Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 24
yfir 30 hljómplötur og hefur svo sann-
arlega sett sitt mark á íslenska tón-
listarsögu. Þegar litið er yfir ferilinn
segir Pálmi helst standa upp úr allt
það góða fólk sem hann hefur unnið
með í gegnum tíðina. Hann er hógvær
þrátt fyrir að hafa sungið sig inn í
Lloyd Webber, komu á frumsýning-
una hjá okkur og sátu á fremsta bekk
og við fórum síðan í eftirpartí með
þeim. Það var frábært að hitta þessa
karla og þeir hældu sýningunni í há-
stert.“
Pálmi hefur sungið og spilað inn á
P
álmi Gunnarsson fæddist
að Hóli í Vopnafirði 29.
september 1950 og var
alinn upp í þorpinu á
Vopnafirði. Eftir barna-
skólann á Vopnafirði fór hann í Gagn-
fræðaskólann á Laugum og síðan var
förinni heitið til Danaveldis þar sem
hann fór eitt ár í lýðháskóla. Eftir
námskeið í Verslunarskóla Íslands fór
hann í Tónlistarskóla Reykjavíkur
þar sem hann lærði á kontrabassa hjá
Einari B. Waage.
Eins og alþjóð veit átti fyrir Pálma
að liggja að helga líf sitt tónlistinni.
Auk sólóferils hefur hann starfað í
fjölmörgum hljómsveitum og spilað á
bassa og sungið. Lengsta samstarf
Pálma er án efa með Magnúsi Eiríks-
syni, en hann hefur verið í hljómsveit-
inni Mannakorn frá upphafi og sungið
mörg frægustu lög sveitarinnar sem
hafa greipt sig inn í þjóðarsálina.
„Við Magnús byrjuðum snemma að
vinna saman. Við kynntumst þegar ég
var að leika og syngja í söngleiknum
Jesus Christ Superstar,“ þar sem
Pálmi fór með hlutverk Júdasar. Á
þessum tíma var söngleikurinn heit-
asta verkið á fjölum evrópskra leik-
húsa og þótt víðar væri leitað. „Þótt
ég hefði enga reynslu í leikhúsi var
þetta alveg geysilega skemmtilegt.
Við vorum líka voðalega roggin því
höfundarnir, Tim Rice og Andrew
hjörtu þjóðarinnar með fjölmörgum
lögum eins og Ó þú; Þitt fyrsta bros;
Ég er á leiðinni og Reyndu aftur svo
aðeins örfá séu nefnd. Ekki má heldur
gleyma Gleðibankanum, sem var
fyrsta framlag Íslands í Eurovision.
Árið 2013 gaf Pálmi út bókina
Gengið með fiskum þar sem hann
skrifar þroskasögu sína sem veiði-
manns og um gildi þess að varðveita
náttúruna. „Ég er alinn upp í veiði-
mannasamfélagi þar sem ég var
snemma byrjaður að veiða með stöng.
Ég varð strax heillaður og svo sæki ég
svo margt annað í veiðina, eins og fé-
lagsskapinn, þann gullna hóp af fólki
sem ég veiði með.“ Pálmi fer í fastar
fjölskylduferðir með vinum og fjöl-
skyldunni. „Við skemmtum okkur
konunglega í þessum ferðum og tím-
inn stendur í stað, enda er úrunum
bara hent út um gluggann um leið og
við komum.“ Pálmi veiðir mest á Aust-
urlandi, ekki fjarri sínum æskuslóð-
um, og í síðustu viku var hann í Keldu-
hverfinu að veiða. Hann hefur þó líka
farið út fyrir landsteinana í veiði. „Ég
hafði heyrt að það væri mikil sjó-
bleikjuveiði á Grænlandi og ákvað að
kynnast því af eigin raun og varð heill-
aður. Þetta er stórfenglegt land og of-
boðslega mikið af veiðiám og mikil
veiði.“
Pálmi hefur líka farið oft til Rúss-
lands að veiða á Kólaskaga sem hann
Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður – 70 ára
Rússlandsveiðar Hér er Pálmi með risalax úr Zolotaya ánni á Kólasskaga, en þar hefur hann oft veitt.
Þykir vænst um samferðafólkið
Söngleikur Pálmi fór með
hlutverk Júdasar í Jesus Christ
Superstar árið 1973. Hér sést
hann fremstur á myndinni.
Á sviðinu Pálmi á tónleikum í Eldborg.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er rangt að telja að allt viðgang-
ist bara ef það kemst ekki upp. Gættu þess
að sum mál eru alls ekki ætluð öðrum, þótt
góðir séu.
20. apríl - 20. maí
Naut Streita er óvinurinn. Leitaðu þér hjálp-
ar því betur sjá augu en auga og þá verður
auðveldara að ráða fram úr hlutunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er mikið að gerast hjá þér í út-
gáfumálum, ferðalögum, æðri menntun eða
starfsþjálfun. Vertu því vel undirbúinn og
hafðu öll þín mál á hreinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þögn er ekki bara það að tala ekki
eða skortur á hávaða, hún er viðhorf sálar-
innar. Ef þú vilt gera hlutina vel skaltu gefa
þér þann tíma sem til þarf.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ný vinátta kviknar við furðulegustu að-
stæður. Reyndu að líta sem best út því
fyrstu áhrif geta haft mikil og varanleg áhrif.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ekki létt að bera sig eftir því
sem maður þráir ef maður veit ekki hvað
maður vill. Notaðu daginn til þess að gera
sjálfum þér eitthvað til góða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þegar eitthvað nýtt ber til á tilfinn-
ingasviðinu, er ákaflega varasamt að hlaupa
upp til handa og fóta. Hugsanir okkar skapa
veruleikann sem við búum í.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Brýnustu verkefnin bíða þín nú
heima við. Líf þitt gæti fyllst af dóti sem
gerir ekkert annað en að koma í veg fyrir að
þú sækist eftir raunverulegum og innihalds-
ríkum markmiðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú munu hlutirnir gerast hratt í
lífi þínu. Hættu að vorkenna sjálfum þér því
það eru margir sem hafa það verra en þú.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinur þinn gefur þér eitthvað
sem er frítt eða með afslætti. Það er ein-
hver spenna á heimilinu og því hefðirðu gott
af því að verja tíma með vinum þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hugsaðu þig vandlega um áður
en þú segir af eða á um tilboð sem þér ber-
ast. Láttu það ekki trufla þig þótt möguleik-
arnir séu margir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er lag að blanda geði við vini eða
í öðrum félagsskap. Láttu þér ekki bregða
þótt miklar kröfur séu til þín gerðar.
50 ára Stefán fæddist
í Borgarnesi en fluttist
á fyrsta ári til Djúpa-
vogs, þar sem hann
hefur búið síðan.
Hann hefur verið á sjó
frá fimmtán ára aldri
og er annar stýrimað-
ur á bátnum Jóni Kjartanssyni frá Eski-
firði.
Maki: Kristborg Ásta Reynisdóttir, f.
1968, vinnur í Búlandstindi.
Synir: Guðmundur Helgi, f. 1988, og
Kristófer Dan, f. 1999.
Foreldrar: Helga Stefánsdóttir, f. 1953,
vann á leiksskóla á Höfn og fósturfaðir
Stefáns heitir Reynir Gunnarson, f.
1952, vann hjá Vegagerðinni. Faðir
Stefáns er Kjartan Sigurðsson, f. 1947.
Stefán Þór
Kjartansson
Til hamingju með daginn
Akranes Egill Hrafn Sigurjónsson
fæddist á sjúkrahúsinu og heilsu-
gæslustöðinni á Akranesi hinn 23.
nóvember 2019 kl. 11:26. Hann vó
3.646 g og var 49 cm á lengd.
Foreldrar Egils eru Sigurjón Hrafn
Ásgeirsson og Sjöfn Ylfa Egilsdóttir.
Egill Hrafn á einn eldri bróður, Ásgeir
Úlf, og eina eldri systur sem heitir
Franzisca Ylfa.
Nýr borgari
40 ára María ólst upp
í Reykjavík. Hún er tón-
skáld og tónlistarkona.
María lærði klassískan
fiðluleik og tónsmíðar
en hefur beitt sér víða.
Hún hefur m.a. samið
verk fyrir Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, verið í samstarfi við
listamenn, s.s. Sigur Rós og Ragnar
Kjartansson svo einhverjir séu nefndir.
Hún hefur verið í hljómsveitinni amiinu í
tæp 20 ár.
Maki: Kjartan Sveinsson, f. 1978, tónlist-
armaður.
Dóttir: Móey, f. 2008.
Foreldrar: Sigfús Grétarsson, f. 1955,
skólastjóri, og Ingrid Markan, f. 1954,
þýðandi. Þau búa í Reykjavík.
María Huld Markan
Sigfúsdóttir
VIÐSKIPTA
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ