Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 25
segir magnað svæði. „Rússarnir eru
ekkert ólíkir okkur Íslendingum. Þeir
hafa skemmtilegan húmor, áreið-
anlegt og gott fólk,“ segir Pálmi. „Það
er mikið af laxi þarna, náttúran stór-
kostleg og fjölbreytt dýralíf, hrein-
dýr, ernir, úlfar og birnir.“ Á stefnu-
skránni er að fara í enn frekari víking
með stöng og flugu, og á óskalistanum
eru lönd eins og Chile og Nýja-
Sjáland svo einhver séu nefnd.
Fjölskylda
Eiginkona Pálma er Anna Ólafs-
dóttir, f. 25.7. 1955, dósent við Háskól-
ann á Akureyri. Foreldrar hennar eru
hjónin Jónína Guðrún Tryggvadóttir
Kvaran, f. 2.10. 1924, d. 5.11. 1985,
starfsmaður Fasteignamats ríkisins,
og Ólafur Sigurður Kristjánsson, f.
17.12. 1908, d. 23.3. 1987, starfsmaður
Samvinnutrygginga. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Fyrri eiginkona Pálma var Þuríður
Sigurðardóttir, myndlistarmaður og
söngkona, f. 23.1. 1949. Börn Pálma
eru 1) Sigurður Helgi Pálmason, f.
9.10.1974, safnvörður í Reykjavík.
Börn hans eru Svala Rún, f. 2002,
Haukur Helgi, f. 2011, og Friðrik
Bjarki, f. 2013. 2) Ragnheiður Helga
Pálmadóttir, f. 16.4. 1985, lyfjafræð-
ingur í Kópavogi. Maki hennar er
Jökull Huxley Yngvason tölv-
unarfræðingur og eiga þau dótturina
Kötlu Sól, f. 2018. 3) Ninna Rún
Pálmadóttir, f. 16.12. 1991, kvik-
myndaleikstjóri í Reykjavík.
Hálfbróðir Pálma frá föður er Sig-
valdi Gunnarsson, f. 5.1. 1928, fv.
bóndi, nú búsettur á Húsavík. Al-
systkini eru Kristbjörg Dómhildur, f.
22.10. 1930, húsmóðir í Reykjavík;
Böðvar Sigfinnur Gunnarsson, f. 17.8.
1933, d. 7.5. 2020, útgerðarmaður á
Höfn í Hornafirði; Hreinn, f. 18.10.
1934, d. 20.2. 2009, sjómaður í Vest-
mannaeyjum; Jóna Guðný, f. 18.11.
1937, fv. ljósmóðir í Reykjavík og
Gunnhildur Aagot, f. 6.5. 1942, d. 29.8.
2004, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Pálma eru Hansína Sig-
finnsdóttir, f. 5.1. 1911, d. 28.7. 2000,
húsfreyja og Gunnar Runólfsson, f.
14.10. 1901, d. 9.6. 1978, bóndi að
Dallandi í Vopnafirði.
Pálmi
Gunnarsson
Margrét Albertína Magnúsdóttir
húsfreyja, Böðvarsdal, Vopnafirði
Pétur Sigurðsson
bóndi, Böðvarsdal, Vopnafirði
Kristbjörg Pétursdóttir
húsfreyja, Böðvarsdal, Hofssókn, N.-Múl.
Runólfur Hannesson
bóndi, Böðvarsdal, Hofssókn, N.-Múl.
Gunnar Runólfsson
bóndi, Dallandi, Vopnafirði
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja, Böðvarsdal, Vopnafirði
Hannes Magnússon
bóndi, Böðvarsdal, Vopnafirði
Kristrún Jónsdóttir
vinnukona, Meðalnesi, N.-Múl.
Einar Magnússon
vinnumaður, Skjöldólfsstöðum,
Hofteigssókn, N.-Múl.
Jónína Kristbjörg Einarsdóttir
húsfreyja, Seyðisfirði
Sigfinnur Mikaelsson
bóndi, Seyðisfirði
Jóhanna Kristjana Pálsdóttir
ráðskona, Firði, Dvergsteinssókn
Mikael Gellisson
bóndi, Hálsi í Hálsþinghá
Úr frændgarði Pálma Gunnarssonar
Hansína Sigfinnsdóttir
húsfreyja, Dallandi, Vopnafirði
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
„FÁÐU ÞÉR SÆTI, ÉG LÆT HANN VITA AF
ÞÉR. HANN SLEPPUR ÚT FLJÓTLEGA EF
HANN SÝNIR AF SÉR GÓÐA HEGÐUN.”
„JÆJA, ÓLÍNA MÍN, ÞÚ ÆTTIR AÐ VERA
MEÐ ÞESSI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gefa allt sem
maður getur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐ VAR
ÞETTA?
HVAR ER
ODDI?
KÆLI POTT-
URINN HANS
Í KÆLI POTT-
INUM SÍNUM
MJÁ
MJÁ
HÖRFIÐ! HÖRFIÐ!!
ÞEIR ERU OF MARGIR!
HRÓLFUR ER MEÐ
OFNÆMI FYRIR KÖTTUM!
SVIK OG PRETTIR
- LÖGMANNSSTOFA -
M
JÁ
STURT
Það var á þeim tíma þegar Jón G.Sólnes og Jakob Frímannsson
sátu í bæjarstjórn að menn spaug-
uðu með, að þar væri bara einn listi,
Akureyrarlistinn. Og nú hafa þeir
tímar runnið upp á ný eða eins og
Helgi R. Einarsson sagði á fimmtu-
dag: „Mér datt þetta í hug í nótt, –
enginn meiri- og minnihluti!“:
Nú á Akureyri
ýmsir ráða fá.
Augun eru fleiri,
sem allt það rétta sjá.
Allir öllu ráða,
enginn situr hjá.
Í sameiningu sjá ’ða,
sem að þörf er á.
Engir oftar rífast,
allir segja: Já.
Hver af öðrum hrífast,
hverfur sérhver gjá.
Fanga loksins friðinn,
fara í eina röð.
Sækja á sömu miðin,
sæl og ætíð glöð.
Á Boðnarmiði minnir Ármann
Þorgrímsson á yfirlýsingu (með
mynd) frá bæjarstjórn Akureyrar
um að nú séu öll dýrin í skóginum
vinir:
Gáfur þeirra glöddu mig
greinilega falslaus brosin
Að þau hafi áttað sig
á til hvers þau voru kosin
Síðan veltir hann upp hugs-
anlegum aðgerðum bæjarstjórn-
arinnar:
Öðrum hætta að veita vín
af vinnufötum dusta rykið
ætla að lækka launin sín
en líkast til þó ekki mikið.
Ingólfur Ómar Ármannsson
veltir sjálfum sér fyrir sér:
Útlit þó sé orðið breytt
ei mig plagar fárið,
vaxtarlagið frekar feitt
og farið að þynnast hárið.
Níels skáldi kvað:
Guð sem er brunnur gæskunnar
gjörir hvað vill í ríki sínu;
fær engan þó til farsældar
fært nema gegnum synd og pínu.
Páll Ólafsson orti:
Vonin styrkir veikan þrótt,
vonin kvíða hrindir,
vonin hverja vökunótt
vonarljósin kyndir.
Björn Gunnlaugsson kvað:
Óhultar en áin Rín
út í ratar sæinn,
gjörvallt flytur gæskan þín,
guð, í dýrðar-æginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Akureyrarlistinn
og dýrin í skóginum
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri