Morgunblaðið - 29.08.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Veiði
Vegna flutninga
og skipulagsbreytinga
Seljum neoprene mittisvöðlur og skó til
strandveiða. Einning öndunarvöðlur og skó.
Flugustangir og fluguhjól, strandveiðistangir,
og hjól. Ásamt úrvali af spúnum til lax-,
silungsveiða og strandveiða, ásamt ýmsu
veiðidóti til sportveiða.
Opið verður á mánudag, þriðjudag, miðviku-
dag og fimmtudag frá kl. 13.00-17.00,
föstudag frá kl. 13.00-16.00.
I. Guðmundsson ehf.,
Nethyl 1,
110 Reykjavík, sími 533 1999
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30, nóg pláss. Botsía kl.
10.15. Bíó í miðrými kl. 13. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13.
Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari uppl. í 411-2701 og411-2702. Velkomin. Við
minnum jafnframt alla gesti á að virða þær reglur og fjarlægðartak-
mörk sem gilda vegna Covid 19, en eins og við þekkjum geta þær
breyst með stuttum fyrirvara.
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu-
stofa kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Handa-
vinnuhópur kl. 12-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14 -16. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir
velkomnir. S. 411-2600.
Boðinn Stafgöngunámskeið kl. 10.30 frá anddyri Boðans, frítt er á
námskeiðið og kennari er Sigríður Breiðfjörð Sigurðardóttir. Hádeg-
ismatur kl. 11.20-12.30. Fuglatálgun kl. 13. Miðdagskaffi kl. 14.30-
15.30. Alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Saumastof-
an, grímusaumur með Björgu (og Bryndísi aðstoðarmanni) kl. 10.30.
Leikfimi með Silju kl. 13–13.40. Kaffíhús kl. 14.30. Qi-gong kl. 17 -18.
Bústaðakirkja Félagsstarfið á sínum stað á miðvikudögum kl. 13-16.
Spil, handavinna, upplestur, hugleiðing og bæn. Ung og upprennandi
söngkona, Katrín Eir Óðinsdóttir, syngur fyrir okkur yfir kaffibollanum.
Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Fossvogsprestakalls.
Fella og Hólakirkja kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stund-
ina. Opið hús frá kl. 13-16. Gestur okkar er dr. sr. Sigurjón Árnir
Eyjólfsson og félagi sem leika á saxafón. Heimsókn frá Hjálpastarfi
kirkjunnar. Verið velkomin.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.10-11. ATHUGIÐ BREYTTUR OPNUNARTÍMI: Thai Chi kl. 9-
10. Myndlistarnámskeið MZ kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Myndlistarhópurinn Kríur opinn hópur kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar
í síma 411-2790.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14.45. Stólajóga Kirkjuhvoli, salur kl. 11, grímuskylda.
Smíði í Smiðju kl. 9 og 13.
Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa. kl. 9-12 keramik-
málun (Gænagróf), kl. 10-10.20 leikfimi gönguhóps (sólstofa), kl. 10.30
gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 glervinnustofa með leiðbeinanda
(Grænagróf).
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, heitt á könnunni kl.
9 til 16.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Tréútskurður og silfursmíði kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Jóga
kl. 14.30–15.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30.
Korpúlfar Listmálun í Borgum kl. 9 í dag og postulínsmálun á sama
stað kl. 9.30. Botsía í Borgum kl. 10 í dag og helgistund á vegum Graf-
arvogskirkju kl. 10.30 í Borgum. Leikfimishópur í Egilshöll fellur niður
vegna Covid. Spjallhópur í listasmiðju í Borgum kl. 13 og sundleik-
fimi í Grafarvogssundlaug með Brynjólfi kl. 14 í dag. Munum að
spritta og virða samfélagssáttmálann.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Matthías Jochumsson. Sr. Skúli S.
Ólafsson fjallar um persónuna, skáldið og prestinn Matthías Joch-
umsson í tilefni 100 ára ártíðar hans. Fjallað verður um uppvöxt hans
og umverfi á Krossgötum dagsins. Kaffi og krúðerí!
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Bækur
Bækur til sölu
Hæstaréttardómar 1920 -1966,
ib., 40 bindi, verð 75 þús.
Spegillinn 1.-34. árg, verð, 50
þús., ób., Veiðimaðurinn 1.-86.
tbl., verð 40 þús., ób., Saga
Alþingis 1-5, ób., verð 10 þús.,
Ferðafélag Íslands 1928-1978,
ib., 50 ár, verð 50 þús.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, og tek að
mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smá- og raðauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
Þá hefur Apa-
vatnshöfðinginn
Baldur afi kvatt og
er haldinn af stað í
Sumarlandið eftir langa og far-
sæla ævi, sólbrúnn að sjálfsögðu.
Það eru til svo margar skemmti-
legar og fallegar minningar um
hann afa enda var hann mikill kar-
akter. Þegar afi varð 95 ára sagði
hann skellihlæjandi: „Sannleikur-
inn er sá að ég hef aldrei upplifað
mig sem gamalmenni.“ Þessi setn-
ing endurspeglar lífsviðhorf hans
þar sem glaðlyndi og jákvæðni
voru einkennandi. Hann var mikið
ljúfmenni, einlægur og sannur og
elskaði fólkið sitt og Apavatns-
paradísina, sem hann var svo
stoltur af. Honum vöknaði oft um
augu nú í seinni tíð en aldrei var
það vegna reiði, sorgar eða biturð-
ar. Þvert á móti fannst honum
gæfa sín beggja vegna Hellisheið-
ar og til sjós og lands hafa verið
svo mikil að hann fann oft ekki
nægilega sterk orð til að lýsa því.
Hann var líka mikill húmoristi,
talaði mikið og hló hátt og var allt-
af eitthvað að brasa og dytta að
enda ofvirkur með eindæmum.
Hann faldi suðusúkkulaði og harð-
fisk á ólíklegustu stöðum svona til
öryggis og var mikill matmaður.
Það kom honum reyndar stundum
í klandur, eins og til dæmis í eitt
skipti þegar hann var staddur í
veislu og smurði grænni sultu í
mjög þykku lagi ofan á brauð, en
þegar hann byrjaði að borða
brauðið náði hann vart andanum
því græna sultan var ekki sulta
heldur rótsterkt wasabi. Veislu-
gestirnir gripu andann á lofti og
voru tilbúnir að hringja á sjúkra-
bíl, slík voru viðbrögðin hjá afa.
Ekkert fannst afa þó betra en
Apavatnssilungurinn, sem hann
sagði allra meina bót og taldi að
grunnurinn að langlífinu hefði
verið lagður með miklu silungsáti
á barnsaldri. Baldur afi og Vigga
amma byggðu upp paradís á Apa-
vatni og þaðan eigum við svo dýr-
mætar minningar. Þegar hugur-
inn reikar þangað sér maður
ljóslifandi fyrir sér afa að flaka sil-
unginn niðri við vatn, með vinkon-
ur sínar kríurnar flögrandi yfir og
Baldur Júlíus
Guðmundsson
✝ Baldur JúlíusGuðmundsson
fæddist 9. júlí 1924.
Hann lést 1. sept-
ember 2020.
Útför Baldurs
fór fram 28. sept-
ember 2020.
bátinn vaggandi í
flæðarmálinu og
ömmu að bjástra við
blómin í garðinum og
hlusta á fréttirnar,
nánar tiltekið veður-
fréttirnar. Alsæl í
sinni paradís.
Á rúmu ári höfum
við systurnar misst
alla öldungana okk-
ar, Diddu ömmu,
Gunnar afa, Viggu
ömmu og nú Baldur afa. Þeim eig-
um við svo mikið að þakka og erum
svo þakklátar fyrir að hafa fengið
að verða samferða þeim öll þessi
ár og njóta stuðnings þeirra og
elsku. Þau voru öll miklir vinir og
það er gott að ylja sér við þá hug-
mynd að þau séu öll saman á ný.
Þínar afsteypur,
Helga, Vigdís Eva
og Ásthildur Didda.
Hinn 6. júní 2020 kvaddi Vigga
amma eftir stutt veikindi og nú er
Baldur afi farinn af stað á eftir
henni, en hann lést hinn 1. sept-
ember síðastliðinn. Sumarið 2019
var haldið upp á sameiginlegt stór-
afmæli þeim til heiðurs á Apavatni
og sömdum við lag fyrir hönd
barnabarnanna sem var flutt í
veislunni: Apavatnsminningar.
Amma og afi voru okkur afar góð
og kær, þau voru ávallt boðin og
búin að hjálpa okkur og fylgdust
áhugasöm með því sem við tókum
okkur fyrir hendur. Við vorum
ekki alltaf sammála, sérstaklega
ekki þegar kom að blessaðri póli-
tíkinni, en urðum þá bara sammála
um að vera ósammála. Þeim var
líka svo annt um barnabarnabörn-
in sín stór sem smá og ljómuðu
þegar þau voru í kringum börnin.
Hér er textinn við lagið sem við
sömdum, það verður spilað í jarð-
arförinni hans afa, til þeirra
beggja. Við vonum að þau séu í ei-
lífri sól og sumri núna, enda var afi
sérlega sólsækinn og sólbrúnn
maður og það skipti engu máli
hvernig viðraði, það var alltaf sól
og logn á pallinum hjá ömmu.
Við kveðjum ykkur með þakk-
læti og kærleika elsku amma og
afi.
Höfðinginn situr svo sæll, flakar silunginn
Kríurnar heilsa upp á hann, sníkja mat í
gogginn sinn
Báturinn fylgist spakur með, hvílir
fjörunni í
bíður þess að leggja á Apavatnið á ný
Húsfreyjan situr svo sæl, hlustar fréttir á
Kjötsúpulyktin angandi, leggur
kamínunni frá
Hún horfir glöð á móti sól, steik á
pallinum er,
Maríuerlan flýgur hjá, svo í hreiðrið
laumar sér
Blóðið ykkar rennur í okkar æðum,
gegnum kynslóðir
Ættingjar, á Apavatni, steikjast í logni,
sameinaðir
Við eigum ótal minningar frá þessum
draumastað
og fáum ykkur fyrir það, aldrei fullþakkað
Rollutanginn, fiskinet; uppvask, mý og
mýs
Bensínbrúsi, brenn’og bús; silungur í
tonnavís.
Í skúr og skúffum leynist margt, frá
liðinni tíð
og Apavöllur sameinar, öldunga og
æskulýð
Móinn, aspir, blómálfar, holugrill og ber
Undir bláhimni gítar, ósjaldan mundaður
er
Blóðið ykkar rennur í okkar æðum,
gegnum kynslóðir
Ættingjar, á Apavatni, steikjast í logni,
sameinaðir
Fyrir hönd barnabarna og fjöl-
skyldna,
Baldur Karlsson og
Helga Guðmundsdóttir.
Í samhug okkar bræðranna
munum við eftir brosmildum, góð-
um og afskaplega duglegum afa
sem var ávallt jákvæður og glaður,
barði sér á brjóst, tók lýsi, tók í
nefið og fór í sund á hverjum degi
þar sem hann gerði æfingar áður
en hann settist með hinum köllun-
um og ræddi heimsmálin. Við
munum eftir því þegar við klifr-
uðum ungir upp í vörubílinn hans
með pallinum og hversu magnað
það var að keyra um á þessu rauð-
brúna atvinnutæki hans. Við mun-
um eftir að hafa farið með honum
út á bát á Apavatni, þar sem hann
og amma byggðu upp fjölskyldu-
óðalið sem okkur öllum þykir af-
skaplega vænt um. Við hjálpuðum
honum að leggja ógrynni neta og
draga svo síðar fiskana inn. Fiskar
sem fengu að haldast lifandi þang-
að til í land var komið og oft lengur
í gömlu hvítu kari þangað til afi
mundaði flökunarhnífinn og bjó til
fallegustu urriða- og bleikjuflök.
Við munum eftir hestunum hans
og sérstaklega hinum fallega
Mána sem var tengdur afa á af-
skaplega sérstakan hátt, hestur
sem var vitrari en margur mað-
urinn og töluvert fallegri. Við
munum eftir jólum og áramótum
þar sem sögurnar hans lyftu okkur
öllum upp innra með okkur en ef
kliðurinn varð of mikill átti hann
það til að skrúfa niður í heyrna-
tækinu með bros á vör og fara að
vaska upp. Þetta gerðist oft á ára-
mótunum í Álftamýrinni þar sem
hann átti það til að fá sér einn að-
eins sterkari yfir uppvaskinu og
lauma til okkar eins og einu glasi
þegar við höfðum aldur til. Einn
okkar bræðra man ljóslifandi og
orðrétt setningu sem afi sagði og
munu lokaorðin vera þín afi. Takk
fyrir allt sem þú gafst okkur:
„Ástæðan fyrir því að ég er svona
hraustur og gamall er að ég hef
alltaf verið lífsglaður. Það er mik-
ilvægt að vera lífsglaður.“
Baldur Vignir Karlsson,
Jóhann Helgi Karlsson,
Benedikt Karl Karlsson,
Sigurður Björn Karlsson.
Í dag kveðjum við
Sif Ingólfsdóttur.
Ég kveð hana með
hlýju og söknuði.
Við Sif kynntumst frekar lítið.
Hún var svo lasin, alltaf með súr-
Sif Ingólfsdóttir
✝ Sif Ingólfs-dóttir fæddist
26. janúar 1941.
Hún lést 14. sept-
ember 2020.
Útför Sijfar fór
fram 21. september
2020.
efniskútinn í eftir-
dragi. Ég trúi því að
henni líði vel í sum-
arlandinu hinum
megin. Elsku Sif
mín, núna ert þú bú-
in að kveðja Hótel
Jörð.
Hvíl þú í friði
í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
af öllu mínu hjarta.
(Maren Jakobsdóttir)
Ingrid María Paulsen.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar
sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinar