Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 26
15. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valskonan Mist Edvardsdóttir fór á
kostum þegar Valur heimsótti Fylki
í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, á Würth-
völlinn í Árbænum í 15. umferð
deildarinnar á laugardaginn síðasta.
Mist, sem er 29 ára gömul, skoraði
fjögur mörk í 7:0-stórsigri Vals-
kvenna en Valskonur eru í efsta sæti
deildarinnar með 40 stig, einu stigi
meira en Breiðablik, sem á leik til
góða á Íslandsmeistarana.
Mist, sem er uppalin hjá Aftureld-
ingu í Mosfellsbæ, hefur leikið með
Val frá árinu 2011 en hún er að koma
til baka eftir að hafa slitið krossband
í þriðja sinn á ferlinum síðasta sum-
ar.
„Þær voru mjög öflugar þegar við
mættum þeim í fyrri umferðinni og
við áttum þess vegna von á hörku-
leik,“ sagði Mist í samtali við Morg-
unblaðið. „Við vorum vissulega ein-
um manni færri í níutíu mínútur
þegar við mættum þeim í júlí en við
mættum mjög vel gíraðar til leiks í
Árbæinn. Þær voru auðvitað aðeins
laskaðar en að sama skapi vorum við
búnar að kortleggja þær mjög vel.
Við breyttumst aðeins áherslum í
okkar leik líka sem virkaði mjög vel.
Ég átti engan veginn von á því að
byrja leikinn og ég var fyrst og
fremst þakklát fyrir að taka þátt í
öllum undirbúningnum. Ég frétti
það svo daginn fyrir leik að ég væri í
byrjunarliðinu og var frábær tilfinn-
ing,“ sagði Mist sem fór af velli eftir
klukkutíma leik en hún á að baki 140
leiki í efstu deild þar sem hún hefur
skorað 24 mörk.
Fór þetta á gleðinni
Mist byrjaði að æfa með Vals-
konum síðasta vetur og átti ekki von
á því að spila með liðinu í sumar.
„Eins og síðustu ár hafa verið hjá
mér þá hefur þetta meira og minna
alltaf verið keppni hjá mér að ná
fyrra formi ef svo má segja. Ég átti
hins vegar aldrei von á því að ég
myndi spila einhvern fótbolta í ár og
ég byrjaði þess vegna að æfa með
liðinu í góðum gír og það var mun
léttara yfir mér en oft áður.
Ég var meira að gera þetta af því
að mér finnst ógeðslega gaman í fót-
bolta, frekar en að setja pressu á
sjálfan mig um að vera byrjuð að
spila aftur á einhverjum tilteknum
tímapunkti. Svo kemur kór-
ónuveirufaraldurinn og tímabilinu er
seinkað fram á árið sem verður þess
valdandi að ég á allt í einu möguleika
á því að ná einhverjum leikjum.
Ég hef farið þetta á gleðinni og
það er ekki hægt að biðja um betri
endurkomu eins og í Árbænum.
Þetta var ógeðslega gaman og al-
gjörlega framar mínum vonum að
skora þessi fjögur mörk.“
Ósátt við tímabilið 2015
Fótboltaferill Mistar, sem á að
baki 13 A-landsleiki, hefur verið
þyrnum stráður.
„Ég missti af síðustu tveimur
leikjum tímabilsins þegar ég greind-
ist með Hodgkins-eitlakrabbamein í
maí 2014. Árið 2015 þurfti ég að taka
mér smá pásu eftir lyfjameðferðina
og ég byrja ekki að æfa aftur fyrr en
í apríl 2015. Ég var mjög ósátt við
það tímabil, persónulega, því ég var
skugginn af sjálfri mér.
Ég tók mér nokkurra mánaða hlé
frá fótbolta og var í smá baráttu við
sjálfan mig. Ég reyndi að sannfæra
mig um að mér fyndist þetta leið-
inlegt en ég prófaði svo að mæta aft-
ur á æfingar í mars 2016. Ég fann þá
að líkaminn var byrjaður að jafna sig
eftir lyfjameðferðina. Ég kláraði svo
tímabilið 2016 og ég var virkilega
sátt við það.
Þegar ég er svo byrjuð að und-
irbúa mig andlega undir undirbún-
ingstímabilið 2017 þá slít ég kross-
band. Ég stend upp, staðráðin í að
komast í gegnum það en slít svo aft-
ur ári síðar og næ ekki einu sinni að
spila keppnisleik inn á milli. Þarna
er heilt ár farið í vaskinn og ég er
búin að slíta tvisvar.
Ég næ svo að spila nokkra leiki
síðasta sumar, áður en ég slít kross-
bandið í þriðja sinn og auðvitað er ég
enn þá hrædd við að slíta það aftur.
Ég hef hins vegar aldrei leitt hugann
að því af einhverju viti að hætta í fót-
bolta,“ bætti Mist við.
Aldrei komið til greina
að hætta í fótboltanum
Mist Edvardsdóttir byrjaði sinn fyrsta leik í 15 mánuði og skoraði fjögur mörk
Morgunblaðið/Hari
Meistari Mist Edvardsdóttir tók fullan þátt í meistarafögnuði Valskvenna síðasta haust þótt hún hefði slitið kross-
band í hné um sumarið og hér ber Fanndís Friðriksdóttir hana á bakinu. Nú er hún komin í byrjunarliðið hjá Val.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
„Þessi byrjun á tímabilinu hefur
verið mjög erfið. Þegar ég sá leikja-
niðurröðunina fyrir tímabilið hugs-
aði ég bara „vá“. Leeds var erfið-
asti andstæðingur sem hægt var að
fá í fyrstu umferð og eftir það voru
leikir gegn Chelsea á útivelli og
Arsenal á heimavelli. Þetta var
mjög erfitt en við unnum þá alla,
sem er gott,“ sagði Jürgen Klopp,
knattspyrnustjóri Liverpool, eftir
3:1-sigur Liverpool á Arsenal á An-
field í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Klopp fór ekki á
neitt flug þrátt fyrir góðan sigur en
áréttaði þó sérstaklega að þótt Liv-
erpool hefði gert varnarmistök
þegar Arsenal skoraði þýddi það
ekki að liðið væri í krísu í vörninni.
Alexander Lacazette kom Arsen-
al yfir á 25. mínútu en Liverpool
svaraði tvívegis fyrir hlé. Sadio
Mané og Andy Robertson skoruðu
og Portúgalinn Diogo Jota bætti
þriðja markinu við fyrir Liverpool
rétt fyrir leikslok.
Fyrstu leikirnir erfiðir
en fullt hús stiga
AFP
3:1 Diogo Jota fagnar marki sínu ásamt liðsfélögunum í gær.
Sveindís Jane Jónsdóttir úr Breiðabliki er áfram með góða forystu í M-
einkunnagjöf Morgunblaðsins en eftir leiki 15. umferðar um helgina er hún
komin með 20 M úr 14 leikjum Kópavogsliðsins. Samherji hennar í fram-
línu Blika, Agla María Albertsdóttir, minnkaði þó forskotið og er komin
með 16 M eftir að hafa fengið tvö fyrir 8:0 sigur liðsins á ÍBV.
Næstar á eftir þeim koma Valskonurnar Hlín Eiríksdóttir með 13 M og
Elín Metta Jensen með 12 M. Þar á eftir koma síðan Alexandra Jóhanns-
dóttir úr Breiðabliki, Betsy Hassett úr Stjörnunni, Berglind Rós Ágústs-
dóttir úr Fylki og Þróttararnir Stephanie Ribeiro og Laura Hughes með 11
M hver. Úrvalslið 15. umferðar má sjá hér að ofan. vs@mbl.is
15. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Erin McLeod
Stjörnunni
Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir
Val
María Ólafsdóttir Gros
Þór/KA
Berglind
Baldursdóttir
Þór/KA
Stephanie Ribeiro
Þrótti
Mist
Edvardsdóttir
Val
Shameeka Fishley
Stjörnunni
Elísa Viðarsdóttir
Val
Kristín Dís Árnadóttir
Breiðabliki
Agla María Albertsdóttir
Breiðabliki
Mary Alice Vignola
Þrótti
5
3
3
4
3 4
2
Keppinautar í framlínu Blika
Lengjudeild kvenna
Afturelding – Augnablik.......................... 1:1
Víkingur R. – Keflavík ............................. 1:5
ÍA – Fjölnir ............................................... 2:0
Staðan:
Tindastóll 16 14 1 1 46:5 43
Keflavík 16 12 3 1 42:15 39
Haukar 16 9 2 5 26:18 29
Afturelding 16 7 4 5 22:19 25
Augnablik 15 6 4 5 26:29 22
Grótta 16 5 5 6 23:30 20
Víkingur R. 16 5 3 8 22:31 18
ÍA 16 3 6 7 22:27 15
Fjölnir 16 2 1 13 7:31 7
Völsungur 15 1 1 13 11:42 4
Tindastóll og Keflavík hafa unnið sér
sæti í úrvalsdeild. Fjölnir og Völsungur eru
fallin í 2. deild.
England
Liverpool – Arsenal................................. 3:1
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður hjá Arsenal.
Fulham – Aston Villa ............................... 0:3
Staðan:
Leicester 3 3 0 0 12:4 9
Liverpool 3 3 0 0 9:4 9
Everton 3 3 0 0 8:3 9
Aston Villa 2 2 0 0 4:0 6
Arsenal 3 2 0 1 6:4 6
Crystal Palace 3 2 0 1 5:3 6
Leeds 3 2 0 1 8:7 6
Tottenham 3 1 1 1 6:4 4
Chelsea 3 1 1 1 6:6 4
Newcastle 3 1 1 1 3:4 4
West Ham 3 1 0 2 5:4 3
Brighton 3 1 0 2 6:6 3
Manch.City 2 1 0 1 5:6 3
Manch.Utd 2 1 0 1 4:5 3
Southampton 3 1 0 2 3:6 3
Wolves 3 1 0 2 3:7 3
WBA 3 0 1 2 5:11 1
Burnley 2 0 0 2 2:5 0
Sheffield Utd 3 0 0 3 0:4 0
Fulham 3 0 0 3 3:10 0
Þýskaland
B-deild:
Paderborn – Hamburger SV.................. 3:4
Samúel Kári Friðjónsson var ekki í leik-
mannahópi Paderborn.
Ítalía
Bologna – Parma ..................................... 4:1
Andri Fannar Baldursson var á vara-
mannabekknum hjá Bologna.
Belgía
Genk – Oostende...................................... 2:2
Ari Freyr Skúlason var ekki í leik-
mannahópi Oostende.
Holland
B-deild:
Jong Ajax – Excelsior ............................. 3:0
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Danmörk
Nordsjælland – Lyngby .......................... 4:1
Frederik Schram var varamarkvörður
hjá Lungby.
Svíþjóð
AIK – Mjällby ........................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem
varamaður hjá AIK á 70. mínútu.
Staða efstu liða:
Malmö 22 12 8 2 42:21 44
Norrköping 22 10 6 6 45:32 36
Elfsborg 22 8 12 2 34:28 36
Häcken 21 9 8 4 33:22 35
Danmörk
Kolding – Fredericia ...........................31:22
Ágúst Elí Björgvinsson varði 17 skot í
marki Kolding. 46% markvarsla.
Svíþjóð
Guif – Hallby ........................................ 21:30
Daníel Freyr Ágústsson varði 5 skot í
marki Guif. 25% markvarsla.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, úrslit:
Miami – Boston................................. 125:113
Miami sigraði 4:2 og mætir LA Lakers í
úrslitaeinvíginu sem hefst annað kvöld.
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin:
Þórsvöllur: Þór – Afturelding ............. 15.30
Olísvöllur: Vestri – Fram..................... 15.45
Grindavík: Grindavík – Víkingur Ó..... 15.45
Nettóvöllur: Keflavík – ÍBV ................ 15.45
Fjarðab.höll: Leiknir F. – Leiknir R ....... 17
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Magni........ 18
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Mustad-höll: Grindavík – Hamar/Þór 19.15
Í KVÖLD!