þekkt
hana, svo sterkt svipmót bar
hún af Fljótshlíðarkonunum sem
ólu mig upp að hluta á Torfa-
stöðum í Fljótshlíð. Hún var
heilsteypt mannkostakona. Ég
þekkti vel til hennar fólks frá
Núpi, en hitt var merkilegra að
þegar til kom þekkti hún mjög
vel til ættmenna Þórarins í
Fljótshlíð. Það reyndist gæfurík
ákvörðun hjá Matthildi að fara í
jólaferð með Gullfossi til Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Þórarinn var um borð sem far-
arstjóri, einkum í höfnum. Með
þeim tókust þau kynni að leiddu
til farsællar sambúðar meðan
Matthildur lifði. Blessuð sé
minning Þórarins A. Magnús-
sonar. Ég votta öllum aðstand-
endum hans samúð mína.
Sverrir Sveinsson.
Komið er að kveðjustund.
Margar kærar og ljúfar minn-
ingar koma upp í hugann þegar
minnst er liðinna ára.
Þórarinn kemur inn í fjöl-
skylduna á Núpi þegar hann
kynnist Matthildi systur okkar
og þau gifta sig og fara að búa
saman. Það var mikill ævintýra-
ljómi yfir þeirra fyrstu kynnum.
Þau höfðu kynnst í siglingu á
Gullfossi, þar sem hann var að
vinna. Gaman var að heyra þau
rifja upp þennan rómantíska og
góða tíma í lífi þeirra sem var
þeim alla tíð kær. Þau bjuggu
sér til heimili á Háaleitisbraut-
inni þar sem gott var að koma.
Heimilið var sérlega fallegt og
notalegt og þau svo samvalin að
nostra við hlutina því bæði
höfðu yndi af fallegum munum.
Og ekki spillti að fá gesti í heim-
sókn í veitingar og gott spjall.
Þetta var góður tími sem gott er
að minnast.
Þau voru dugleg að ferðast,
fóru til sólarlanda og fleiri
staða, meðal annars til Þýska-
lands þar sem hluti af fólki hans
bjó. Áttu þau góðar minningar
frá þeim ferðum sem gaman var
að heyra þau segja frá.
Nú hefur Þórarinn kvatt og
er horfinn inn í sumarlandið og
þar verður honum örugglega vel
fagnað.
Við þökkum honum fyrir allan
þann góða tíma sem við áttum
saman og óskum honum Guðs
blessunar. Fjölskyldunni send-
um við innilegar samúðarkveðj-
ur.
F.h. fjölskyldunnar frá Núpi,
Sigríður Guðmundsdóttir.
Þórarinn Arnfjörð
Magnússon
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
THEODÓR S. ÓLAFSSON
vélstjóri og fyrrverandi útgerðarmaður,
Bessahrauni 6 í Vestmannaeyjum,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum
16. september. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn
2. október klukkan 13.
Margrét Sigurbjörnsdóttir
Þorbjörg Theodórsdóttir Haukur Logi Michelsen
Hafþór Theodórsson Hanna Ragnheiður Björnsd.
Júlíanna Theodórsdóttir Ingólfur Ingólfsson
Bára Theodórsdóttir Tommy Westman
Björk Theodórsdóttir
Harpa Theodórsdóttir Örvar Guðni Arnarson
og fjölskyldur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES GÍSLASON,
Hafnargötu 73, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 21. september.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 6. október klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina.
Adolf A. Jóhannesson
Ninna Jóhannesdóttir
Óli C. Jóhannesson
Gísli Ragnar Jóhannesson
Júlíana Guðrún Ósk Jóhannesdóttir
og fjölskyldur
Faðir okkar,
ÓMAR BERGMANN GÚSTAFSSON
frá Akranesi,
lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn
3. september. Jarðsett var í kyrrþey.
Krístín María Ómarsdóttir
Gústaf Guðbjörn Ómarsson
Olga Björk Ómarsdóttir
Sigurður Ingimar Ómarsson
Sigríður Alda Ómarsdóttir
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
GUÐMUNDUR GUÐLAUGSSON,
fyrrv. verkstjóri, Hofteigi 22,
Reykjavík,
lést laugardaginn 19. september á Hrafnistu
í Reykjavík. Útför hans fer fram frá
Laugarneskirkju fimmtudaginn 1. október klukkan 13.
Vegna aðstæðna verður útförin einungis fyrir nánustu fjölskyldu.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni:
https://youtu.be/DDGU6hpIM-c. Þökkum auðsýnda samúð.
Jóhanna Pálsdóttir
Páll R. Guðmundsson Guðrún Björk Bjarnadóttir
Hákonía J. Guðmundsdóttir
Elín B. Guðmundsdóttir Grettir Hreinsson
G. Skúli Guðmundsson Elizabeth Sargent
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SÆBERG ÞÓRÐARSON
fasteignasali,
Hlaðhömrum 2,
áður Áshamri, Mosfellsbæ,
lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn
15. september. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju
föstudaginn 2. október klukkan 13.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á styrktar og líknarsjóð
Oddfellowa.
Magný Kristinsdóttir
Hekla Karen Sæbergsdóttir Friðrik Guðmundsson
Hulda Katla Sæbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn